Morgunblaðið - 22.04.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
35
Sveit Landsbréfa varði
Islandsmeistaratitilinn
Morgunblaðið/Arnór
Islandsmcistararnir í sveitakeppni 1992: Matthías Þorvaldsson,
Björn Eysteinsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson,
Jón Baldursson og Magnús Ólafsson.
Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur Jónsson, Sigtryggur Sigurðs-
son og Bragi Hauksson spila í síðustu umferðinni.
_________Brids_______________
GuðmundurSv. Hermannsson
SVEIT Landsbréfa varði ís-
landsmeistaratitilinn í sveita-
keppni í brids um páskana í
annars jöfnu og spennandi móti.
Fyrir síðustu umferð áttu fjórar
sveitir fræðilegan möguleika á
sigri en sveit Landsbréfa hafði
bestu stöðuna og tryggði sér
titilinn með sigri í síðasta leikn-
um. I sigursveitinni voru Aðal-
steinn Jörgensen, Jón Baldurs-
son, Björn Eysteinsson, Magnús
Ólafsson, Matthías Þorvaldsson
og Sverrir Ármannsson. Þetta
var þriðji íslandsmeistaratitill
Magnúsar í röð en aðeins einn
annar spilari, Stefán Guðjohn-
sen, hefur náð þeim áfanga í
43 ára sögu þessa móts. Sverrir
og Matthías voru hins vegar að
vinna sinn fyrsta íslandsmeist-
aratitil í sveitakeppni en þeir
eru núverandi Islandsmeistarar
í tvímenningi.
Það varð snemma ljóst að bar-
áttan um Islandsmeistaratitilinn
myndi aðallega standa milli sveita
Landsbréfa og Verðbréfamarkaðar
Íslandsbanka. Landsbréfamenn
náðu mikilvægum áfanga þegar í
annarri umferð með því að vinna
sveit Tryggingarmiðstöðvarinnar
23-7 og tók síðan forustuna í þeirri
þriðju þegar VÍB tapaði fyrsta og
eina leik sínum á mótinu, 13-17
fyrir sveit Rauða Ijónsins.
Tvær efstu sveitirnar mættust
í 6. umferð og VÍB fór með naum-
an sigur af hólmi, 16-14, og var
þetta eina tap Landsbréfa. Og fyr-
ir síðustu umferð voru Landsbréf
með 121 stig, VÍB með 109,
Tryggingamiðstöðin með 108 og
Hjalti Elíasson með 98. í lokaum-
ferðinni spiluðu saman Hjalti og
Landsbréf og VIB og Trygging-
amiðstöðin og hver þessara sveita
hefði getað unnið mótið miðað við
hagstæð úrslit í hinum leiknum.
I hálfleik var enn allt óljóst þar
sem Hjalti hafði 12 IMP-stiga for-
skot á Landsbréf og VÍB hafði 12
stiga forskot á Tryggingamiðstöð-
ina. Fyrmefndi leikurinn var sýnd-
ur á sýningartöflu og úrslit spila
í hinum leiknum voru birt þar jafn-
óðum en sömu spil voru spiluð í
öllum leikjum. Staðan breyttist lít-
ið lengi vel í síðasta hálfleiknum
og eftir því sem spilunum fækkaði
styrktist staða Landsbréfa. Og í
síðustu spilunum sneru Lands-
bréfamenn leiknum sér í hag og
unnu að lokum 18-12 og tryggðu
sér titilinn.
Lokastaðan á íslandsmótinu
varð þessi:
1. Landsbréf 139
2. VÍB 127
3. Tryggingamiðstöðin 118
4. Rauða ljónið 111
5. Hj alti Elíasson 110
6. S. Ármann Magnússon 101
7. Gunnlaugur Kristjánsson 71
8. Sigfús Þórðarson 49
Jóhannsson, Örn Arnþórsson,
Guðmundur Páll Arnarson, Þorlák-
ur Jónsson, Karl Sigurhjartarson
og Sævar Þorbjörnsson. í sveit
Tryggingamiðstöðvarinnar spiluðu
Hrólfur Hjaltason, Sigurður Vil-
hy'álmsson, Páll Valdimarsson,
Ragnar Magnússon, Bragi Hauks-
son og Sigtryggur Sigurðsson.
Eins og áður sagði voru spiluð
sömu spil í öllum leikjum og var
jafnframt reiknuð út frammistaða
einstakra para. Þar fengu
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson hæsta meðalskorið,
eða 18,23 stig, Hjalti Elíasson og
Oddur Hjaltason komu næstir með
17,9 stig og Matthías Þorvaldsson
og Sverrir Ármannsson voru í 3.
sæti með 17,72 stig.
íslandsmótið var sérstaklega
styrkt af íslandsbanka og afhenti
Ragnar Önundarson framkvæmd-
astjóri bankans verðlaun í mótslok.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og Kristján Hauksson spil-
aði á sýningartölvuna. Um móts-
blaðið sáu Guðmundur Pétursson,
Elín Bjarnadóttir og Valgerður
Kristjónsdóttir.
Námstefna
í heilsusál-
fræði
ÍSLENSKA félagið um atferlis-
og hugræna meðferð mun standa
fyrir námstefnu 23.-25. apríl
næstkomandi. Sálfræðingar og
geðlæknar, sem margir eru
heimsþekktir fyrir rannsóknir
sínar og meðferð, koma þá hingað
til lands og kynna störf sín, segir
í frétt frá félaginu.
Heilsusálfræði er þema námstefn-
unnar, en þessi grein sálfræðinnar
leggur áherslu á að bæta heilsu
manna og fyrirbyggja sjúkdóma sem
tengjast lífsháttum okkar. Vitað er
að margvíslegir sjúkdómar manna
tengjast lífstíl þeirra. Á námstefn-
unni verður m.a. sérstaklega fjallað
um fíkn ýmiss konar, truflanir á
matarvenjum og sálræn einkenni um
streitu. Lögð er áhersla á mikilvægi
sálfræðinnar í heilsuvernd.
Námstefnan fer fram í formi eins
dags námskeiða um eftirtalin efni:
Fimmtudagur: Nr. 1. Heilsusál-
fræði: próf. K. Gunnar Götestam.
Nr. 2. Sjúkdómsótti: Dr. P.
Salkovskis. Nr. 3. Stjórn áfengis-
neyslu: Dr. F. Duckert.
Föstudagur: Nr. 1. Meðferð offitu^C
lotugræðgi og lystarstols: próf. L.
Craighead. Nr. 2. Ónæmiskerfið og
viðbrögð við álagi: Dr. A. Stone og
Dr. Heiðdís Valdimarsdóttir. Nr. 3.
Hugræn meðferð á ofsakvíða: Dr.
D. Clark.
Laugardagur: Nr. 1. Atferlis- og
hugræn meðferð á þunglyndi og
depurð: Próf. E. Craighead. Nr. 2.
Dáleiðsla: Dr. Jakob Jónasson.
Alla dagana verða auk þessa fyrir-
lestrar um efni námskeiðanna. Nám-
stefnan sem fer fram á ensku, er _
haldin í kennslustofum geðdeilda
Landspítalans og er einkum ætluð
fagfólki heilbrigðisstétta. Nánari
upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Endurmenntunar Háskóla íslands.
w
AUGLYSINGAR
Aðalfundur Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1992 verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.30. Fundarstaðurverðurá Háaleitisbraut 11-13. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. NC VERSUJNARMANNAFÉIAG )) SUÐURNESJA ' ) I IAFNARGÖTU 18 - 230 KEFLWIK - SÍMI 92-12570 ^ kt. 690269-0669 Tennisáhugafólk Aðalfundur Tennisfélags Kópavogs verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.30 í Kópavogsskóla. Venjuleg aðalfundárstörf. Stjórnin.
Stjórnin. Aðalfundur Aðalfundur Verslunarmannafélags Suður- nesja verður haldinn í Hafnargötu 28, Keflavík, miðvikudaginn 29. apríl nk. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Knattspyrnufélagið Xq/ Valur Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Vals verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl 1992, kl. 20 í gamla félagsheimilinu að Hlíðarenda. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 7. gr. sam- þykkta félagsins. Stjórnin.
Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl í Ár- mannsheimilinu kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Stjórnin.
SUMtauglýsingar
HELGAFELL 59924227 VI 2
□ GLITNIR 599204227 - Frl.
I.O.O.F. 9 = 1734228’A M.A.
I.O.O.F. 7 = 1734226'h. A.H.*
Kripalujóga
Byrjendanámskeift hefst 27.
apríl.
Kennt verftur á mánudögum og
miftvikudögum kl. 20.00-21.30.
Upplýsingar i síma 679181 milli
kl. 17.00 og 18.00.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
,22.4. - SAR - MT
Barnauppeldi -
samskipti
Markvisst, skemmtilegt nám-
skeið í árangursríkum uppeldis-
aftferftum. Hentar öllum. Kennt
1 kvöld I viku, 5 vikur. Hefst
miftvikud. 29. apríl kl. 20.00.
Takmarkaöurfjöldiþátttakenda.
Upplýsingar og skráning í sima
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Munift fjölskyldusamveruna á
morgun sumardaginn fyrsta kl.
18. Allir hjartanlega velkomnir.
Qútivist
Hallveigarstíg 1, sími 14606
Dagsferð sumardaginn
fyrsta þann 23. apríl
Kl. 13.00; Eldvörp-útilegu-
mannakofarnir.
Sjáumst! Útivist.
Seltjarnarneskirkja
Kvöldmessa í kvöld, miftviku-
dagskvöld, kl. 20.30. Sönghóp-
urinn Án skilyrfta, leiðir sönginn.
Prestur séra Solveig Lára Guft-
mundsdóttir.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Árbók 1992 er komin út!
Árbók Ferftafélagsins 1992 er
komin út. Aöalefni árbókarinnar
er aft vanda land- og leiöalýsing.
Að þessu sinni er fariö í eyfti-
byggftir norður í Suftur-Þing-
eyjarsýslu (sjé grein i Lesbók
Mbl.) Félagar geta náft I bókina
á skrifstofu FL Árgjaldið er kr.
3.000,- (bókin innifalin). Gerist
félagar - árbækurnar eru ein
besta Islandslýsing sem völ er á.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
23. apríl - kl. 13. Sumri
fagnað á Keili
Keilir er eitt mest áberandi fjall
á Reykjanesskaga 379 m y.s.,
auftvelt uppgöngu og góöur út-
sýnisstaftur. Verft kr. 1.100,-.
26. apríl - kl. 13. Esja-vest-
urbrúnir/R-1a og Kjalar-
nestangar-Saurbær/R 1-b
Fyrstu áfangar í raftgöngu til
Borgarness og sú nýjung er tek-
in upp að nú getur fólk valift um
tvo kosti: a) fjallahring Hvalfjarft-
ar og b) strönd og láglendi Hval-
fjarftar. Gengift veröur i 10
áföngum til Borgarness og þar
lýkur göngunni 19. sept.
r
Helgarferð til Þórsmerkur
1.-3. mai. Brottför kl. 08.00
Gist i Skagfjörftsskála og farnar
gönguferftir meft fararstjóra.
Upplýsingar og farmiftasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.