Morgunblaðið - 08.04.1995, Side 24
24 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Óvíst um
framhald
samninga
ÓVÍST var í gær hvort samn-
ingamönnum Kanada og
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins (ESB) tækist að
leysa hatramma deilu um grá-
lúðuveiðar Spánverja fyrir ut-
an lögsögu Kanada. Fulltrúar
ESB segjast reiðubúnir til
áframhaldandi viðræðna en
Kanadamenn segja ekki um
neitt að semja. Spænskur
embættismaður kvaðst í gær
búast við að málinu yrði fre-
stað þar til á mánudag en þá
funda utanríkisráðherrar
ESB.
Enn deilt
um orsök
Estoniu-slyss
TÆKNINEFND sem rann-
sakað hefur orsök Estoniu-
feijuslyssins á Eystrasalti í
september sl., hefur komist
að þeirri niðurstöðu að slæmt
veður og hönnunargallar hafi
prðið til þess að feijan sökk.
í þýskri skýrslu um málið er
skipstjórinn hins vegar sagður
hafa siglt of hratt og að skip-
ið hafi ekki verið útbúið til
að sigla í eins slæmu veðri og
gerði í hinni örlagaríku ferð.
m, * t if™.
Guðinum
Ram sýnd
lotning
SADHU, sem er heiti heilagra
manna meðal hindúa á Ind-
landi, hefur grafið sig í jörð á
hveitiakri. Maðurinn fastar í
níu daga í tilefni hátíðar er
nefnist Navratri.
Hátíðin er haldin í tilefni
fæðingardags Ram og ein af
aðferðunum til að sýna guðin-
um lotningu er að grafa sig í
jörð.
Reuter
Belgísk þingnefnd heimilar hæstarétti að yfirheyra framkvæmdastjóra NATO
Brussel. Reuter.
ÞINGNEFND í Belgíu hefur ákveðið
að hæstarétti landsins verði heimilað
að yfirheyra Willy Claes, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), og tvo aðra fyrrver-
andi ráðherra vegna mútumáls í
tengslum við hergagnakaup á síð-
asta áratug. Claes fagnaði í gær
þessari ákvörðun og hét fullri sam-
vinnu. Neðri deild þingsins átti að
fjalla um niðurstöðu nefndarinnar
síðdegis í gær.
Claes hefur vísað því harðlega á
bug að hafa brotið nokkur lög í sam-
bandi við hergagnamálið og segist
ekki munu verða við óskum um að
segja af sér embætti. „Fram-
kvæmdastjórinn ítrekaði vilja sinn
til að eiga gott samstarf við dómsyf-
irvöld og aðstoða þau við rannsókn-
ina til þess að komist verði sem fyrst
Claes fagiiar rann-
sókn hæstaréttar
að niðurstöðu," sagði í yfirlýsingu
talsmanns Claes.
Málið snýst um mútur sem ítölsku
vopnaverksmiðjurnar Agusta
greiddu belgíska sósíalistaflokknum
til að liðka fyrir kaupum á þyrlum
fyrir belgíska herinn. Claes, sem er
sósíalisti, var þá efnahagsmálaráð-
herra landsins og hefur orðið tvísaga
um vitneskju sína um málið.
Fyrst í stað sagðist hann ekkert
hafa um það heyrt en síðar að sig
rámaði óljóst í það. Hann hefði sagt
gjaldkera flokksins _að hafna um-
svifalaust mútuboði ítalanna.
Fjórir ráðherrar hafa orðið að
segja af sér vegna málsins undan-
farna 15 mánuði en Agusta-málið
er eitthvert mesta hneyksli sem kom-
ið hefur upp í stjórnmálalífi Belgíu
um áratuga skeið. Hershöfðingi, sem
var yfirmaður flughersins er samn-
ingurinn um þyrlukaupin var gerð-
ur, fannst látinn á hótelherbergi í
síðasta mánuði og hafði hann fyrir-
farið sér. Fjölskylda hans taldi að
óvægin fjölmiðlaumfjöllun hefði orð-
ið honum ofraun.
Sett voru sérstök lög í Belgíu til
að auðveldara yrði að fá leyfi til að
yfirheyra ráðherra, fyrrverandi sem
núverandi. Sólarlagsákvæði er í lög-
unum, þ.e. að þau falla úr gildi á
þriðjudag er tilkynnt verður opinber-
lega um þinglausnir. Þingkosninga
verða 21. maí.
Helstu dagblöð í Belgíu hafa hvatt
til þess að Claes segi af sér emb-
ætti framkvæmdastjóra NATO en
valið á honum var mjög umdeilt á
sínum tíma. Sendiherrar 16 aðild-
arríkja NATO í Brussel styðja enn
Claes, að minnsta kosti í orði kveðnu
én heimildarmenn segja að þegar sé
farið að kanna bak við tjöldin hver
verði heppilegastur eftirmaður verði
hann að víkja.
PLÚS-VINNINGURINN I HHI95
•
Albifreiðin AUDI A8 verður
TIL SÝNIS HTÁ HEKLU HF.
í dag kl. 10 - 17 og á morgun kl. 13 - 17.
EI
HEKLA
-ft//c///a ói’A'f/
Á.ud*
Vorsprttng durch
techn*
GGGO
Þessi eftirsótti glæsivagn bætist við risavinningaskrá og 70%
vinningshlutfall happdrættisins. Hann verður dreginn út á gamlársdag
- eingöngu úr seldum miðum og gengur því örugglega út!
Athugiö! Viö drögum í 4. flokki n.k. þriöjudag, 11. apríl.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
i