Morgunblaðið - 22.04.1992, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
Jltargiiiifclafri
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjávík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Vegalaus æska
Islendingar eru að vakna upp
við þá nöturlegu staðreynd
að í velferðarþjóðfélagi okkar
er að finna nokkurn hóp æsku-
fólks sem í reynd á hvergi höfði
sínu að halla. I umfjöllun Morg-
unblaðsins um málefni vega-
lausra barna á síðustu vikum
hefur einnig komið glöggt fram
að sá hópur barna og ungmenna
sem svo er komið fyrir, hefur
farið ört vaxandi á síðustu fimm
árum og mun vaxa enn hraðar
á næstu árum ef ekkert verður
að gert.
Það er í sjálfu sér ekki til
nein einhlít skýring á því hvers
vegna börn og unglingar flosna
upp frá heimilum sínum á við-
kvæmasta aldursskeiði og lenda
á vergangi. Guðlaug Teitsdóttir,
skólastjóri Einholtsskóla, segir
til dæmis í viðtali hér í blaðinu
nýlega að ein aðalástæðan sé
að börnin hafi skort öryggi og
fasta umgjörð í tilverunni.
Stundum megi kenna um skorti
á samvinnu á milli heimilis og
skóla, eða rekja það til tíma-
bundinna eða langvarandi erfíð-
leika á heimili, flakks á milli
skóla vegna búsetubreytinga og
fleira af því tagi. Afleiðingin er
þó oftast sú að ungmennin ná
hvergi að festa rætur og öðlast
því ekki nauðsynlegt öryggi og
viðurkenningu í hópi jafnaldra
eða í tengslum við skólanámið.
Samfélagið birtist 'þeim í öllu
sínu miskunnarleysi með vax-
andi tengslaleysi og aukinni
samkeppni á sama tíma og sam-
hjálp innan fjölskyldna og sam-
félags er á undanhaldi. Allt leið-
ir þetta að lokum til þess að
sjálfstraustið brestur og bitur-
leikinn elur af sér fjandsamlega
afstöðu til þjóðfélagsins og
þeirra leikreglna sem þar gilda.
Næsta skref er ef til vill neysla
á forboðnum vímuefnum og þar
á eftir gripdeildir og rán til að
fjármagna fíknina. Þessi víta-
hringur er alþekktur.
Því miður verður líklega seint
þróað fullkomið velferðarkerfi
með svo þéttriðnu öryggisneti
að unnt verði að firra öll börn
því hlutskipti að eiga erfiða
æsku í einhverjum skilningi.
Vegalaust barn getur í sjálfu
sér átt heimili og íjölskyldu en
umkomuleysi þess lýsir sér í því
að fjölskyldan er ófær um að
veita því trausta forsjá og góð
uppeldisskilyrði. Innan sjálfs
uppeldiskerfisins býr aftur
næmasta þekkingin á því að
greina veglaust barn í þessum
skilningi, þar sem eru forskólinn
og skólinn, fóstrurnar og kenn-
ararnir. Það er hins vegar alvar-
legt mál þegar ábendingum
þessara aðila til Félagsmála-
stofnunar er ekki sinnt vegna
þess að þar skortir mannafla
og úrræði til að taka á málum,
eins og komið hefur fram í
umfjöllun Morgunblaðsins.
í frumvarpi til nýrra laga um
vemd barna og ungmenna er
gert ráð fyrir því að barnavernd-
armál verði flutt frá mennta-
málaráðuneyti til félagsmála-
ráðuneytis, og í viðtali við Morg-
unblaðið hefur Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra
lagt áherslu á að veita verði
meira fé til barnaverndar- og
uppeldismála. Ráðherra telur
íslendinga standa öðrum ná-
grannaþjóðum langt að baki í
þessum efnum svo og varðandi
skipulag, fræðslu, rannsóknir
og forvarnastarf. Er bent á að
skýrslur frá 1987 sýni að íslend-
ingar leggi einungis um 0,66%
af vergri þjóðarframleiðslu í
þjónustu við börn og unglinga
á sama tíma og Danir og Svíar
verji um 2% til þessara mála.
Jóhanna Sigurðardóttir telur
þetta til marks um að mannleg
verðmæti séu á undanhaldi í
þjóðfélaginu og aðrir hlutir hafi
þar meiri forgang. Menn gleymi
því hins vegar oft hvað það
kosti þjóðfélagið síðar í auknum
útgjöldum til heilbrigðis- og fé-
lagsmála að rækja ekki betur
barnavemdarmál og forvarnar-
starfið.
Meðal úrræða sem félags-
málaráðherra nefnir er skamm-
tímavistun til að taka við börn-
um 2-4 mánuði vegna tíma-
bundinna erfiðleika á heimilum
en hún væntir þess að rekstur
heimilis fyrir vegalaus börn sem
þurfi lengri vistun, fái farsæla
lausn í samráði við sveitarfélög
og samtökin Barnaheill.
Það er full ástæða til að gefa
hugmyndum félagsmálaráð-
herra góðan gaum, og ekki síð-
ur að taka undir þá hvatningu
hennar að mótuð verði heildar-
stefna í fjölskyldumálum á Is-
landi. Hitt er jafn ljóst að flest-
ar kosta þessar hugmyndir auk-
in fjárframlög sem eru torsótt
við núverandi aðstæður í ríkis-
fjármálum. Því verða að koma
til breyttar áherslur og tilfærsla
fjármuna milli málaflokka, því
að öllum má ljóst vera að ís-
lenskt þjóðfélag sættir sig ekki
við vegalausa æsku við að
íslensk börn og unglingar séu á
vergangi. Velferð barna okkar
er og verður forgangsmál.
Morgunbláðið/Sverrir
Fulltrúar BKR, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Sigríður Hannesdóttir, Guðrún
Krisljánsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Berta Kristinsdóttir, Vigdís
Einarsdóttir og Áslaug Brynjólfsdóttir, á fundi með Sighvati Björns-
syni heilbrigðisráðherra.
BKR mótmælir hæm
gjaldtöku fyrir lyf
o g læknisþjónustu
BANDALAG kvenna í Reykjavík samþykkti á þingi nýlega mótæli
gegn launamisrétti og hækkun gjalda fyrir læknisþjónustu, heilsu-
gæslu og lyf og skoraði á sljórnvöld að sjá til þess að tryggja sjúkra-
rými fyrir aldraða. Konur úr bandalaginu hittu heilbrigðistráðherra
að máli til að fylgja ályktununum
í ályktun sem samþykkt var á þing-
inu segir að launabil milli einstakra
hópa í þjóðfélaginu verði stöðugt
meira og launabil milli karla og
kvenna hafi ekkert breyst á sl. 10 til
15 árum þrátt fyrir öfluga baráttu
kvenna fyrir bættum kjörum.
5 teknirvið
innbrot í bíl
FIMM piltar um tvítugt voru
handteknir á páskadagsmorgun
við innbrot í bifreið við Sólheima.
íbúi við götuna varð piltanna var
og gerði iögreglu viðvart. Er lög-
reglan kom á staðinn reyndu þrír
piltanna að flýja en tókst ekki.
Piltarnir voru á höttunum eftir
útvarpstæki bifreiðarinnar og voru
búnir að rífa úr henni hluta af mæla-
borðinu er að var komið. Tveir þeirra
voru við þá iðju en þrír biðu í bíl í
grenndinni. Við leit lögreglu í bifreið
piltanna fannst efni sem hugsanlega
var talið fíkniefni svo og- áhöld til
fíkniefnaneyslu.
og tillögunum eftir.
BKR telur nauðsynlegt að hækka
skattleysismörk og draga þannig úr
áhrifum minnkandi kaupmáttar, sem
helst komi niður á lágtekjuhópum, en
þar séu konur í miklum meirihluta.
Ennfremur telur bandalagið brýnt að
heimavinnandi maki fái að nýta skatt-
kort sitt til fulls.
Þá mótmælir bandalagið harðlega
skerðingu á lífeyrisgreiðslum almann-
atrygginga og þeirri aðför að kjörum
aldraðra, öryrkja og sjúklinga sem
felist í hækkun gjalda fyrir læknis-
þjónustu, heilsugæslu og lyf. BKR
telur að ná megi fram sama sparnaði
í heilbrigðiskerfinu með bættu skip-
ulagi og samvinnu milli sjúkrastofn-
ana.
BKR skorar á heilbrigðisráðherra
og borgaryfirvöld að sjá til þess að
sjúkrarými fyrir aldraða sé fyrir hendi
þegar þeir geti ekki lengur búið í
heimahúsum eða vistheimilum vegna
heilsubrests.
Þá hvetur BKR til skjótra úrlausna
í málefnum ósakhæfra afborgamanna
og geðsjúkra fanga.
Þeim tilmælum er einnig til heil-
brigðisyfitvalda að St. Jósefssystrum
verði reistur minnisvarði að aflokinni
samkeppni meðal listamanna.
Nokki
Talsverð umferð var um hálendið i
verið eins mikil og í fyrra. Hún sej
páskana þó margir hefðu sjálfsagl
nokkrir ökumenn vélsleða hvíldu s
Yfirheyrslur öldunj
Nauðsyi
gjöld til
- sagði Sigmund A
SIGMUND A. Rogich, sem for-
seti Bandaríkjanna hefur til-
nefnt í embætti sendiherra á Is-
Verkfall mjólkurfræð-
inga kært til Félagsdóms
Vinnuveitendasamband íslands hefur ákveðið að kæra verkfall Mjólk-
urfræðingafélags íslands til Félagsdóms og verður málið þingfest í
dag. Aðeins verður hægt. að pakka rúmlega helmingi þeirrar mjólkur
í Mjólkurstöðinni í Reykjavík sem hefði þurft í þessari viku vegna
verkfallsins og yfirvinnubanns mjólkurfræðinga. í vikunni hefði þurft
að pakka hálfri milljón lítra en vegna aðgerða mjólkurfræðinga er
gert ráð fyrir að ekki verði hægt að pakka nema um 270 þúsund lítr-
um, að sögn Péturs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra tæknideildar
Mjólkursamsölunnar.
Hið fyrsta af þremur einsdags verk-
föllum mjólkurfræðinga í Mjólkurs-
amsölunni í Reykjavík og Mjólkusam-
lagi KEA á Akureyri átti að hefjast
á miðnætti í nótt. Næsta verkfall er
á föstudag og það þriðja á mánudag-
inn kemur, en unnið verður við pökk-
un mjólkur aðra daga. Jafnframt er
í gildi yfirvinnubann í öllum mjólkurs-
amlögum á landinu. Pétur sagði að
Ijóst væri að það yrði skortur á mjólk
á höfuðborgarsvæðinu vegna þessa.
Rjómi myndi líklega duga langleiðina
og enginn skortur ætti að verða á
öðrum vörum svo sem jógurt, skyri
og ýmsum G-vörum.
Enginn sáttafundur hafði verið boð-
aður í gær í kjaradeilunni og sagði
ríkissáttasemjari eftir að hafa kannað
hug deiluaðila að hvorugur hefði séð
ástæðu til þess að boða til fundar.
Geir Jónsson, formaður samninga-
nefndar mjólkurfræðinga, sagði að
deilan snerist einkum um hagræðingu
innan iðnaðarins, en mjólkurfræðing-
ar hefðu ekki fengið að vera aðilar
að þeirri umræðu. Þeir hefðu lagt fram
hugmyndir um lengri aðlögunartíma
ef um uppsagnir væri að ræða til
dæmis svo tækifæri gæfíst til endur-
menntunar. Stéttin hefði búið við
nokkuð gott atvinnuöryggi og liðið
fyrir það að vissu leyti í launum. Nú
væri það liðin tíð og því fyndist þeim
ekki óeðlilegt að farið væri yfir málið,
en það virtist vera þungt undir fæti.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að verkfalls-
boðunin og yfirvinnubannið væru
hvort tveggja ólöglega boðaðar að-
gerðir. Þeir hefðu reynt að finna út
úr því utan réttar hvort, ákvörðunin
um verkfallið væri ólögleg, en því
hefði verið hafnað að upplýsa um það
og í fjölmiðlum hefði verið vísað á að
það væri eðlilegt að láta reyna á það
fyrir dómi. Þeir hlytu að taka þeirri
áskorun. „Eins er kröfugerðinni þann-
ig háttað að við erum þeirrar skoðun-
ar að verkfall til þess að framfylgja
henni sé ólögmætt. Það er sérstaklega
þung skylda sem hvílir á okkur um
að bera þetta mál undir dómstóla af
því þarna er um svo augljósa misbeit-
ingu á rétti hinna fáu til að troða á
hagsmunum hinna mörgu að ræða,“
sagði Þórarinn ennfremur. Hann sagði
að sex mjólkurfræðingar í Mjólkurs-
amsölunni stöðvuðu fyrirtæki þar sem
störfuðu á annað hundrað manns og
kæmu í veg fyrir dreifingu á 150
þúsund manna markað.
Geir sagðist ekkert skilja í VSÍ að
vera að draga í efa lögmæti aðgerða
mjólkurfræðinga. Ef þeir meintu eitt-
hvað með þessu ættu þeir auðvitað
að fara með málið fyrir Félagsdóm
og hann kvaðst fagna því að það hefði
verið gert. Geir kvaðst ekkert óttast
niðurstöðuna, enda hefðu mjólkur-
fræðingar staðið að þessum aðgerðum
nú með sama hætti og þeir hefðu gert
í gegnum árin.