Morgunblaðið - 21.03.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.03.1995, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hagiiaður af rekstri Granda 153 milljónir HAGNAÐUR varð á rekstri Granda hf. upp á tæpar 153 milljónir króna á árinu 1994 miðað við 108 milljón- ir króna árið áður. Rekstrartekjur félagsins í fyrra námu 3.339 milljónum króna og er það 15% aukning frá árinu áður. Eigið fé Granda nam 1.603 milljón- um króna í lok 1994. í fyrra var heildarafli togara Granda 37.148 tonn en árið áður var hann 31.495 tonn. Á sl. ári bættist nýr frystitogari í togaraflota Granda, Þerney RE 101, og eru togarar félagsins nú 9 talsins. Á sl. ári störfuðu að meðal- tali 440 manns hjá fyrirtækinu. í árslok 1994 nam hlutafé Granda 1.095 milljónum króna. Hluthafar voru 700 um sl. áramót og hafði fjölgað um 110 á milli ára. Aðalfundur Granda verður hald- inn föstudaginn 28. apríl 1995 í matsal Norðurgarðs. Fyrir flóðið STARFSMENN sveitarfélaga um allt vestanvert landið bjuggu sig í gær undir asahlákuna, sem spáð var. Ólík er þó vinnuaðstaða Björns Guðmundssonar, starfs- manns Vesturbyggðar, og starfs- bróður hans suður í Reykjavík. Björn þurfti að leita að niðurföll- unum á Patreksfirði með málm- leitartæki, enda eru sums staðar margir metrar af snjó á götun- um. Borgarstarfsmaðurinn komst hins vegar af með skófl- una. Sleppt eftir skothríð MANNI, sem hleypti oft af hagla- byssu á Eskifirði aðfaranótt laugardags, var sleppt úr haldi að loknum yfirheyrslum. Inger L. Júlíusdóttir sýslumaður segir að ekki hafí verið lagarök til að fara fram á geðrannsókn eða gæslu- varðhald yfír manninum, sem hefði verið fús til samvinnu við lögreglu eftir að ölæðið rann af honum. Maðurinn fór í gær til síns heima, í Reykjavík. Lögreglan á Eskifirði var kölluð niður á bryggju þar í bæ aðfara- nótt laugardags, en maðurinn hafði þá skotið nær tuttugu skot- um úr haglabyssu sinni. Fyrst hleypti hann af í brúnni á Hólma- tindi, en hann var skipverji á tog- aranum. Þá skaut hann að frysti- húsi staðarins, þar sem fóik stóð utan dyra og fékk einn maður hagl í fingur. Maðurinn ógnaði skipsfélaga sínum á Hólmatindi með byssunni og skaut á jeppa og skemmdi hann. Inger L. Júlíusdóttir sagði að málið yrði fljótlega sent til ríkis- saksóknara. ----» 4.♦.. Tyrkneska forræðismálið Frestað til 20. apríl TYRKNESKUR undirréttur hefur frestað forræðismáli Sophiu Han- sen til 20. apríl. Soþhia segir að dómarinn hafi rökstutt ákvörðun sína með því að hann þyrfti að kynna sér málsskjöl frá íslandi. Þar að auki hafí hann viljað fá staðfestingu frá hæstarétti í Ank- ara um að skjölin væru í lagi. Sophia sagðist hafa gert dómar- anum grein fyrir að hún hefði orð- ið fyrir vonbrigðum með niðurstöð- una og hann hefði kallað á eftir henni út úr salnum að hún skyldi sýna biðlund og þolinmæði því ekki væri um nema mánuð að ræða. Verslunarskólinn vill gera sjálfstæðan samning við HÍK Býður kennurum 1,5% umfram tilboð ríkisins VERSLUNARSKÓLI íslands hefur óskað eftir að gera sjálfstæðan kjarasamning við HÍK. Full- trúar skólans hittu kennara í húsakynnum ríkis- sáttasemjara í gær og buðu þeim‘1,5% launa- hækkun umfram það sem samninganefnd ríkis- ins hefur boðið. Ákveðið var að halda annan fund með þessum aðilum í dag. Þorvarður Elíason,. skólameistari Verslunar- skólans, sagði að skólinn hefði ákveðið að gera kennurum þetta tilboð í von um að með því móti mætti koma skólastarfí í gang að nýju. Hann sagðist ekki gera ráð fyrir að tilboðið myndi standa í langan tíma ef andstaða væri við það af hálfu kennara. Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, sagði að ef Verslunarskólinn vildi gera sjálfstæðan samn- ing við HÍK yrði sá samningur að ná til allra réttindamála kennara stórra og smárra, en ekki eingöngu launamála. Niðurstaða fundarins í gær varð að kennarar ætla að skoða tilboð Verslunarskólans betur og Verslunarskólinn ætlar að skoða kröfur kennara um réttindamálin. Samningsaðilar hittast á ný í dag. Búist er við að þá muni skýrast hvort af samningum verði eða ekki. Á þessari stundu eru taldar minni líkur en meiri á því að af samning- um verði. Nýjar hugmyndir reifaðar Kennarar lögðu um helgina fram nánari út- færslur á gagntilboði sínu frá 15. tnars. Þar bjóðast kennarar til að færa hluta af skipulags- breytingum í skólastarfi fram yfir samningstím- ann eða allt fram til ársins 1999. Elna sagði að þetta fæli í sér verulega tilslökun af hálfu kennara. Með þessu væru kennarar að setja fram hugmyndir um hvernig mætti leysa eitt aðal- deilumálið í viðræðunum, þ.e. vinnutímamálið. Kennarar ræddu þessar hugmyndir við fjármála- ráðherra um helgina. Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefnd- ar ríkisins, sagði að tillögur kennara tækju að- eins til eins þáttar í kröfum þeirra. Eftir sem áður krefðust kennarar 25% launahækkunar. Hann sagði að SNR væri tilbúin til að ræða frekar um vinnutímahugmyndir kennara. Eins hefði nefndin opnað á umræður um mat á sér- kjaraatriðum og með hvaða hætti væri hægt að leysa vandamál sem upp koma við einsetningu skóla. í svari SNR er boðið upp á viðræður um 16 atriði, sem mörg hver hafa ekki verið rædd í viðræðunum fram til þessa. Undanþágudeilan enn óleyst Deila kennara og samninganefndar ríkisins um greiðslur fyrir kennara sem vinna í verkfall- inu er enn óleyst. Gunnlaugur Ástgeirsson, for- maður verkfallsstjórnar kennara, sagði hugsan- legt að verkfallsstjórn kallaði til baka allar þær undanþágur sem hún hefur veitt í verkfallinu ef fjármálaráðuneytið héldi fast í þá afstöðu sína að greiða fyrir vinnu kennara í verkfalli á stunda- kennarataxta. Leiklistarskólinn Komu í veg fyrir inn- tökupróf VERKFALLSSTJÓRN kenn- ara stöðvaði í gær inntökupróf í Leiklistarskóla íslands um það leyti sem þau voru að hefjast. Vegna aðgerða kennara ákvað Leiklistarskólinn að fresta inn- tökuprófunum þar til verkfalli kennara lýkur. Um 100 manns ætluðu að þreyta inntökupróf. Skólastjóri ákvað þrátt fyrir mótmæli kennara að láta prófín fara fram með tilvísun til þess að hann megi vinna öll störf í verkfalli önnur en að kenna. I inntökunefndinni er einn kenn- ari sem er í verkfalli. í fyrradag var hins vegar haldinn skóla- nefndarfundur þar sem nýr maður var skipaður í nefndina. Verkfallsbrot Gunnlaugur Ástgeirsson, formaður verkfallsstjórnar kennara, sagðist líta á þessa aðgerð sem mjög alvarlegt verkfallsbrot. Hann sagðist sömuleiðis vera þeirrar skoð- unar að skólastjóri hefði farið út fyrir verksvið sitt með því að láta prófin fara fram. Þeir sem hugðust þreyta inn- tökupróf hafa mótmælt aðgerð- um kennara bréflega. Samþykkja verkfalls- heimild FUNDUR rafiðnaðarmanna í Rafiðnaðarsambandi íslands sem starfa hjá ríkinu sam- þykkti í gær að veita stjórn, trúnaðarráði og samninga- nefnd heimild til að boða verk- fall. Guðmundur Gunnarsson, formaður félagsins, sagði að verkfall yrði boðað ef engin hreyfing kæmist á viðræður. A fundinum í gær kom til umræðu hvort rétt væri að boða til verkfalls fyrir kosning- ar, en það myndi leiða til þess að ekkert kosningasjónvarp yrði á sjónvarpsstöðvunum. Guðmundur sagði ekki hægt að svara því á þessari stundu hvort eða hvenær af verkfalli yrði. Það færi eftir því hvort alvöru viðræður færu í gang. Flugfreyjur boða verkfall FLUGFREYJUFÉLAG íslands hefur boðað verkfall dagana 28.-30. mars. Erla Hatlemark, formaður félagsins, segir þetta gert til að þrýsta á Flugleiðir um gerð nýs kjarasamnings. Félagið hafi verið samnings- laust síðan 1. mars 1993. „Það ætti því enginn að þurfa að véra hissa þó að við þrýstum á um samninga nú.“ Erla vildi ekki tíunda kröfur flugfreyja þegar eftir því var leitað. Leikarar hjá RÚV í verkfall FÉLAGSMENN í Félagi ís- lenskra leikara sem annast flutning í hljóðvarpi hafa boðað verkfall hjá Ríkisútvarpinu sem á að hefjast á miðnætti 29. mars hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verkfallsboðunin var send út í gær og er kjara- deilunni þar með sjálfkrafa vís- að til ríkissáttasemjara.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.