Morgunblaðið - 26.04.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
27
Staða rektors við Háskólann á Akureyri
Háskólanefnd mæl-
ir með Þorsteini
HÁSKÓLANEFND Háskólans á
Akureyri samþykkti á fundi síð-
degis í gær að mæla með því
við menntamálaráðherra að
Þorsteinn Gunnarsson verði
ráðinn rektor Háskólans á Ak-
ureyri.
Haraldur Bessason núvei'andi
rektor mun láta af störfum í vor.
Tvær umsóknir bárust um stöðuna
frá Þorsteini Gunnarssyni og
Fanneyju Kristmundsdóttur sem
er doktor í líffærafræði og starfar
við Háskólann í Edenborg.
Þorsteinn er doktor í uppeldis-
fræði. Hann er nú vísinda- og
menntafulltrúi við sendiráð íslands
í Brussel.
Fyrir háskólanefndarfundi í gær
lá fyrir dómnefndarálit þess efnis
að báðir umsækjendur voru taldir
hæfir til að gegna stöðunni. Álit
háskólanefndar hefur verið sent
til menntamálaráðherrá sem skip-
ar í stöðuna.
Ferðaskrif stofan
Nonni fimm ára
*
Ahersla lögð
á vistvæna
ferðaþjónustu
FERÐASKRIFSTOFAN Nonni
er 5 ára um þessar mundir, en
hún hefur það að markmiði að
auka straum ferðamanna, bæði
innlendra og erlendra, til Akur-
eyrar og Norðurlands með raun-
hæfum tilboðuin um afþreyingu
og sérstök áhersla hefur verið
lögð á vistvæna ferðaþjónustu
og góða umgengni.
Auk þess að kaupa þjónustu
ýmissa aðila á svæðinu hefur reynst
nauðsynlegt að stofna til eigin skoð-
unarferða. Fyrstu árin var nokkurt
tap á rekstrinum, en á síðasta ári
skilaði rekstur skrifstofunnar hagn-
aði og jákvæðri eiginfjárstöðu.
Skrifstofan hefur aðallega skipu-
lagt ferðir innanlands en einnig
hefur hún boðið ferðir tii útlanda.
Nýlega tók Nonni hf. við Akureyr-
arumboði Ferðaskrifstofu Kjartans
Helgasonar og í ágúst verður skipu-
lögð sérstök afmælisferð til Vestur-
Grænlands fyrir íslendinga, en ætl-
unin er að Grænland skipi vaxandi
sess í ferðatilboðum fyrirtækisins.
Fyrirtækið hefur fullan hug á
því að vinna betur úr þeim mögu-
leikum í framtíðinni sem það hefur
tekið þátt í að skapa á liðnum árum.
Hjá ferðaskrifstofunni starfa þrír
starfsmenn en framkvæmdastjóri
og aðaleigandi er Helena Dejak.
(Úr fréttatilkynningu.)
Smásagnasamkeppni Dags og Menor
Islenskunemi hlaut
fyrstu verðlaun
SKÚLI Björn Gunnarsson nemi í íslensku við Háskóla Islands
hlaut fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni Menningarsam-
taka Norðlendinga og dagblaðsins Dags en úrslit voru kunn-
gjörð síðastliðinn Iaugardag.
Skúli Björn hlaut verðlaunin Þetta er í þriðja skipti sem
fyrir smásöguna „Skórnir". Dagur og Menningarsamtök
Önnur verðlaun komu í hlut Norðlendinga efna til smásagna-
Ólafs Þórðarsonar kennara á samkeppni. Að þessu sinni bár-
Akureyri fyrir söguna „Verk- ust dómnefnd 20 smásögur.
f æri “ (Fréttatilkynning.)
# # Morgunblaðið/Kristinn
Eigendurmr
LINDA Pétursdóttir ásamt foreldrum sínum, Ásu Hólmgeirsdótt-
ur og Pétri Olgeirssyni.
Baðhúsið opn-
að við Armúla
BAÐHÚSIÐ nefnist heilsuræktarmiðstöð fyrir konur, sem opnuð
hefur verið í Ármúla 30. Aðaleigandi og stjórnandi er Linda
Pétursdóttir, fyrrverandi Ungfrú Heimur.
Baðhúsið er heilsulind í víðustu Einnig er á boðstólum leikfími,
merkingu og leggur áherslu á erobikk, danskennsla, teygjuæf-
skemmtilegar æfingar í þægilegu ingar og kripalujoga. Ljósabekkir
umhverfi, segir í frétt frá fyrirtæk- eru í Baðhúsinu, svo og nuddpott-
inu. Æfingatæki eru sérhönnuð ur og vatnsgufuklefar. Fagfólk sér
fyrir konur og boðið er upp á um leiðbeiningar. Hægt er að ljúka
margvíslegt nudd og snyrtingu. deginum í kaffíhúsi staðarins.
11112
frá Oroblu
Silhouette 20 og 40 den
^ Sokkabuxur með sérlega stífum
efri buxnahluta.
^ Silkiáferð.
^ Bómullarskrefbót.
^ Sérstaklega styrktar á tám.
► Ofnæmisprófaðar.
nnnDi i s
^ Efri buxnahlutann má nota
áfram þótt sokkarnir slitni.
UMBOÐS- OG DREIFINGARAÐILl
ÍSLENSK - AUSTURLENSKA