Morgunblaðið - 22.04.1992, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.04.1992, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1992 t JÓHANNA ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Vestra-Fíflholti, andaðist i Sjúkrahúsi Suðurlands 20. apríl. Aðstandendur. t Bróðir okkar, VIGFÚS SCHEVING JÓNSSON frá Vatnsskarðshólum íMýrdal, lést á Hrafnistu að kvöldi páskadags. Ólafia Jónsdóttir, Guðný J. Scheving. t Hjartkær móðir mín og dóttir, ERNA SÆMUNDSDÓTTIR, Sjafnargötu 2, lést í Landskotsspítala 16. apríl. Elísabeth Jónsdóttir, Vigdís Þórðardóttir. t ELÍSABET JÚLÍUSDÓTTIR, Hafnarbúðum, áður til heimilis Tjarnargötu 5B, lést 16. þ.m. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Jóninna Þálsdóttir, Franz Pálsson. t Hjartkær eiginmaöur minn, faðir okkar og sonur, HANNES NORDAL MAGNÚSSON, lést á hjartadeild Royal Infirmary í Edinborg að morgni 20. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ásta Valdimarsdóttir, Guðrún Margrét Hannesdóttir, Valdimar Kristinn Hannesson, Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir. t Eiginmaður minn, MATTHÍAS GUÐMUNDSSON fyrrv. bankaútibússtjóri, Þórunnarstræti 91, Akureyri, lést 20. apríl sl. Fyrir hönd aðstandenda. Helga Torfadóttir. t Ástkær sambýliskona min og móðir okkar, INGIBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR, Grýtubakka 28, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala mánudaginn 20. apríl. Bjarni Sigurbjörnsson, Ásta S. Eyjólfsdóttir, Ólöf Þ. Eyjólfsdóttir, Gróa V. Eyjólfsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og amma, LÁRA B. ÞORSTEINSDÓTTIR, Miðvangi 3, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum að morgni 18. apríl sl. Útförin veröur auglýst síðar. Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ingunn St. Einarsdóttir, Hjálmar Þröstur Pétursson, Þorsteinn Auðunsson, Lili Hjördís Auðunsson, Róbert Einar Pétursson, Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson. Guðmundur Stein- dórsson - Minning* Fæddur 6. ágúst 1911 Dáinn 14. apríl 1992 Tengdafaðir minn, Guðmundur Steindórsson, er látinn. Hann fædd- ist 6. ágúst 1911 í Ási í Hruna- mannahreppi en dó að morgni 14. apríl 1992 á Landspítalanum eftir rúmlega 10 daga legu. Guðmundur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðbjörg Jörg- ensdóttir, fædd 29. janúar 1913, dáin 26. desember 1952. Þeim varð þriggja bama auðið: Anna húsmóð- ir, fædd 16. janúar 1948; Steindór bifreiðarstjóri, fæddur 21. mars 1949; og Guðrún húsmóðir, fædd 5. júlí 1950. Guðmundur og Guðbjörg giftu sig 8. nóvember 1947 en hún dó á jólum 1952 aðeins fímm árum seinna frá manni og þremur ungum börnum. Guðmundur reyndi að basla með bömin sín þijú og naut aðstoðar frá tengdafólki og foreldr- um sínum. Elskuleg mágkona hans, Ragna Jörgensdóttir, og hennar maður, Sigurður, tóku þó til sín yngsta bamið, Guðrúnu, og gengu því í foreldra stað og má þá með sanni segja að Guðrún hafi verið rík því hún átti tvo pabba. Foreldr- ar Guðmundar, þau Steindór og Guðrún í Ási, tóku drenginn til sín um fímm ára aldur og fram á skóla- aldur og svo öll sumur fram til 16 ára aldurs en á vetuma var hann hjá föður sínum og seinna stjúpu sem reyndist honum mjög vel. En Önnu reyndi Guðmundur eftir bestu getu að hafa sem mest hjá sér en þó með aðstoð skyldra og óskyldra. Þetta voru erfiðir tímar og einhvern veginn held ég að Guð- mundur hafí aldrei alveg getað unnið fullkomlega úr sinni sorg, en reynt að gleyma með gegndarlausri vinnu og alla ævi vom jólin honum erfið. En öll él birtir upp um síðir því 1958 gekk Guðmundur að eiga elskulega eiginkonu sína, Þuríði Kristínu Hjálmtýsdóttur, fædda 5. október 1920, ættaða úr Haukadal í Dalasýslu og eignuðust þau fimm mannvænleg börn: Elstur er Guð- mundur bifreiðastóri, fæddur 1955, þá Guðbjörg sjúkraliði, fædd 1957, Áslaug matráðskona, fædd 1958, Elín hjúkrunarfræðingur, fædd 1959, og síðust er Ólöf húsmóðir, fædd 1961, og átti Guðmundur átta börn og 22 barnabörn á lífi þegar hann lést. Einnig tók hann að sér að vera afi dóttur minnar af fyrra hjónabandi frá því ég kom í hans fjölskyldu en hún hafði misst föður sinn og var bara þriggja ára, enda voru þau hjónin í hennar huga aldr- ei annað en afi og amma á Lang- holtsveginum og hefur hún nú gert þau að langafa og langömmu. Oft heyrði ég talað um vinnusemi Guðmundar og greiðvikni enda leit- uðu margir til hans um aðstoð sem hann var alltaf fús að veita. Hús þeirra hjóna ber líka merki um þann kraft og þá atorku sem Guðmundur hafði, hús upp á þijár hæðir, ein íbúð á hæð. Sumir hafa átt fullt í fangi með eina íbúð, hvað þá meira. Tengdafaðir minn var alltaf mik- ill harmonikkuunnandi. Hann spil- aði fyrir dansleikjum í hreppunum þegar hann var ungur maður. Hann átti alla tíð harmonikku og þegar hann var kominn á efri ár keypti hann sér nýja nikku og fór að æfa sig og rifja upp nóturnar. Mér fannst aðdáunarvert að horfa á þessar vinnulúnu hendur á gömlum manni svona liprar á harmonikk- unni fyrir utan hvað konan hans naut þess að hafa hann heima og hlusta á hann æfa sig. Ég gæti endalaust haldið áfram að skrifa um þenna mikilhæfa mann en það væri þá bara spurning um ævisögu. Guðmundur eignaðist 11 systkini og átti 8 hörkudugleg börn sem öll hafa fetað í fótspor föður síns hvað dugnað snertir og tvær yndislegar konur. Getum við þá ekki sagt að hann hafi verið ríkur, því þó að lífið hafi kannski ekki alltaf leikið við hann held ég samt að hann hafi verið hamingjusamur gamall maður og sáttur við tilver- una, og ætla ég hér með að þakka honum samfylgdina og það sem hann gerði fyrir mig. Ég bið guð að styrkja konuna hans og alla afkomendur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alit og allt. (V. Br.) Margrét Guðrún Brynjólfsdóttir. Sárt er að gráta góðan vin, sem grafar myrkrin hylja köid. Æ kemur eftir skúrir skin, er skýja dimmu rofna tjöld. Því vér síðar sjáum þá, sem hér skildust okkur frá. (E.B.) í dag er Vetur konungur að kveðja og sumarið tekur við, árstíð lífs og gróanda, sumarkomunni fylgir birta og ylur. En þá erum við minnt á fallvaltieika lífsins, er við í dag fylgjum tengdaföður mín- um, Guðmundi Steindórssyni, til ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð simi 620200 t Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, INGIBJÖRG ÍSLEIF HALLDÓRSDÓTTIR frá Gaddstöðum, Faxabraut 32c, Keflavík, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 19. apríl. Helgi G. Eyjólfsson og synir. t Móðir okkar, ÞÓRA SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Fornhaga 13, andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 16. apríl. Fyrir hönd aðstandenda. Helga Sigurðardóttir Neuffer, Jón Sigurðsson. t Útför sonar míns, GESTS GUÐNA ÁRNASONAR prentara, Kleppsvegi 134, verður gerð frá Langholtskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15.00. Gyða Árnadóttir. t Faðir minn, tengdafaðir og afi GUÐMUNDUR JÓNSSON, Stórholti 25, Reykjavik, lést á Droplaugarstöðum 20. apríl. Jarðarförin fer fram miðviku- daginn 29. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja, , Haukur Guðmundsson, Erna Sampsted og börn. t Ástkær faöir minn, bróðir og mágur, EINAR HÁLFDÁN KRISTJÁNSSON frá Bolungarvík, Flókagötu 2, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 22. apríl kl. 15.00. Jónína Margrét Einarsdóttir, Kristján Fr. Kristjánsson, Jónína Elíasdóttir, Jónatan Kristjánsson, Guðjón Kristjánsson, Sigurlína Kristjánsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir. Kolbrún Matthfasdóttir, Hulda Einarsdóttir, Christa Vilhjálmsdóttir, Ásgeir Vilhjálmsson,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.