Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 59,
FRÉTTIR
Blindskákareinvígi fyrir Námssjóð blindra
Skákmeistarar söfnuðu
2,5 milljónum króna
ANNAN í páskum sýnir Ríkissjónvarpið blindskákarein-
vígi þeirra Helga Ass og Gary Kaparovs. í einvígi þessu
tefla þeir báðir án þess að hafa taflmenn og borð við
höndina en þurfa að muna hvern leik og stöðuna alla.
Þetta hefur hvorugur gert opinberlega fyrr.
Ríkissjónvarpið, Kasparov heimsmeistari og Helgi Áss
Grétarsson, heimsmeistari 21 árs og yngri, gerðu einvígi
þetta að nokkurs konar góðgerðarkappleik. Þannig veittu
þessir aðilar Námssjóði blindra góðfúslegt leyfi til að
afla styrkja í tilefni af einvíginu og birtast nöfn styrkta-
raðila eftir sýningu einvígisins.
Viðtökur hafa verið mjög góðar og hafa safnast saman
tvær og hálf milljón króna á tveimur vikum. Með því
tvöfaldast námssjóður blindra í einu vetfangi. Námssjóð-
urinn styrkir blinda og sjónskerta námsmenn fjárhags-
lega og veitti hann um 20 styrki á síðasta ári. I fréttatil-
kynningu þakkar Blindrafélagið heimsmeisturunum og
ríkissjónvarpinu stuðning þeirra og ekki síður þær stór-
kostlegu viðtökur sem málið hefur fengið lyá fyrirtækjum
og stofnunum.
Helgi Áss Gary
Grétarsson Kasparov
MESSUR Á PÁLMASUIMIMUDAG
Sannleikur-
inn og sutt-
ungsmjöður
STEFÁN Snævarr flytur fyrirlestur
í boði félagsins mánudaginn 10.
apríl kl. 20 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist Sannleikur-
inn og suttungsmjöður: Um sann-
indi í skáldskap. Fyrirlesturinn er
opinn og aðgangur er ókeypis.
Stefán Snævarr er menntaður í
heimspeki í Ósló og Frankfurt. Stef-
án er í rannsóknarstöðu við háskól-
ann í Björgvin og fæst þar við rann-
sóknir á listspeki. Einnig hefur
hann fengist við siðfræði og kenn-
ingar Habermaas og Abels.
Erindið sem hann flytur byggir
á grein sem birtist í Norsk fílosof-
isk tidskrift en þar rökstyður Stefán
þá kenningu sína að skáldskapur
geti varpað ljósi á „þögla þekk-
ingu“. í fyrirlestrinum mun Stefán
skýra og veija þá kenningu sína,
segir í fréttatilkynningu.
-----♦ » <-----
Gengið á
milli kjörstaða
í KJÖRGÖNGU Útivistar, 7.
áfanga, í dag, laugardaginn 8. apríl,
stendur félagið fyrir gönguferð á
milli gamalla og nýrra kjörstaða í
eldri hluta borgarinnar. Pétur Pét-
ursson, þuiur, rifjar upp skemmtileg
atvik úr kosningasögum fyrr á
árum.
Gangan hefst kl. 13.30 í porti
Miðbæjarskólans. Þaðan verður
gengið um Þingholtin og yfir Skóla-
vörðuholtið að Austurbæjarskóla
með viðkomu í Hallgrímskirkjuturni
ef veður leyfir. Kl. 14.30 verður
gengið frá Austurbæjarskólanum
um Norðurmýrina, Miklatún, Litlu-
Öskjuhlíð suður í Fossvog og geng-
ið með ströndinni út í Faxaskjól og
að Melaskóla.
Kl. 16 verður hringnum lokað
með því að ganga frá Melaskóla
að Miðbæjarskóla. Hægt verður að
koma og fara í gönguna hvar sem
er. Ekkert þátttökugjald er og eru
allir velkomnir.
■ FYRIRLESTUR verður á veg-
um Heimilisiðnaðarskóla íslands
í Norræna húsinu laugardaginn
8. apríl kl. 14. Áslaug Sverrisdótt-
ir fjallar um jurtalitun á íslandi á
fyrri hluta 20. aldar, efni og aðferð-
ir. Fjallað verður um grundvallarat-
riði jurtalitunar og greint frá helstu
litarefnum sem koma við sögu í
íslenskri jurtalitun. Sagt verður frá
eftirtöldum litunarkverum sem gef-
in voru út á árunum 1919-1944:
Jurtalitir eftir Þórdísi Stefánsdótt-
Rættum
atburði í
Israel
DANIEL Meron, 1. sendiráðsritari í
ísraelska sendiráðsins í Ósló, mætir
sunnudaginn 9. apríl nk. á fund í
Félagsmiðstöð ÍSI, Laugardal, sal
4—5, kl. 15 að tilhlutan félagsins
ísland-ísrael og aðalræðismanns
ísrael á íslandi.
Hann ræðir um síðustu atburði í
ísrael og friðarhorfur í Miðaustur-
löndum. Fundurinn verður öllum op-
inn en Daniel Meron mun flytja er-
indi sitt á ensku og svara fyrirspurn-
um. Kaffisala verður á staðnum.
GUÐRÚN Gunnarsdóttir og
Valgeir Skagfjörð.
Vísnakvöld
í Lista-
klúbbnum
VÍSNAKVÖLD verður haldið í
Listaklúbbi Leikhúskjallarans
mánudagskvöldið 10. apríl á vegum
tónlistarfélgsins Vísnavina. Dag-
skrá kvöldsins er tvíþætt.
Fyrri hluti hennar er helgaður
nýliðum sem hafa lítið haft sig
frammi á þessum vettvangi og
meðal þeirra sem fram koma eru
Einar Einarsson, Ómar Diðriksson
og Þröstur Jóhannesson. Seinni
hluti dagskrár er í einu Iagi en þá
munu þau Guðrún Gunnarsdóttir
og Valgeir Skagfjörð flytja efni úr
ýmsum áttum, m.a. frumsamið efni
og leikhústónlist. Þetta verður síð-
asta Vísnakvöld vetrarins.
Dagskrá á mánudag hefst kl.
20.30 og aðgangseyrir er 500 kr.
ur, Rvík 1919, Jurtalitun. Forsagn-
ir eftir Kristínu Þorsteinsdóttur,
Rvík 1942, og Um jurtalitun eftir
Matthildi Halldórsdóttur, Rvík
1944. Með hliðsjón af ofangreindum
ritum og upplýsingum sem þjóð-
háttadeild Þjóðminjasafns hefur afl-
að verður borin saman tiltekin efni
og aðferðir. Einkum verður fjalað
um aðferðir við mosalitun og litun
með sortulyngi. Með fyrirlestrinum
verða sýndar litskyggnur og sýnis-
horn af jurtalituðu bandi.
Fyrirlestur
um meðferð
mígrenis
MÍGRENISAMTÖKIN halda
fræðslufund mánudaginn 10. apríl
nk. kl. 20.30 í Bjarkarási, Stjörnu-
gróf 9, Reykjavík. Á fundinum mun
Sigurður Thorlacius, sérfræðingur í
heila- og taugalækningum, flytja
erindi um meðferð mígrenis; ráð-
leggingar og lyfjameðferð og eru
nýir félagar boðnir velkomnir á fund-
inn.
Mígrenisamtökin héldu aðalfund
23. mars sl. í stjórn voru kosnar
Anna Sjöfn Sigurðardóttir, Eydís
Eyjólfsdóttir og Guðrún Helga
Kristjánsdóttir. í varastjórn voru
kosnar Birna Bjarnadóttir og Hrafn-
hildur Þorgrímsdóttir.
Virk starfsemi á árinu var kynnt.
Ýmsir fræðslufundir voru haldnir;
Þórarinn Tyrfingsson, læknir hjá
SÁÁ, hélt erindi um róandi ávanalyf
ög mígreni, Sólveig Eiríksdóttir fjall-
aði um áhrif mataræðis á mígreni
og fjallaði um gersveppaóþol og
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir fjallaði
um óhefðbundnar lækningaleiðir. Á
aðalfundinum talaði síðan Brynjólfur
Snorra, sjúkranuddari frá Akureyri,
um áhrif rafsegulsviðs.
♦ ♦ ♦-----
Leikrit í Hús-
dýragarðinum
í Laugardal
SAGAN um Klóku köngulóna verður
leikin í Húsdýragarðinum sunnudag-
inn 9. apríl kl. 14 og kl. 15. Þórdís
Arnljótsdóttir leikkona flytur leikrit-
ið sem er fyrir „börn á öllum aldri“.
í Húsdýragarðinum verður selun-
um gefið kl. 11 og kl. 16 minkum
og refum er gefið kl. 12 og litlir
kiðlingar eru í fjárhúsinu auk geita,
kinda og hesta. í smárdýrahúsinu
eru dúfur, kalkúnar, íslensk haug-
hænsni, naggrísir, kanínur og kan-
ínuungar. í fjósinu eru svín og naut-
gripir og kl. 17.15 hefjast mjaltir
sem gestum Húsdýragarðsins er
boðið að fylgjast með. Opið er um
helgina frá kl. 10-18.
■ SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins
heldur opinn kynningarfund um
skipulagsmál á Hornströndum
mánudaginn 10. apríl kl. 16 í Borg-
artúni 6, Reykjavík. Samráðsnefnd
ýmissa hagsmunaaðila sem unnið
hefur að stefnumörkum til 20 ára
í skipulags- og byggingarmálum í
Sléttuhreppi og fyrrum Grindavík-
ur- og Snæfjallahreppum mun þar
kynna landeigendum og öðrum
hagsmunaaðilum tillögurnar með
aðstoð ráðgjafa sinna.
Guðspjall dagsins:
Innreið Krists
í Jerúsalem.
(Lúk. 19.)
ÁSKIRKJA: Ferming og altaris-
ganga kl. 11.00. Ferming og altaris-
ganga kl. 14.00. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa í
Bústöðum kl. 11.00. Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10.30og kl. 13.30.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11.00. Prestur sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur. Organleik-
ari Marteinn Fl. Friðriksson. Barna-
starf í safnaðarheimilinu kl. 11.00
og í Vesturbæjarskóla kl. 13.00.
GRENSÁSKIRKJA: Fermingar-
messur með altarisgöngu kl. 10.30
og kl. 14.00. Prestar sr. Halldór S.
Gröndal og sr. Kjartan Örn Sigur-
björnsson. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa með altarisgöngu
kl. 11.00. Organisti Hörður Áskels-
son. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Landspítalinn:Messa kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Fermingarmess-
ur kl. 10.30 og kl. 13.30. Organisti
Pavel Manasek. Prestarnir. Barna-
guðsþjónusta fellur niður.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fermingarmessa
kl. 10.30. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Kór Lang-
holtskirkju syngur. Organisti Jón
Stefánsson. Sunnudagaskóli kl.
11.00 í umsjá Hauks Jónassonar.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11.00. Drengjakór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Friöriks S. Krist-
inssonar. Barnastarf á sama tíma.
Fermingarmessa kl. 13.30. Ólafur
Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Opið hús frá kl. 10.00. Mun-
ið kirkjubílinn. Fermingarmessur kl.
11.00 og kl. 14.00. Orgel- og kór-
stjórn Reynir Jónasson. Prestarnir.
SELTJARNARNESKIRKJA: Ferm-
ingarmessur kl. 10.30 og kl. 13.30.
Prestur Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Organisti Vera Gulasciova.
Barnastarf kl. 11.00 í umsjá Elín-
borgar Sturludóttur og Sigurlínar
ívarsdóttur. Börnin vinsamlegast
gangi inn niðri.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Fermingarguðsþjónusta
kl. 11. Altarisganga. Organisti Sig-
rún Steingrímsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarguðs-
þjónusta kl. 13.30. Altarisganga.
Organisti Daníel Jónasson. Sam-
koma ungs fólks með hlutverk kl.
20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Fermingarguðsþjón-
usta kl. 14. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Veitingar eftir
stundina í umsjón kvenfélagsins.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestar kirkj-
unnar Guðmundur Karl Ágústsson
og Hreinn Hjartarson þjóna fyrir
altari. Prédikun: Hreinn Hjartarson.
Einsöngur: Alina Dubik syngur aríur
úr Messíasi eftir G.F. Hándel.
Kirkjukór Fella- og Hólakirkju syng-
ur. Organisti Lenka Mátéová. Veit-
ingar eftir guðsþjónustuna í umsjón
Kvenfélagsins „Fjallkonur". Prest-
arnir.
GRAFARVOGSKIRKJÁ: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón: Val-
gerður, Hjörtur og Rúna. Ferming-
arguðsþjónusta kl. 13.30. Organisti
Bjarni Þór Jónatansson. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Bryndís Malla
Elísdóttir þjónar. Fermingarmessa
kl. 13.30. Organisti Oddný Þor-
steinsdóttir. Kvöldguðsþjónusta
með Taize tónlist kl. 21. Kyrrð, íhug-
un, baen. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Kór Kópavogs-
kirkju syngur. Guðrún Birgisdóttir
leikur á flautu. Organisti Örn Falkn-
er. Barnastarf í safnaðarheimilinu
Borgum á sama tíma. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Laugardagur:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. (Ath.
breyttan dag). Sunnudag: Ferming-
arguðsþjónustur kl. 10.30 og kl. 14.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.15. Messa kl. 14.00.’
Organisti Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Barna-
gæsla og barnasamkoma á sama
tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN:Ferm-
ingarguðsþjónusta á pálmasunnu-
dag kl. 13.30 (ath. breyttan messu-
tíma). Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Péturs Maté. Sr. Þórsteinn
Ragnarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. sr. Gylfi Jónsson. Organ-
isti Kjartan Ólafssdon.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Ester og Inger
Jóhanna stjórna og tala. Hermanna-
samkoma kl. 17. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Ann Merethe Jakobsen
og Erlingur Nielsson stjórna og tala.
Hermannavígsla.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
GARÐAKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónustur kl. 10.30 og 14. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu,
Kirkjuhvoli, kl. 13. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Ferm-
ingarmessur kl. 10.30 og 14.
Organisti Helgi Bragason. Petrea
Óskarsdóttir leikur á flautu. Báðir
prestarnir þjóna.
FRIÐRIKSKAPELLA: Fermingar-
messa kl. 16. Prestur sr. Vigfús Þór
Árnason. Organisti Bjarni Þór Jóna-
tansson. Kirkjukór Grafarvogskirkju
syngur.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Fermingarmessa
kl. 13.30. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
MOSFELLSPRESTAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónstur í Lágafellskirkju
kl. 10.30 og 13.30. Lokastund
barnastarfsins á þessu vori verður
í safnaðarheimilinu kl. 11. Jón Þor-
steinsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10og 14. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl.10.30. Sr. Baldur
Rafn Sigurðsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA-.Kirkju-
skóli í dag, laugardag, kl. 11 í Stóru-
Vogaskóla. Bjarni Þór Bjarnason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og 14. Báðir prest-
arnir þjóna við guðsþjónusturnar.
Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Oreganisti Einar Örn Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVALSNESKIRKJA: . Fermingar-
messa kl. 14. Sr. Baldur Ragnar-
Sigurðsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Ferming sunnu-
dag kl. 13.30. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Sunnudagaskóli kl. 11. Kl. 13.15
Sunnudagaskóli á Hraunbúðum. Kl.
14. almenn guðsþjónusta. Kl.
20.30. Poppmessa. Létt sveifla í
helgri alvöru.
AKRANESKIRKJA: Barnastarf í
dag, laugardag, kl. 11. Stutt helgi-
stund i kirkjunni. Strax á eftir páska-
föndur í safnaðarheimilinu. Stjórn-
endur Sigurður Grétar Sigurðsson
og Axel Gústafsson. Fermingar-
guðsþjónustur sunnudag kl. 11 og
kl. 14. Altarisganga fermingarbarna
og foreldra þeirra mánudag kl.
19.30.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Árni Pálsson.
REYNIVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Gunnar Kristjánsson,
sóknarprestur.