Morgunblaðið - 17.06.1992, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
ii rmirj.s
STÆRSTA BÍÓIÐ ÞAR SEM - •
ALLIR SALIR ERU FYRSTA .
flokks HÁSKOLABÍO SIMI22140
SEKÚNDUBROTI
Háspennumynd frá upphafi til
enda með RUTGER HAUER
(HITCHER) íaðalhlutverki.
Hrottaleg morð eru framin rétt
við nefið á lögreglumanninum
STOIME (Rutger Hauer), sem
virðist alltaf vera sekúndubroti
á eftir morðingjanum.
Á SEKÚNDUBROTI
- MYND SEM HELDUR ÞÉR
í TAUGASPENNU!
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
I A
Lukku Láki: HETJA VILLTA VESTURSINS. Lukku Láki: SÁ EINI, SEM n A 1 TA(V| DD /CfM 1 o At i ^.,Íf 1 uÍnkii. BBm KMÍGHT
uhl i Ulv-DK/tOUR OTT- AST. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5 og 9. ’gui.'Tohaio,^. ★ ★ *G.E. DV. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 Bönnuð i. 16 ára.
.MYRKFÆLIul (AFRAID OF THE DARK) sýnd kl. 7 og 11. Bönnuð i. 16 ára
★
SIMI
SPECTRal RECORDirlG.
16 500
ÓÐURTIL
HAFSINS
Sýnd kl. 7.05
og 9.15.
Bönnuð i.
14ára.
nm DOLBY STEREO | gjFsl
f A- OG B- SAL
BUGSY
STÓRMYND
BARRYS LEVINSON.
WARREN BEATTY,
ANNETTE BENING,
HARVEY KEITEL, BEN
KINGSLEY, ELLIOTT
GOULD OG JOE MAN-
TEGNA.
MYNDIN, SEM VAR TIL-
NEFND TIL 10 ÓSKARS-
VERÐLAUNA.
MYNDIN, SEM AF MÖRG-
UM VAR TALIN BESTA
MYND ÁRSINS.
MYNDIN UM GOÐSÖGN-
INA BUGSY SIEGEL.
MYNDIN, SEM ENGINN
MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR
FARA.
★ ★ ★DV.
★ ★★★ AI. MBL.
Sýnd kl. 5,9 og 11.30.
Bönnuð börnum i. 16 ára.
Sýnd kl. 4.45.
STRÁKARNIRIHVERFINU
Sýnd kl. 11.35.
Bönnuði. 16ára.
BORN NATTURUNNAR
Sýnd kl. 7.30 í A-sal.
Opið hús í Norræna húsinu
Dagskrá fyrir ferðamenn frá Norðurlöndum
Vinnuferð í Þórsmörk
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd standa fyrir
vinnuferð í Þórsmörk í samvinnu við Ferðafélag íslands
dagana 19.-24. júní. Unnið verður við að lagfæra göngustíg-
inn upp á Valahnjúk. Farið verður með rútu Ferðafélags
íslands frá BSÍ kl. 20.00 næstkomandi föstudag og gist
verður í skála Ferðafélagsins í Langadal. Allir eru velkomn-
ir.
NORRÆNA húsið hefur
um árabil boðið ferða-
mönnum frá Norðurlönd-
um sem gista höfuðborg-
ina til dagskrár með fyrir-
lestrum um íslenska menn-
ingu og Iifnaðarhætti. Fyr-
irlesarar eru úr röðum
fremstu fræðimanna á
sínu sviði og eru erindin
flutt á einhverju Norður-
landamáli. Eftir fyrirlest-
urinn er sýnd kvikmynd
frá Islandi og eru það aðal-
lega myndir sem Osvaldur
Knudsen tók á sínum tíma.
Fyrsta opna hús sumars-
ins verður fímmtudaginn 18.
júní kl. 20.30. Fyrirlesari
kvöldsins verður Heimir
Pálsson cand.mag. og mælir
hann á sænsku. Fyrirlestur-
inn nefnist: „Islándsk kultur
genom tiderna“ og rekur
hann þar sögu íslenskrar
menningar í stórum dráttum.
Kaffíhlé verður eftir fyrir-
lesturinn og í kaffistofu er
hægt að fá gómsætar veit-
ingar, m.a. rjómapönnukök-
ur.
Kvikmyndin sem sýnd
Kaffisala
KFUM&K
KFUM og K í Reykjavík
efnatil kaffisölu í aðalstöðv-
um félaganna við Holtaveg
17. júní. Kaffisalan verður
opin frá klukkan 15 til 18.
Bygging aðalstöðva
KFUM og K stendur nú
yfir- og gefst gestum tæki-
færi til þess að skoða hin
nýju húsakynni. Sumarstarf
félaganna í sumarbúðum er
nú í fullum gangi. Ennfrem-
ur eru leikjanámskeið rekin
víðs vegar á Stór-Reykja-
víkursvæðinu.
verður er Eldur í Heimaey
og er hún með norsku tali.
í bókasafni Norræna
hússins liggja frammi bækur
um ísland og þýðingar ís-
lenskra bókmennta á öðrum
norrænum málum. Kaffí-
stofa og bókasafn eru opin
til kl. 22.00 á fímmtudags-
kvöldum í sumar.
Fimmtudaginn 25. júní
talar dr. Árni Siguijónsson
bókmenntafræðingur um
skáldverk Haildórs Laxness.
Á undan fyrirlestrinum
syngur kór frá Silkeborg í
Danmörku nokkur lög eftir
norræn tónskáld.
Aðgangur er ókeypis að
opnu húsi og eru allir vel-
komnir.
(Fréttatilkynning)
Heimir Pálsson
Sjálfboðaliðasamtökin voru
stofnuð árið 1986 og hafa því
starfað í sex sumur. Samtökin
skipuleggja vinnuferðir þar
sem unnið er að verkefnum
sem stuðla að náttúruvemd.
Starfað er á friðlýstum svæð-
um og öðrum þeim svæðum
sem sérstæð eru að náttúruf-
ari. Aðaltilgangur starfsins er
að veita fólki tækifæri til að
vinna að náttúruvemd; vernda
náttúruna; auðvelda fólki um-
gengni við náttúruna og auka
kynni sín af henni.
Draumur bófans
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Bugsy. Sýnd í Stjörnubíói.
Leikstjóri: Barry Levin-
son. Handrit: James
Toback. Aðalhlutverk:
Warren Beatty, Annette
Bening, Ben Kingsley,
Harvey Keitel, Elliott Go-
uld.
Nýjasta bíómynd leik-
stjórans Barry Levinsons,
„Bugsy", er ævintýraleg lýs-
ing á einum frægasta mafí-
ósa bandarísku glæpasög-
unnar. í henni leikur Warren
Beatty Bugsy Siegel stór-
kostlega vel en fyrir utan
að hafa verið ótýndur glæpa-
maður og morðingi er honum
eignað að hafa fundið upp
Las Vegas. Handritið, sem
James Toback skrifar, rekur
sögu hans frá því hann flyt-
ur vestur í kvikmyndaborg-
ina Hollywood og stjómar
þar undirheimunum og þar
til hann byggir fyrsta spila-
vítið í Nevadaeyðimörkinni
og startaði spilavítisiðnaði
sem til dagsins í dag hefur
gefíð af sér 100 milljarða
bandaríkjadala í tekjur.
„Bugsy“ er einstaklega
vel gerð bíómynd enda ekki
við öðru að búast frá hendi
fagmannsins Levinsons.
Hann og Toback og Beatty
gefa sérkennilega húmor-
íska og heillandi mynd af
• glæpamanninum og afar tví-
klofna: Hann er mafíósi með
draumsýn, fjölskyldumaður
sem sefur hjá hverri einustu
konu er hann kemst í tæri
við, hann er elskhuginn mikli
sem þó hefur litla stjórn á
ástkonunni eða kvennamál-
um sínum yfírleitt, hann er
ljúfastur og örlátastur
manna en líka hrottalegt
ruddamenni og morðingi, al-
gerlega stjórnlaus í illsku.
Myndin gerist um og eftir
. stríð og er hrífandi og
skemmtileg og tekst það sem
fáum getur tekist svo vel sé,
að gefa samúðarfulla lýsingu
á mafíósanum. Algerlega
taumlaus frásögnin er frá-
bærlega hröð og frískleg og
einkennist talsvert af því
sem kalla má absúrd gaman-
semi. Henni er beitt til að
lýsa klofinni manngerð Bug-
sys og nær hámarki á heim-
ili hans í New York þar sem
fjölskyldufaðirinn, elskhug-
inn og mafíósinn reynir að
halda í alla þræðina í einu.
Hann er inni í eldhúsi að
setja krem á afmælisköku
dóttur sinnar þegar stofan
fyllist af vinum hans úr
glæpastéttinni og hann reyn-
ir að fá þá til að setja pening
í Nevadaæfintýrið, mis-
heppnað afmælið er í næstu
stofu og í símanum reynir
Margflókinn mafíósi; úr myndinni „Bugsy“.
hann að fylgjast með ferðum
ástkonunnar í Los Angeles.
Allan tímann er hann með
þessa fáránlegu kokkahúfu
á hausnum og í svuntu.
Á þennan hátt byggir
myndin líka upp samúð með
Bugsy. Hið fjarstæðu-
kennda, spaugsama yfír-
bragð sögunnar er ekki síst
leik Beatty að þakka. í hans
höndum er Bugsy hégóma-
gjarn og með afbrigðum af-
brýðissamur, maður sem
hugsar sérstaklega vel um
brúnkuna sína og honum
fylgja sólarlampar hver sem
hann fer. Hann er oft sýndur
halda fundi með fegrunar-
krem í andlitinu og með
agúrkur yfír augunum.
Lengi vel er hann með plön
uppi um að skreppa til Ítalíu
og myrða Mússólíni og verð-
ur svekktur þegar ítalir taka
af honum ómakið og hann
er maður sem gengur út í
eyðimörkina og fær hug-
ljómun - spilavíti í sandauðn-
inni. Að vissu leyti þurfti
augljóslega galinn mann til
að framkvæma svo fjar-
stæðukennda hugmynd.
Ef einhverstaðar má fínna
bófadýrkun þá er það í
„Bugsy“. Levinson og
Toback gera í því að sýna
manninn í samúðarfullu Ijósi
- jafnvel ofbeldisatriðin eru
grunduð honum í vil - þang-
að til myndin verður saga
af enn einum bandarískum
athafnamanni og frumkvöðli
í viðskiptalífinu. Meingallað-
ur að vísu með sýnar skugg-
alegu hliðar en hetja á sinn
hátt.
Mikill hluti myndarinnar
snýst um vægast sagt
stormasamt samband Bugsy
og Virginiu Hill, sem An-
nette Bening leikur af glæsi-
brag. Reyndar liggur þar
veikasti hlekkur þessarar
frábæru myndar því enginn
tími er gefinn til að varpa
ljósi á það samband og skýrt
af hveiju hann sækist stíft
eftir þessari konu þegar allir
vara hann við henni og af
hveiju hún kemst upp með
það sem engir aðrir komast
upp með þar til hún verður
orsök þess hvemig fyrir hon-
um fer.
Úrvalshópur leikara fer
með stór og smá hlutverk í
„Bugsy“ en þeirra helstir eru
breski leikarinn Ben Kings-
ley, sem leikur mafíósann
Meyer Lansky er einn hafði
trú á Bugsy, Harvey Keitel,
sem leikur hægri hönd Bug-
sys og Elliott Gould, sem
sjaldséður er orðinn á hvíta
tjaldinu en leikur hér vin
Bugsys og svikara við maf-
íuna.
Levinson færir söguna af
Bugsy í heillandi búning.
Hann er handverksmaður
sem skilar frábæru verki án
þess að vera mjög áberandi,
Hann er góður sögumaður á
fílmu og gætir þess að stíl-
færingin dragi aldrei athygl-
ina frá því sem máli skiptir.
Hann hefur gert virkilega
áhrifaríka bíómynd um ein-
hvern sérkennilegasta kar-
akter glæpamyndanna.
„Bugsy" var útnefnd til
fjölda óskarsverðlauna og
það er í raun synd að hún
skyldi ekki fá einhver þeirra.
Jtiorflimblnfríft
Melsöhib/aðá hverjum degi!