Morgunblaðið - 11.03.1994, Page 7

Morgunblaðið - 11.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1994 7 Minnihlutaflokkarnir þrír í Vestmannaeyjum Sameiginlegt framboð gegn Sjálfstæðisflokki ALÞÝÐUFLOKKUR, Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur hafa náð samkomulagi um að bjóða fram sameiginlegan lista við sveitar- stjórnarkosningar í Vestmannaeyjum í vor. Sjálfstæðisflokkur hefur nú hreinan meirihluta, hlaut tæplega 55,8% atkvæða í kosningum síðast og 6 af 9 bæjarfulltrúum. Alþýðuflokkur hefur tvo bæjarfull- trúa og Alþýðubandalag einn. Guðmundur Þ.B. Ólafsson, bæj- arfulltrúi Alþýðuflokks, mun skipa efsta sætið á listanum, Ragnar Ósk- arsson, bæjarfulltrúi Alþýðubanda- lags, mun skipa annað sætið og jafn- framt verða bæjarstjóraefni listans og Svanhildur Guðlaugsdóttir, Framsóknarflokki, verður í þriðja sæti og Guðný Bjarnadóttir Alþýðu- flokki í fjórða sæti. Frá og með kosn- ingum verður bæjarfulltrúum fækk- að úr 9 í 7 og Guðmundur Þ.B. Ólafs- son sagði í samtali við Morgunblaðið að sú ákvörðun meirihlutans hefði ýtt við minnihlutaflokkunum að sameinast um framboðslista. Hann sagði að byðu flokkarnir þrír hver fram sinn listann væri tölfræðilega mögulegt að Sjálfstæðisflokurinn héldi hreinum meirihiuta með 41% greiddra atkvæða. Guðmundur sagði að allt frá stofnun Vestmannaeyjabæjar 1919 hafi bæjarfulltrúar verið 9 talsins og ástæða þess að sjálfstæðismenn hafi ákveðið að fækka fulltrúuum væri augljóslega sú að eftir breyting- una ætti flokkurinn auknar líkur á að halda meirihluta sínum og þyrfti jafnvel ekki nema 41% atkvæða til þess gegn þremur framboðum minnihlutans sem þó styddist við allt að 59% atkvæða. „Þarna er í grundvallaratriðum vegið að lýðræðinu og hafí verið ástæða til að hafa 9 bæjarfulltrúa 1919 þá er ekki minni ástæðji til þess nú,“ sagði Guðmundur og kvaðst hafna þeim skýringum meiri- hlutans að í fækkunina væri ráðist í sparnaðarskyni enda væri það ekki í samræmi við gerðir meirihlutans sem hefði aukið launakostnað bæjar- ins á ýmsum sviðum. Guðmundur sagði að verið væri að vinna að málefnasamningi minni- hlutalistans og yrði hann kynntur þegar hann lægi fyrir. Guðmundur sagði að fulltrúar minnihlutans hefði fengið mikla hvatningu bæjarbúa og góðar undirtektir við sameiningar- viðleitninni og enginn hefði talað gegn henni. 11-12 miHj. sparnaður Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna við kosningarnar í vor sagðist í samtali við Morgun- blaðið í gær hafna þeirri kenningu minnihlutaflokkanna að bæjarfull- trúum væri fækkað til þess að tryggja meirihlutann í sessi. Hann sagði að á kjörtímabilinu hefði verið fækkað verulega í yfirstjórn sveitar- felagsins, nefndum fækkað um 17 og skipulagsbreytingarnar miði að stjórnunarpíramída þar sem 7 bæjar- fulltrúar væri hæfilegur fjöldi. Af þessi hljótist 11-12 milljóna króna sparnaður á kjörtímabilinu: Þeim peningum telji sjálfstæðismenn bet- ur varið í aðra uppbyggingu. Hvað varðar hið sameiginlega framboð sagðist Guðjón búast við skemmtilegum og sögulegum kosn- ingum með snarpri kosningabaráttur enda línur hreinni en oftast áður. í fyrsta skipti væru tveir listar í fram- boði og skýrt val um tvö bæjarstjóra- efni. Edduhótel á Núpi FERÐASKRIFSTOFA íslands opnar Edduhótel á Núpi í Dýrafirði í sumar. Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofunnar, segir þróunin í ferðaþjónustu kalli á aukna gistigetu vítt og breitt um landið. Skóla- húsið á Núpi hefði ekki verið nýtt til kennslu sl. tvo vetur en það væri í góðu ástandi og því hefði verið vel við haldið. Hann sagði að væntan- lega yrði opnað 20. júní. Hann sagðist vonast til að hótelreksturinn myndi leiða til aukinnar ferðaþjónustu á svæðinu til lengri tíma en hann sagðist þekkja af eigin reynslu að það tæki nokkurri tíma að koma undir sig fótunum í gistingu á Vestfjörðum. „Þeir sem til þekkja vita að í Dýrafirði er náttúrufegurð einstök og ákaflega mikil kyrrð þar. Dýrafjörður er verðugur fulltrúi fjarðanna á vesturkjálkanum, sem ég tel einn alfallegasta hluta landsins," sagði Kjartan. Nefnd geri tillögnr um geymslu tónlistar MENNTAMÁLARÁÐHERRA verði falið að skipa nefnd tónlistar- og safnamanna sem setji fram tillögur um hvernig best verði staðið að varðveislu tónlistarefnis í Þjóðarbókhlöðu eða Þjóðbókasafni Is- lands, er meginefni þingsályktunartillögu sem átta flutningsmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram á Alþingi. Jafnframt eigi nefndin að setja fram tillögur um hvað til þurfi til að sá menningararfur nýtist sem best komandi kynslóðum í sérstakri tónlistardeild innan safnsins. í greinargerð með tillögunni er rakið að í fylgiriti af nýlegu tölu- blaði Fréttabréfs Háskóla íslands sé sú bygging sem til þessa hefur verið þekkt undir nafninu Þjóðar- bókhlaða, kölluð Þjóðbókasafn ís- lands — bókasafn Háskóla íslands, og ítarlega gerð grein fyrir hlut- verki safnsins samkvæmt frum- varpi til laga um þessa nýju stofn- un. Athygli veki að í frumvarpinu. og því sem fram hafi komið um Þjóðbókasafnið sé lítil áhersla lögð á hlutverk stofnunarinnar á sviði menningarmála og listalífs. í aðal- grein um hlutverk þess og verksvið sé ekki minnst á tónlist né aðrar listgreinar og menningarmál, þó að ljóst sé m.a. að varðveitt verði ómetanleg handrit, bækur, tímarit og hljóðritanir af íslenskri tónlist og tónlistarsögu. Því sé nauðsynlegt að „í Þjóðbókasafni verði sérstök tónlistardeild með þeim búnaði, tækjakosti og aðstöðu sem til þess þarf að tónlistarefni safnsins nýtist sem best,“ segir í greinargerðinni. SIÐUSTU DAGAR UTSOLUNNAH STURTUKLEFAR, BAÐINNRÉTTINGAR, HREINLÆTISTÆKI OG HURÐAHANDFÖNG SAN REMO m/öryggisgleri Sturtukleíi kr. 54.611,- stgr. Sturtubotn kr. 13.000,- stgr. CAPRI m/öryggisgleri Sturtuklefi kr. 32.717,- stgr. Sturtubotn kr. 13.000,- stgr. AZUR m/öryggisgleri Klefi kr. 23.778,- stgr. Þýskar baðinnréttingar. Verð fra kr. 44.000,-. fyrir Assa og þýskar skrár. Formfögur lína frá Eurobrass. Verð frá kr. 1.771 HARMONY rómantíska línan í baðherbergisáhöldum á ótrúlegu verði! ELBA m/öryggisgleri Hurð 80 kr. 14.931,- stgr. Hurð 90 kr. 15.771,- stgr. Hlið 80 kr. 11.323,- stgr. Hlið 90 kr. 12.542,-stgr. Opið laugardag kl. 10 - 14 BYGGINGAVÖRUR Skeifunni 11 b, sími 681570

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.