Morgunblaðið - 22.04.1992, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
Reuter
Afganskir skæruliðar undir
stjórn Ahmads Shah Mosoods á
verði við herstöð skammt norðan
við Kabúl í gær.
Gulbuddin Hekmatyar
Ættbálkaeijur skapa hættu
á að Afganistan leysist upp
Lundúnum. The Daily Telegraph.
HÆTTA er á að stríðandi fylkingar skæruiiða og ættbálkahöfðingj-
ar skipti Afganistan á milli sín takist embættismönnum Sameinuðu
þjóðanna ekki að tryggja myndun samsteypustjórnar á allra næstu
dögum. Afganistan hefur smám saman verið að liðast í sundur frá
þvi síðustu sovésku hermennirnir voru fluttir þaðan í febrúar 1989.
Dagar leppstjórnar Najibullahs forseta voru í raun taldir þegar hún
varð af hernaðar- og matvælaaðstoð Sovétmanna, sem nam um 177
milljörðum ÍSK á ári. Nú virðist enginn leiðtogi hafa nægan herafla
og njóta nægilegs stuðnings á meðal landsmanna til að geta haldið
landinu saman.
Stjórnin í Kabúl og leiðtogar
Vesturlanda vonast til þess að
Ahmad Shah Masood, einn af hóf-
íslending-
arnir áfram
í Kabúl
ÞRIR íslenskir hjúkrunar-
fræðingar starfa á vegum
Rauða krossins í Kabúl í Afg-
anistan og engin áform eru
um að kalla þá heim þar sem
þeir eru ekki taldir í hættu.
Hjúkrunarfræðingarnir heita
Elín Guðmundsdóttir, Jón
Karlsson og Maríanna Csillag.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til að koma þeim úr landinu ef
bardagar blossa upp í Kabúl.
Þau halda þó áfram störfum
sínum enn um sinn þar sem
allt er með kyrrum kjörum í
borginni.
Lockerbie-málið:
sömustu leiðtogum mujahideen-
skæruliða í Afganistan, veiti nýrri
stjórn forystu. Hann hefur myndað
bandalag með skæruliðahreyfíng-
um sem hafa náð stórum hluta
Norður-Afganistans á sitt vald.
Masood nam verkfræði við háskól-
ann í Kabúl og þykir hafa sýnt
mikla herkænsku í stríðinu. Hann
hefur einnig komið á vísi að borg-
aralegri stjórn á yfirráðasvæði sínu.
Masood fékk viðurnefnið „Ljónið
frá Panjsher“ vegna skæruhernaðar
síns gegn Rauða hernum. Sovéski
hershöfðinginn Borís Gromov, sem
stjórnaði brottflutningi sovésku
hermannanna, reyndi hvað eftir
annað að semja um vopnahlé við
Masood til að tryggja að hægt yrði
flytja birgðir frá sovésku landa-
mærunum til Kabúl. Masood léði
aldrei máls á slíku og Gromov brást
þannig við að hann fyrirskipaði að
um hundrað þorp í norðurhluta
landsins yrðu lögð í rúst.
Ólíklegt er talið að Masood takist
að mynda starfhæfa stjórn þar sem
hann er úr röðum Tadsjika, manna
Mubarak vongóður
um farsæl málalok
Sidi Barani, Egyptaiandi. Reuter.
HOSNI Mubarak forseti Egyptalands sagði að enn væri einhver von
um að samk’omulag tækist í deilu Líbýumanna og Vesturlanda vegna
sprengjutilræðis í tveimur farþegaþotum sem kostuðu 441 mann lífið
á sínum tíma.
Mubarak lét svo um mælt eftir
viðræður við Muammar Gaddafí
Líbýuleiðtoga í egypskri herstöð
skammt frá líbýsku landamærunum.
Fyrir viku komu refsiaðgerðir
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gegn
Líbýu til framkvæmda þar sem Líbý-
umenn urðu ekki við tilmælum um
að framselja tvo leyniþjónustumenn
sem sannað þykir að hafi orðið vald-
ir að sprengingu um borð í breiðþotu
sem sprakk á flugi yfir Lockerbie í
Skotlandi um jólaleytið 1988. Þá
sprakk frönsk breiðþota ári seinna
yfir Níger og hefur franskur rann-
sóknardómur gefið út handtökutil-
skipun á hendur fjórum líbýskum
embættismönnum sem sannað þykir
að hafi staðið að tilræðinu.
SKÆRULIÐAR
SITJA UM KABUL
Abdul Rahim Hatif starfandi for-
seti Afganistan, seair að stjórn
sín sé reiðubúin ao afsala sér
völdum til mujahideen- skæru-
liða sem hafa umkringt Kabúl.
Nýtt bandalag skæruliðasveita undir
stjórn Ahmads Shah Masood,
er norðan við höfuðborgina
IRAN j
'• Sveitir heittrúaðra
200km i skæruliða, undir stjóm ....
7 Gulbuddins Hekmatvar,
undirbúa árás á höfuð- iNDi-AND
j borgina
af írönskum ættum, en annar ætt-
bálkur, Pashtun, hefur lengi ráðið
lögum og lofum í Afganistan. Tadsj-
ikar eru í minnihluta innan hersins
og í afganska stjórnkerfinu.
Þrettán ára hernám og borgar-
styrjöld hafa þó raskað mjög jafn-
væginu á milli ættbálkanna. Um
sjö milljónir Afgana hafa flúið til
Pakistans á þessum tíma og Pash-
tun-menn eru þar í meirihluta. Því
er ólíklegt að aðrir ættbálkar fallist
á að Pashtun-menn hafi óvefengj-
anlegan rétt til að veita nýrri stjórn
forystu.
Súnní-múslimar eru í meirihluti
í Afganistan en þar búa einnig
hindúar, síkhar og gyðingar.
Stjórnmálin í Afganistan hafa
lengi minnt á prúttviðskipti á afg-
önskum teppabasar. Yfirmenn
stjórnarhersins í mikilvægum vígj-
um, svo sem Kandahar og Herat,
hafa gert samninga upp á eigin
spýtur við staðbundnar skæruliða-
hreyfingar frá því Rauði herinn fór
úr landinu. Foringjar skæruliða og
ættbálkahöfðingjar vítt og breytt
um landið ráða því nú meiru um
framtíð þess en stjórnarandstöðu-
Ieiðtogar í útlegð.
Hekmatyar sakaður um
trúarofstæki
Skæruliðaforingjar eins og Mas-
ood og bandamenn hans eru nú að
reyna að koma í veg fyrir að
Gulbuddin Hekmatyar, leiðtogi
Hezb-i-Islami (Flokks íslam), kom-
ist til valda. Hekmatyar er atkvæða-
mesti skæruliðaforinginn úr röðum
Pashtun-manna og andstæðingar
hans saka hann um trúarofstæki.
Hann gaf um helgina út yfirlýsingu
þar sem hann hótaði að gera árás
á Kabúl ef stjórnin gæfist ekki upp
án skilyrða fyrir sunnudag. Hann
skoraði jafnframt á íbúa höfuð-
borgarinnar að festa græna borða
á húsþökin og söngla „Allah Ak-
bar“ (Guð er mikill) á meðan árásin
stæði.
Tvær skæruliðahreyfingar til við-
bótar gætu gegnt mikilvægu hlut-
verki á næstu dögum. Önnur þeirra
er undir stjórn Abduls Haqs í Sorobi
og hin Jalaluddin Haqqani í Paktía-
héraði í austurhluta landsins. Báðar
eru þær skipaðar heittrúuðum Pas-
htun-mönnum.
Abdul Haq sagði í gær að hreyf-
ing hans myndi ekki ráðast á Kab-
úl og kvaðst ekki hrifinn af hug-
myndinni um að skæruliðahreyfing-
arnar mynduðu stjórn vegna
ágreinings þeirra. Stjórn landsins
yrði að njóta almenns stuðnings í
landinu og Sameinuðu þjóðanna.
Haqqani er hins vegar talinn hafa
samið við Masood og stjórnina í
Kabúl.
Hungursneyð yfirvofandi
Hernám Sovétmanna og einræði
leppa þeirra, svo sem Najibuilah,
hafa valdið miklum breytingum á
afganska þjóðfélaginu, sem tor-
velda mjög friðarumleitanir og
endurreisnarstarf í landinu. Afgan-
istan hefur breyst úr landbúnaðar-
samfélagi í borgar- og flóttamanna-
samfélag.
75-90% allra Afgana höfðu lífs-
viðurværi af landbúnaði fyrir tutt-
ugu árum. íbúum Kabúl hefur fjölg-
að úr tæpri milljón í liðlega þrjár
milljónir á tíu árum. Hungursneyð
vofir yfir og 300 af hverjum þúsund
börnum sem fæðast ná ekki þriggja
ára aldri.
Reynt hefur verið að fá bændur
til að snúa aftur til jarða sinna. Það
hefur gengið illa, nema í suð-
urhéruðunum, enda hafa jarð-
sprengjur og stórskotavopn valdið
miklu tjóni á ökrum og áveitukerfi
Iandsins. Hefjast verður handa við
að gróðursetja á næstu dögum til
að tryggja einhverja uppskeru í ár.
Viðbúið er að þrengingarnar sem
Afganir ganga í gegnum kyndi
undir ættbálkaeijunum í landinu.
Það eru því miklar líkur á að Afgan-
istan verði enn eitt ríkið sem leysist
upp og heyri sögunni til.
Benny Hill
látinn
BRESKI
grínistinn
Benny Hill
lést úr hjarta-
slagi um
páskana þar
sem hann sat
fyrir framan
sjónvarp á
heimili sínu.
Hann var 67
ára og hafði átt við hjartveiki
að stríða. Lögregla braust inn
á heimili hans á mánudag og
kom þar að honum látnum.
Nágrannar hans höfðu ekkert
séð til Hill um páskana og til-
kynntu lögreglu um að hugs-
anlega væri ekki allt með
felldu. Læknar sögðu að lík-
lega hefði hann dáið á laugar-
dag. Benny Hill var frumkvöð-
ull grínþáttagerðar í sjónvarpi
en fyrsta þátt sinn fyrir breska
sjónvarpið vann hann í byijun
fimmta áratugarins og hafa
þættir hans verið sýndir og
endursýndir við miklar vin-
sældir í á annað hundrað lönd-
um.
Vaino Linna
látinn
FINNSKI rithöfundurinn
Vaino Linna lést í gær á 72.
aldursári. Ritverk hans,
Óþekkti hermaðurinn, um
stríð Finna og Sovétmanna á
árunum 1939-44 hlaut alþjóð-
lega viðurkenningu og tvær
kvikmyndir hafa verið gerðar
eftir sögunni. Er það mat finn-
skra bókmenntafræðinga að
Óþekkti hermaðurinn svo og
trílógía hans um finnska borg-
arastríðið hafi skapað honum
varanlegan sess í bókmennta-
sögu landsins.
Stjórnleys-
ingjar í ham
SVARTKLÆDDIR þýskir
stjórnleysingjar gengu ber-
serksgang í miðborg Berlínar
eftir mótmælagöngu á annan
dag páska. Brutu þeir rúður í
verslunum og öðrum bygging-
\im og létu gijóti rigna yfir
'sveit lögreglumanna sem
reyndi að hemja lætin. Var
21 maður handtekinn áður en
yfir lauk og særðust 12 lög-
reglumenn í látunum. í mót-
mælagöngunni var kynþátta-
hatri og fasisma mótmælt en
þar var skírskotað til nýnas-
isma sem fer vaxandi í Þýska-
landi og fordóma í garð út-
lendinga. Um 60 nýnasistar
voru handteknir í Dresden á
mánudag þar sem fjöldi þeirra
kom saman í tilefni fæðingar-
dags atrúnaðargoðs síns,
Adolfs Hitlers. Létu þeir ófrið-
lega og hrópuðu nasistakveðj-
una í sífellu er þeir gengu
fylktu liði um miðborgina.
Efnahagsbati
í Póllandi
EFNAHAGSBATI á sér nú
stað í Póllandi, samkvæmt
hagtölum sem birtar voru þar
í landi í gær. Iðnaðarfram-
leiðsla hefur aukist með hveij-
um mánuðinum það sem af
er árinu og dregið hefur úr
atvinnuleysi í fyrsta sinn frá
því gripið var til umbóta í
anda markaðsbúskapar í jan-
úar 1990. Þá var fjárlagahall-
inn minni og verðbólga lægri
en spár höfðu sagt til um.
Mælist verðbólga síðustu 12
mánaða til marsloka 38,1%.