Morgunblaðið - 28.03.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARZ 1995 13
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
FRÁ vinstri: Bryndís Einarsdóttir, ljósmyndafyrirsæta Suður-
lands, Aðalheiður Konráðsdóttir, ungfrú Suðurland, og Mar-
grét Jóhannsdóttir, sem valin var vinsælasta stúlkan.
Ungfrú Suður-
land í söngnámi
AÐALHEIÐUR Konráðsdóttir,
18 ára stúlka frá Árnesi í Gnúp-
verjahreppi, bar sigur úr býtum
þegar ungfrúSuðurland var
valin á Hótel Ork á föstudags-
kvöld.
Aðalheiður er dóttir lijón-
anna Li\ju Helgadóttur og
Konráðs Jóhannssonar. Hún
stundar nám í Fjölbrautarskóla
Suðurlands á félagsfræðibraut.
í frístundum sínum nemur hún
klassískan söng og fetar þannig
í fótspor fjölmargra ættmenna
sinna, sem kunnir eru af mikl-
um sönghæfileikum, en Aðal-
heiður er bróðurdóttir Kristjáns
Jóhannssonar óperusöngvara.
Aðalheiður sagði þátttökuna
í keppninni hafa verið sér lær-
dómsríka og skemmtilega. Hún
var að vonum ánægð eftir krýn-
inguna, en sagðist ekki hafa
búist við sigrinum, hópurinn
hafi verið það jafn.
Bryndís Einarsdóttir, 17 ára,
frá Vestmannaeyjum var valin
ljósmyndafyrirsæta Suður-
lands. Hún hlaut ásamt Aðal-
heiði þátttökurétt í keppninni
um ungrú ísland. Vinsælasta
stúlkan var valin Margrét Jó-
hannsdóttir, 19 ára, úr Hruna-
mannahreppi.
Morgunblaðið/Árni Helgason
SR. Séan Mc. Tiernan
Nýr prestur
kaþólska
safnaðarins
Stykkishólmi - Kaþólski söfnuð-
urinn í Stykkishólmi er búinn að
fá prest eftir að sr. Jan Habets
lést. Hann heitir Séan Mc. Tiernan
og er hans íslenska nafn Jón.
Jón er írskur að ætt og fæddist
í litlu sveitaþorpi þar. Hann tók
B.A. próf 1959 og fór til Nígeríu
árið 1959 og frá Nígeríu kom sr.
Jón til írlands árið 1976 þar sem
hann þjónaði til 1990 að hann kom
til íslands. Hann fór í Háskólann
til að læra íslensku þegar hann
var búinn að vera um tíma á land-
inu og var brautskráður þaðan
árið 1994. Síðan þjónaði hann í
Landakoti uns hann kom til safn-
aðarins í Stykkishólmi.
Jón segist kunna vel við sig á
íslandi og vill hvergi annars staðar
vera eftir þá kynningu sem hann
hefur fengið af fólkinu hér.
19 ára Njarðvíkurmær fegurð-
ardrottning Suðurnesja
Keflavík - „Þetta var ákaflega
skemmtilegt og verður mér ör-
ugglega eftirminnilegt kvöld,“
sagði Brynja Björk Harðardóttir,
19 ára Njarðvíkurmær, eftir að
hún hafði verið kjörin fegurðar-
drottning Suðurnesja 1995 í Stapa
á laugardagskvöldið, en alls tóku
11 stúlkur þátt í fegurðarsam-
keppninni.
Brynja Björk lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja í desember og hefur síðan
stundað nám í píanóleik og unnið
hlutastörf með náminu. Um fram-
tíðaráform sagðist hún hafa í
hyggju að halda til Frakklands í
haust þar sem hún hyggur á
frönskunám. Foreldrar Brynju
Bjarkar eru Hörður Karlsson og
Anna Sigurðardóttir og er hún
næstyngst í sjö systkina hópi.
í öðru sæti varð Berglind Sig-
þórsdóttir, 18 ára, úr Njarðvík,
og mun hún ásamt Brynju Björk
verða fulltrúi Suðurnesja í keppn-
innium titilinn Fegurðardrottn-
ing íslands 1995. í þriðja sæti
varð Sigrún Gróa Magnúsdóttir,
18 ára, úr Keflavík, og var hún
jafnframt kjörin besta ljósmynda-
fyrirsætan. Þá völdu stúlkurnar
sjálfar vinsælustu stúlkuna úr sín-
um hópi og sá titill féll i skaut
Ragnheiði Kjartansdóttur, 18 ára,
úr Grindavík.
Mikill áhugi var fyrir keppninni
og komust færri að en vildu.
Kynnir var Kjartan Már Kjartans-
son skólastjóri Tónlistarskólans í
Keflavík, en í dómnefnd sátu: Sig-
tryggur Sigtryggsson, formaður,
Bjargey Einarsdóttir, Jón Kr.
Gislason, Kristín Stefánsdóttir og
Þórunn Lárusdóttir.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
FEGURÐARDROTTNING Suðurnesja 1995, Brynja Björk Harð-
ardóttir, 19 ára, úr Njarðvík. Fyrir aftan hana, til vinstri, er
Berglind Sigurþórsdóttir, sem varð í öðru sæti, og til hægri er
Sigrún Gróa Magnúsdóttir, sem varð í þriðja sæti, og hún hlaut
jafnframt titilinn besta Ijósmyndafyrirsætan.
Fjölsóttur fundur um
sjúkrahúsmál á Selfossi
Selfossi - Bókun á fjárlögum frá
Alþingi tryggir að gert skuli upp við
Sjúkrahús Suðurlands á samsvar-
andi hátt og við sjúkrahúsið á Akra-
nesi og á Neskaupstað vegna kostn-
aðar sem aukin þjónusta leiddi af
sér á síðastliðnu ári. Með þessari
bókun er umfang starfsemi Sjúkra-
húss Suðurlands viðurkennt og í því
efni miðað við starfsemi síðastliðins
árs. Þetta kom meðal annars fram
í máli Árna Johnsen, alþingismanns
og fulltrúa í fjárlaganefnd Alþingis,
á fjölsóttum fundi á Selfossi sem
starfsmannaráð Sjúkrahúss Suður-
lands gekkst nýlega fyrir um mál-
efni sjúkrahússins. Á fundinum kom
einnig fram að heilbrigðisráðuneytið
hefur ekki framkvæmt þetta uppgjör
nema að litlum hluta en aukið um-
fang á starfsemi sjúkrahússins síð-
astliðið ár hefur meðal annars leitt
til aukins hallarekstrar um sem nem-
ur 13,5 milljónum króna. Samkvæmt
bókuninni ber að greiða hallann frá
1994 upp og veita sjúkrahúsinu auk-
afjárveitingu fyrir 1995. „Þetta
styrkir stöðu okkar verulega,“ sagði
Hafsteinn Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins, og að
áætlanir næsta árs yrðu byggðar á
þessum þjónustugrunni sem búið
væri að viðurkenna með bókuninni.
Á fundinum fluttu fulltrúar
starfsfólks sjúkrahússins og heilsu-
gæslustöðvarinnar framsöguerindi
og ræddu einstaka þætti í starfsemi
stofnunarinnar. Með ráðningu sér-
fræðinga að sjúkrahúsinu hefur
starfsemin aukist verulega og mikil
aukning orðið á aðgerðum og lækn-
isverkum. Bent var á að fjölda lækn-
isverka er unnt að gera með mun
minni tilkostnaði en á stóru sjúkra-
húsunum í Reykjavík. Bætt aðstaða
kvensjúkdómadeildar og ráðning
kvensjúkdómalæknis hefur sýnt sig
vera lykill að trausti kvenna til stofn-
unarinnar sem kemur meðal annars
fram í 43% aukningu á fæðingum.
Breytingar á húsnæði kvensjúk-
dómadeildar voru unnar fyrir gjafafé
sem stöðugt berst stofnuninni og
nemur tugum milljóna. Margir sem
til máls tóku á fundinum voru sam-
mála um að það sýndi sterkan hug
fólks til þess að stofnunin byggðist
upp.
Byggingamál sjúkrahússins voru
einnig rædd. „Þetta hús nægir engan
veginn fyrir þá þjónustuþörf sem er
á Suðurlandi," sagði Brynleifur H.
Steingrímsson læknir. í máli hans
og Asmundar Jónassonar læknis
kom fram að aukið dvalarrými aldr-
aðra kallar á stækkun sjúkrahússins
vegna þeirrar þjónustu sem þyrfti
frá sjúkrahúsinu fyrir fólkið. Ás-
mundur benti á að heilsugæslustöðin
þjónaði 6.000 manns og sá fjöldi
ykist um helming á sumrin vegna
fólks í sumarbústöðum. Sú staða
kallaði á 30% aukningu yfir sumar-
tímann ef vel ætti að vera.
Aðalheiður Guðmundsdóttir
hjúkrunarforstjóri sagði niðurskurð
á fjármagni til stofnunarinnar leiða
starfsemina að öryggismörkum sem
væri stórhættulegt. Aðrir framsögu-
menn voru sama sinnis. Aðalheiður
gagnrýndi harðlega forstjóra stóru
spítalanna í Reykjavík sem hún sagði
að teldu að minni sjúkrahúsin úti á
landsbyggðinni drægju fé frá þeim
stærri í Reykjavík. Fjármagn til
þjónustunnar á landsbyggðinni hefði
lengi verið það sama og dregist sam-
an. Þessi afstaða þeirra ætti því
ekki við rök að styðjast.
Fulltrúum stjórnmálaflokka var
boðið til fundarins og í ávörpum
þeirra kom fram mikill vilji til að
standa vörð um sjúkrahúsið.
Framsókn '95
Halldór Asgrímsson
verSur á ferS um Austurland í dag og á sameiginiegum fundi frambióðenda
á Höfn kl. 20.30 í kvöld. Miðvikudaginn 29.3. verður hann á Suðurlandi
og á opnum fundi á Selfossi kl 20. 30. Fimmtudaginn 30.3. verður hann á
Reykjanesi og á fundi flokksmanna á Stöð 2 kl. 21.45.
B Framsóknarflokkurinn