Morgunblaðið - 23.07.1992, Blaðsíða 29
29
UMMmWU
Sedan
KOSTAR STADGREIDDUR, KOMINN Á GÖTUNA FRÁ:
BRIMBORG
FRAM
Þú ert öruggur
með FRAM
smur- og loftsíur.
anausft
Borgartúni 26
Sími: (91) 62 22 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
FAXAFENI 8 • SÍMI 91 - 68 58 70
Forsíða bókarinnar.
Ný bók um
gönguleiðir
UMHVERFI Reykjavíkur býður
upp á mikla og lítt notaða mögn-
leika fyrir alla þá sem unna
útivist og náttúruskoðun. Krist-
ján Jóhannsson rithöfundur
hefur skrifað mikið um þetta
svæði og nú er komin út hjá
bókaútgáfunni Reykholti bók
hans Fimmtán gönguleiðir í
nágrenni Reykjavíkur.
Þetta er önnur útgáfa bókarinn-
ar sem hefur að geyma lifandi og
fróðlegar lýsingar á náttúrunni
sem gengið er um. I bókinni eru
fjölmargar fallegar litmyndir en
kort eru innan á kápusíðum. Bók-
in er 96 bls., prentuð hjá Prenthús-
inu. Verð út úr búð er 850 kr.
Kristján Jóhannsson hefur áður
skrifað fjölmargar bækur, ljóð,
barnabækur, frásagnir og nátt-
úrulýsingar.
(Fréttatilkynning)
------»-♦-»-----
■ FUNDUR í Vísi, félagi skip-
stjórnarmanna á Suðurnesjum,
haldinn 19. júlí, ályktaði eftirfar-
andi: „Félagið styður eindregið til-
lögur Farmanna og fískimanna-
sambands íslands um hámarks
afla á þorski næsta fiskveiðiár og
telur rök FFSÍ engu lakari en rök
Hafró. Félagið bendir f'jölmiðlum á
að birta rökstuðning FFSÍ í heild
sinni en ekki aðeins útdrátt úr til-
lögunum. Einnig skorar félagið á
stjórnvöld að gæta fyllsta réttlætis
við hugsanlega úthlutun sérstakra
aflauppbóta til einstakra útgerða
og sjómanna vegna niðurskurðar
á aflaheimildum þorsksins á næsta
veiðiári. í þessu sambandi ber að
útiloka uppkeyptar aflaheimildir
þorsks í viðmiðun við uppbætur
vegna skerðingar, enda samrýmist
ekki hlutverk ríkisins að styrkja
þannig áhættu, sem útgerðir hafa
tekið á sig með kvótabraski á und-
anfömum árum.
Með vökvastýri • 5 gíra eða sjálfskiptur
1300cc • 16 ventla • Bein innspýting • 90 hestöfl