Morgunblaðið - 11.03.1994, Síða 25

Morgunblaðið - 11.03.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 11. MARZ 1994 25 Reuter Lítill fugl gleður marga FÓTUR og fit varð uppi í röðum breskra fuglaskoðara í fyrradag þegar spurðist út að sést hefði til fugls sem aldrei áður hefði komið til Bretlands. Vopnaðir sjónauk- um og myndavélum með kraftmiklum aðdráttarlinsum streymdu þúsundir fuglaskoðara í Pennington-garðinn við Leigh á Manchestersvæðinu til þess að virða fugl- inn fyrir sér. Þar var um að ræða svartnefjaðan tittl- ing, örsmáan fugl af finkuætt, sem á heimkynni í aust- urhluta Síberíu. Var myndin tekin af hiuta fuglaskoðar- anna að störfum og á innfelldu myndinni má sjá hinn fiðraða gest sem sest hefur á hendi starfsmanns í garðinum. Þjóðverjar vilja Mið-Evr- ópuríki í ESB sem fyrst JAFNT Evrópusambandið sem Svíar, Finnar og Austurríkismenn gáfu mikið eftir til að hægt væri að ljúka aðildarsamningum í Brussel í síðustu viku. Það var þó ESB sem gaf mest eftir, segir vikublaðið The European. Svíar og ESB deildu hart um hversu hátt framlag Svía til sam- bandsins ætti að vera fyrstu árin. Sviar vildu hækka framlagið í áföngum en þegar þeirri kröfu var synjað hótuðu þeir að ganga út. Það hefði gert út af við aðildarvið- ræður allra ríkjanna og verið mik- ið áfall fyrir Evrópusambandið. Samningamenn ESB gáfu því eftir þó að fulltrúar Spánar, Frakklands og Hollands hafi lýst niðurstöðunni sem svo að þeir hafi verið „allt að því féflettir“. Þjóðveijar voru sú þjóð sem harðast barðist fyrir inn- göngu EFTA-ríkjanna en það er draumur Helmuts Kohls kanslara að aðildarríkin sambandsins verði orðin 20 um aldamótin. Síðast í gær sagði Klaus Kinkel, utanríkis- ráðherra Þýskalands, að það myndi leiða til tilvistarkreppu ESB ef við- ræðurnar við Norðmenn færu út um þúfur. Búist er við því að innan skamms muni Þjóðveijar hvetja til að aðild- arviðræður hefjist við Pólveija, Sir Berkeley Gage látinn LÁTINN er í Lundúnum Sir Ber- keley Gage, fyrrum sendimaður bresku ríkisstjórnarinnar, sem m.a. kannaði hug íslenskra sljórn- valda til stórveldanna árið 1939. Sir Berkeley Gage starfaði lengi í bresku utanríkisþjónustunni en hann kom til íslands með herskipinu „Vindictive" í maímánuði 1939. Frá þessari ferð Sir Berkeleys segir í bók Þórs Whiteheads „Ófriður í aðsigi" sem Almenna bókafélagið gaf út. í samtali sem birtist við Sir Berkeley í Morgunblaðinu í júní 1981 sagði hann að hann hefði í för sinni hingað til lands sannfærst um að íslending- ar myndu standa með Bretum þótt landið væri hlutlaust. Sir Berkeley gegndi sendiherra- stöðu víða um heim áður en hann settist í helgan stein í Lundúnum þar sem hann lést 3. þessa mánaðar. Eiginkona hans lifir mann sinn en þau eignuðust tvo syni og er annar þeirra á lífi. Tékka, Slóvaka og Ungveija, jafn- vel síðar á þessu ári er þeir fara með formennskuna í ráðherraráð- inu. Er jafnvel uppi orðrómur um að Þjóðveijar hafi hug á að setja upp „skugga-ráðherraráð" sem Mið-Evrópuþjóðirnar geti setið í þar til þær verða orðnir fullgildir aðilar, sem Þjóðveijar vona að verði jafnvel þegar árið 1999. Það er því ekki nema von að Helmut Kohl hafi lýsti því yfir að aðildar- samningarnir sem undirritaðir voru í síðustu viku hafi, verið „merkisatburður“ í sögu Evrópu. Þjóðveijar segja að sjónarmið þeirra varðandi útvíkkun sam- bandsins í austur njóti vaxandi stuðnings innan ESB og Kohl er sagður fullviss um að hann geti sannfært samstarfsþjóðirnar um að áhyggjur af óstöðugleika í austurhluta Evrópu séu ekki einka- mál Þjóðveija. Það sem aðrar þjóð- ir hafa fyrst og fremst áhyggjur af er hversu hratt Þjóðveijar vilja láta hlutina ganga fyrir sig og ótt- ast að þeir muni gefa ríkjum þess- um óraunhæf loforð þegar þeir fara með forystuna. „Sambandið er ekki reiðubúið undir þetta. Sú fjölgun aðildarríkja um fjögur sem nú á sér stað hefur reynst mun erfiðari en menn gerðu sér grein fyrir,“ sagði embættismaður sem starfar við hlið Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnarinnar, í samtali við European. Aðrir benda á að Evrópusam- bandið eigi nú í harðri viðskipta- legri samkeppni við önnur mark- aðssvæði, s.s. NAFTA og Suðaust- ur-Asíu, þar sem öll þróun sé gífur- lega ör. Það hafi því hreinlega ekki efni á að vera taka um borð ríki, sem séu aftarlega á merinni efnahagslega séð. Þá myndi það valda mikilli reiði á Kýpur, Möltu og í Tyrklandi ef Mið-Evrópuþjóð- irnar fengju hraðafgreiðslu á að- ildarumsóknum sínum. Þessi ríki hafa öll sótt um aðild fyrir nokkru en verið sett á biðlista. Ekkert Mið-Evrópuríkjanna hef- ur enn lagt inn formlega aðilda- rumsókn en Ungveijar hafa boðað slíka í næsta mánuði. Reuter Grikkir gráta Melinu Mercouri HUNDRUÐ þúsunda grátandi Grikkja fylgdust með útför leikkonunn- ar og ráðherrans Melinu Mercouri í Aþenu í gær. Útfararguðsþjón- usta fór fram í dómkirkju borgarinnar og síðan var kistunni ekið á fallbyssuvagni framhjá þinghúsinu og til kirkjugarðs. Talið er að 300.000 manns hafi staðið meðfram þeirri leið sem líkfylgdin fór um og lét fólkið blómum rigna yfir kistuna er henni var ekið hjá. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, simi 671800 Opið sunnudaga kl. 13 - 18. Fjöldi bifreiða á tilboðsverði. Greiðslukjör við allra hæfi. Harding keppir í Tókíó TONYA Harding, bandaríska skautakonan, getur keppt á heimsmeistaramótinu í list- hlaupum á skautum sem hefst í Tókíó 22. mars þar sem dóm- stóll bannaði bandaríska skautasambandinu að hefja sínar eigin vitnaleiðslur vegna meintrar aðildar Harding að árásinni á skautadrottninguna Nancy Kerrigan. Skautasam- bandið hafði ætlað að heíja rannsóknina í gær. Kynskipting-- ur í forystu demókrata LESLIE Elaine Perez, 56 ára „kona“, varð atkvæðamest í forvali demókrata um nýjan leiðtoga flokksfélagsins í Houston og nágrenni í Texas- ríki í Bandaríkjunum. Hún var karlmaður en gekkst undir aðgerð og skipti um kyn á síð- asta áratug. Karlmaðurinn Leslie Douglas Ashley var klæðskiptingur sem hafði ofan af fyrir sér með því að taka þátt í kynlífsleikjum gegn gjaldi. Var hann dæmdur til dauða fyrir að skjóta mann í ástarleik 1961 en dóminum síðan breytt í 15 ára fangelsi. Fékk hann lausn úr fangelsi 1971. Þar sem engin fékk meirihluta verður kosið í apríl milli „hennar" og þess sem næstur kom að atkvæðum. Bardot vill vernda úlfana FRANSKA leikkonan Birgitta Bardot sagðist í gær myndu hrinda af stað alþjóðlegri mót- mælaherferð ef úlfaveiðar yrðu ekki bannaðar að nýju í Kanada. í fyrravor voru úlfa- veiðar úr þyrlum leiddar í lög til þess að stemma stigu við örri fjölgun. Mótmælti Bardot veiðunum í bréfi til ríkisstjór- ans Walter Hickel í gær. Ákærður fyr- ir fleiri morð FREDERICK West húsasmið- ur í Gloucester í vesturhluta Englands var ákærður fyrir morð á fimm konum til viðbót- ar í gær. Áður hafði hann ver- ið ákærður fyrir morð á þrem- ur stúlkum, þar á meðal 16 ára dóttur sinni. Níu lík hafa fundist í húsi hans í Cromwell- stræti í Gloucester og lögregl- an telur sig hafa vitneskju um að sjö lík til viðbótar sem ófundin eru séu steypt inn í veggi hússins. Tékkar vilja í EBS fyrir aldamótin VACLAV Klaus forsætisráð- herra Tékklands sagði í gær að það væri ásetningur og vilji Tékka að öðlast fulla aðild að Evrópusambandinu (EBS) löngu fyrir næstu aldamót. Klaus lét þessi ummæli falla á fundi með fréttamönnum eftir viðræður við leiðtoga EBS í Brussel i gær en hann notaði daginn einnig til að undirrita samninga við Atlantshafs- bandalagið (NATO) um þátt- töku Tékka í friðarsamstarfi bandalagsins. VW Golf GL 1.8 '92, rauður, 5 g., ek. 39 þ., 2 dekkjag. V. 970 þús. Toyota Carina E Wagon '93, hvítur, sjálfsk., ek. 10 þ.t rafm. í rúðum o.fl. Sem Nissan Sunny SLX 1.6 '92, grænsans, 5 g., ek. 33 þ., rafm. í rúðum, álflegur, (Ath! Honda Civic LSi Sedan '92, rauður, sjálfsk., ek. 36 þ., rafm. í rúðum, 2 dekkjag. o.fl. V. 1290 þús., sk. á ód. MMC Lancer GLXi '93, rauður, sjálfsk., ek. 22 þ., rafm. í öllu. V. 1350 þús. MMC Pajero V-6 '91, 5 g., ek. 40 þ., ál- felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1890 þús., sk. á ód. Hyundai Pony GLSi Sedan '92, 5 g., ek. 17 þ., álflegur o.fl. V. 950 þús. Toyota Carina XL '90, sjálfsk., ek. 79 þ. V. 880 þús., sk. á ód. Nissan Vanette diesei ’92, 7 farþega, grásans, 5 g., ek. 107 þ. V. 1280 þús. MMC Lancer GL ’90, grásans, 5 g., ek. 76 þ., spoiler o.fl. Fallegur biíl. V. 680 þús., sk. á ód. Subaru Legacy 1.8 Sedan '91, rauður, 5 g., ek. 56 þ., sóllúga, dráttarkúla, rafm. í rúðum o.fl. V. 1380 þús. MMC Colt GLX ’88, 5 dyra, 5 g., 1500, ek. 55 þ. V. 470 þús., sk. á dýrari. Subaru station 1800 DL '90, Ijósblár, 5 g., ek. 55 þ. V. 980 þús., sk. á ód. Toyota Corolla Hastback special series '92, hvítur, 5 g., ek. 15 þ., rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V. 940 þús., sk. á ód. Renault Nevada 4x4 '91, svartur, 5 g., ek. 50 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 1280 þús., sk. á ód. Range Rover '85, sjálfsk., ek. aðeins 59 þ. V. 1380 þús. (Vouge útfærsla). Mercedes Benz 280 SE '82, silfurgrár, sjálfsk., ek. 127 þ., topplúga, álflegur o.fl. Tilboðsverð 980 þús. stgr. MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, hvítur, sjálfsk., ek. 40 þ. V. 1450 þús. Daihatsu Charade TS EFi 16v '93, rauð- ur, 1300 vél, bein innsp., 5 g., ek. aðeins 6 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús., sk. á dýr- ari bíl. Toyota Double Cab SRS bensín '93, m/húsi, 5 g., ek. 20 þ., álfelgur, brettakant- ar, 31“ dekk o.fl. V. 2.050 þús. Toyota 4Runner V-6 '93, 4ra dyra, 5 g., ek. 2 þ. km. V. 2.9 millj. MMC Lancer GLX '92, silfurgrár, sjálfsk., ek. 23 þ. V. 1050 þús. stgr. Subaru Legacy Artic 2.0 '92, rauður, sjálfsk., ek. aðeins 20 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1880 þús. Cherokee Laredo '88, sjálfsk., ek. 81 þ,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.