Morgunblaðið - 17.06.1992, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
53_
Öryggi barna - okkar ábyrgð
vusumarskólinn
Frá Sigríði Á. Ásgrímsdóttur:
í tilefni lesendabréfs frá Helgu
Bragadóttur 28. maí 1992 vil ég
undirrituð fyrir hönd framkvæmda-
stjómar um átakið Öryggi barna
okkar ábyrgð þakka Helgu fyrir
ábendingar hennar. Ennfremur vil
ég koma á framfæri leiðréttingu
vegna missagnar.
Ranghermt er að átakið Vörn
fyrir börn sem Slysavarnafélag
íslands og Rauði kross íslands
standa fyrir í samvinnu sé undir
stjórn Neytendasamtakanna. Hins
vegar eru Neytendasamtökin aðili
að samráðsverkefni sem nefnt er
Öryggi barna - okkar ábyrgð.
Þeir aðilar sem sitja með fulltrú-
um Neytendasamtakanna í stjóm
átaksins eru fulltrúar frá Foreldra-
samtökunum, Hollustuvernd ríkis-
ins, Landlæknisembættinu, Rauða
krossi íslands, Slysavarnafélagi ís-
lands og Umferðarráði.
Á samráðsfundi á Hótel Sögu 18.
febrúar sl. var samþykkt að gera
sameiginlegt átak á Islandi í bættu
öryggi barna. Til þess að vinna að
þessu markmiði var kosin fram-
kvæmdastjórn sem vera á ráðgef-
andi aðili og aðstoða við fram-
kvæmd verkefna, miðla upplýsing-
um, vera tengiliður og vettvangur
skoðanaskipta og aðstoða við fjár-
öflun.
Hinar ýmsu stofnanir og félög
sem aðild eiga að átakinu hafa
hver sín sérstöku verkefni á stefnu-
skrá. Framkvæmdastjórnin vonast
til þess að með samráði og sam-
vinnu náist betri árangur en ella.
Verkefni sem almenningur, félög
og opinberir aðilar þurfa að fást
við til þess að fækka slysum á ís-
landi eru fjölmörg. Sem dæmi vil
ég nefna skýrslu Skólayfirlæknis-
embættisins frá maí 1992 en þar
kemur fram að tíðni slysa á íslensk-
um skólabörnum er sjöföld á við
tíðni skólaslysa í Stokkhólmi á ár-
unum 1986-1987. Geta íslenskir
foreldrar sætt sig við þetta?
Ég bendi á nauðsyn þess að hver
og einn hugi að næsta nágrenni og
gefi slysagildrum gaum sem þar
felast. Of seint er að byrgja brunn-
inn þegar barnið er dottið í hann.
Bætt umgengni og meðferð á
tækjum og búnaði mun fækka slys-
um og spara peninga. Veljum ör-
yggisbúnað af viðurkenndri gerð
og fylgjum leiðbeiningum um notk-
un.
Leikföngum og leiktækjum eiga
að fylgja leiðbeiningar um meðferð
og upplýsingar um aldur þeirra sem
leikföngin eru hugsuð fyrir. Varúð-
arorð eiga að fylga leikföngum og
búnaði ef minnsta áhætta fylgir
notkun þeirra.
Uppalendur þurfa að vera vel á
verði gagnvart hættum vegna of-
beldis í samskiptum bama og ungl-
inga. Vopnaeftirlíkingar t.d. vatns-
Hvenær verður Aust-
ur stræti lokað aft-
ur fyrir bílaumferð?
Frá Margréti Sæmundsdóttur:
Göngugatan var opnuð fyrir
umferð bíla til reynslu í sex mán-
uði. Nú eru þessir sex mánuðir liðn-
ir.
Ekki verður séð að gatan eða
miðbærinn hafi lifnað við og orðið
aðlaðandi við þessa framkvæmd.
Þvert á móti er þetta mjög mis-
heppnuð tilraun. Reynslan sýnir að
margir ökumenn aka of hratt miðað
við aðstæður, og gangandi vegfar-
endur eru sífellt á hrakningi ef
ekki í lífshættu vegna bílaumferð-
ar. Þeim veitir ekki af þessu svæði
til þess að komast óhultir leiðar
sinnar um miðbæinn.
Mengun bæði af útblæstri bíla
og hávaða hefur aukist. Gatan er
eins og svöðusár á að líta vegna
hjólfara og óþverra frá bílum.
Skipulag miðbæjarkjama í öllum
helstu borgum Vestur-Evrópu er í
þá átt að fjölga göngugötum og
þeim svæðum þar sem bílaumferð
er takmörkuð eða óheimil. Hér er
því um umhverfisslys að ræða og
öfugþróun í skipulagsmálum.
Undirskriftalisti með 18.000
nöfnum manna sem óska eftir því
að Austurstræti verði aftur gert að.
göngugötu hefur verið afhentur
borgarstjórn. Sá listi segir sína sögu
um hug fólks í borginni.
Skoðanakönnun meðal vegfar-
enda á vegum Neytendasamtak-
anna árið 1988 leiddi í ljós að meiri-
hluti aðspurðra var fylgjandi því
að Austurstræti yrði áfram göngu-
gata.
Tilraunatíminn er nú liðinn, því
hlýtur að vera rökrétt að opna
Austurstræti aftur fyrir gangandi
fólki. í það minnsta þangað til búið
er að sýna fram á það með gildum
rökum að tilraunin hafi sýnt fram
á að betra sé fyrir almenning að
hafa enga göngugötu í Austur-
stræti. Borgarbúar og gestir sem
til höfuðborgarinnar koma eiga
heimtingu á að vita hver verður
framtíð Austurstrætis.
MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR
fulltrúi Kvennalistans
í umferðarnefnd
Hvassaleiti 77, Reykjavík.
VELVAKANDI
KETTLINGAR
Kassavandir kettlingar fást
gefins í Garðabæ. Upplýsingar í
síma 656760 eftir kl. 17.
Þrílitur kettlingur fæst gefins.
Upplýsingar í síma 14918.
PENNI
Vandaður gullblekpenni
fannst við Skipholt í byijun mán-
aðarins. Upplýsingar í síma
I 30232.
} HJÓL
Karlmannshjól fannst í
Vesturbænum fyrir skömmu.
Upplýsingar í síma 13337 milli
kl. 18 og 20 næstu kvöld.
FISKIMENN EN
EKKISJÓMENN
Einar Vilhjálmsson
Smáraflöt 10, Garðabæ:
Jónas Gíslason vígslubiskup
flaskar heldur betur á guðsorðinu
í pistli sínum í Morgunblaðinu
14. júní. Þar talar hann um sjó-
mennsku Jesú og lærisveinanna
en hann ætti að vita að þessir
menn fóru aldrei á sjó en voru
aðeins fiskimenn á Genesaret-
vatni. Það er ólíku saman að
jafna, fiskiveiðum á stöðuvatni
og sjómennsku í Norður-Atants-
hafi.
byssur og stríðsleikir á myndbönd-
um eða tölvum geta verið hættuleg
andlegri heilsu barna og unglinga
og hvetja til ofbeldis.
Ábyrgð sem lögð er á herðar
barna og unglinga á íslandi er að
mati margra allt of mikil. Þau eru
ung farin að taka þátt í erfiðri lífs-
baráttu með vinnu og í félagsiífí
hinna fullorðnu t.d. neyslu áfengis.
Hugum að ábyrgð okkar full-
orðnu, verum börnum góð fyrir-
mynd. Ungbarnadauði er mjög lág-
ur á íslandi. Sættum okkur ekki
við að bamaslys séu tíðari hér á
landi en í nágrannalöndum okkar.
Fækkum slysum á börnum og ungl-
ingum með samstilltu átaki!
SIGRÍÐUR Á. ÁSGRÍMSDÓTTIR
verkfræðingur
starfsmaður Neytendasamtakanna
Skúlagötu 26, Reykjavík.
Pennavinir
Frá Rúmeníu skrifar piltur sem
kveðst ungur og er líklega nálægt
tvítugu. Hefur mikinn áhuga á ís-
landi:
Daniel Mihale,
C.P. 14-18,
Bucuresti 14,
Romania.
PC eða Macintosh námskeið fýrir 10 -16 ára
2ja eða 3ja vikna námskeið í júni, júlí eða ágúst. Kennt frá 9-12 eða
13-16 fimm daga vikunnar. ft
M|«9 hagstmtt v«r6
Tölvu- og verkfræðiþjónustan *£>
Veridræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensésvegi ie<stofnuð 1. mars 1986
BOSCH
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
• Vélastillingar
• Smurþjónusta
• Rafviðgerðir
• Ljósastillingar
• Díselverkstæði
;
Sextán ára bandarískur piltur með
margvísleg áhugamál:
Billy Claydon,
2120 Rt. 9,
P.O.Box 698,
Round Lake,
New York 12151-0698,
U.S.A.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt nafn
í frétt á Akureyrarsíðu Morgun-
blaðsins í gær, bls. 30 er rangt
farið með nafn sóknarprestsins á
Raufarhöfn. Hann heitir Jón Hag-
barður Knútsson. Hann er beðinn
velvirðingar á þessum mistökum.
Sæco sá um
hönnunina
HAFLIÐI Guðjónsson eigandi sér-
smíðaðrar jeppasandspyrnugrindar
sem keppt var á í íslandsmeistara-
mótinu í sandspyrnu um síðustu
helgi, segir það rangt sem fram kom
í frétt í Morgunblaðinu á þriðjudag
að Hlöðver Gunnarsson hefði hann-
að ökutækið. Rétt sé að vélsmiðjan
Sæco hafí annast hönnunina en hins
vegar sé vél í ökutækið keypt af
Hlöðveri Gunnarssyni. Hlutaðeig-
endur eru beðnir velvirðingar á
rangherminu.
UPUR OQ SKEMMTILEQUR 5 MANNA BÍLL
SUZUKISWIFT
5 DYRA, ÁRGERÐ 1992
Aflmikil, 58 hestafla Vél með beinni innspýtingu.
Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
Framdrif.
5 gfra, sjálfskipting fáanleg.
Verð kr. 828.000.- á götuna, stgr.
$ SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
crcici.MMi 11. slMI 685100
$jj\ ...alltafþegar
•O l,:lð er betra
Gjöf
sem slær
í gegn!
Afmælispakki
Heimsklúbbsins er ný
þjónusta, ætluð þeim sem
vilja halda upp á tímamót í lífi sínu
ÍTALÍA: Mílanó — Veróna — Feneyjar — Flórens — Róm o.fl. 17,- 30. ágúsL-
FILIPPSEYJAR — JAPAN — FORMÓSA — THAILAND 6. - 27. sept.
S-AFRÍKA: Jóhannesarborg — Kruger — Cape Town o.fl. 7.-25. okt.
MALAYSÍA: Kuala Lumpur — Borneo — Singapore — Penang 5.- 23. nóv.
Þjónusta sem hittir í mark!
Serstakt afmælistilboð
Líttu við eða hringdu og fáðu nánari upplýsingar
og áætlun.
HEIMSKIUBBUR INGOLFS
AUSTURSTRkT117,4. lai 10) RtYKUYÍK-SlllU tlMOWMl MtSM