Morgunblaðið - 06.12.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994 51
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ í MOSKVU
íslenska sveitin
í toppbaráttunni
SKAK
ÍSLENDINGAR unnu góðan sig-
ur, 3-1, á sveit Slóvaka í þriðju
umferð Ólympíuskákmótsins í
Moskvu á laugardag. Á sunnudag
gerði ísland jafntefli við Holland 2-2
og er alveg við toppinn.
í viðureigninni við Slóvaka hafði
Hannes Hlífar Stefánsson hvítt
gegn stórmeistaranum, Lubomir
Ftacnik, á fyrsta borði. Hannes náði
góðum tökum á stöðunni, eftir
flókna bytjun. Slóvakanum tókst
ekki að ná neinu mótspili og svo
kom, að hann fórnaði manni í tíma-
hrakinu, þegar staðan hans var að
hruni komin. Hannes tók manninn
og Ftacnik gafst upp tveim leikjum
síðar. Margeir Pétursson tefldi við
Igor Stohl, stórmeistara, á öðru
borði, og hafði svart. Margeir lenti
í erfiðleikum og missti peð, en and-
stæðingurinn notaði umhugsunar-
tíma sinn ótæpilega. Margeiri tókst
að snúa taflinu sér í vil í tímahrak-
inu, og Stohl féll á tima í 40. leik.
Jón L. Árnason tefldi með hvítu
mönnunum gegn stórmeistaranum
Jan Plachetka. Slóvakinn lét ófrið-
lega í byijun, afsalaði sér hrókun
og fórnaði síðan manni. Stórsóknin,
sem hann ætlaði að ná, reyndist
aðeins tálsýn, og hann varð að gef-
ast upp í 21. leik. Helga Ólafssyni
gekk ekki eins vel í viðureign sinni
við alþjóðlega meistarann Tibensky
á ijórða borði, og mátti sætta sig
við tap.
Af öðrum úrslitum má helst
nefna, að Hollendingar unnu Frakka
4-0 og tóku þar með forystuna í
mótinu, með 11 vinninga, en íslend-
ingar voru jafnir Júgóslövum í öðru
sæti, með 10 v.
Jafnt á öllum borðum
í ijórðu umferð á sunnudag sett-
ist íslenska sveitin að tafli gegn
Hollendingum. Þeir síðarnefndu
voru ekki eins vígreifir og gegn
Frökkum daginn áður, enda hafa
íslendingar unnið Hollendinga í þijú
síðustu skiptin, sem þjóðirnar hafa
teflt á Ólympíumóti, að vísu með
minnsta mun. Jóhann Hjartarson
hafði svart gegn Jan Timman á
fyrsta borði, jafnaði taflið án telj-
andi erfiðleika, og samdi jafntefli
eftir 23 leiki. Hannes Hlífar og
stigahæsti skákmaður Hollendinga,
Jeroen Piket, tóku litla áhættu, áður
en Jþeir sömdu frið í 20. leik. Jón
L. Árnason lenti í nokkrum erfiðleik-
um í opnu og tvísýnu tafli gegn
Paul van der Sterren á þriðja borði,
en hélt sínu að lokum. Helgi Áss
Grétarsson hafði hvítt gegn John
van der Wiel á fjórða borði og náði
betra tafli. Helgi eyddi of miklum
tíma á byijunina og tók þess vegna
ekki áhættuna af því að tefla áfram,
þegar Hollendingurinn bauð jafn-
tefli í 25. leik. Niðurstaðan varð því
jafntefli á öllum borðum, 2-2, en
með því féll íslenska sveitin niður í
ijórða sæti.
Það var mikið um að vera hjá
fréttamönnum í þessari umferð og
sjónvarpsvélarnar voru í gangi við
upphaf umferðarinnar. Fyrsta skák
heimsmeistarans, Gary Karparovs,
í aðalsveit Rússa, var að hefjast.
Andstæðingurinn, júgóslavneski
stórmeistarinn Ljubomir Ljubojevic,
lét allt umstangið ekki koma sér
úr jafnvægi, og hélt jöfnu við meist-
arann.
Helstu úrslit í íjórðu umferð:
Rússland I-Júgóslavía, 2-2 (Kramn-
ik vann, en Tiviakov tapaði); Rúss-
land II (unglingalið)-Rúmenía, 3‘A
-‘/2; Bandaríkin- Noregur, 2-2
(Espen Agdestein vann Shabalov);
Ungveijaland-Spánn, 2-2 (Júdít
Polgar tapaði fyrir Illescas); ísrael-
Grikkland, 3l/2 -V2; Litháen-Bosnía,
3-1; Uzbekistan- Þýskaland, 2-2
(allar jafntefli); Armenía-Kína, 2-2.
Staða efstu sveita eftir fjórðu um-
ferð er sú, að Hollendingar og ungl-
ingasveit Rússa eru í 1.-2. sæti með
13 v. 3. Litháen, 12V2 v. 4.-6. ís-
land, Júgóslavía, Israel, 12 v. 7.-8.
Rússland og Hvíta-Rússland, IIV2
v. í 9. sæti eru margar sveitir jafn-
ar með 11 vinninga, m.a. Danmörk,
Úkraína, Þýskaland, Spánn, Arm-
enía, Kína og Uzbekistan. Með IOV2
vinning eru m.a. Ungveijar, Banda-
ríkjamenn og Norðmenn.
I kvennaflokki beijast Ungveija-
land (Z. Polgar, S. Polgar, Madl),
Georgía, Armenía og Rússland um
forystuna, en undirritaður hefur
ekki enn fengið einstök úrslit eða
stöðuna í þeim flokki.
Heimsmeistari FIDE, Anatólíj
Karpov, hefur ekki látið sjá sig á
mótinu, en hins vegar kom forseti
alþjóðaólympíunefndarinnar, Sam-
aranch, til Moskvu í gær til að vera
viðstaddur skákmótið.
Áður en við snúum okkur að
skákum úr viðureign íslendinga og
Slóvaka má geta þess hér, að sá
orðrómur gengur fjöllunum hærra
í Moskvu, að forseti alþjóðaskák-
sambandsins, Florencio Campoma-
nes, og Gary Kasparov, heimsmeist-
ari PCA, atvinnumannasambands-
ins, séu eitthvað að bralla, og megi
jafnvel búast við að sá fyrrnefndi
bjóði sig enn einu sinni fram til for-
setaembættis FIDE.
Snaggarleg skák hjá Jóni L.
Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Jan
Plachetka
Sikileyjar vörn (breytt leikjaröð)
1. c4 - c5, 2,Rf3 - g6, 3. e4 -
Bg7, 4. d4 - cxd4, 5. Rxd4 -
Rc6, 6. Be3 - Rf6, 7. Rc3 - Rg4,
8. Dxg4 - Rxd4, 9. Ddl - Re6,
10. Hcl - Da5
Svartur getur einnig leikið hér 10.
- d6 með hugsanlegu framhaldi 11.
Dd2 - Bd7, 12. Be2 - 0-0, 13. 0-0
- Rc5, 14. f3 - a5, 15. Hfdl -
Bc6, o.s.frv.
11. Be2 - b6, 12. 0-0 - Bb7, 13.
f3 - f5!?
Bent Larsen hefur a.m.k. tvisvar
leikið 13. - g5 í þessari stöðu í skák-
um við Nigel Short og fengið IV2
vinning. í síðari skákinni, í Hastings
1987/88, varð framhaldið 14. Hf2
- h5, 15. Bfl - De5, 16. Hd2 -d6,
17. Rd5 - Kf8, 18. b4 og Short
náði betra tafli, sem hann missti
niður í jafntefli.
14. exf5 - gxf5, 15. f4! - Hg8!?,
16. Bh5+ - Kf8, 17. Dxd7 -
Hvað meinar maðurinn með þessu?
17. - Bd4?!?
Þar kom leikurinn, sem svartur
treysti á. Ef marka má framhald
skákarinnar, er þessi staða gjörtöp-
uð fyrir svart. Skýringuna á tafl-
mennsku svarts er ef til vill að finna
í skák, sem fannst í Chess Assist-
ant-tölvugagnagrunninum. V. Mo-
issev-V. Komarov, Kemerovo 1991,
en þar varð framhaldið 18. Dxb7 -
Bxe3+, 19. Khl - Bxcl, 20. Hxcl
- Hd8, 21. Hel, - Dc5, 22. Hxe6
- Hg7, 23. He5 - Dxc4, 24. Hxf5+
- Kg8, 25. Df3 - og hvítur vann
10 leikjum síðar. Það er hugsan-
legt, að Plachetka þekki þessa skák
og hafi haft einhveija endurbót í
huga fyrir svart, en Jón varð fyrri
til!
18. Bxd4! - Bxg2
Eftir 18. - Hxg2+, 19.Khl getur
svartur ekki fráskákað með hróks-
leik, því að biskupinn á b7 er óvald-
aður, og ef t.d. 19.—Hb8 20.BÍ3
o.s.frv.
19. Kf2 - Rxf4
Ekki er annað að gera við hótun
hvíts, 20. Dxe6.
20. b4!—
Svarta drottningin getur ekki lengur
valdað peðið á f5 og nú er aðeins
ein skák eftir fyrir uppgjöfina.
20. -Rd3+, 21. Ke3 og svartur
gafst upp, því að 21. - Rxb4 bjarg-
ar honum ekki, vegna 22. Hxf5n—
Dxf5, 23. Dxf5+ mát.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Lubomir Ftacnik
Skileyjar vörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - a6,
6. Be3 - Rg4, 7. Bg5 - h6, 8.
Bh4 - g5, 9. Bg3 - Bg7, 10. Dd2
- Rc6, 11. Rb3 - Be6, 12. f3 -
Rge5, 13. Bf2-
I þessari stöðu hefur verið leikið 13.
Rd5, og þannig komið í veg fyrir,
að svartur leiki 13. -Ra5, og fram-
haldið gæti orðið 13. -b5, 14. Bf2
- Hb8, 15. Rd4 - Rxd4, 16. Bxd4
- Hg8, 17. 0-0-0 - Bxdé^ 18. exd5
með betra tafli fyrir hvít (Topalov-
Peter Genov, skákþingi Búlgaríu
1993).
13. -Ra5, 14. Rd4 - Rac4, 15.
Dcl - Hc8, 16. Be2 - Da5, 17.
0-0 - Rg6, 18. Bxc4 - Hxc4, 19.
Rce2 - 0-0, 20. c3 - d5?!
Spurningin er, hvort svartur hefði
ekki betur haldið í biskupinn sinn
og leikið 20. - Bd7.
21. Rxe6 - fxe6, 22. Dc2 - Rf4?,
23. Rxf4 - gxf4, 24. De2! - Hfc8,
25. e5!—
Með þessum leik lokar Hannes
svarta biskupinn á g7 inni, og
skorðar að auki veikleikana í svörtu
peðastöðunni, e6, e7, f4 og h6. í
framhaldi skákarinnar finnur
Ftacnik enga leið til að skapa sér
mótspil.
25. - Db5, 26. Bd4 - De8, 27.
Dd2 - Df7, 28. g4 - fxg3, 29.
hxg3 - Dg6, 30. Kg2 - h5
Með þessum leik opnar svartur bisk-
upnum leið til h6 og hótar h5 - h4.
Það er eðlilegt, að svartur geri allt,
sem hann getur, til að ná mótspili,
þótt peðið á h5 verði veikt.
31. Hhl - Bh6, 32. Df2 - Hf8,
33. Hh3 - Hf4, 34. Hdl-
Svartur hótaði 34. - Hfxd4, 35.
cxd4 - Hc2 o.s.frv.
34. - Hc8, 35. Kh2 - Hf7, 36.
De2 - Hh7, 37. Dd3 - Df7
Endataflið er gjörtapað fyrir svart,
m.a. vegna þess að svarta peðið á
h5 er dauðans matur.
38. Kg2 - Hf8, 39. Hdhl - Bg5,
40. f4 - Bxf4
Örvænting, því að svartur getur
gefist upp, eftir 40. - Bh6, 41.
Hxh5 o.s.frv.
41. gxf4 - Dxf4, 42. Hg3+ - Hg7
Eða 42. - Kh8 (42. - Kf7, 43.
Dg6+ mát) 43. Dxh7+,- Kxh7, 43.
Hxh5-i— Dh6, 44. Hxh6+ og hvít-
ur á auðunnið tafl.
43. Hxh5 og svartur gafst upp.
Bragi Kristjánsson
Andstæðingrir
Margeirs hné niður
SKAK
ÍSLENSKA skáksveitin gerði
jafntefli við sveit Litháens í 5.
umferð Ólympíumótsins í Moskvu í
gær. Öllum skákunum lauk með
jafntefli eftir fremur stutta en sögu-
lega viðureign. Eftir rúmlega
þriggja klukkustunda taflmennsku
dró til tíðinda í viðureign Margeirs
Péturssonar og Sulskins á öðru
borði. Ekki á skákborðinu heldur
gegnt því, því andstæðingur Mar-
geirs hné skyndilega niður og var
óttast að hann hefði fengið hjarta-
áfall.
Mikið uppnám varð á sviðinu
umhverfis þar sem viðureignir efstu
íslendingar eru
í 4.-9. sæti
sveitanna fara fram og læknar
komu á staðinn til að huga að hin-
um sjúka. Klukkan var stöðvuð í
öðrum viðureignum á meðan stumr-
að var yfir Sulskin en síðan hófst
taflið að nýju þótt sjúklingurinn
væri fjarri og ljóst að hann gæti
ekki haldið áfram taflinu.
Jóhann Hjartarson og Malisausk-
as þráléku á fyrsta borði skömmu
éftir að klukkan var sett af stað
að nýju og gaf þar með tóninn fyr-
ir aðra sveitarmeðlimi sem flestir
Úrslit í skákum íslensku keppendanna
(O
£
cc
(O
£
.2
(O
■a
c
n
c
0)
'CO
18. ÍSLAND - o-[ - 3-j < (0 - O-i X □ vinn. %
1. borð: Jóhann Hjartarson — Vz — Vi Vi
2. borð: Hannes Hlífar 1 — 1 Vi Vi
3. borð: Margeir Pétursson — 1 • 1 — Vi
4. borð: Jón L. Árnason 1 — 1 Vi Vi
1. varam.: Helgi Ólafsson 1 Vt 0 — —
2. varam.: Helgi Áss Grétarson 1 1 — Vi —
Vinningar íslendinga 4 3 3 2 2
áttu erfitt með einbeitingu eftir
ósköpin sem gengið höfðu á. Hið
sama gilti vitaskuld um andstæð-
inga og þegar liðstjóri Litháens
bauð jafntefli á hinum þremur borð-
unum var boðinu tekið, þrátt fyrir
að Margeir hefði átt sigurinn vísan
á öðru borði og Hannes hefði betri
stöðu á þriðja borði. Jón L. var á
hinn bóginn í nokkrum erfiðleikum
á fjórða borði.
ísland - Litháen 2-2: Jóhann
Hjartarson - Malisauskas 'A - 'A,
Hannes H. Stefánsson - Kveinis 'A
- ‘A, Margeir Pétursson - Sulskis
'A - '/2, Jón L Árnason - Ruzele ‘A
- !A.
Helstu úrslit í öðrum viðureign-
um í fimmtu umferð: Holland -
Rússland II 2-2, Ísrael-Júgóslavía
2-2, Rússland - Hvíta Rússland 2
‘A -1 ‘A, Danmörk-Spánn 1 ‘A-2 ‘A.
íslenska skáksveitin er í 4.-9.
sæti eftir fimm umferðir á ólympíu-
skákmótinu með 14 vinninga af 20
mögulegum. Sveit Hollands og
Rússlands II eru efstar með 15
vinninga. Sveit Litháens er í þriðja
sæti með 14 ‘A vinning en síðan
koma sveitir íslands, lýðveldi fyrr-
um Júgóslavíu, Rússlands, Kína,
Úkraínu og Búlgaríu með 14 vinn-
inga.
í 6. umferð í dag teflir íslenska
sveitin að öllum líkindum við sveit
Rússlands II, sem er í raun ungl-
ingalandslið Rússlands og hefur
leitt mótið til þessa og má búast
við mjög erfiðri viðureign.
Karl Þorsteins