Morgunblaðið - 28.03.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARZ 1995 23
Anne Bronte Charlotte Bronte Emily Bronte
(1820-1849). (1816-1855). (1818-1848).
mennings á verkum Bronte-
systra, sem skrifuðu undir dul-
nefninu Bell-bræður, á þeim 140
árum sem liðin eru frá láti Charl-
otte. Það verk sem mestra vin-
sælda hefur notið er skáldsagan
„Fýkur yfir hæðir“ sem Charlotte
var svo ósátt við og fékk afleita
dóma er hún var gefin út. Sú bók
systranna sem mestra vinsælda
naut meðal samtimamanna þeirra
var hins vegar saga Charlotte
„Jane Eyre“.
Ýjað að framhaldi
Ýjað er að því að önnur bók
muni fylgja í kjölfarið í inngangi
að sameiginlegri útgáfu „Fýkur
yfir hæðir“ og „Agnes Grey“ eftir
Anne. Charlotte, sem skrifaði inn-
ganginn, rifjar upp hinar slæmu
móttökur sem fyrstu bækur systr-
anna hlutu árið 1848 og segir:
„Hvorki Ellis (Emiliy) né Action
(Anne) leyfðu sér að láta undan.
Krafturinn veitti annarri styrk og
úthaldið hélt hinni uppréttri. Þær
voru báðar reiðubúnar að reyna
aftur."
í bréfi frá Emily til útgefanda
hennar í febrúar 1848 virðist hún
vísa til framhaldssögu en segist
jafnframt ekki munu flýta sér að
ljúka við hana.
Bronte systur létust allar í
blóma Iifsins, Anne og Emily úr
berklum um þrítugt og Charlotte
af bamsförum, 38 ára.
Alsírsher situr
fyrir heit-
trúarmönnum
Túnis, Abu Dhabi. Reuter.
ALSÍRSKIR bókstafstrúarmenn
myrtu í gær framkyæmdastjóra
stærsta dagblaðsins í Alsír sem
hliðhollt er stjórninni. Er hann 34.
fjölmiðlamaðurinn sem verður
fórnarlamb öfgamanna frá því í
júní 1993. Mikið mannfall var í
Alsír fyrir og um helgina, að
minnsta kosti 600 manns létu lífið
í árásum stjómarhersins og öfga-
menn myrtu sautján manns sem
vom á leið á markað í síðustu viku.
Stjómarherinn felldi islamska
skæruliða í fyrirsát og bardögum
sem stóðu í viku, skammt frá Al-
geirsborg. Er umsátri stjómar-
hersins ekki lokið, að sögn Le Soir
d’Algerie, óháðs dagblaðs í Alsír.
Að sögn blaðsins veitti herinn
um 900 skæruliðum fyrirsát, sem
hugðust sækja ráðstefnu hinnar
„Vopnuðu islömsku sveitar" (GIA).
Segir að auk hinna 600 látnu, séu
um 300 skæruliðar umkringdir
stjórnarhemum.
Aðrar heimildir segja að um 300
manns hafi fallið í árás hersins
eftir að honum hafi borist ábending
um fundarstað bókstafstrúar-
mannanna.
Neita viðræðum í Marokkó
Yfirvöld í Marokkó buðust á
laugardag til að hýsa hugsanlegar
friðarviðræður stríðandi fylkinga í
Alsír. Á sunnudag þvertóku alsírsk
stjórnvöld fyrir að ganga til slíkra
viðræðna við öfgamenn í öðru
landi. Með þessu sögðust þau ekki
neita viðræðunum sem slíkum en
þær yrðu hins vegar að fara fram
í Alsír.
seglin
Hækka
Alþýðuflokkurinn vill ekki að örfáir sægreifar eignist fiskimiðin. Við viljum að
þjóðin öll eigi auðlindirnar í sjónum, og njóti arðsins af þeim. Þessvegna viljum
við að sameign þjóðarinnar á miðunum verði bundin í stjórnarskrána.
Jafnaðarmenn vilja beita löggjöf til að koma í veg fyrir að kvótinn safnist á
fáar hendur. Við viljum halda áfram að treysta stöðu krókaveiða og
vertíðarbáta, og takmarka veiðar togara á grunnslóð uns fiskistofnar rétta úr
kútnum.
Kvótakerfið hvetur til þess að fiski sé hent. Því verður að breyta. Það verður
að tryggja að allur afli berist að landi, og sjá til þess að útgerðir og sjómenn tapi
ekki á því. Alþýðuflokkurinn hvetur líka til þess, að fiskmarkaðirnir verði efldir,
og sem mest af afla fari yfir markað.
Alþýðuflokkurinn hafnar kerfi, þar sem útgerðarmenn geta selt kíló
þorskígildis, sem þeir fengu úthlutað ókeypis, á 90 krónur. í stað þess viljum
við, að tekið verði upp hóflegt veiðigjald í áföngum. sem tekur mið af afkomu
greinarinnar. Alþýðuflokkurinn vill nota afgjaldið tií að styrkja innviði
greinarinnar, m.a. úreldingu, tilraunaveiðar á nýjum tegundum, og vinnslu
nýrra afurða. Við teljum, að farsæl leið sé, að með stækkun fiskistofnanna verði
viðbótarkvóta úthlutað gegn gjaldi.
Alþýðuflokkurinn lagðist gegn því, að veiðar dugmikilla sjómanna í
Smugunni yrðu bannaðar með reglugerð. Síðan hafa veiðarnar skilað
verðmætum sem svara til 55 - 60 þúsund kr. á hverja fjögurra manna
fjölskyldu. Þetta er ígildi 500 - 600 ársverka.
Alþýðuflokkurinn lofaði fyrir síðustu kosningar að lögum um landanir
erlendra skipa yrði breytt. Við það stóð ríkisstjórnin. 30 þúsund tonn af
Rússaþorski hafa síðan haldið uppi atvinnu í mörgum byggðarlögum á tímum
aflabrests.
Viö viljum hækka seglini
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
Hægt er að nálgast eftirtalin upplýsingablöð hjá kosningamiðstöðvum Alþýðuflokksins um land allt: Evrópumál,
Sjávarútvegsstefna ESB, Atvinnumál, Iðnaðarmál, Matarverð og lífskjörin, Sjávarútvegsmál, Jöfnun kosningaréttar,
Fjölskyldumál, Húsnæðismál, Menntamál, Landbúnaðarmál, Umbótastefna jafnaðarmanna, Heilbrigðismál, Umhverfismál,
Ungir jafnaðarmenn, Jafhaðarstefnan - mannúðarsteffia okkar tíma. Upplýsingasímar: 552 92 44 og 552 80 17.
Samið um
rafstreng
ÞÝSKA iðnaðarsamsteypan
RWE AG tilkynnti í gær að
orkufyrirtæki innan hennar
hefðu gert samstarfssamning
við Eurokraft, útflutningssam-
tök 22 norskra rafmagnsfram-
leiðenda um að leggja kapal á
milli landanna. Nýtt fyrirtæki
Þjóðverja og Norðmanna, Eu-
rokabel, mun standa að lagn-
ingu rafstrengs sem flutt get-
ur um 600 megawött, svo og
byggingu spennistöðva. Nem-
ur fjárfestingin um einum
milljarði marka, um 45 millj-
örðum ísl. kr. Þá hafa þjóðirn-
ar gert með sér samning sölu
á rafmagni til 25 ára frá árinu
2003.
Signr hægri-
flokkanna í
Litháen
HÆGRIFLOKKAR í Litháen
unnu sigur í sveitastjórnar-
kosningum sem fram fóru á
sunnudag. Lýðræðislegri
verkamannaflokkurinn sem nú
er við völd, hlaut hins vegar
aðeins 19,9% atkvæða. Hlutu
íhaldsmenn 29,1% og sam-
starfsflokkur þeirra, kristilegir
demókratar 16,9%. Þátttaka
var lítil í kosningunum, um
42,5%.
Independent
brátt gjald-
þrota?
TALIÐ er að breska dagblaðið
Independent muni á næstu
mánuðum leggja upp laupana.
Blaðið, sem stofnað var fyrir
níu árum er sagt hafa glatað
sjálfstæði sínu og að fjárhags-
örðugleikar séu að sliga útgáf-
una. Hún er í eigu hlutafélags \
þar sem það var talið myndu
tryggja betur að ritstjórnin
gæti starfað óháð. Ritstjórnar-
stefnan, sem margir telja
óspennandi og lítt i takt við
óskir lesenda, og verðstríð á
blaðamarkaðnum virðast hins
vegar ætla að ríða útgáfunni
að fullu.
Forseti Uzb-
ekistan end-
urkjörinn
AÐ SÖGN ríkisútvarpsins í
Úzbekistan benda fyrstu tölur
í forsetakosningunum sem
fram fóru i landinu um helgina
til þess að forseti landsins,
Islam Karimov, hafi verið ein-
róma endurkjörinn. Var kjör-
sókn sögð mjög góð, flestir
þeirra 11 milljónir manna sem
eru á kjörskrá hafi kosið. Ka-
rimov stýrir öllum fjölmiðlum
landsins og hefur brotið á bak
aftur þjóðemissinnaða and-
stæðinga sinna. Alþjóðlegum
eftirlitsmönnum var ekki boðið
að fylgjast með kosningunum.
Dnestr vill
herinn áfram
MIKILL meirihluti íbúa
Dnestr-héraðs í Moldóvu vill
að rússneski herinn verði um
kyrrt í héraðinu, samkvæmt
þjóðaratkvæðagreiðslu sem
fram fór þar um um helgina.
Dnestr hefur lýst yfir sjálf-
stæði frá Moldóvu og hafa
yfirvöld þar sagt þjóðarat-
kvæðið ólöglegt.