Morgunblaðið - 22.04.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
37
styrkja okkur öll á svona stundu,
þá sérstaklega foreldra hans, bróð-
ur, ömmur og afa.
Minningin lifir um ljúfan dreng,
hafi hann þökk fyrir allt og allt.
Þó lífið enginn skilji, verði guðs vilji.
Steini og Jóna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefí,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(V. Briem)
Með þessum ljóðlínum langar
okkur frændsystkinin að kveðja
okkar ástkæra frænda sem var svo
skyndilega hrifinn á brott frá okkur.
Guð blessi hann og varðveiti og
alla hans fyölskyldu. Hafi hann þökk
fyrir allt.
Steini, Diddi og Þóra.
Sólin er hnigin til viðar í lífi ungs
og efnilegs pilts, Geirs Þórs Jó-
hannssonar.
Hressir og kátir unglingar fóru
í saklaust skíðaferðalag, Geir kom
ekki heill til baka.
Við, fjölskylda Lárusar, kynnt-
umst Geir haustið 1990 þegar þeir
félagarnir byijuðu saman í Hlíða-
skóla. Við erum hryggari en orð fá
lýst yfir því áð fá ekki að njóta
samveru hans lengur, en jafnframt
ríkari eftir kynnin.
Okkur langar til að þakka Geir
fyrir einstaklega ljúfa viðkynningu.
Minningin um hann lifir.
Haust. Og garðflatir
grænar við sjóinn fram.
En reyniviðarhríslur
rauðar, í gulu ljósi.
Samtímis deyja
ekki sumarsins grös og lauf.
Allt deyr
að eigin hætti.
Allt deyr
en óviss er dauðans tími.
Dauðinn er regla
sem reglur ná ekki til.
(Hannes Pétursson)
Fjölskyldan Eskihlíð lOa.
ÓKEYPIS
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
FRÁ KLUKKAN
11:30 TIL 23:00
ALLA DAGA
BRAGAGATA 38A
Það er erfitt að sætta sig við að
Geir sé dáinn. Okkur datt ekki í
hug að dauðaslys mundi gerast í
þessari skemmtilegu skíðaferð. Á
meðan hann lá á spítalanum neituð-
um við að trúa því að hann mundi
deyja. Fréttin um andlátið kom eins
og hnífsstunga í bakið. Og okkur
finnst svo óréttlátt að hann hafi
verið hrifinn svona snöggt í burtu.
Það verður erfitt að venjast auða
sætinu í bekknum okkar eftir
páskafríið þó við reynum að sætta
okkur við það.
Geir var alltaf mjög hress og
skemmtilegur. Honum gekk vel í
skólanum og hafði mikla lífsorku.
Hann hafði glæsta framtíðar-
drauma og stefndi hátt. Hann var
mikill mannvinur því hann níddist
ekki á neinum og var góður við alla.
Með þessum orðum viljum við
minnast góðs vinar og bekkjarfé-
laga.
Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von, sem hefur vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst.
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn, sem aldrei verða menn.
(D.S.)
Bekkjarfélagar 9. E.S.,
Hlíðaskóla.
Innan íþróttahreyfingarinnar læ-
rist ungu fólki að takast á við lífið.
Þar er því skapaður vettvangur til
að eignast félaga í leik og keppni.
Þar er ungu fólki kennt að það
verður að taka sigrum með hóg-
værð og tapi með reisn.
Það veitir okkur sem störfum að
félagsmálum hjá Knattspyrnufélag-
inu Val mesta ánægju að fylgjast
með einstaklingum sem ganga til
liðs við félag okkar og ná árangri
í íþrótt sinni og taka út félagslegan
þroska um leið.
Geir Þór Jóhannsson stundaði
körfubolta hjá Val. Það var feiminn
en kurteis drengur sem byijaði að
koma á æfíngar hjá 9. flokk körfu-
knattleiksdeildar Vals í haust. Með
áhuga og ástundun náði hann tök-
um á íþróttinni og sem meir var
um vert, hann eignaðist félaga og
féll inn í hóp þeirra drengja sem
fyrir voru.
Við Valsmenn samhryggjumst
nánustu fjölskyldu Geirs og öllum
þeim sem eiga um sárt að binda á
þessari sorgarstund. Minningin um
góðan dreng mun lifa í hjörtum
okkar Valsmanna.
F.h. Knattspyrnufélagsins Vals.
Sljórn og þjálfarar körfu-
knattleiksdeildar Vals.
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31Ó99
tiiki s+n*
Skreytingar við öli tilefni.
Gjafavörur.
ÖFLUGRI HREYFLAR
Bensínhreyfbr með eldsneytisinnsprautun
4ra strokka 1,4 litra, V,8 Íítra, 2,0 lítra
og V6 2,8 lítra
VerS frá kr. 1.051.200
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ
AUKIÐ ORYGGI
Sérstyrkt yfirbygging - Aflögunarbitar fremst
á burðarvirki
M #
HEKLA GÆÐASTIMPILL
LAUGAVEG1174 GEGNUM ÁRIN
SIMI695500
MEIRI UMHVERFISVERND
Þrívirkur hvarfakútur með súrefnisskynjara
Endurvinnanleg plastefni samkvæmt staðal-
merkingu
#
Bíll ársins í Evrópu 1992
RÚMBETRI
Meira höfuðrými - Meira axlarými
meira fótarými - Betri sæti
AUKIN AKSTURSHÆFNI
Meiri sporvídd aftan og framan - Meira
hjólahaf - Meira fjöðrunarsvið - Betri hemlun
NÝ YFIRBYGGING
Avalar útlinur - Lægri vindstuðull
Fullkomin ryðvörn