Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 GUÐRÚNE. JÓNSDÓTTIR MINNINGAR + Guðrún E. Jónsdóttir fædd- ist í Reykjahlíð í Mývatns- sveit 9. apríl 1905. Hún lést í Reykjavík 27. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Háteigskirkju 6. apríl. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum, það yrði margt, ef telja skyldi það. í lífsins bók það lifír samt í minnum, er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá help tryggð og vináttunnar ljós, er gerir jafnvel dimma daga bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsd.) LÁTIN er í Reykjavík okkar góða vinkona, Guðrún í Meðalholtinu, eins og við gjaman nefndum hana okkar á milli. Hún Guðrún var okkur í Félagi framsóknarkvenna í Reylq'a- vík mikill styrkur. Alltaf var hún hress og kát, tilbúin að taka þátt í starfi okkar. Oft skemmti hún okkur á fundum með fróðlegum frásögnum frá fyrri tímum. Hún var vel lesin og vel ritfær. Þó verður hún okkur alltaf minnisstæðust fyrir sinn fal- lega laufabrauðsútskurð. Það var hennar fag, þar var hún listamaður og þar komst enginn með tærnar þar sem hún hafði hælana. Öll árin sem við seldum laufabrauð fyrir jólin fengum við að njóta hennar hand- bragðs. Hefði hennar ekki notið við hefðum við ekki haft þessa fjáröflun svona lengi. Ég tel mig mæla fyrir munn okkar allra sem með henni störfuðum að hún kenndi okkur margt og var ómetanlegur leiðbein- andi. Hafi hún hjartans þökk fyrir. Guðrún kvaddi þetta líf á sinn hljóðláta hátt og eins og ég gæti hugsað mér að hún hefði helst vilj- að. Að fá að vera heima og hugsa um sig sjálf til hinstu stundar, það var hennar háttur. Ég bið góðan guð að vera með MORGUNBLAÐIÐ afkomendum hennar í þeirra sorg. Blessuð sé minning hennar. Hafðu hjartans þökk mér horfin stund er kær. í minni mínu klökku er minning hrein og skær. Þú gengur um gleðilönd, þá glampar sólin heið og við herrans hönd þú heldur heim á leið. (Páll J. Þórðarson) Fyrir hönd Framsóknarkvenna í Reykjavík, Sigrún Sturludóttir. WtAWÞAUGL YSINGAR Sumarafleysing Sýslumannsembættið á Akranesi auglýsir eftir starfsmanni til sumarafleysinga frá maí-september 1995. Starfsmaðurinn þarf að geta unnið sjálfstætt og vera vanur vinnu á tölvu. Umsóknir berist skrifstofunni fyrir 20. apríl nk. Sýslumaðurinn á Akranesi. Skrifstofuhúsnæði til leigu í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Upplýsingar í símum 11464 og 35378. Til sölu á Siglufirði Billinn er til sölu ásamt húsnæði. Söluturn, myndbandaleiga, skyndibitastaður og billjard- stofa með tveimur borðum. 4ra herbergja íbúð fylgir. Verð kr. 15 milljónir. Ársalir, fasteignasala, Sigtúni 9, sími 562 4333. Uppboð Uppboð munu byrja í skrlfstofu embættisins, Aðalstræti 12, Bolung- arvík, á eftirtöldum eignum kl. 15.00 miðvikudaginn 12. aprfl 1995: Árbæjarkantur 3, Bolungarvík, ásamt öllum tilheyrandi vélum og búnaði, þingl. eign Græðis hf., eftir kröfu Fiskveiðasjóðs (slands. Hafnargata 49, Bolungarvík, þingl. eign Guðrúnar Ásgeirsdóttur og Ingimars Baldurssonar, eftir kröfu Húsasmiðjunar hf. Vb. Haukur ÍS-195, þingl. eign Birnu Pálsdóttur, eftir kröfu Útgerðar- félagsins Brimness hf. Holtabrún 14, 1.h. t.h., Bolungarvík, þingl. eign Húsnæðisnefndar Bolungarvíkur, eftir kröfu Húsnæðisstofnunar rikisins. Hreggnasi, e.h., norðurendi, Bolungarvík, þingl. eign Guðbjarts Kristj- ánssonar, eftir kröfu Orkubús Vestfjarða. Höfðastígur 6, e.h., Bolungarvík, þingl. eign Jóns Gunnarssonar, eftir kröfu Vátryggingafélags íslands hf. Vb. Máni (S-59, þingl. eign Þorgils Þorgilssonar, eftir kröfum Ólafs- víkurkaupstaðar og Skipasmíðastöðvar Marselíusar hf. Sjávarbraut 9, Bolungarvik, þingl. eign Birnu Pálsdóttur, eftir kröfu Sparisjóðs Bolungarvíkur. Traðarland 12, Bolungarvík, þingl. eign Bjarna L. Benediktssonar, eftir kröfum Ingvars Helgasonar og Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur. Traðarland 19, Bolungarvík, þingl. eign Margrétar Vagnsdóttur, eftir kröfu Landsbanka (slands, Langholtsvegi 43, Reykjavík. Traðarland 24, Bolungarvík, þingl. eign Guðbjörns Kristjánssonar og Selmu Friðríksdóttur, eftir kröfum Húsnæðisstofnunar ríkisins og Lífeyrissjóðs Bolungarvikur. Þjóðólfsvegur 5, Bolungarvík, þingl. eign Birnu H. Pálsdóttur, eftir kröfum Búnaðarbanka (slands og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Sýslumaðurinn i Bolungarvik, 7. april 1995. Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir fyrirtækjum, sem áhuga hafa á að taka þátt f útboði á vegum Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá í febrúar 1992 verða verk, sem unnin eru á kostnað Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbanda- lagsins hér á landi, boðin út frá og með 1. apríl í ár. Fyrir dyrum stendur fyrsta reynsluverkefnið af -þessu tagi. Um er að ræða viðhald á ratsjárstöðinni á Stokksnesi. í samræmi við útboðsskilmála, sem unnir hafa verið í samstarfi íslenskra og banda- rískra stjórnvalda, er öllum fyrirtækjum, sem áhuga hafa á þátttöku í útboðinu, boðið að senda inn gögn vegna forvals verktaka. Viðhaldsverkefnið Verkið sem um ræðirfelst í steypuviðgerðum utanhúss, endurnýjun á þaki og skyldum atriðum. Innanhúss yrði um að ræða end- urnýjun á lögnum, loftræstingu og hreinlæt- isaðstöðu, auk endurnýjunar á raflögnum. Þá felst í verkinu tengingar á nauðsynlegum búnaði, viðgerð á eldvarnakefi og uppsetning á nýju öryggiskerfi. Kostnaðaráætlun við verkið er á bilinu kr. 6.500.000 til 16.250.000. Kröfurtil verktaka Fyrirtæki, sem áhuga hafa á þátttöku í útboð- inu, þurfa að skila viljayfirlýsingu þar um til varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, (bréfasími 5515680), fyrir 14. apríl nk. í viljayfirlýsingunni skal greina nafn og kenni- tölu fyrirtækis og helstu upplýsingar um fyrir- tækið. Þá þarf að vera unnt að staðreyna að fyrirtækið uppfylli eftirtalin skilyrði: - Að vera starfandi í þeirri starfsgrein, sem efni samningsins hljóðar á um. - Að hafa nauðsynlega fjárhagslega burði til að sinna því verki eða þeirri þjónustu, sem samningurinn felur í sér. - Að geta uppfyllt samninginn á réttum efndatíma, að teknu tilliti til annarra fyrir- liggjandi verkefna. - Að geta sýnt fram á nauðsynleg gæði vinnu sinnar, vöru eða þjónustu í fyrri verkum af sama toga eða við sölu sam- þærilegrar vöru. - Sé þekkt að áreiðanleika og heiðarlegum viðskiptaháttum. - Að búa yfir nauðsynlegu innra skipulagi, reynslu og tæknilegri hæfni til að efna samninginn eða geta komið slíku á eða aflað þess. - Að þúa yfir nauðsynlegri framleiðslu- tækni, mannvirkjum, tækjum og annarri aðstöðu eða geta orðið sér úti um slíkt. - Að hafa nauðsynlegt starfslið til að efna samninginn eða geta sýnt fram á að það geti orðið sér úti um hæft starfslið. Utanríkisráðuneytið, 7. apríl 1995. Málning -tilboð Tilboð óskast í utanhússmálningu eignarinn- ar Espigerði 10-12 fyrir 20. apríl nk. Bjóðendur skulu jafnframt skila efnis- og verklýsingu með tilboði sínu. Verkinu skal lokið fyrir 5. júní 1995. Upplýsingar veitir Kristján Sveinsson, Espi- gerði 12, í síma 880346. Enskunám á meðal innfæddra Bournemouth International School er viður- kenndur (ARELS) skóli á suðurströnd Eng- lands, sem býður upp á nám á mjög góðu verði allt árið. Áratugareynsla. Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson í síma 5514029. Dalvegi 24, Kópavogi Almenn samkoma í dag kl. 14. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Kökubasar og kaffisala til styrktar unglingastarfinu í dag kl. 14.00. Komið og kaupið kökur til að eiga yfir kosninganóttina og páskahátíöina og styrkið um leið gott málefni. Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Fimmtudagur, skfrdagur: Brauðsbrotning kl. 16.30. Föstudagurinn langi: Almenn samkoma kl. 16.30. Hallveigarstig 1 * sími 614330 Dagsferð laugardaginn 8. apríl Kl. 13.30 Göngum á kjörstað. Kjörgangan, 7. áfangi. Gangan hefst við Miöbæjarskólann í portinu. Gengið úr Austurbæj- arportinu kl. 14.30 og frá Mela- skóla að Miðbæjarskólanum kl. 16.00. Þetta er opin ganga sem hægt er að koma í og fara úr hvar sem er. Ekkert þátttöku- gjald. Skíðaganga sunnu- daginn 9. apríl Kl. 10.30 Mosfellsheiði. Hress- andi ganga mót suðri og sól. Fararstjóri Óli Þór Hilmarsson. Verð kr. 1.000/1.200. Brottför frá BSÍ bensínsölu, miðar við rútu. Útivist. FERÐAFÉLAG ® ÍSIANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682S33 Laugard. 8. apríl kl. 12.30: Námskeið í snjóhúsagerð Komið á eigin farartækjum í Mörkina 6. Ekið í Bláfjöll - kom- ið til baka kl. 18.00. Verð kr. 1.000. Frítt fyrir börn. Dagsferðir sunnud. 9. apríl 1) Kl. 10.30 Bláfjöll - Kleifar- vatn, skíðaganga (um 5 klst.). Þessi ferð er kjörin æfingaferð fyrir skíðagönguferðir F.(. um páska. 2) Kl. 13.00 Austan Kleifar- vatns, skíðaganga (um 3 klst.). 3) Kl. 13.00 Eldborglr - Geita- hlið, gönguferð. Ekið áleiðis suð- ur fyrir Kleifarvatn og gengið þaðan. Tilboðsferð kr. 1,000, frítt fyrir börn. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin og Mörkinni 6. Ferðafélag (slands. Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.