Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐA UGL YSINGAR
Véltæknifræðingur
Lítið fyrirtæki óskar eftir véltæknifræðingi,
sem jafnframt er vélstjóri með starfsreynslu.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á ensku.
Um er að ræða eftirlitsstarf með skipum.
Vinsamlega sendið umsóknir ykkar (CV) á
ensku til Morgunblaðsins fyrir 25. mars,
merktar: „V - 2503.“
Tilkynning frá Umsjónar-
nefnd fólksbifreiða á
höfuðborgarsvæðinu
Vegna breytinga á lögum um leigubifreiðir
skal tekið fram, að þeir bifreiðastjórar, sem
hafa misst atvinnuleyfi sitt eða munu missa
það á næstunni vegna aldurs, geta sótt á
ný um atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs.
Umsækjendur skulu ganga undir hæfnispróf
og læknisskoðun.
Umsóknum skal skilað til formanns Umsjón-
arnefndar fólksbifreiða á höfuðborgarsvæð-
inu, Ragnars Júlíussonar, Skaftahlíð 5, 105
Reykjavík, fyrir 31. mars nk.
F.h. nefndarinnar,
Ragnar Júlíusson.
Frá yfirkjörstjórn Norður-
landskjördæmis eystra
Framboðsfrestur til Alþingis rennur út föstu-
daginn 24. mars nk. k(. 12 á hádegi.
Framboðum skal skila fyrir þann tíma til for-
manns yfirkjörstjórnar Freys Ófeigssonar,
dómstjóra, á skrifstofu hans í Héraðsdómi
Norðurlands eystra, Hafnarstræti 107,
4. hæð, Akureyri.
Framboðum skal fylgja listi með nöfnum
meðmælenda, sem nú skulu vera eigi færri
en 120 og eigi fleiri en 180 svo og tilkynn-
ing um umboðsmenn listans.
Yfirkjörstjórn kemur saman til fundar um list-
ana, á framangreindri skrifstofu formanns,
föstudaginn 24. mars nk. kl. 15.00 og eru
umboðsmenn listanna hér með boðaðir til
þessfundar.
Akureyri, 20. mars 1995.
Yfirkjörstjórn
Norðurlandskjördæmis eystra,
Freyr Ófeigsson,
Guðmundur Þór Benediktsson,
Jóhann Sigurjónsson,
Þorsteinn Hjaltason,
Páll Hlöðversson.
Til sölu
er eftirtalið lausafé úr þrotabúi
Kjötmarks hf.
Hægsteikingarofn (Bloodgett), áleggshnífur
(Hobart), pylsusprauta (Vemag Cam-70), 8
stk. skinkuform (sérsmíðuð úr ryðfríu stáli),
kynningarofn m. 2 hellum, frystikista (Vest-
frost) 450 lítra, 150 kg vog (Tanita BSC-
150G), steikingarpanna (Rafha), steikingar-
panna (Senking), tölva (IBM PS/30, 286),
prentari (OK1182), 3 stk. Tvilinesímtæki (sím-
kerfi, kallkerfi), telefaxtæki (Panasonic
KX-F50) og reiknivél (Ibico 1215).
Nánari upplýsingar veitir undirritaður skipta-
stjóri þrotabúsins í símum 551-1003 og
562-3757, bréfasími 551-5466, en tilboð
skulu berast undirrituðum fyrir kl. 12.00 á
hádegi hinn 29. mars nk.
Jón Sigfús Sigurjónsson hdl.,
Laugavegi 18a, 5. hæð, 101 Reykjavík.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, myndir, málverk,
silfur, silfurborðbúnað, Ijósakrónur, lampa,
bollastell, hatta, platta, gömul póstkort og
smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 91-5671989.
Geymið auglýsinguna.
Saumanámskeið
• Saumakort.
• Unglingatímar.
• Aðeins 5 í hverjum hóp.
• Gott verð.
• Afsláttur fyrir hópa.
Innritun og upplýsingar í síma 555-0021.
Félag íslenskra
) _ } háskólakvenna
Vog Kvenstúdentafélag íslands
heldur námskeið þriðjud. 28. mars kl. 19-22
í Odda, stofu 202. - Stjórnunarstefnur og
viðhorf til starfsmanna. - Forysta; hlutverk
leiðtoga. Stjórnandi: Eygló Eyjólfsdóttir M.A.
í stjórnun og fyrrverandi konrektor MH.
Þátttaka tilkynnist til Geirlaugar (685897),
fyrir 26. mars. Opið fyrir allar konur.
Aðalfundur
Þróunarfélags íslands hf.
Aðalfundur Þróunarfélags íslands hf. verður
haldinn á Hótel Sögu í „Skála“ á 2. hæð
mánudaginn 3. apríl 1995, kl. 12.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
14. grein samþykkta félagsins.
2. Tillögur um breygingar á samþykktum
félagsins til samræmis við breytingar á
lögum um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar
félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins
viku fyrir aðalfund.
Stjórnin.
Vélsleðamenn
Miðvikudaginn 22. mars kl. 20.00 halda LÍV
og Björgunarskóli Landsbjargar og Slysa-
varnafélags íslands fræðslufund í húsi Flug-
björgunarsveitarinnar v/Flugvallaveg.
Á fundinum fjallar Halldór Almarsson um
ofkælingu og Sævar Reynisson um útbúnað
vélsleðamanns.
Allir vélsleðamenn eru velkomnir.
Aðgangur er ókeypis, en kaffi og námsgögn
verða seld á fundinum.
Aðalfundur
Félags
matreiðslumanna
Aðalfundur FM verður haldinn í sal I.O.G.T
í Þarabakka 3 í dag, þriðjudaginn 21. mars,
kl. 15.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
19. greina laga FM.
Önnur mál.
Stjórnin.
SKÓGRÆtOARFÉlÆ
ítX&l RFYKIAVÍKUR
FOSSVOGSBLETT11S/MI40313
Aðalfundur
Skógræktarfélags Reykjavíkur verður haldinn
í félagsheimili Rafveitunnar við Elliðaár mið-
vikudaginn 29. mars kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Reynir Vilhjálmsson fjallar um útmörk
Reykjavíkur.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Bjarkar-
ási fimmtudaginn 30. mars nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Opinn fundur FÍB með full-
trúum stjórnmálaflokkanna
á Hótel íslandi í dag,
þriðjudaginn 21. mars,
kl. 20.30.
Bílaskattar
og stefna stjórnmálaflokkanna
varðandi bifreiðar og umferð.
Þátttakendur:
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðubandalagi,
Jón Baldvin Hannibalsson, Álþýðuflokki,
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Framsóknarfl.
Kristín Sigurðardóttir, Kvennalista,
Guðmundur Hallvarðsson, Sjálfstæðisflokki,
Jörundur Guðmundsson, Þjóðvaka.
Umræðum stjórnar Björn Björnsson,
varaformaður FÍB.
Bifreiðaeigendur eru hvattir til að mæta og
láta skoðanir sínar í Ijós.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Rækjuverksmiðjan Ritur hf.
Rækjuverksmiðjan Ritur hf., Sindragötu 7,
ísafirði, óskar eftir tilboðum í breytingar á
húsnæði sínu vegna flutnings á niðursuðu-
línu verksmiðjunnar. Verklok 15. júlí 1995.
Útboðsgögn verða afhent hjá Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf., Hafnarstræti 1,
ísafirði, frá og með miðvikudeginum
22. mars 1995 gegn 4.000 kr. skilatryggingu.
VST hf., ísafirði.
FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
V HRINGBRAUT. 101 REYKJAVÍK
SÍMI615959
Útboð - innréttingar
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir tilboðum
í smíði og uppsetningu á innréttingum í nýj-
ar stúdentaíbúðir, sem verið er að byggja
við Eggertsgötu 22 í Reykjavík. Um er að
ræða eldhúsinnréttingar og fataskápa í 21
íbúð, sem teknar verða í notkun í ágúst 1995.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Félagsstofnunar stúdenta v/Hringbraut í
Reykjavík, gegn 3.000 króna gjaldi, óaftur-
kræfu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 30. mars 1995, kl. 11.00.