Morgunblaðið - 17.06.1992, Síða 52

Morgunblaðið - 17.06.1992, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JUNI 1992 mmmn Þekkjum við einhveija sem borða Napóleonskökur á morgnana? HÖGNI HREKKVlSI BREF HL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Er einhver von? Frá Rúnari Gústafssyni: KAOS, óreiða, ringulreið og sundr- ung eru ef til vill mikilvægustu þættir nýsköpunar í hugsun, í reglu- semi og skipulagi, viðhaldast gaml- ir siðir og íhaldssemi, ekkert nýtt gerist. Endasprettur tuttugustu aldarinnar virðist ætla að stefna í algera upplausn, um allan heim verða ríkisstjórnir að viðurkenna að ráðandi stjómskipulag og ekki nóg með það heldur öll þekkt stjórn- arform til þessa hafa mistekist. Öll heimsveldi falla um síðir; Grikk- land, Róm, Portúgal, Spánn, Bret- land o.s.frv. og nú síðast Sovétrík- in. Á þessari öld er komin á'sjónar- sviðið ný tegund heimsvelda, heims- veldi fjármagnsins, risar eins og Coca Cola og Sony og fleiri sem starfa eftir eigin lögmálum og hags- munum, þar sem hagnaður er meira virði en einstaklingurinn. Um allan heim eru ríkisstjómir að taka sér til fýrirmyndar aðferðir kaupsýsl- unnar og fóma einstaklingnum til að ríkið beri sig. Öldruðum, sjúkum og fötluðum er hent út á götu og þeir skildir eftir í reiðileysi, því hjá þessum hópum er framleiðnin of lág og kostnaður við framfærslu þess of hár. Menntun ungmennis er kast- að fyrir róða og möguleikum þess til heilbrigðra tómstunda undirorpið markaðslögmálum, og þeir sem græða á sinnuleysi stjórnvalda em framleiðendur ofbeldiskvikmynda og leikja allskonar og eiturlyfjabar- ónar hvers konar. Vonleysi og óvissa ungs fólks brýst út í eiturlyfjaneyslu og ráða- menn standa hjá hjálparvana og sjá ekki samhengi niðurskurðar og hrömunar samfélagsins. Karl Marx sagði „trúarbrögð era ópíum fyrir fólkið,“ ég segi „trúarbrögð era rót alls ills og pólitík er barn þeirra, og ef trúarbrögð era ópíum fyrir fólkið, þá er pólitíkin heróín fyrir sama fólk“. Hver er útópían, hvað getur tekið við í sundruðum heimi, þar sem einveldi herskárra kónga og keisara, trúarbrögð allskonar og fagrar hugsjónir sósíalisma, nas- sjónalsjósíalisma og einræðisríki herforingja til hægri og vinstri hrynja og rísa á víxl í gegnum alla mannkynssöguna? Það verður alla- vega ekki kapítalismi sem er að hrani kominn eða löngu hruninn þó enginn vilji viðurkenna það, og menn halda fram að hran kommún- ismans hafí verið sigur kapítalsins, því fer fjarri. Hrun kommmúnism- ans var sigur fólksins, sem einmitt vegna þess misskilnings að kapítal- isminn hafi farið með sigur úr být- um, kemur aftur til með að vera fórnað. Um gervallan vestrænan heim eru hægri öfl allskonar á hraðri uppleið og sérstaklega í Austur-Evrópu, því fólk er orðið úrkula vonar og vill að hlutimir gerist hratt og kynþáttahatur er og á eftir að verða enn vinsælla meðal frambyggja Evrópu og þjóð- ernishyggja í líkingu við baráttu Króata og Serba í Júgóslavíu á eft- ir að verða enn algengari. Og litla Island sem í stærsta dagblaði sínu, stolt tekur viðtal við alræmdan kynþáttahatara og stuðningsmann nýnazista, vegna þess eins að hann sverti nafn okkar í heimspressunni með því að út- nefna íslands sem hvítt land númer eitt í heiminum. En að sjálfsögðu hefur maðurinn rétt fyrir sér, þar fyrir fínnst varla meiri kynþáttahat- ur í neinni stefnu nokkurs lands í móttöku á nýjum einstaklingum af öðrum kynstofni, en einmitt í þeirri íslensku. Bara það að neyða fólk til að breyta um nafn ef það vill gerast íslenskir ríkisborgarar vottar um hroka og andúð á ókunnugum. Að sjálfsögðu er stefna íslendinga í að viðhalda tungu og sérkennum af hinu góða en að viðhalda hinum íslenska kynstofni með ströngum og fáránlegum lögum er kynþátta- hatur í besta falli fáfræði. Og spurn- ingin er hvaða hluta kynstofnsins á að halda hreinum, þeim norræna eða þeim írska, franska eða kannski þeim tyrkneska, Þeir vora víst flest- ir frá Norður-Afríku, eða þeim breska, eða ameríska, sem eftir vamarsamningnum hafði ekki leyfi í byijun til að hafa svarta hermenn í þjónustu sinni, eða kannski hveij- um þeim kynstofni sem hefur barn- að þjóðina í gegnum aldirnar. RÚNAR GÚSTAFSSON Smalgangen 23 0188, Osló 1 Noregi HEILRÆÐI Förum varlega með gas og grill- vökva. Komum heil heim. Víkveiji skrifar Fyrir skömmu voru sýndir á Stöð 2 fjórir þættir undir nafninu ísland á krossgötum. Það var Hans Kristján Árnason sem annaðist dag- skrárgerð og leiddi hann fram tals- verðan hóp manna og ræddi við hvern og einn um stöðuna í dag, stjórnmálin, efnahagsmálin, at- vinnulífið, menntamálin, íslenska menningu, Evrópska efnahags- svæðið, afstöðu íslendinga til Evr- ópubandalagsins og hugsanlegrar umsóknar um inngöngu í það bandalag, framtíðina og þau tæki- færi sem geta beðið landsmanna. Þáttunum var svo skipt niður í af- markaða kafla og svör viðmælenda klippt saman og sá hluti svaranna nýttur sem stjórnandinn taldi nýti- legan. Víkveiji hefur orðið þess var að þessi þáttaröð fór fyrir ofan garð og neðan hjá mjög mörgum og er það miður, því vissulega var oft á tíðum um forvitnilega fleti að ræða í málflutningi viðmælenda þótt enginn „stóri eða nýi sannleik- ur“ hafi svo sem litið dagsins ljós í þeim, enda leikurinn vart til þess gerður. xxx að vakti athygli Víkverja að þættimir vora sendir út í ó- ruglaðri dagskrá, án þess að það væri auglýst sérstaklega. Hefði það verið auglýst sérstaklega má búast við að Stöð 2 hefði tekist að fjölga áhorfendum og áheyrendum að þáttunum veralega. Kunningi Vík- verja sem þekkir allnokkuð til inn- viða Stöðvarinnar tjáði honum að þetta hefði allt verið gert með ráðn- um hug, því reynsla Stöðvarinnar af því að auglýsa sérstaklega þá dagskrárliði sem sendir væru út óruglaðir væri slæm: Símalínur Stöðvarinnar glóðu jafnan daginn eftir að slík sýning hefði átt sér stað, þar sem reiðir áskrifendur krefðu Stöðina svara við þeirri spurningu hvernig stæði á því að þeir sem áskrifendur borguðu svo og svo mikla upphæð á mánuði hveijum fyrir læsta dagskrá Stöðv- arinnar, en Stöðin Ieyfði sér svo á sama tíma að senda út í ólæstri dagskrá efni sem einungis áskrif- endur ættu að sitja að. Þetta þykir Víkverja vera vísbending um ótrú- lega smámunasemi og smásálar- skap þeirra sem nenna að hringja til þess að röfla á þennan hátt, en að sama skapi ákveðinn aumingja- skap hjá Stöð 2 að auglýsa ekki sérstaklega þegar ákveðið er að senda út i ólæstri dagskrá innlenda dagskrárgerð af þessu tagi, sem vissulega á erindi til fleiri en þeirra sem greitt hafa áskriftargjöldin sín. xxx Iáðurnefndum þáttum var talsvert áberandi að viðmælendur stjórnandans, ekki allir þó, töluðu á vissan hátt niður til þjóðarinnar. Þeir klufu sig frá þessari þjóð og þessu landi og sáu mannlífið ofan af einhveijum „viskuhól". Ekki var óalgengt að heyra að íslendingar teldu sig vera mesta, besta og gáfaðasta allra. Þetta væri auðvitað ekkert annað en minnimáttarkennd sem brytist út hjá eyjarskeggjum smáskers sem umheimurinn hefði engan áhuga á og vissi ekkert um, enda væri hér ekkert til þess að vekja áhuga annarra á landi og þjóð. Með svona ummælum hófu viðmælendurnir sig upp fyrir þjóð- ina og voru hættir að vera hluti hennar, enda skelfilega sigldir og orðnir miklir heimsborgarar eftir að hafa búið svo og svo lengi erlend- is, gagnstætt mörlandanum, sem aldrei fer neitt, aldrei lærir neitt, heldur kúrir einangraður uppi á Fróni að drepast úr minnimáttar- kennd!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.