Morgunblaðið - 11.03.1994, Síða 44

Morgunblaðið - 11.03.1994, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1994 Háskólabíó STÆRSTA BIOIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. HASKOLABIO SÍMI 22140 MBL. ★★★ Rás 2 ★★★ DV -kickick B.T. ■kickick E.B. flltUCH \ ADOÁBOíJll NOn-ÍINGtó # kkk MBL kkk Rás 2 *** DV **★* NY POST kkk* EMPIRE ORLAGAHELGI BESTA MYNDIN • BESTl LEIKSTJÓRINN Jim Sheridan • BESTI AÐALLEIKARINN Daniel Day-Lewis • BESTU LEIKARAR í AUKAHLUTVERKUM Emma Thompson og Pete Postlethwaite ★★★★ A.l. MBL ★★★★ Ö.M.TÍMINN ★★★★H.H. PRÉSSAN ★★★★ J.K. EINTAK DANIEL DAY-LEWIS EMMA TIIOMPSON PETE POSTLETIIWAITE DIRTY WEEKEND - EIN UMDEILDASTA MYND ÁRSINS Bella er búin að fá nóg af karlpungunum sem eru alltaf að áreita hana. Hún hefur hreinsunarstörf og einfaldlega kálar kvikindunum. Ný mynd frá leikstjóranum Michael Winner (Death Wish). Lia Williams er stórkostleg sem hin varnarlausa Bella sem rís upp gegn ofríkinu. Mynd sem allar stelpur ættu að draga stráka á og láta þá titra aðeins Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. §, Berlin ; | Berlin ) Á, 1994,/ SÝND KL. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára, Vanrækt vor ORSCN WELLES HÁTÍÐ 1. TIL 10. MARS FFORFAKE Óðurinn til blekkingarínnar og falsins í glettnislegri mynd eftir meistara allra meistara Orson Welles. Sýnd kl. 5. Réttarhöldin eftir sögu Franz Kafka. Anthony Perkins í hlutverki Jósefs K. Sýrtd kl. 9. Stórkostleg mynd. Sýnd kl. 5 og 7. Skoðanakönmin Skáís fyrir Eintak Meirihluti vill viðræður við ESB MEIRIHLUTI þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að Island ætti að óska eftir viðræðum við Evrópusambandið um hugsanlega inn- göngu, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Skáís hefur framkvæmt fyrir vikublaðið Eintak. 56,6% þeirra sem afstöðu tóku sögðu já og 43,4% nei. Rúmur fjórðungur var óákveðinn. Sex hundruð manns voru í úrtak- hluti fyrir viðræðum í Alþýðuflokki, inu af landinu öllu. Spurt var hvort viðkomandi teldi rétt að íslendingar færu að dæmi Austurríkismanna, Finna, Norðmanna og Svía og hæfu viðræður við Evrópusambandið um hugsanlega inngöngu. 39,3% sögðu já, 30,2% sögðu nei, 27,4% voru óákveðnir og 3,2% neituðu að svara. Samkvæmt könnuninni var meiri- 73% með og 27% á móti, Sjálfstæðis- flokki, 72% með og 28% á móti, og Framsóknarflokki, 56% með og 44% á móti. í Alþýðubandalagi voru 51% á móti og 49% með og í Kvennalista voru 61% á móti og 39% með. Á meðal þeirra sem ekki töldu sig til sérstaks stjórnmálaflokks voru 55% með og 45% á móti. ■ HALDINN verður fræðslu- fúndur um sveppasýkingu og sveppaóþol í einum af sölum Háskólabíós laugardaginn 12. mars. Sveppasýking er einn af þeim nútíma sjúkdóm- um sem skotið hafa.upp kollinum á síðari árum og margir hvetjir vilja ekki ennþá líta á sem sjúkdóm. Sjúkdómeinkennin sem leggjast á líkamann geta verið margvísleg m.a. uppþemba, meltingartruflanir, höfuðverkur og síþreyta svo eitt- hvað sé nefnt. Hallgrímur Þ. Magnússon, læknir, mun halda erindi þar sem hann fjallar um"það hvað Candida Albieans eða sveppasýking ér, um skaðleg áhrif Guðrún Hallgrímur sveppasýkingar á líkamann og þau sjúkdómsein- kenni sem rakin hafa verið til sveppasýkingar. Einnig mun hann íjalla um leiðir til lækningar. Guðrún G. Bergmann Ijall- ar um reynslu sína af sveppasýkingu og þær leiðir sem hún hefur reynt til að ná tökum á henni. Einnig verður rætt um stofnun sjálfshjálparhópa fyrir þá sem þjást af sveppasýkingu, þar sem m.a. yrði veittur stuðningur á bataleiðinni, skipst á matarupp- skriftum og aðferðum sem duga til bata. Fræðslufundurinn hefstkl. 13.30 og er miðaverð 400 kr. Miðasala er við innganginn og hefst kl. 13. Lofsöngur um íslenskar laxveiðiár ísland og hérlendar laxveiðiár fá mikla og lofsamlega umfjöll- un í þriggja siðna myndskrýddri grein í nýjasta tölublaði tímarits- ins „Salmon, Trout and Sea Trout, sem er annað tveggja mest lesnu blaða stangaveiði- manna á Bretlandseyjum. Er þetta í annað sinn á fáum mánuð- um, að íslensku árnar fá svona kynningu, en Rangárnar fengu stóra grein á dögunum í hinu blaðinu, „Trout and Salmon“. Inntak greinarinnar, „Salmon Sagas“ er sú staðreynd að ísland er ekki lengur veiðiland sem venjulegt fólk sjái í hyllingum, heldur hafi landið „opnast" og „hugsanlegt sé að einhverjar verðlækkanir muni líta dagsins ljós sumarið 1994“, eins og sagt er. Greinarhöfundur er Andrew Wallace, einn af fastapennum rits- ins og inngangur hans er í þá veru, að Island sé þess háttar óvenjulegt laxveiðiland, að mislukkað högg á reykvískum golfvelli geti valdið ótímabærri fækkun í Atlantshafs- laxastofninum og á hann þá vænt- anlega við að kúlan geti lent ofan í laxveiðiá og rotað einn íbúann. Telur Wallace með ólíkindum hversu lítið ritað hefur verið um íslensku laxveiðiárnar miðað við gæði þeirra, og kallar þær m.a. „Shangri La stangaveiðimanns- ins,“ en skýringin sé áreiðanlega sú, að um áratuga skeið hafi sami tiltölulega þröngi hópurinn haldið tryggð við árnar og endurnýjun hafi lítil verið í hópi veiðimanna. Ef stöng losnaði, hafi hún verið látinn til vinar eða vandamanns, þegjandi og hljóðalaust. Verðlag komi hér einnig við sögu. Wallace kemur víða við og nefn- ir m.a. til sögunnar að laxastofnar á Islandi hafi eins og aðrir orðið fyrir barðinu á rányrkju í hafinu, en á móti komi að hann sé lítið eða ekkert veiddur í sjó við landið, og mengun af ýmsum toga, m.a. skóg- ræktar, sé ekki vandamál sem þarf að kljást við. Og þó að veiðin sé ekki söm og fyrir 2-3 áratugum, sé hún enn framúrskarandi, sér- staklega í samanburði við það sem veiðimenn mega búa við víða í Skotlandi, Englandi og Noregi, þar sem stofnar hafa farið illa af ýms- um ástæðum. Síðar í greininni nefnir Wallace vanda veiðiréttareigenda á Islandi í dag. Á Islandi sé kreppa sem víð- ar og erlendum veiðimönnum hafi fækkað af þeim sökum. Opnun Rússlands hafí einnig haft úrslita- þýðingu, því íjöldi landshorna- manna í röðum laxveiðimanna fari nú ár hvert á Kólaskagann og sjá- ist því ekki annars staðar rétt á meðan. Veiðiréttareigendur á Is- landi hafi því gert sér ljóst að þeir verði að keppa um viðskiptavinina, jafnvel þó það kosti að slá eitthvað af verðlaginu. Átta veiðifélög hafi nýverið gefið út sameiginlegan kynningarbækling um ár sínar og sé honum nú dreift víða. Loks spyr Wallace hvort að ís- land sé þess virði, jafnvel ef verð lækki. Hann fullyrðir að hinir efn- uðu Bretar sem hér hafi Iengi veitt séu ekki í vafa. Á íslandi séu viðráðanlegar laxveiðiár á hvetju strái. Aðeins Laxá í Aðaldal sé eitt- hvað í líkingu við ár á borð við Alta í Noregi, þar sem menn þurfi helst „að standa upp undir háls í jökul- köldu vatni, með blýþyngda skotl- ínu og túbuflugu hnýtta á fall- byssupatrónu!" Hér verður ekki dvalið við allt sem Wallace nefnir til, eins og meðalveiði í betri ánum, aðbúnað og mat í veiðihúsum. Er skemmst frá að segja að allt fær það ágætis- einkunn með þeim orðum að auð- velt sé að fá á tilfinninguna á bakka íslenskrar laxveiðiáar, að raun- veruleikinn gæti hæglega slegið lygasögunni við... Veiðimenn setja í’ann ofan af brúnni á Laxá í Kjós.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.