Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 27
SJÓNMENNTAVETTVANGUR
ÆTLUNIN var að
helga alþjóðlegum
listrýnum fyrsta eða
annan sjónmennta-
vettvang ársins og fjalla jafnframt
um sitthvað sem gerðist erlendis
á listavettvangi 1994. En nú hefur
svo íjölmargt verið að skrifa um
á innlendum vettvangi að ekkert
hefur orðið úr ásetningnum, og
þó er enn sitthvað sem bíður um-
fjöllunar. Vildi t.d. gjarnan skrifa
sérstaklega um upphlaupið að
Straumi, en þar telst þróunin sú
frá mínum bæjardyrum séð, að
verið er að rífa niður merkilegasta
frumkvæði íslenzkra myndlistar-
manna um langt árabil og afhenda
það svonefndum “kommisörum"
listarinnar. Er þá fokið í flest skjól
um lýðræði í íslenzkri myndlistar-
pólitík, en nefna má að frumkvæði
Sverris var í fullu samræmi við
þá fjölþjóðlegu stefnu myndlistar-
manna á seinni árum, að þeir ráði
meira eigin málum. Fjarstýringin
er enda komin út í slíkar öfgar,
að sýningarstjórarnir eru að verða
aðalatriðið á flestum stórfram-
kvæmdum, en listamennirnir
strengjabrúður og aukaatriði.
Nánari umfjöllun um þessi mál slæ
ég á frest þar til ég kem aftur til
starfa eftir utanlandsferð, og einn-
ig vil ég bíða með að víkja að
eðli grafíklistar með hliðsjón af
býsna undarlegri sýningu að Kjarv-
alsstöðum á yfírfærslu frábærra
fagmanna á rissum Johns Lennons
yfír í fjölþrykk.
En minnist ég þó lítillega á list-
rýna heimsblaðanna, svo sem ég
hef stundum gert í byijun árs, þá
er umfjöllun þeirra svo keimlík frá
ári til árs að það tekur því naum-
ast að fara nákvæmt í sakimar.
Einfaldlega þekkja lesendur fæst-
ar eða engar þeirra sýninga sem
þeir eru að vísa til né listamennina
sem þeir nefna, en ég reyni að
birta yfirlitsmynd af verkum hinna
tíu athyglisverðustu myndlistar-
manna er þeir sjá verk eftir í fyrsta
skipti fljótlega. Mun ég leitast við
að auka vettvangsskrif mín og
gera þau fjölbreyttari á næstunni,
þannig að lesendur tengist betur
ýmsum hræringum innan lands og
utan og reyni að sjálfsögðu að
gæta hlutlægni, því það er vel að
merkja þess sem les að mynda sér
skoðanir.
Hinir nafnkenndu listrýnar
heimsblaðanna eru þeir Eduard
Beaucamp frá Frankfurter Allge-
meine Zeitung, Grace Glueck ,
New York Observer, Richard
Hasli, Neue Ziircher Zeitung, Otto
Hahn, LExpress í París, Jiirgen
Hohmeyer, Der Spiegel í Hamb-
urg, Peter Iden, Frankfurter
Rundschau, Petra Kiphoff, Die
Zeit í Hamburg, Alfred Nemeczek,
Art í Hamburg, Kristian Sotriffer,
Die Presse í Wien og Marina Vaiz-
ey, The Sunday Times í London.
Þrátt fyrir að fjarri sé að iðk-
endur málverksins séu í hópi hinna
tíu útvöldu, telst meira en lítið
athyglisvert að það sem listrýn-
amir eru helst sammála um eru
vonbrigðin yfir ýmsum stórfram-
kvæmdum á myndlistarvettvangi
á árinu, einkum hvað snertir sýn-
inguna “Evrópa, Evrópa“ í lista-
höllinni í Bonn. Þrír þeirra, og vel
að merkja allir Þjóðveijar, eru hér
á sama máli, þrátt fyrir að þýskir
gagnrýnendur hafi kosið hana
sýningu ársins! Þá eru þeir, sem
fleiri, óhressir yfir ýmsum upp-
vakningum frá sjöunda og áttunda
áratugnum, sem tröllríða sumum
listhúsum sem núlist dagsins.
Grace Glueck var ekki par hrifin
af hinni miklu yfirlitssýningu á
verkum landa hennar málarans
Cy Twombly á MoMA, og taldi
að ein eða tvær myndir hefðu
dugað því allar hafi þær verið eins
að hennar mati! Twombly þessi,
er einn dýrseldasti málari vestra
og einstök málverk hans hafa selst
á yfir 4 milljónir dollara. Skýrir
það að nokkru eðli hins lokaða og
harða ameríska listamarkaðar.
TÍU dýrseldustu málverk í heiminum árið 1994. I) Gustav Klimt, 2) John Singer Sargent) 3) Claude Monet, 4) Maurice Vlaminck, 5) Claude
Monet, 6) Pablo Picasso, 7) Aelbert Gerritz Cyup, 8) Jean-Francois de Troy, 9a) Gustav Klimt, 9b) Meindert Hobbema, 10) Amedeo Modigliani.
Listrýni
o g lista-
markaður
Fjarstýringin er komin út í öfgar, að mati
Braga Asgeirssonar, sem telur að
sýningarstjóramir séu að verða aðalatriði,
en listamennimir strengjabrúður.
Enginn er sammála öðrum um
mikilvægustu sýningu ársins, en
þar standa málarar sterkt, einkum
frá fyrri öldum, og hér gladdi mig
að Richard Hasli nefndi rómaða
sýningu á verkum Petrus Christus
á Metrópolitansafninu, sem ég
skoðaði og skrifaði sérstaklega um
hér í blaðið. Einnig mun hafa ver-
ið í gangi mjög merkileg sýning á
skúlptúrum og málverkum Picass-
os á Tate Galleiy, sem sýndi inn-
byrðis samhengi í nýju Ijósi að
áliti Marinu Vaizey. Petra Kiphoff
féll fyrir yfirlitssýningu á verkum
Robert Morris á Guggenheim-
safninu og Otto Hahn fyrir farand-
sýningu verka Joseph Beuys í
Pompidou-menningarmiðstöðinni.
Sé ég ekki betur en að Peter Iden
sé á öndverðum meiði, því hann
telur sýninguna vonbrigði ársins!
Það hressilega við þetta yfirlit
eru hinar margvíslegu og ólíku
meiningar sem fram koma, ogtelst
alvarleg áminning til þeirra sem
vilja einoka skoðanir og listina um
leið.
Að myndlistin sé á stöðugri
hreyfingu og mat manna breyti-
legt, kom þó jafnvel enn frekar
fram úr óvæntri átt. Á menning-
arsíðu Frankfurter Allgemeine
Zeitung frá 31. desember sl. ár
mátti líta yfirlit yfir tíu dýrustu
málverk ársins, þannig að menn
virðast í viðbragðsstöðu á því
ágæta blaði. Fyrir utan Monet (3
og 5), Vlaminck (4), Picasso (6)
og Modigliani (10) munu hinir nær
óþekktir nema meðal kunnáttu-
manna og þurfa smákynningar
við. Að Austurríkismaðurinn
Gustav Klimt (1862- 1918) skuli
tróna í fyrsta, og einnig 9 sæti,
kemur mörgum væntanlega mjög
í opna skjöldu, því hann hefur
ekki verið svo ýkja hátt metinn á
uppboðum til þessa. Hann er þó
viðurkenndur einn merkasti málari
hins skreytikennda Vínarskóla, þó
enn fussi margur málarinn við
honum ekki síður en samtíðar-
menn hans. Hann telst þó einn
sérstæðasti málari og fagurkeri
sinnar kynslóðar, og ástþrungin
riss hans af hjásætum framúrskar-
andi. Málverk hans „Kona með
blævæng“, olía á léreft, 100x103
sm. (1917/18), reyndist langdý-
rasta málverk ársins og var slegið
á 10.6 milljónir dollara hjá Sothe-
bys í New York í maímánuði, sem
gerir yfir 700 milljónir ísl. króna.
Fjórtán dögum seinna, og á sama
stað, var málverk Ameríkumanns-
ins John Singer Sargent (1856-
1925) „Dansari á Spáni“, olía á
léreft, 222,9x151.1 sm.
(1880/81), slegið á 6.8 milljónir
dollara. Sargent munu ýmsir
þekkja, því einstök málverk hans
eru heimsþekkt, einkum af hinni
fögru frú „Madame X“. Hjá Sothe-
byá í London var málverk Monets
„Aspir að kvöldlagi", olía á léreft
100x65 sm., slegið á 4.4 milljónir
punda (6.1 m. dollara) í júnílok. í
maí var málverk Vlamincks
„Landslag", olía á léreft, 65x81
sm. (1905/06), slegið á 6.2 millj-
ónir dollara hjá Christies í New
York. Manet er svo aftur í fimmta
sæti með uppkast að hinu fræga
málverki „Bar á Foiles Bergéres",
oh'a á léreft 47x56 sm., en það
var slegið á 4 milljónir punda eða
tæplega 6 milljónir dollara og
þamæst fylgir „Kyrralífsmynd"
eftir Picasso, olía á léreft 65x50
sm. (1913), sem var slegin á að-
eins 5.7 milljónir dollara, sem
markaði óvænt verðfall á meistar-
anum. Fæstir munu þekkja til
hollenska málarans Aelbert Ger-
ritsz Cyup (1620-1691), en hann
er aðallega þekktur fyrir yndisleg
málverk af landslagi með mönnum
og dýrum, þar sem ró, friður og
höfug náttúrustemmning piýða
myndflötinn. Hann var einnig fær
andlitsmyndamálari, gerði kyrra-
lífsmyndir, sjó og tunglskinslands-
lög áisamt því að skreyta kirkjur.
Faðir hans var einnig málari svo
og föðurbróðir og var hann í læri
hjá báðum. Cyup, sem var öðru
frekar undir áhrifum frá Jan van
Goyen, og af meðferð ítalska
niálarans Caravaggios á ljósinu,
hafði m.a. mikil áhrif á enska
málarann J.M.W. Tumer. Málverk
hans „Orfeus töfrar dýrin" olía á
léreft 113x167 sm. (1639-/40) var
slegin hjá Sothebys í London í
júlímánuði á 3.8 milljónir punda.
Ekki telst ég sjálfur þekkja mikið
meira en nafnið á franska rókókó-
málaranum Jean-Francois de Troy
(1679-1752), en hann málaði und-
ir áhrifum frá Rubens og Vero-
nese. Faðir hans Francois de Troy
var einnig þekktur málari, og nem-
andi föður síns málarans Antoine
de Troy, en sá hefur ekki verið
eins snjall og afkomendumir, því
hans er ekki getið sérstaklega í
uppsláttarbókum. Málverkið
„Upplestur á Moliere" frá 1730(?),
olia á léreft 74x93 sm., var slegið
á 3.6. milljónir punda hjá Christi-
eá í London í desember. Tvö mál-
verk töldust í níunda sæti „Garður
í sveit“ eftir Klimt, olía á léreft
110x110 sm. 1905/07 og „Skóg-
arlandslag með kofum" olía á lér-
eft 89,5x122 sm. eftir Hollending-
inn Meindert Hobbema frá
1662/68. Hobbema (1638-1709)
var mikilvægasti nemandi J. van
Ruisdael, og hafði mikil áhrif á
seinni tíma landslagmálverk og
enska málverkið á 17. og 18. öld.
í báðum tilvikum vora málverkin
slegin á 3.4 milljónir punda. Klimt
hjá Christieá í lok nóvember en
Hobbema hjá Sothebyá í Desem-
ber. Loks var eitt af málverkum
Modiglianis af ástkonu hans Je-
anne Hebuteme málað 1919
(92x54) sm. slegið á 5.4 milljónir
dollara hjá Sothebyá í nóvember.
Af ofanskráðu má marka að olíu-
málverkið heldur höfði í listheimin-
um, og það eigi einnig við um nú-
tímalist, þrátt fyrir sviptingar á
listamarkaði. Koma bæði ljósar og
dökkar fréttir af uppboðum á sam-
tímalist, en heldur virðist málverk-
ið á uppleið, og t.d. hafa uppboð í
Kaupmannahöfn gengið mjög vel
á árinu. Má í því tilefni geta þess,
að uppboðsfírma Ame Braun Ras-
mussen á Breiðgötu var í 10 sæti
yfir þau veltuhæstu í heimi á sl
ári, sem segir ekki svo lítið.
Mikið er að gerast í listheimin-
um og stórsýningar era settar upp
um allan heim, sumar í formi far-
andsýninga er ganga á milli nokk-
urra stórborga vestan hafs og
austan. Er um samvinnuverkefni
að ræða og stóru flugfélögin aug-
lýsa með stolti á heilsíðum virtra
listtímarita, að þau flytji sýning-
amar á milli landa og mun það
eiga að auka á traust listmógúl-
anna á þeim og um leið auglýsa
flugfélögin þátt sinn í menningar-
dreifingunnL
Höfundur er myndlistarmaður og
gagnrýnandi