Morgunblaðið - 21.03.1995, Síða 33

Morgunblaðið - 21.03.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 33 SNJÓFLÓÐIÐ Á SEYÐISFIRÐI snjóflóð ujöls :og : ' ' ia ikróna , ■""'Í!-::,., smiðjunnar sem heillegur er. „Við urðum varir við loftþrýstinginn á undan flóðinu því við fengum allir hellu fyrir eyrun, það var eins og höfuðið væri að springa. í fyrstu vissi enginn okkar hvað væri að gerast, við heyrðum bara hviss og stóran hvell, eitt andartak lék allt á reiðiskjálfi og síðan tókum við á sprett út. Einhveijir fengu á sig snjófjúk, því mikið kóf þyrlaðist inn þegar flóðið skall á. Við áttuðum okkur þó fljótlega á að flóð hefði fallið, bæði út af hvellinum og því að rafmagnið fór af um leið og öll ljós nema neyðarljós slokknuðu. Okkur datt fyrst í hug að einhver hefði lent í flóðinu og flýttum okk- ur að kasta tölu á mannskapinn þegar allir voru komnir út, en sem þetur fer sluppum við allir ómeidd- ir,“ segir Birgir. Hermann Guðmundsson starf- rækir Hótel Snæfell á Seyðisfirði en var staddur heima hjá sér á Hólavegi, sem liggur skáhallt gegnt verksmiðjunni. „Ég var að horfa yfir fjörðinn þegar ég sá stærðar snjófleka skríða af stað niður fjallið og strax myndaðist mikill snjóveggur fyrir framan hann og stöðugt bólstraði upp fyrir framan flóðið. Það fór mjög hratt yfir, mér finnst sem það hafi þotið niður hlíðina á örfáum sekúndum og mökkurinn hélt áfram út á miðjan fjörð áður en hann hjaðnaði, sem er til marks um hraðann. Verksmiðjan hvarf alveg í snjómekki, fyrir utan blá- endann á henni, fjær flóðinu, þann- ig að ég sá það í raun og veru ekki skella á húsunum, en mér fannst greinilegt af stefnu flóðsins að það hefði farið yfir mjölhúsið,“ segir Hermann. Brunabótamat 70 millj. „Lausafokið hjaðnaði mjög fljót- lega og þá blasti við sú eyðilegging sem þarna varð. Maður dofnaði allur upp við þessa sýn og fylltist algjörum vanmætti við að horfa á þetta gerast og finna að maður getur ekki gert nokkurn skapaðan hlut til að aðvara þá sem eru und- ir flóðinu eða koma í veg fyrir að þessi gífurlegi kraftur leysist úr læðingi.“ Ekki er búið að meta tjónið, _en fulltrúar frá Viðlagatryggingu ís- lands og tryggingafélagi Vestdals- mjöls eru væntanlegir til Seyðis- fjarðar allra næstu daga. Mjöl- skemman var klædd og endurnýjuð seinasta sumar, og sama máli gegnir um vélar og búnað verk- smiðjunnar. Brunabótamat skemmu og afurða í henni nemur um 70 milljónum króna hjá Vá- tryggingafélagi íslands. Mannskæðasta snjóflóð sem vit- að er um hérlendis féll á Seyðis- fjörð árið 1885, en það varð 24 að aldurtila. UMFANG og stefna snjóflóðsins sést vel á þessari mynd sem tekin var skömmu eftir að flóðið féll í fyrradag. Mörg snjóflóð hafa fallið á verksmiðjuna FLÓÐIÐ vann gríðarlegar skemmdir á verksmiðju Vestdalsmjöls. ► MÖRG snjóflóð hafa fallið úr Bjólfinum við Seyðisfjörð og tvisv- ar hafa snjóflóð stórskemmt loðnu- verksmjðju Vestdalsmjöls hf. og eitt mesta manntjón vegna snjó- flóða á Islandi varð þegar snjóflóð féll á byggðina vestan við Fjarðará á Seyðisfirði þar sem verksmiðjan stendur nú. ►í snjóflóði sem féll 18. febrúar 1885 létust 24 og margir meidd- ust. 15 hús gjöreyðilögðust. ►Snjóflóð féll á mjölskemmu síldarbræðslunnar Hafsíldar hf. 27. mars 1967 og braut hana niður. ► Annað snjóflóð féll á Hafsíld- arverksmiðjuna 16. janúar 1975 og stórskemmdi verksmiðjuhúsið. ► Á annan dag jóla 1985 féll snjóflóð úr Bjólfinum á Ilafsíld- arverksmiðjuna. Ekki urðu miklar skemmdir þá, en olía rann í sjó og dreifðist um allar fjörur. ►Nokkur snjóflóð féllu úr Bjólfinum í febrúar 1985 og stöðvaðist eitt þeirra á Hafsíldar- verksmiðjunni án þess að valda tjóni. og í febrúar í fyrra féll lítið flóð án þess að valda tjóni. „Aflýstum hættu- ástandi of snemma“ SNJOFLOÐAHÆTTU var aflýst á því svæði þar sem flóðið féll um klukkan 14 á sunnu- dag, eða hálfum öðrum tíma áður en flóðið féll. „Ég tel ekki nokkurn vafa á því að við aflýst- um hættuástandi of snemma, þetta hefur ekki verið rétt ákvörð- un,“ segir Lárus Bjarnason sýslumaður á Seyðisfirði og for- maður almannavarna- nefndar bæjarins. Lárus segir að hættuástandi hafi ver- Lárus Bjarnason ið aflýst í samráði við smóflóða- varnafræðing Veðurstofu Islands, sem hefði talið nær óhætt að af- létta hættunni þegar veðri slotaði um hádegi á sunnudag á þeim forsendum helst að lítil úrkoma hefði ekki verið um tíma á undan. Undir nokkrum þrýstingi „Þetta eru mikil spávísindi sem eru, eins og aðrar veðurspár, mjög óljós og ekki hægt að vera með á hreinu hvenær snjóflóða- hætta er í raun og veru og hve- nær ekki. Við töldum þetta í lagi, en svo reyndist ekki vera.“ Lárus segir ljóst að almanna- varnanefndir sitji undir þrýstingi frá öllum þeim sem er gert að rýma húsa- kynni sín eða vinnu- staði, um að opna svæðið eins skjótt og unnt er. „Núna, þegar við höfum haft stærra hættusvæði lokað en fyrr, er endalaus þrýstingur bæði frá íbúum og atvinnufyr- irtækjum á þessar nefndir að hraða opn- um sem alla fyrst eða veita undaþágur á mismerkilegum for- sendum.“ Um 30 íbúar þurftu að yfirgefa heimili sökum snjóf- þóðahættu, auk þess sem sextán fyrirtæki þurftu að leggja niður starfsemi í gær. Snjóflóðahætta er talin til stað- ar þar sem veðurbreytingar hafa ekki verið verulegar frá því að flóðið féll í fyrradag, og nokkrar smærri spýjur hafa fallið síðan umhverfis Seyðisfjörð. Almanna- varnanefnd fundar að nýju í dag klukkan 8, en þá á að Iiggja fyrir eðlismæling á snjósýni frá skíða- svæði Seyðisfjarðar sem tekið verður snemma morguns, en ekki er talið þorandi að taka sýni af svæðinu fyrir ofan Vestdalsmjöl. „Allt fjallið steyptist niður“ „ÉG leit upp og sá að allt var að koma, mér fannst sem allt fjallið steyptist niður og síð- an streymdi þetta fram af klettunum beint fyrir ofan okk- ur,“ segir Hallgrímur Jónsson snjóflóðaeftir- litsmaður, sem var ásamt félaga sínum, Guðjóni Jónssyni, við mælingar á snjóalög- um á slakka skáhalít fyrir ofan verksmiðj- una, en þeir hafa nokkrum sinnum í vet- ur mælt á þessu svæði, sem kallast Hrúta- hjalli. Hallgrímur og Guðjón voru á vélsleðum en höfðu numið staðar stundarkorn á mælingarstað þeim þar sem þeir eru vanir að taka sýni og fannst að óvenju mikið hefði rifnað ofan af snjónum þar, sem ekki gæfi rétta mynd af snjóa- lögum. „Þess vegna ætluðum við að færa okkur aðeins norðar með fjallinu í hvilft sem þar er, fjær bænum. Við ókum aðeins af stað °g fylgdumst með fjallshliðinni eins og maður gerir yfirleitt þegar ekið er jafnnálægt og við gerðum, og sáum þá flóðið koma. Við höf- um séð í norðurenda flóðsins og komum fyrst auga á það þeg- ar það er koma fram af klettunum sem við erum undir.“ „Flóðið dró á okkur“ „Við keyrðum eina 15-20 metra undan flóðinu á eins miklum hraða og hægt var að koma sleðunum uppí, eða um 90 kílómetra hraða. Ég leit tvisvar til baka og sá að flóð- Hallgrímur ið átti um 15 metra í Jénsson Guðjón og dró á okk- ur um tíma, en annars reyndi ég að horfa fram. Ég var skítlogandi hræddur, en þetta gerðist svo hratt að manni gafst ekki tíma til að láta óttann ná tökum á sér. Líklegast tókum við einu réttu ákvörðunina, þ.e. að keyra eins hratt undan flóðinu og hægt var. Við höfðum ekki komist undan því ef sleðarnir hefðu ekki verið í gangi, það er alveg öruggt.“ Þeir lokuðust af utan við flóðið og varð að sækja þá á báti. Hallgrímur kveðst telja að flóð- ið sé um 300-400 metrar á breidd þar sem það er breiðast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.