Morgunblaðið - 17.06.1992, Síða 33

Morgunblaðið - 17.06.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992 33 Vestnorræna þingmannaráðið: Níu tillögur um ýmis mál samþykktar á ársfundi Morgunblaðið/Rúnar Þór Nýtt Edduhótel hefur verið opnað í Þelamerkurskóla í Hörgárdal, en myndin er tekin í veitingasal hótelsins, frá vinstri eru Tryggvi Guðmundsson umsjónarmaður Edduhótelanna, Hafdís Ólafsdóttir, hótelstjóri, Kjartan Lárusson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu íslands og Hrafnhildur Pálsdóttir, fjármálastjóri. Edduhótelin 30 ára í sumar: Nýtt Edduhótel opn- að í Þelamerkurskóla NÝTT Edduhótel, Hótel Edda, Þela- mörk, var nýlega opnað í Þelamerk- urskóla í Hörgárd- al, en það er í um 10 kílómetra fjar- lægð frá Akureyri. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði skólans þar sem hótelið er nú rekið og voru m.a. sett ný rúm í öll herbergin sem eru 32. Veitingasalur hefur einnig verið endurnýjaður, en gestir hafa einnig aðgang að setustofu, sjónvarpsstofu og leikstofu fyrir börn. Hótelstjóri er Hafdís Ól- afsdóttir. Hótel Edda, Þelamörk býður al- hliða veitingaþjónustu frá morgni til kvölds. Útisundlaug er við hótel- ið til afnota fyrir gesti, heitur pott- ur og eimbað auk útileiktækja. Veitingasalurinn verður nú opinn allan daginn og sérstakur matseð- ill verður í gangi þar, en þá verður lögð áhersla á að bjóða úrval af heimabökuðum tertum og ísrétti yfir daginn. Myndlistarsýning hefur verið opnuð á hótelinu og stefnt að því að koma fleiri sýningum upp í sum- ar. Þá verður fljótlega opnuð minjagripaverslun á hótelinu og verður aðaláherslan lögð á sölu varnings úr héraðinu. Hótelið stendur við hringveginn, en herbergi snúa öll frá veginum. Um 10 mínútna akstur er til Akur- eyrar og stutt að fara t.d. til Hrís- eyjar, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar um Skagaíjörð eða að Mývatni. í sumar eru liðin 30 ár frá því fyrsta Edduhótelið hóf starfsemi sína að Laugavatni, en nú eru rek- in 16 hótel víðs vegar um landið. Gistinætur á Edduhótelunum eru orðnar vel yfir eina milljón. Um 240 manns starfa á hótelunum og er reiknað meða að í sumar seljist 70-80 þúsund gistinætur í her- bergjum og í svefnpokaplássi. Ferðaskrifstofa íslands sem rek- ur Edduhótelin hefur undanfarið staðið í umtalsverðum endurbótum á húsnæði og búnaði hótelanna í samvinnu við heimamenn á hverj- um stað og verður því haldið áfram í sumar. Mjög hefur færst í vöxt að haldin séu ættarmót, fundir og ráðstefnur á Edduhótelunum og verður leitast við að bæta aðstöðu á þeim fyrir fjölskyldufólk. í sumar bjóða Edduhótelin ís- lendingum sem gista fleiri en fjór- ar nætur á hótelunum fimmtu nótt- ina án endurgjalds, tilboðið gildir á öllum hótelunum og er ekki háð því að gist sé fleiri en ein nótt á sama stað. Stjórnendur Edduhótel- anna vonast til þess að tilboðið verði til að hvetja íslendinga til að ferðast um landið áhyggjulaust yfir veðri og vindum þannig að þeir kynnist betur íslenskri nátturu. NÍU tillögur voru samþykktar á áttunda árfundi Vestnorræna þingmannaráðsins sem lauk á Akureyri á mánudag. Steingrím- ur J. Sigfússon var kosin formað- ur þingmannaráðsins í upphafi þingsins og mun hann gegna for- mennsku næsta starfsár, en ráðið mun halda næsta ársfund sinn í Færeyjum að ári. Þingið hófst með því að formenn landsdeild- anna þriggja, Islands, Færeyja og Grænlands, fluttu ræður um störf deildanna á starfsárinu, en einnig fjölluðu þeir um efnahags- og stjórnmálaástandið-í löndun- um, áhrif minnkandi þorskveiða og áhrif samninganna um Evr- ópskt efnahagssvæði. Á þinginu var samþykkt að beina þeim tilmælum til stjórna landanna að safna efni um það tfmabil í sjáv- arútvegssögu Grænlands og Islands er umsvif Færeyinga voru hvað mest í þorskveiðum þar. Þá var samþykkt að koma á skipulögðu samstarfi þjóðanna um upplýs- ingamiðlun og kynningu á lífshátt- um veiðimannasamfélaga við norð- anvert Atlantshaf. Lagt er til að rækilega verði kynntar aðstæður í umræddum löndum og nýting auð- linda hafsins. Fram kom f máli Steingríms J. Sigfússonar að hefð- bundin nýting á sumum dýrastofn- um hefði sætt mikilli gagnrýni og nokkuð vantað upp á að tekist hafi að kynna sjónarmið landanna og um sé að ræða hefðbundna nýtingu sem eigi sér langa sögu. Það væri skýr afstaða þingmannaráðsins að nýta beri alla dýrastofna sem þoli nýtingu. Þá var samþykkt að leggja til við ríkisstjórnir landanna að farið Frá fundi Vest-norrænu þingmannasamtakanna. Morgunbiaðið/Rúnar Þór verði skipulega yfir með hvaða hætti unnt sé að greiða fyrir sam- skiptum og örva viðskipti milli land- anna. Einnig að taka upp virkara samstarf á sviði samgöngumála og ferðaþiónustu. Auk þess sem sam- þykkt var að beina þeim tilmælum til ríktestjórnanna að fylgja eftir með beinum aðgerðum þeim þremur vestnorrænu ráðstefnum, um jafn- réttismál, æskulýðsmál og um- hverfismál, sem haldnar verða á árinu. Ein tillagan sem samþykkt var fjallaði um gerð vandaðs upplýs- ingaefnis um vestnorrænu löndin og þjóðirnar sem þar búa og stuðla að því að gildandi reglum verði breytt þannig að unnt verði að taka upp nemendaskipti milli allra vest- norrænu landanna. Loks má nefna aukið samstarf á sviði tölvumála og að stuðla að því að tryggt verði á sem bestan hátt að höfin verði ekki menguð vegna hemaðarum- svifa. Kór Glerárkirkju syngur í útlöndum KÓR Glerárkirlqu heldur á föstudag, 19. júní, í sína fyrstu utanlandsferð en farið verður í tveggja vikna ferðalag um meg- inland Evrópu. m Kæra Jelena í Samkomuhúsinu Kæra Jelena sem sýnd hefur verið fyrir fullu húsi á Litla sviði Þjóðleikhússins síðan í haust, verður i Samkomuhúsinu á Akur- eyri um helgina, en sýningar verða alls þijár, föstudag-, laugar- dag- og sunnudag kl. 20.30. Sama leikrit hefur aldrei verið sýnt svo oft á einu leikári, en frá því verkið var frumsýnt í október hefur það verið sýnt 117 sinnum og hefur verið uppselt á allar sýn- ingar. Leikritið vakti mikið umtal þeg- ar það fyrst kom fram 1980 og var það bannað fram til ársins 1986. Leikurinn gerist á afmælis- degi Jelenu, sem er kennari í framhaldsskóla. Nokkrir nemend- ur hennar koma óvænt í heimsókn til að óska henni til hamingju og færa henni gjafir, en fljótlega kemur í ljós að erindi þeirra er allt annað. Leikarar eru fimm talsins, Anna Kristín Arngrímsdóttir, sem leikur Jelenu, Halldóra Björns- dóttir, Baltasar Kormákur, Ingvar Sigurðsson og Hilmar Jónsson, sem leika nemendur hennar. Leik- stjóri er Þórhallur Sigurðsson, Messína Tómasdóttir gerði leik- mynd og búninga, en lýsingu Ás- mundur Karlsson og Björn Berg- sveinn Guðmundsson. Kórinn heldur tónleika á laugar- dag í Munsingen, skammt sunnan við Stuttgart og eru á efnisskránni nær eingöngu íslensk kórverk og þjóðlagaútsetningar, auk þess sem eitt þjóðlag frá hveiju Norðurland- anna er á efnisskránni og tvö þýsk lög. Á sunnudag syngur kórinn ásamt kór Martinskirkjunnar í Munsingen við sessu í Martins- kirkjunni, en kór Glerárkirkju dvel- ur í bænum í boði þess kórs. Lagt verður í ferðalag um Þýskaland og Frakkland, en þriðju- dagskvöldið 30. júní syngur kórinn á tónleikum í Aacher við landa- mæri Hollands og Belgíu. Undirbúningur hefur staðið í rúmt ár, en 37 kórfélagar taka þátt í ferðinni og samtals verða tæplega 60 manns með í för. Stjómandi kórs Glerárkirkju er Jóhann Baldvinsson, sem jafn- framt er organisti við Glerárkirkju. --------------» ♦ ♦-...— Þúsund andlit til Akureyrar HLJÓMSVEITIN Þúsund andlit, sem er ný af nálinni, mun halda norður í land þessa helgi. Hljómsveitinni hefur verið vel tekið þar sem hún hefur spilað hingað til. Mesta athygli vekur framlínan sem er skipuð tveimur söngvurum og tveimur bakradda- söngkonum, útlærðum í hreyfilist. Aðalsöngvarar hljómsveitarinnar eru þau Sigrún Eva, sem stóð á sviðinu í Malmö í Eurovision, og Tómas Tómasson söngvari. Hljóm- sveitin Þúsund andlit spilar í Sjal- lanum, Akureyri, föstudags- og laugardagskvöld. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.