Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
15.-21. apríl 1992.
Umferðin gekk stóráfallalaust
fyrir sig um páskana. í umdæmi
lögreglunnar í Reykjavík var til-
kynnt um 33 umferðaróhöpp. Þar
af urðu meiðsli á fólki í tveimur
tilvikum og tveir ökumannanna
eni grunaðir um að hafa verið
undir áhrifum áfengis. Þá voru
12 ökumenn aðrir stöðvaðir
grunaðir um að hafa verið ölvað-
ir. Alls voru 43 ökumenn kærðir
fyrir að aka yfir leyfilegum há-
markshraðamörkum, en þar af
var fjórðungur þeirra á öðru
hundraðinu þegar þeir voru
stöðvaðir. 18 voru staðnir að því
að hunsa rautt ljós og stöðvunar-
skyldu.
Tilkynnt var um 33 innbrot
og 15 þjófnaði um páskahátíðina,
12 skemmdarverk og 18 rúðu-
brot. Allmargir voru handteknir
vegna þessara mála, en þjófamir
munu almennt hafa haft mjög
lítið upp úr krafsinu. Hins vegar
má segja að fólk virtist almennt
friðsamt hvert í annars garð þrátt
fyrir talsverða ölvun aðfaranætur
skírdags og páskadags því „að-
eins“ var tilkynnt um tvær lík-
amsmeiðingar þessa 6 daga, en
þess meira kvartað frá nágrönn-
um yfir hávaða og ónæði í heima-
húsum vegna heimasamkvæma
eða gleðskapar, eða 40 sinnum.
Allmikil ölvun virtist hafa verið
á skemmtistöðunum aðfaranótt
skírdags.
Flestir voru í fangageymslun-
um á páskadagsmorgun (15), en
færri aðra daga. Að morgni
föstudagsins langa kom sjálfvirk
innbrotstilkynning frá Búnaðar-
bankanum við Vesturgötu. Inn-
brotsþjófarnir urðu frá að hverfa
eftir að hafa komist með annan
fótinn inn fyrir þröskuldinn, en
glöggur vegfarandi veitti athygli
að rauðri fólksbifreið var ekið
brott frá húsinu. Skömmu síðar
var bifreiðin stöðvuð á Hring-
brautinni og voru tveir menn sem
í henni voru vistaðir í fangag-
eymslunum. í bifreiðinni fundust
ýmis verkfæri, en grunur er um
að þau hafi verið notuð við inn-
brotið í bankann.
Talsverð ölvun var meðal
nokkurra unglinga í Breiðholti
og Grafarvogi aðfaranótt páska-
dags. Handtaka þurfti ungling-
ana í Breiðholti eftir að í ljós kom
að þeir höfðu brotið rúður og
farið inn í nokkrar verslanir í
hverfinu.
Á laugardagskvöld hafði öku-
maður samband við lögregluna
og taldi sig hafa ekið yfir dýr í
Kögurseli. Sagði hann dýrið hafa
skreiðst í burtu eftir óhappið, en
sjálfur kysi hann að koma ekki
nálægt því. í ljós kom að þarna
var um særðan mink að ræða
og varð að aflífa kvikindið.
Eigendum tveggja söluturna
var gert að loka eftir miðnætti á
páskadag.
Annan í páskum kom hestur
með reiðtygjum en án knapa að
hesthúsi við Norðlingabraut.
Aðra ístaðsólina vantaði á hnakk-
inn og hafði fólk áhyggjur af því
að knapinn hefði dottið af baki.
Leitað var í nágrenninu að hugs-
anlegum knapa, en sú leit bar
ekki árangur. Hesturinn er í
vörslu tilkynnanda.
Á mánudag sást til fjögurra
drengja í garði í Högunum. Þeir
voru þar að burðast með kassa
á milli sín og virtust flóttalegir.
Við athugun fundust drengirnir
þar sem þeir hímdu í garðinum.
I kassanum voru gosdrykkir, sem
drengirnir viðurkenndu að hafa
„fundið“ í bílskúr í nágrenninu.
Drengirnir voru færðir á lög-
reglustöðina og síðan sóttir af
foreldrum sínum.
Fimm piltar um tvítugt voru
handteknir í Sólheimum að
morgni sunnudags. Þeir höfðu
farið þar inn í bíl og reynt að
rífa úr honum útvarpstæki. Bíll
þeirra var skammt frá en við leit
í honum fannst hugsanlegt fíkni-
efni ásamt áhöldum til neyslu
slíkra efna.
Aðfaranótt laugardags þurfti
lögreglan að hafa afskipti af
mjög ölvaðri 15 ára gamalli
stúlku þar sem hún ráfaði um
Laugaveg. Ástæða þótti að færa
stúlkuna heim en þegar þangað
var komið brást móðirin hin
versta við og taldi það ekki í
verkahring lögreglumanna að
hafa afskipti af dóttur hennar.
Þeir hlytu að hafa eitthvað þarf-
ara að gera.
Aðfaranótt annars í páskum
var tilkynnt um slasaða önd á
Skothúsvegi. Henni var komið í
andheima.
Vitað er af tveimur „einkanæt-
urklúbbum" í borginni og var
fylgst sérstaklega með þeim um
páskana. Vegna skorts á skýrum
lögum og reglum hefur verið erf-
itt að bregðast skilyrðislaust við
starfsemi þessara klúbba, en lög-
reglan hefur þó lokað á öðrum
tug þeirra slr misseri. Flestir
þeirra höfðu einungis haft opið
eitt kvöld áður en þeim var lokað
og rekstraraðilum gert að svara
til saka fyrir athæfið. Þrátt fyrir
fullyrðingar hefur starfsemi
þessara „einkaklúbba" ekki verið
meiri undanfarið en oft áður.
Söngfélag Skaftfellinga.
Árlegir tónleikar Söng-
félags Skaftfellinga haldnir
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga held- Söngskráin er með fjölbreyttara
ur sína árlegu vortónleika á sum- móti, íslensk og erlend kór- og ein-
ardaginn fyrsta, fimmtudaginn söngslög. Stjórnandi kórsins er sem
23. apríl, í Breiðholtskirkju kl. fyrr Violeta Smid. Undirleikari er
16.00. Pavel Smid.
Garðyrkjuskóli ríkisins:
Nemendur með opið hús
á sumardaginn fyrsta
NEMENDUR Garðyrkjuskóla ríkisins verða með opið hús í skólanum
sumardaginn fyrsta, en skólinn er eins og flestir vita á Reykjum
Ölfusi, rétt ofan við Hveragerði.
Þar verða öll húsakynni skólans
opin, þ. á m. pottaplöntuhúsið, ban-
anahúsið, skúrðgarðyrkjuhúsið,
ásamt skólahúsinu sjálfu þar sem
stór gróðurskáli er með á þriðja
hundrað tegunda af garðskála-
plöntum.
Á opna húsinu verður starfsemi
skólans kynnt, svo og þær náms-
brautir sem í boði eru, en þær eru
ylræktarbraut, garðplöntubraut,
skrúðgarðyrkjubraut, umhverfís-
braut og blómaskreytinga- og
markaðsbraut.
í tengslum við opna húsið verða
14 fyrirtæki með kynningu á vörum
og þjónustu er tengjast garðyrkj-
unni og má segja að hér sé ekki
bara um opið hús að ræða heldur
er þetta einnig garðyrkjusýning.
Kaffi og kökusala verður á staðn-
um og einnig verður selt græn-
meti, blóm og blómaskreytingar að
ógleymdri tombólunni sem var mjög
vinsæl hjá yngri kynslóðinni í fyrra.
Opna húsið stendur yfir frá kl.
10-18 á sumardaginn fýrsta.
AFM/CLISDAGAR BILANAUSTS 21. TIL 30. APRÍL
Vááááááá
r
*Orðatiltæki sem fólk notar gjaman um eitthvað athyglisvert
KJARAPALLAR
Samkvœmtkönnun Gallups eru varahlutirhjá Bílanausti oð meðal-
tali20% ódýrarien ínágrannalöndunum. Afmœlisdagana bjóðum
við þérsérstakt afmœlistilboð á eftirfarandi vörum:
Verð áður Tilboð
1. Barnabílstólar 8.944,- 5.998,-
2. Verkfœrasett m/85 hlutum 8.359,- 5.851,-
3. Hella 12vloftdœla 3.790,- 2.653,-
4. Hemlaljós í afturqluqga 1.683,- 1.178,-
5. Þokuljósasett í sporttösku 6.048,- 4.234,-
ó. Þvottakústur 652,- 456,-
7. Vandaðbón 996,- 598,-
8. Monroe höaadevfar f. Lödu 1.465,- 1.000,-
Þú finnur þessar vörur
( og fleiri) á sérstökum
kjarapöllum í verslun okkar
að Borgartúni 26, svo lengi
sem þœr seljast ekki upp á
tímabilinu.
GLÆSILEGIR VINNINGAR
í LÉTTRIGETRAUN
Eina sem þú þarft að gera er að giska á sem nœst
réttri tölu, og senda okkur í pósti, á myndriti eða
koma við í verslun okkar að Borgartúni 26, fyrir
30,'apríl ncestkomandi.
í VERÐLAUN ERU:
1. Gelhard hljómtœki í bilinn fyrir allt að kr. 100.000.
2. Vöruúttekt í Bílanaust fyrir allt að 50 þúsund.
3. Kvöldverðurf. tvo í Perlunni tyrir allt að 15 þúsund.
Getraunaseðlar fást einnig í verslun okkar.
Spurt er: Hvað eru mörg vörunúmer á lager hjá
Bílanaust h/f?
Nefnið einhverja tölu á bilinu 40000 til 50000, og
sá/sú sem kemst nœst réttri tölu vinnurfsileg verðlaun.
r ■■
10“
it.
!I
z
5
'oo
'<
I
I
I
I
I
I
l'<
■ oc
□
□
CL
<
1 S
Afmœlistilboð sem
enginn œtti að aka
framhjá!