Morgunblaðið - 17.06.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
23
Hátíðarstund verður í Kirkju-
hvoli kl. 14.00. Skrúðganga verður
farin frá Hofsstaðarskóla kl. 14.20
og munu skátar fara fyrir göngunni
ásamt Hornaflokki Kópavogs. Há-
tíðardagskrá fer fram við Flata-
skóla og hefst hún kl. 14.30 með
fánahyllingu. Þá setur Erling Ás-
geirsson, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs, hátíðina og fjallkonan
ávarpar hátíðargesti. Skólakór
Garðabæjar leiðir fjöldasöng og
hljómsveitin Hróðmundur hippi
leikur. Á hátíðarsvæðinu verður
boðið upp á minigolf, flugdreka, lín-
uskautasýningu, hestasýningu, fall-
hlífastökk, o. fl. Klukkan 17.00
vérður dagskráin flutt inn í íþrótta-
miðstöðina Ásgarð þar sem drengir
og stúlkur keppa í knattspyrnu,
Dixielandband Tónlistarskóla
Garðabæjar spilar, sýndir verða
fimleikar og jazzdans, trúðar koma
í heimsókn og margt fleira. Um
kvöldið verður karaokee-keppni í
Garðalundi ásamt því að hljómsveit-
in Hróðmundur hippi leikur fyrir
dansi. Hefst kvöldskemmtunin kl.
20.30.
Mosfellsbær:
Mikið um að
vera á þjóðhá-
tíðardaginn
Í MOSFELLSBÆ verður mikið
um að vera á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. Haldnir verða tónleikar,
keppt í íþróttum og stytta afhjúp-
uð.
Dagskráin hefst með innanfé-
lagsmóti yngri félaga hjá sunddeild
UMFA í Varmárlaug kl. 9.30. Að
því loknu verður boðið upp á kodda-
slag, boðsund milli frægra sund-
laugargesta og sitthvað fleira.
Klukkan 11.30 hefst 17. júní hlaup
UMFA. Þetta árlega víðavangs-
hlaup UMFA verður haldið á Varm-
árvelli. í Dvalarheimili aldraðra á
Hlaðhömrum verður afhjúpuð stytt-
an „Stúlka með ljós“ eftir Guðmund
Einarsson frá Miðdal kl. 13.30, en
styttan er gjöf til bæjarins frá fjöl-
skyldu hans. Eftir athöfnina við
Dvalarheimilið kl. 14.00 verður
gengið Bjarkarholtið niður Háholtið
að íþróttahúsinu þar sem barna-
og fjölskylduskemmtun fer fram.
Klukkan 14.30 hefst fjölskyldu-
skemmtun við íþróttahúsið. Þar
koma meðal annars fram vísnavin-
irnir Aðalsteinn Ásberg og Pálína,
hljómsveitin Kolrassa krókríðandi,
Leikfélag Mosfellssveitar og hljóm-
sveitin Gildran. Einnig munu ungir
söngvarar úr Mosfellsbæ keppa í
söngvarakeppni. Því næst mun
íþróttadeild UMFA bjóða upp á leiki
og þrautir á íþróttavellinum. Leikfé-
lagið býður bömum upp á andlits-
málningu og hestamannafélagið
Hörður býður þeim á bak. Milli kl.
15.30-17.00 býður björgunarsveit-
in Kyndill bæjarbúum í heimsókn,
og árlegt kökuhlaðborð íþrótta-
deildar UMFA verður í Hlégarði og
hefst kaffisalan kl. 15.30.
Hljómsveitin Gildran leikur á
unglingadansleik milli kl. 21.30-
00.30 og kemur Bubbi Mortens kl.
22.30. Opið hús verður í Hlégarði
fyrir fullorðna milli kl. 21.30-0.30,
aldurstakmark er 20 ár.
W
Jarlinn
~ V £ ITINGASJOfA-
t f. jtóttf wmMmm
NautagriUsteikur....................kr. 690,-
m/bak. kart., hrásalati og kryddsmjöri.
Lambagrillsteikur..................kr. 690,-
m/sama.
Barnaboxið vinsæia ................kr: 480,-
m/hamb., frönskum og kók.
Éslenskur fáni fylgir hverju barnaboxi i dag.
ATH.: Steikartilboðið gildir út júnimánuð.
uy/
jarlinn
V e I T I N 6 A S T o F A ■
Sprengisandi, sími 688088
HLBOÐ
VIKUNNAR