Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 17

Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 17 Fiskikort, nei takk eftir Ágúst Úlfar Sigurðsson Nýlega hafa fjölmiðlar sagt frá svonefndum fiskikortum, einhvers konar leyfisbréfum, sem hugmyndin er að lax- og silungsveiðimenn verði skikkaðir til að kaupa. Jafnframt hafa fylgt ýmsar uppástungur um það hvemig megi veija fénu sem þannig myndi innheimtast. Að von- um hafa ýmsir aðilar lýst sig fúsa til að veita því viðtöku. Ég er einn þeirra sem hafa unun af útivist og þó einkum og sér í iagi ef hún tengist stangaveiði. Málið er mér því skylt, en ekki að sama skapi ljúft. í stuttu máli sagt þá finnst mér þetta vera vond hugmynd og vildi helst að hún hefði aldrei komið fram. Þótt menn tali um lága fjárhæð þá er engu að síður á ferðinni hug- mynd um gjald eða skatt, sem lagð; ur verði á afmarkaðan hóp fólks. í mínum huga breytir það engu hvaða nafni gjald þetta kann að vera nefnt og hvort það sé hátt eða lágt, skatt- ur er það engu að síður. Nóg fínnst mér vera af sköttum fyrir. Ekki hefur skort hugmyndirnar um það hvað gera skuli við afrakstur- inn: Auka fiskirannsóknir, styrkja starfsemi veiðimálastjóra, kaupa upp laxveiðikvóta í sjó og netum og svo framvegis og svo framvegis. Ég ótt- ast að lítill skattur geti vaxið eins og mörg dæmi eru um. Mjór er mik- ils vísir. Hvað eiga svo stangaveiðimenn að fá í staðinn — eða stóð ekki ann- ars til að svo væri? Til að fínna það skulum við fyrst athuga hvað geti fengist fyrir skattféð og síðan hveij- ir séu líklegastir til að njóta þess. Skoðum dæmin tvö hér á undan; hagnýtar fiskirannsóknir og kvóta- kaup. Ef auknar rannsóknir á fiskstofn- Ágúst Úlfar Sigurðsson „Með tilkomu fiskikort- anna eykst því enn bilið sem skortir á að stanga- veiði nái skynsemis- mörkum.“ um skila bættum árangri við seiða- sleppingar, lægri tilkostnaði eða auknum aflabrögðum — munu þá stangaveiðimennimir njóta þess? Það tel ég vera ólíklegt því „veiðiréttar- eigendur" munu áreiðanlega hækka verð á veiðileyfum þar sem afli eykst og halda áfram að spenna bogann — sem fýrr. Ef aukin kaup á laxveiðikvótum í sjó og netaveiði verða til að auka laxagengd þá munu veiðileyfín einnig hækka í verði. Þeir sem græða eru annars vegar sjómenn og netabænd- ur sem fá borgað fyrir að veiða ekki og hins vegar veiðibændumir eða hagsmunafélög þeirra, eins og í fyrra dæminu. Það þarf ekki ítarlega rannsókn á aflatölum og gjaldskrá veiðileyfasala til að sjá að fæstir stangaveiðimenn ná því nokkum tíma að afla fýrir veiðileyfunum sem þeir kaupa. Hvað þá að nægi fyrir öðmm tilkostnaði. Ef ekki kæmu til hin alræmdu bjart- sýnisköst sem veiðidellumenn em þekktir fyrir þá væm þeir allir fyrir löngu búnir að taka upp einhveija aðra hagnýtari dægradvöl. Með til- komu fískikortanna eykst því enn bilið sem skortir á að stangaveiði nái skynsemismörkum. Einnig má hafa í huga að fiski- kortaskatturinn mun fæla byijendur frá stangaveiði, t.d. unglingana „á mölinni", sem ekki veitir af kynnum við íslenska náttúm. Ef dregur úr nýliðun í hópi stangaveiðimanna þá gætu langtímaáhrif af fiskikortum orðið verulega neikvæð fyrir alla aðila, veiðiréttareigendur, stanga- veiðimenn og fólkið í landinu í heild. Eftir því sem ég hugsa þetta mál oftar þá fínnst mér æ líklegra að hugmyndin um fískikortin sé byggð á fákunnáttu eða misskilningi. í þeim löndum þar sem ég hef heyrt af físki- kortum (Noregi og Bandaríkjunum) veita kortin öllum sem þau kaupa leyfi til veiða í fjölmörgum veiðivötn- um án endurgjalds. Ég hef ekki heyrt að neinn slíkur „glaðningur" til veiði- manna eigi að fylgja íslensku físki- kortunum. Ef um slíkt verður rætt skal ég endurskoða afstöðu mína, en annars fela kortin ekkert í sér nema skattlagningu og kýs ég helst að vera laus við þau. Ég segi því nei takk. Höfundur er tölvunarfræðingur og áhugamaður um stangaveiði. Fjórar góðar ástæður til að kaupa rekstarvörurnar hjá Boðeind | Bjóðum mikið úrval af rekstrarvörum fyrir tölvur og jaðartæki. Disklingar, margar gerðir af köplum, rykhlífar fyrir tölvur, skjái, lyklaborð og prentara. Blekbönd og dufthylki fyrir flestar gerðir prentara, músamottur og úlnliðspúðar. Einnig bjóðum við lyklaborðsskúffur og skjáarma sem festa má á vegg eða borð og þannig auka vinnurými. *BOÐEIND- Austurströnd 12 • Sími 612061 • Fax 612081 Fyrsta Power Macintosh- tólvan kom meb þyrlu í Apple-umboöib 14. 3. '94. Power Macintosh 7100/66 8 Mb vinnsluminni 250 Mb harðdiskur 17" Apple Multiscan-litaskjár Stórt hnappaborð Grunnverð: 557.900,- kr. Tilboðsverð: 414.000,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 332.536,- kr. stgr. Power Macintosh 6100/60 8 Mb vinnsluminni 160 Mb harðdiskur 14" Apple AV-litaskjár Lítið hnappaborð Grunnverð: 341.600,- kr. Tilboðsverð: 266.000,- kr. stgr. Tilboðsverð án VSK: 213.655,- kr. stgr. Apple-umboðið hf. Skipholti 21. Sími: 91 - 62 48 00 Fax: 91 - 62 4818

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.