Morgunblaðið - 28.03.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.03.1995, Blaðsíða 26
26~ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Einsöngur TONLIST Tjarnarlcikhúsið EINSÖNGSTÓNLEIKAR Ingibjörg Marteinsdóttir sópran og Lára S. Rafnsdóttir píanóleikari laugardaginn 25. mars, 1995. SÚ HUGMYND hefur verið sett fram, að gera Tjarnarleikhúsið að tónleikasal og af því hafa spunnist nokkur blaðaskrif. Það er nóg til af „tónleikasölum" af þeirri stærð sem Tjarnarleikhúsið er og auk þess er hljómburðurinn í salnum mjög dauður og líklega betur hæf- ur fyrir tal en tónlistarflutning. Teppi á gólfi og alls konar skilvegg- ir í lofti vegna ljósabúnaðar „þurrk- ar“ burt nær allan endurhljóm og fyrir það eitt er Tjarnarleikhúsið óhæft fyrir tónlistarflutning. Tónleikamir hófust á tveimur lögum eftir Sveinbjörn Sveinbjöms- son, Sóleyjarsöng og Söng vestan- vindsins, ágætum lögum sem Ingi- björg söng af þokka. Lagaflokkur- inn Ljóð fyrir böm, eftir Atla Heimi Sveinsson við 10 ljóð eftir Matthías Jóhannessen voru skemmtilega flutt enda er gamansemin ríkjandi í þessum ágætu lögum Atla. Tvö næstu lög, eitt eftir Guasta- vino og annað eftir Obradors, sæt en ekki viðamikil tónverk voru flutt af viðkvæmni en í ljóðakansónurn- ar, eftir Turina, vantaði ýmis þau einkenni er greinir spænska tónlist frá annarri evrópskri tónlist. Þijú lög eftir Magnús Blöndal Jóhannsson vom fallega sungin, einkum það fræga lag Sveitin milli sanda og Na-no-mani. Milli þeirra var lag við texta eftir Kristján Jóns- son íjallaskáld, Engan trúan á ég vin, sérkennilegt lag og um margt ólíkt því sem Magnús er þekktastur fyrir. Tónleikunum lauk með þremur óperuaríum og þau viðfangsefni áttu mun betur við stóra og hljómfagra rödd Ingibjargar, sér- staklega Morro, ma prima in graz- ia, úr Grímudansleiknum eftir Verdi og Rómansan úr Cavalleria Rusticana eftir Mascagni. Sem auka- lag söng Ingibjörg Vissi d’arte úr Tosca eftir Puccini af glæsi- brag og það er ljóst að stór rödd hennar á heima á óperusviðinu. Það sem þó er rétt að tilgreina, er að hún þarf að bæta textaframburð sinn. Lára Rafnsdóttir lék með af öryggi og átti auk þess smá einleik í lagaflokkinum eftir Turina, sem hún skilaði mjög vel. Jón Ásgeirsson Vináttutónleikar litháenskra listamanna Tökur hafnar á Drauma- dísum TÖKUR eru nú hafnar á nýrri íslenskri kvikmynd, Drauma- dísir eftir Ásdísi Thoroddsen. í kynningu segir: „Draumadísir er gamansöm Reykjavíkursaga um tvær tvítugar vinkonur sem takast á við drauma sína í viðsjár- verðu umhverfi íslensks hversdagslífs og nútímalegra viðskiptahátta. Handritið er skrifað af Ásdísi Thoroddsen, sem einn- ig er leikstjóri, en hún vakti athygli fyrir frumraun sína Inguló í grænum sjó fyrir nokkrum árum. Framleiðandi er Martin Schliiter fyrir hönd Gjólu hf. en mvndin er gerð í samvinnu við lslensku kvik- myndasamsteypuna hf. og þýskan meðframleiðanda, Majade. Draumadísir fengu annan framleiðslustyrk Kvik- myndasjóðs íslands til gerðar leikinna bíómynda við úthlut- un 1995 en er jafnframt styrkt af Kvikmyndasjóði Berlínar. Vinkonumar tvær eru leiknar af Silju Hauksdóttur og Ragnheiði Eyjólfsdóttur en í öðrum aðalhlutverkum eru Baltasar Kormákur, Mar- grét Ákadóttir, Bergþóra Aradóttir, Ragnhildur Rú- riksdóttir og Magnús Ólafs- son. Kvikmyndataka er í höndum Halldórs Gunnars- sonar, Sigurður Hr. Sigurðs- son sér um hljóð, Böðvar Jónsson leikmynd, Guðjón Sigmundsson leikmuni, bún- inga gerir Maria Wallace, förðun Dóra Takefusa og klippingu annast Valdís Ósk- arsdóttir. Tökur á Draumadísum standa yfir til aprílloka og fara eink- um fram í Sundahvefí í Reykjavík, í Viðey, skemmti- staðnum Tunglinu, Bíóbam- um og Perlunni og er frum- sýning áætluð í október." TONLIST Sigurjónssafni ÞJÓÐLÖG OG NÚTÍMA- TÓNLIST Gintaré Skeryté, Grazina Rucyté og Vytautas Landsbergis. Laugar- dagur 25. mars. HÉR var jú fyrst og fremst um vináttuheimsókn að ræða og víst eru allir góðir gestir velkomnir, íslensk gestrisni enda víða rómuð, eða var a.m.k. Gestimir að þessu sinni sér- lega geðþekkir og ekki svo ólíkir okkur, hefðu þess vegna getað verið Húnvetningar. Þama er ég líklega kominn út á hála braut, sem oftar, því sjálfsagt eru ekki allir samþykkir þessu um Húnvetninga. Fyirum forseti, Litháens Vytautas Landsbergis, hóf tónleikana með Impromtu eftir litháenskt tónskáld M.K. Ciurlionis, f. 1975, rómantiker í stíl þessa tímabils. Landsbergis hefur sjálfsagt orðið að nota tíma sinn á undanfömum ámm til annars en æfa sig á píanó marga klukkutíma á dag og minnist maður þeirra um- brotatíma sem Landsbergis leiddi þjóð sína gegnum. Manni dettur þá einnig í hug Paderewski, sem lagði tónlistina miklu til hliðar á meðan hann var forseti Póllands. Ekki ætla ég að líkja píanóleik þeirra Lands- berps og Paderewskis saman, sá KVIKMYNDIR Iláskólabíó BROWNINGÞÝÐINGIN „The Browning Version" ★ ★>/2 Leikstjóri: Mike Figgis. Handrit: Roland Harwood eftir leikriti Ter- ence Rattigans. Aðalhlutverk: AI- bert Finney, Greta Scacchi, Matt- hew Modine, Micbael Gambon, Jul- ian Sands. Paramount. 1994. BÍÓMYNDIR um skólamenn eru lífseigar og hafa orðið nokkuð áber- andi upp á síðkastið í kjölfar „Dead Pœts Society" Peter Weirs. Með það í huga virðist tilvalið að gera enn eina útgáfuna af frægasta leikriti breska leikritaskáldsins Terence Rattigans, Browningþýðingunni. Það segir angurværa sögu af niður- síðamefndi einn af píanójöfmm sög- unnar, dáður sem slíkur vítt um heim og átti sitt stóra „come back“ eftir að hann hætti sem forseti. Það er annars athygli vert hversu margir brotnum grískukennara í einkaskóla og hvemig gjöf frá einum nemanda hans færir honum endumýjaðan kraft. Leikritið var skrifað árið 1939 en Browningþýðingin í Háskólabíói með Albert Finney í hlutverki kenn- arans færir sögusviðið til nútímans og breytir áherslum, sem varla betr- umbæta stykkið. Brúnaþungur Finney heldur þó myndinni merki- lega vel saman með ábúðamiklum og hófstilltum leik. Browningþýðingin undir leik- stjóm Mike Figgis verður aldrei stjómmálamenn hafa jafnframt stundað tónlist í einhveijum mæli og um leið vafalaust gert þá hæfari stjómmálamenn. Hversu mundi ekki afrakstur alþingismanna verða á allt átakamikil því grískukennarinn hef- ur orðið svo óvirkur þátttakandi í daglega lífinu að það er eins og það komi honum ekki við lengur og það mótar öll samskipti hans við persón- umar. Nemendunum stendur stugg- ur af honum og uppnefna hann Hitler því þrátt fyrir allt er hann enn harðstjóri í skólastofunni. En eiginkonan heldur framhjá honum og skólastjómin notfærir sér veik- lyndi hans á ýmsa vegu. Þegar ung- ur nemi gefur honum þýðingu Ro- bert Brownings á Agamemnon með Raunamæddi grískukennarinn Lofthræddi öminn alla daga vikunnar LEIKSÝNINGIN Lofthræddi örninn hann Örvar stendur nú til boða fyrir hópa á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins alla daga vikunnar. Geta hópar og samtök pantað sýninguna að eigin ósk, en ekki verður þó hægt að sýna fyrir færri en 40 áhorfendur í einu. Lofthræddi örninn er einnig farandsýning, sem má panta i félagsmiðstöðvar, skóla og leik- skóla, þar sem rými er nægilegt til sýningar. I kynningu segir: „Lofthræddi örninn er falleg saga um stóran örn og lítinn músarrindil, sem i sameiningu vinna stóra sigra. Sagan er sögð með látbragði, söng, dansi og leik og hefur feng- ið góðar viðtökur áhorfenda á öllum aldri.“ Það er Björn Ingi Hilmarsson sem leikur öll hlutverkin í sýn- ingunni sem er hugsuð fyrir ald- urshópinn 4-84 ára. öðrum nótum ef þeir væru t.d. skyld- aðir til að spila í kammermúsik, þar sem taka verður heilbrigt tillit til hver annars, ef eitthvert vit á að vera í spilinu. Þess vegna mætti Davíð spila fyrstu fiðlu, Jón aðra, Ólafur Ragnar víolu og Jóhanna selló, áreiðanlega mætti finna blást- urshíjóðfæri fyrir Halldór og slag- verk fyrir grasrótarhreyfínguna. Fikra mætti sig síðan upp í heila sinfóníuhljómsveit, sem byijaði.hvem fund með a.m.k. þriggja tíma hljóm- sveitaræfingu. Fjárhagslegur spam- aður í þjóðarbúinu gæti orðið meiri en í fljótu bragði verður komið auga á, til greina kæmi t.d. að leggja nið- ur sinfóníuhljómsveitina, í þeirri mynd sem hún er nú, þama er a.m.k. spamaðarhugmynd, en mér er ljóst að stjómanda þessarar þingmanna- hljómsveitar verður að fá erlendis frá. Kona Landsbergis, Grazina Ruc- yté-Landsberiené, lék á píanóið undir söng ungrar söngkonu Gintaré Skerté. Til of mikils væri mælst af þingmönnum að þeir, eða þær, veldu sér maka úr röðum píanóleikara, en ekki væri þó verra að hafa það í huga þegar valið fer fram. Sérlega var ánægjulegt og um leið forvitnilegt að heyra þær stöllur flytja litháensku þjóðlögin, alþýðu- lögin og nútímaverk eftir Feliksas Bajoras (1934). Legend suit, eftir Bajoras, er vel skrifað verk og var skemmtilega flutt af Grazinu og Gintaré. Schubert-lögin náðu ekki að verða fleyg í þetta skiptið. Þjóð- lögin voru kannske það sem gáfu mest tengsl við litháenska þjóð, eitt- hvað sem minnti á hvorutveggja fínnskt þunglyndi og rússneska ein- semd, en þó nýtt og ókunnugt - strax kominn í mann ferðahugur. Þökk fyrir komuna. Ragnar Björnsson fallegri áritun til hans sem hins milda lærdómsmanns hjálpar það honum að takast aftur á við lifíð. Þetta er litil og Ijúfsár frásögn og Figgis og handritshöfundurinn Roland Harwood opna leikritið eins og það er kallað út í hið fallega skólaumhverfi en persónumar reyn- ast undarlega lokaðar og dramatík- in hálfkæfð. Kennarinn kallar á vorkunn allra í kringum sig en það virðist ekki skipta máli hvar í lífínu og hvers vegna hann slökkti á sér. Finney gefur frábæra lýsingu á vemleikaflótta grískumannsins og fer fyrir góðum hópi leikara en skemmtilegastur er Michael Gam- bon sem fyrr í hlutverki skóla- meistarans. Greta Scacchi er dauf- leg sem eiginkona kennarans og Matthew Modine einnig sem ást- maður hennar. Arnaldur Indriðason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.