Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
29
> •
Skákþing Islands:
Arni Armann Arnason
sigraði í áskorendaflokki
SKÁKÞING íslands, áskorenda- og opinn flokkur, var teflt í skák-
heimili Taflfélags Reykjavíkur við Faxafen yfir páskahátíðina.
Þátttaka var ekki eins góð og búast hefði mátt við eftir tvö vel-
heppnuð alþjóðleg mót í síðasta mánuði.
Morgunblaðið/Ingvar
ið margir á ferð um hálendið um páskana
Lim páskana að sögn Hörpu Lindar Guðbrandsdóttur, veðurathugunarmanns á Hveravöllum, þó ekki hafi hún
gir að mikið hafi verið um jeppa og vélsleða og auk þess hafi svolítið borið á snjóbílum. Sæmilega viðraði um
t kosið betra veður um þessa miklu ferðahelgi. Myndin var tekin í nágrenni við Landmannalaugar þar sem
iig í ágætis veðri.
yadeildar Bandaríkjaþings:
ilegt að endurskoða út-
Keflavíkurstöðvarinnar
. Rogich, tilvonandi sendiherra Bandaríkjanna á íslandi
landi, sagði við yfirheyrslur
utanríkismálanefndar öldunga-
deildar Bandaríkjaþings sem
fram fóru 8. apríl sl. að endur-
skoða þyrfti fjárhagsleg útgjöld
Bandaríkjanna vegna herstöðv-
arinnar í Keflavík. Útskýra
þyrfti fyrir íslenskum sljórn-
völdum að staða Bandaríkjanna
í heiminum hefði breyst vegna
breytinga á alþjóðavettvangi.
Hann sagði einnig að lega Is-
lands frá öryggissjónarmiði og
sú staðreynd að íslendingar
hefðu reynst traustir banda-
menn gerðu það þó að verkum
að mikilvægt væri að halda
áfram úti öflugum herstyrk á
Islandi.
Yfirheyrslur utanríkismála-
nefndar öldungadeildarinnar voru
haldnar þar sem deildin þarf að
staðfesta tilnefningu sendiherra og
samþykkti utanríkismálanefndin að
mæla með Rogich í embættið.
Við yfirheyrsluna spurðu þing-
mennirnir Rogich m.a. um efna-
hagshorfur á Islandi þar sem Is-
lendingar hygðust ekki sækja um
aðild að Evrópubandalaginu.
Rogich svaraði að hann teldi að því
væri enn ósvarað hvort Islendingar
sæktu um aðild að EB. Efnahagslíf-
ið á íslandi hefði verið í lægð und-
anfarin fimm ár m.a. vegna sam-
dráttar í fiskveiðum og verðlækk-
unar á álmörkuðum. íslendingar
væru að endurmeta stöðu sína í
Evrópu og þótt þeir sæktu ekki um
aðild að EB myndu þeir engu að
síður halda traustum markaðs-
tengslum í gegnum Evrópska efna-
hagssvæðið og á vettvangi EFTA
en hann kvaðst þó telja að íslend-
ingar myndu um síðir endurskoða
afstöðu sína til EB. Nv
Sigmund A. Rogich er íslenskur
að uppruna og bjó á íslandi fyrstu
fimm ár ævinnar. Þingmennirnir
spurðu hann mikið um tengsl hans
við land og þjóð og viidu m.a. vita
hvort hann hefði hugleitt hvort þau
gætu á einhyern hátt raskað getu
hans til að þjóna sem sendiherra
Bandaríkjanna gagnvart Islandi.
Rogich sagði m.a. að ef Bandaríkja-
menn útskýrðu af hreinskilni
breyttar aðstæður fyrir íslenskum
stjórnvöldum og að útgjöld og
skuldbindingar hlytu að taka breyt-
ingum mætti áfram viðhalda góðum
samskiptum á milli þjóðanna.
Bandarísk stjórnvöld ættu að skýra
hreint út afstöðu sína til hvalveiða
og Alþjóða hvalveiðiráðsins og að
þau muni hlíta niðurstöðum vísind-
arannsókna.
Fram kom í svari hans að honum
hefði verið boðin sendiherrastaða á
íslandi árið 1984 en hann þá af-
þakkað hana af persónulegum
ástæðum.
Formaður nefndarinnar Joseph
R. Biden og öldungadeildarþing-
maðurinn Brown spurðu m.a. hvert
væri hlutverk Keflavíkurstöðvar-
innar að loknu kalda stríðinu að
mati sendiherraefnisins og um af-
stöðu íslendinga til Bandaríkjanna.
Rogich sagði að íslendingar væru
sérstaklega sjálfstæðir á mörgum
sviðum en hefðu reynst mjög
traustir bandamenn og verið hlið-
hollir afstöðu Bandaríkjanna á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna í nær
100% tilfella. Mlkilvægt væri að
hafa áfram öflugan herstyrk á ís-
landi en nú hefðu þeir tímar runnið
upp að nauðsynlegt væri að endur-
meta útgjöld til Keflavíkurstöðvar-
innar rétt eins og vegna útgjalda
til herstöðva í öðrum heimshlutum.
Kvaðst hann telja að að íslensk
stjórnvöld myndu sýna því fullan
skilning vegna endaloka kalda
stríðsins.
Sarbanes, öldungadeildarþing-
maður frá Maryland, spurði hvort
til stæði að fækka enn frekar í
herliði Bandaríkjanna á íslandi.
Rogich kvaðst ekki hafa upplýs-
ingar um það en sagðist telja að
ísland félli undir sömu áform um
fækkun í herliði Bandaríkjanna og
ætti sér stað í öðrum herstöðvum
Bandaríkjanna um allan heim.
Rogich sagði einnig að afstaða
íslendinga til nærveru Bandaríkja-
hers hefði lítið breyst og bein and-
staða ævinlega verið lítil og á vin-
gjarnlegum nótum.
Kvaðst hann vegna reynslu sinn-
ar í viðskiptalífinu geta orðið til
gagns sem sendiherra vegna við-
skiptatengsla landanna og að hann
vildi koma því á framfæri við ís-
lendinga að Bandaríkin stæðu við
skuldbindingar sínar þó þeim yrði
jafnframt gert ljóst að ýmislegt
væri að taka breytingum. Hann
sagði að hvalveiðimálið væri efst á
lista yfir þau mál sem snertu bein
samskipti þjóðanna í dag. Þá sagði
hann að nýlega hefði komist á sam-
vinna á milli landanna um rannsókn
á dreifingu fíkniefna til Evrópu og
hvort ísland væri notað sem um-
skipunarhöfn fíkniefnasmyglara.
___________Skák__________________
Bragi Kristjánsson
Árni Ármann Árnason vann ör-
uggan sigur á áskorendaflokki,
hlaut 7 vinninga í 9 skákum, og
Matthías Kjeld vann enn stærri
sigur í opna flokknum með 8V2 v.
í 9 skákum.
Þátttakendur í áskorendaflokki
voru 22, þannig að ekki virtist
mikill áhugi á þeim tveim sætum
í landsliðsflokki, sem í boði voru á
mótinu. Rétt til að tefla í áskorend-
aflokki ár hvert eiga tveir efstu
menn í opna flokki síðasta árs,
unglingameistari ísland árið á und-
an, kvennameistari íslands síðasta
árs, efstu sex menn úr svæðamót-
um og allir skákmenn sem hafa
yfir 1.800 skákstig.
Lokastaðan varð eftirfarandi
(efstu menn);
1. Árni Ármann Árnason, 7_ v.
2. -4. Sigurbjörn Björnsson, Og-
mundur Kristinsson, Jón Arni
Jónsson, 6 v. 5.-7. Kristján Eð-
varðsson, Erlingur Þorsteins-
son, Heimir Ásgeirsson, 5'A v.
8.-9. Eiríkur K. Björnsson, Dan
Hansson, 5 v. 10.-12. Magnús
Örn Úlfarsson, Jóhann H. Sig-
urðsson, Hlíðar Þór Hreinsson,
4V2 v.
Árni Ármann vann öruggan sig-
ur og tryggði sér'þar með rétt til
að tefla í landsliðsflokki. Jafnir í
2. sæti urðu Sigurbjörn Björnsson,
Ögmundur Kristinsson og Jón Ámi
Jónsson, og verða þeir að tefla
aukakeppni um önnur verðlaun og
þátttökurétt í landsliðsflokki.
Keppnin fer væntanlega fram
seinni hluta næsta mánaðar. Sigur-
björn, Ögmundur og Jón Árni
tefldu allir vel og verðskulda sæti
sitt, en erfitt er að spá nokkru um
aukakeppnina. Ögmundur er gam-
alreyndur í faginu og Jón Árni
hefur mikið teflt. Sigurbjörn er
hins vegar ungur og lítt reyndur
Hafnfirðingur, sem örugglega á
eftir að láta að sér kveða í framtíð-
inni. Kristján Eðvarðsson missti
af aukakeppninni, þegar hann tap-
aði langri og strangri skák fyrir
Ögmundi í síðustu umferð. Erlingi
Þorsteinssyni tókst ekki að blanda
sér í toppbaráttuna að þessu sinni.
Heimir Ásgeirsson er ungur og
efnilegur skákmaður úr Hafnar-
firði.
Skipting sjö efstu sæta í áskor-
endaflokki er athyglisverð: Þrír eru
frá Taflfélagi Reykjavíkur, tveir
frá Skákfélagi Hafnarfjarðar, einn
Akureyringur og Seltirningur.
I opna flokknum tefldu 28 skák-
menn að þessu sinni, en tveir efstu
unnu sér þátttökurétt í áskorenda-
flokki.
Efstu menn í opna flokknum
urðu:
1. Matthías Kjeld, 8 V2 v. 2. Jón
Viktor Gunnarsson, 7 '/2 v. 3.
Björn Þorfinnsson, 6 v. 4.-7.
Árni H. Kristjánsson, Torfi
Leósson, Snorri Kristjánsson,
Davíð Kjai*tansson, 5 V2 v. 8.-14.
Guðmundur S. Jónsson, Kristján
S. Jónsson, Oddur Ingimarsson,
Baldvin Þorláksson, Sverrir Sig-
urðsson, Viðar Másson, Berg-
steinn Einarsson, 5 v. 15.-17.
Jón E. Karlsson, Hálfdán Daða-
son, Leó Þór Þórarinsson, 4 V2 v.
Þrír kornungir piltar úr Taflfé-
lagi Reykjavíkur skipuðu efstu
sætin í opna flokknum. Matthías
Kjeld, sem aðeins er 13 ára, vann
yfirburðasigur, hlaut 8 V2 vinning
í 9 skákum. Jón Viktor Gunnars-
son, 12 ára, varð annar með 7 ‘/2
v. Matthías og Jón Viktor höfðu
svo mikla yfirburði, að keppnin urn
rétt til að tefla í áskorendaflokki
næsta ár var aldrei spennandi.
Björn Þorfinnsson, 13 ára, varð
þriðji með 6 vinninga. Árangur
hans er mjög athyglisverður, því
hann skaut aftur fyrir sig mörgum.
skákmönnum með mun fleiri skák-
stig.
Áskorendaflokkur, 6. umferð:
Hvítt: Áriii Ármann Árnason
Svart: Erlingur Þorsteinsson
Drottningarbragð
I. d4 - d5, 2. Rf3 - Rf6, 3. c4
— e6, 4. cxd5 — exdfð, 5. Bg5 —
Be7; 6. Rc3 - c6, 7. Dc2 - Be6!?
(Óvenjulegur leikur, sem miðar
að því að leika fljótt — c6 — c5
og komast þannig hjá algengum
leiðum í uppskiptaafbrigðinu, en
oft verður framhaldið í þessari
stöðu 7. — 0-0 8. e3 — Rbd7, 9.
Bd3 - He8, 10. 0-0 - Rf8, 11.
Hab2 - a5, 12. a3 - Re4, 13.í)
Bxe7 - Dxe7, 14. b4 - Bf5, 15.
Bxe4 — dxe5, 16. Re5 — axb4,
17. axb4 — f6, 18. Rc4 — Be6
með örlítið betra tafli fyrir hvít.)
8. e3 - Rdb7, 9. Bd3 - Hc8, 10.
0-0 - a6
(Eftir 10. — c5 11. dxc5 —
Rxc5, 12. Bb5+ - bd7, 13. Bxd7+
— Rxd7, 14. Da4 ræður svartur
ekki við hótanirnar 15. Dxa7 og
15. Rxd5.)
II. Ra4! - b5
Svartur lendir í miklum vand-
ræðum eftir 11. — c5, 12. Rxc5 —
Rxc5, 13. dxc5 — Bxc5, 14. Da4+
— Dd7, 15. Dh4 - Be7, 16. Rd4
— h6, 17. f4 með hótuninni 18. f5
o.s.frv.)
12. Rc5 — Rxc5, 13. dxc5 — I16,
14. Bf4 - 0-0
(Ekki gengur 14. — a5, 15. a4
— b4, 16. Ba6 - Ha8, 17. Bb7
og hvítur vinnur annað hvort peðið
á c6 eða skiptamun.)
15. b4 - Rd7, 16. a4 - Bf6, 17.
Ha3 - He8
(Svartur hefði getað reynt 17. —
a5I? 18. axb5 — axb4, 19. Ha7 —
cxb5, 20. Bd6 — Be7, 21. Bxe7 —
Dxe7, 22. c6 - Dd6, 23. Rd4 -
Re5, 24. Bxb5 með flókinni stöðu.)
18. h3 - Ha8?
(Svarti yfirsést einföld en sterk
áætlun hvíts til að ná yfirráðum á
a-línunni. Líklega hefði verið skást
að reyna 18. — d4!? í stöðunni, t.d.
19. exd4 - Bd5, eða 19. Rxd4 -
Bxd4, 20. exd4 — Df6 og svartur
hefði getað barist áfram, þótt hann
ætti peði minna.)
19. Rd4 - Dc8, 20. Hfal - Db7,
21. Da2 -
21. - Had8
(Svartur ræður ekki við hótunina
22. axb5 og eftir 21. — bxa4, 22.
Hxa4 fellur peðið á a6.)
22. axb5 — axb5, 23. Ha7 —
Dc8, 24. Hc7 - Da8, 25. Db2 -
Bxd4, 26. Dxd4 - Db8, 27. Hxd7
- Hxd7, 28. Bxb8 - Hxb8
(Hvítur á nú auðunnið tafl og
lokin þarfnast ekki skýringa.)
29. Ha6 - Hc8, 30. De5 - Hdc7,
31. f4 - Bd7, 32. Ha8 - Hxa8,
33. Dxc7 - Be8, 34. Bf5 - Hal+,
35. Kf2 - Ha2+, 36. Kf3 - Ha8,
37. Bd7 - Bxd7, 38. Dxd7 -
Ha4, 39. Dxc6 — Hxb4, 40. Dxd5•
og svartur gafst upp.