Morgunblaðið - 22.04.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1992
43
sem vinna, fyrirtæki og heimili voru
undir sama þaki og öllum kemur
allt við í henni Keflavík, landinu
og miðunum. Mikið var um heim-
sóknir á þeim tíma til Laugu og
Bjössa, barnabörn Sigurbjörns voru
barnabörn hennar, bæði í hennar
augum og þeirra. Það var eins og
hún hefði meiri ábyrgðartilfinningu
gagnvart börnum en aðrir og mátti
margt af henni læra. Þau löðuðust
að henni, hún nýtti sér öll tækifæri
í samskiptum við þau til að kenna
þeim, hafði óþijótandi þolinmæði
og kom kímnigáfan hennar að góð-
um notum. Þau gengu alltaf fyrir
öllu börnin, voru þá húsverkin
geymd um sinn eða unnin þegar
aðrir voru sofnaðir.
Því var það þegar fór að halla
undan fæti og hún gat ekki lengur
gefið af gnægtarbrunni sínum varð
hún ósátt. Hún hafði alltaf veitt,
endalaust, hún kunni ekki annað,
hún fann vanmátt sinn og við vorum
ekki þess megnug að geta dreift
huga hennar eða bera með henni
sárustu hugsanirnar. Seinustu átta
árin dvaldi hún á Hrafnistu í Hafn-
arfirði og á sjúkradeild þar sl. 6 ár.
Þegar Lauga flutti á Hrafnistu
kom hún í nýtt samfélag sem mis-
munandi auðvelt er að aðlagast og
var það ekkert auðvelt fyrir hana
til að byrja með. Hún hafði aldrei
verið fyrir stór félög eða klúbba,
fann sig ekki í þannig félagsskap.
Heimilið var hennar félag. En á
sjúkradeild Hrafnistu var auðfundið
að henni leið eins vel og hægt var.
Hjúkrunarliðið þar var með ein-
dæmum hlýtt við hana og gott. Það
var það sem hún þurfti. I vetur gat
hún ekkert tjáð sig en hugsunin var
skýr, það gerði hana daprari og
okkur vanmáttugri.
Lauga gat grátið með öðru aug-
anu og hlegið með hinu í sömu
andrá og sagði ekki spámaðurinn
Gibran að sorgin og gleðin héldust
í hendur?
Og ennfremur þessa speki: „Þeg-
ar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
huga þinn og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess sem var gleði
þín.“
Þess vegna grátum við í dag,
Lauga var gleði okkar, hlýja og
kærleikur.
Þess vegna gleðjumst við í dag
vegna þess að gleðin og sorgin eru
systur og erfitt að vera sorgmædd-
ur án þess að hugsa um gleðistund-
irnar með Laugu sem voru svo
margar.
Hvíl hún í friði.
Sóheig.
öræfin. Þar átti að láta drauminn
rætast og ferðast um. Síðastliðið
sumar fór Magnús norður til
Hvannár til fundar við skyldfólk
konu sinnar, Elínar, þar sem haldið
var ættarmót. Þar fór hann með
frænda Elínar upp í fjöllin, þar sem
hreinleikinn ríkir og það var honum
ógleymanleg ferð. Að henni lokinni
lét hann draum sinn um að eignast
bíl sem hann gæti ferðast inn á fjöll-
in rætast og þangað stefndi hugur-
inn í sumar, en það var ferðin sem
aldrei var farin. Önnur og lengri
ferð var á undan, ferð sem enginn
ræður sjálfur, en allir fara að lok-
um.
Soffía Vilhjálmsdóttir.
Vetrarstarf Kirkjumið-
stöðvar Austurlands
í ÁGÚST á liðnu sumri var Kirkjumiðstöð Austurlands að Eiðum
vígð að viðstöddu miklu fjölmenni. Kirkjumiðstöð Austurlands er
sjálfseignarstofnun í eigu prófastsdæmanna hér á Austurlandi.
Markmiðið með byggingu þessa húsnæðis var að reka miðstöð safn-
aðar- og annars menningarstarfs
gæti bæði ungum og öldnum.
Síðastliðið haust hófust ferming-
arbúðir á staðnum. Ekki hefur fyrr
gefist tækifæri til þess að reka slík-
ar búðir hér á Austurlandi þar eð
húsnæði hefur skort. En nú hefur
öllum söfnuðum i Austfirðingafjórð-
ungi boðist að senda fermingar-
börnin sín í fermingarbúðir og
margir hafa nýtt sér þessa þjón-
ustu.
Fermingarbúðirnar hafa farið
þannig fram að hver hópur hefur
komið um hádegisbil í miðstöðina
og dvalið þar í einn sólarhring,
25-40 krakkar í einu. Með hópunum
hafa komið viðkomandi prestar,
enda markmið fermingarbúðanna
ekki hvað síst fólgið í því að gefa
prestum og börnum tækifæri til
þess að kynnast.
Framkvæmd þessa „fermingar-
sólarhrings" hefur verið í höndum
fræðslufulltrúa þjóðkirkjunnar en
honum til aðstoðar hefur verið
öflugt starfslið úr fermingarbúðum
þjóðkirkjunnar í Skálholti í Biskups-
tungum.
Ohætt er að fullyrða að náin
kynni tókust inilli presta, ferming-
arbarna og leiðbeinenda, kynni er
fylgdu öllum heim og lifa lengi.
AIIs tóku 120 fermingarbörn frá
9 prestaköllum þátt í þessum ferm-
á Austurlandi, miðstöð er nýst
ingarbúðum.
I vetur hafa auk þessa ófáir skól-
akrakkar gist búðirnar með kennut'-
um sínum af hinu margbreytileg-
asta tilefni. Kirkjumiðstöðin hefur
einnig verið leigð út sem hvert ann-
að safnaðarheimili. í miðstöðinni
er frábær aðstaða fyrir hvers konar
félagsstarf.
Brátt munu berast bæklingar inn
á hvert heimili fjórðungsins er
greina frá sumarstarfi Kirkjumið-
stöðvarinnar. Sumarbúðir kirkjunn-
ar flytjast nú í hið nýja húsnæði,
einnig orlofsbúðir aldraðra og dval-
ardagar þroskaheftra. Auk þess
hafa lúðrasveitir, félög eldri borg-
ara, stjórnmálaflokkar og fleiri og
fleiri leigt húsnæði þá fáu daga sem
lausir eru í sumar.
Kirkjumiðstöðin er að verða að
raunverulegri miðstöð alls safnað-
arstarfs á Austurlandi. Ætlunin er
að hún verði aflstoð hvers konar
menningarstarfs í fjórðungnum og
af því tilefni verður haldið upp á
árs afmæli miðstöðvarinnar með
opnu þingi þar sem fjallað verður
um stöðu menningar og framtíð á
Austurlandi. Dagskrá og fram-
kvæmd þingsins verður auglýst er
nær dregur.
(Fréttatilkynning)
BOURJOIS
KYNNING
á nýju vor- og sumarlitunum:
Kaupstaður í Mjódd, ....miðvikud. 22. apríl
Hagkaup Skeifunni, .......föstud. 24. apríl
Ársól, Grímsbæ, ........fimmtud. 30. apríl
Hagkaup, Kringlunni, ......mánud. 4. maí
Mikligarður v/Holtaveg, .fimmtud. 7. maí
Sigurboginn, Laugav. 80....föstud. 8. maí
frá kl. 15-18
Gréta Boða, förðunarfræðingur veitirfaglega ráð-
gjöf um förðun og liti.
Verið velkomin að líta inn.
Nýjasta námskeið Stjórnunarfélagsins -
ætlað stjórnendum - starfsmönnum - fjölskyldufólki og einstaklingum, sem
vilja tileinka sér aðferðir til þess að ná hámarksárangri í starfi og einkalífi.
PHOENIX námskeiðiö er meðal bestu námskeiða sem ég hef sótt. Á því lærir hver og
einn jákvæða sjálfsgagnrýni og að meta sjálfan sig og aðra að verðleikum. Þetta námskeið
er fyrir alla sem þora að skoða hlutina eins og þeir eru í raunveruleikanum og vilja finna
bestu hugsanlegu leið til að auka lifsánægju í starfi og leik. Námsgögnin sem fylgja tryggja
áframhaldandi nám og tryggja betri árangur en ég hef áður kynnst".
Friþjófur Ó. Johnson, O.Johnson & Kaaber.
Mérerþaðsönnánægja.aðgefa PHOENIX námskeiðinu mín bestu meðmæii. Kenningar
Brian Tracy eru mjög athyglisverðar og aðferðir hans öflugar. Ég hef tileinkað mér margt af
því sem ég lærði á námskeiðinu og hefur það reynst mér ótáilega vel, jafnt í einkalífi sem
og í starfi mínu. Námsgögnin eru fyrsta flokks og hafa gert mér kleift að halda áfram gð
læra og tileinka mér allt það besta eftir að námskeiðinu lauk".
Ólafur Vigfússon, Hagkaup
Námskeiðið er eitt það besta sem ég hef farið á. Brian Tracy miðlar boðskap sínum á
einfaldan og áhrifarikan hátt og skilur eftir hugmyndir og ábendingar sem allir geta nýtt sér í
vinnu jafnt sem einkalífi. Mjög gott námskeið.
Þórður Sverrisson, forstöðumaður
markaðsdeildar íslandsbanka.
Nánari upplýsingar um námskeiðíð fást hjá S tjó rnunarfélagi íslantís i s/ma 621066
Nárrtsketðið byggir á fyrirlestrurrt
Brtan Tracy, myndböndum á
ensku. vtnnubók og umræðum.
Hijóðsnældur til upprifjunar á
öllu námsefni fylgja.
PHOENIX fjallar um: Leiðir til árangurs á öllum sviðum lífs þíns, samband
sjálfstæðis og ábyrgðar, ógnir neikvæðra hugsana, útrýmingu sektarkenndar
og streitu, æskilegt hugarfæði", hraðnámstækni, markmiðasetningu og
hagnýtustu aðferðir til þess að ná markmiðum, mikilvægi tímastjórnunar, áhrif
hugsana á veikindi, leiöir til betri samskipta við fólk og leiðir til þess að börnin
þín verði hæfari einstaklingar.
Tímí næstu námskeiða:
4., 5., 6. maí
mán. (13—19), þri. (13—19), mið. (13—19).
7., 8., 9. maí
fim. (16—21), föst. (16—21), lau. (9—17).
18., 19., 20. maí
mán. (13—19), þri. (13—19), mið. (13—19).
INNRITUN HAFIN!
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15, sími 621066