Morgunblaðið - 23.07.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLl 1992
37
SKEMMTANIR
Kátt fólk heiðrað
með blómum og gulli
Fólk á öllum aldri hefur skemmt
sér í 43 ár í félagsskapnum
Kátt fólk. Ekkert áfengi er haft um
hönd á skemmtunum hópsins, en
félagar koma saman fimm sinnum á
ári til að dansa og skemmta sér. Á
skemmtununum gilda ákveðnar regl-
ur um klæðaburð og mæta dömurnar
í síðkjólum, en herramir í svörtum
smóking með þverslaufu, eða í kjól-
fötum. Klæðnaður er hins vegar
fijáls á sumarskemmtun félagsins. Á
156. skemmtun í Hlégarði í Mos-
fellsbæ voru þeir félagar, sem verið
hafa í félaginu í 20 til 30 ár heiðrað-
ir með blómum. Einnig voru þeir, sem
verið hafa félagsmenn í 30 ár eða
lengur, sérstaklega heiðraðir með
gulli. Formaður félagsins undanfarin
10 ár er Boði Björnsson. Á myndini
eru, frá vinstri, Jóhann Sigurðsson
og frú Guðlaug Bjarnadóttir, Pétur
Hannesson, Grétar Ingvason og frú
Elsa Ágústsdóttir, frú Guðrún M.
Árnadóttir kona Péturs Hannesson-
ar, Hallgrímur Steingrímsson og frú
Ágústa Hannesdóttir, Baldur Sveins-
son og frú Erla Ásgeirsdóttir, Davíð
Jensson og frú Ingibjörg Friðfínns-
dóttir, sem fengu gullpening, Hafliði
Jónsson og frú Jónheiður Níelsdóttir,
sem fengu gullpening, Hörður Stef-
ánsson og frú Halldóra Haraldsdótt-
ir.
VEIÐI
16 punda urr-
iði úr Skorra-
dalsvatni
Grund, Skorradal.
Guðmundur Tryggvi Sigurðs-
son, veiðimaður úr Reykja-
vík, dró sextán punda urriða úr
Skorradalsvatni í síðustu viku.
Viðureignin við fiskinn tók um
klukkustund.
Guðmundur var á bát sínum úti á
vatni, með veiðistöngina og beitti
spón. Hann átti ekki von á neinni
stórveiði, en skyndilega var kippt
duglega í og báturinn dreginn af
feiknakrafti af stað.
Eftir klukkustUndar viðureign
landaði Guðmundur urriðahæng, sem
vó 16 merkur og var 83 sentimetrar
á lengd. DP.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Guðmundur Tryggvi Sigurðsson,
með 16 punda urriðann úr
Skorradalsvatni.
/
1 blstkiíb
Góðan daginn!
Morgunblaðiði/Sverrir
UPPGRÆÐSLA
Beck gefur
hálfa milljón
tfl skógræktar
Þýzka fyrirtækið Beck & Co.,
framleiðandi Beck’s-bjórsins, af-
henti nýlega Huldu Valtýsdóttur
formanni framkvæmdanefndar
um landgræðsluskóga 500.000
króna peningagjöf. Féð er ætlað
til gróðursetningar landgræðslu-
skóga og er þetta í þriðja sinn
sem þýzku bjórverksmiðjurnar
gefa jafnháa gjöf til skógræktar
á íslandi. Á myndinni afhendir
dr. Horst Brándt, aðalforstjóri
Beck & Co., Huldu Valtýsdóttur
gjöfina. Afhendingin fór fram í
Perlunni.
■
■
I
i
m
I
■
I
i
ÚLTRA-TILBOD!
HARDROCK ULTRA-FJALLAHJÓL FRÁ SPECIAUZED
t
HARDROCK ULTRA MEÐ KROMOLY STELLI OG
SHIMAND 200GS BÚNAÐI
Vorum að taka heim sendingu á fáeinum HARDROCK ULTRA
fjallahjólum frá SPECIALIZED-USA á einstaklega góðu verði.
Þetta er mögulegt vegna sérlega hagkvæmra samninga við
framleiðendur á þessari einu sendingu og hagstæðs gengis
Bandaríkjadollars þessa dagana.
Verð á
HARDROCK ULTRA
rtú aðeins kr. 29.800,- stgr.
(ætti að vera kr. 34.500,- stgr.)
m, mm /? e / ð h j ó ! a v e r s / u n i n
5PEOAUZED. Hágæða fjallahjól í fararbroddi
sendumí
PÓSTKRÖFU ______________
UM LAND ALLT RAÐGREIÐSLUR
OPIÐ
LAUGARDAGA
FRÁKL. 10-14
SKEIFUNNI I V
VERSLUN SÍMI 679890 VERKSTÆÐISÍMI 679891