Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fundað í þremur kjara- deílum hjá sáttasemjara RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð- að til funda í þremur kjaradeilum í dag og næstu daga. Fundur verð- ur í flugfreyjudeilunni í dag kl. 16, með Bifreiðastjórafélaginu Sleipni og viðsemjendum kl. 9 í fyrramálið og með Sjómannafélagi Reykjavík- ur og viðsemjendum á mánudag. Framhald í flugfreyjudeilu ræðst í dag Flugfreyjur gefa ekkert upp um gang mála í kjaradeilu þeirra og Flugleiða annað en að framhaldið ráðist af því hvernig fundurinn í dag fer. Verkfalli Sjómannafélags Reykjavíkur_ lýkur á miðnætti á laugardag. í gær höfðu sex skip stöðvast vegna verkfallsins, Lax- foss, Dettifoss, Reykjafoss, Hofs- jökull, Mælifell og Lómur. Áð sögn Birgis Björgvinssonar hjá Sjó- mannafélaginu lónaði sjöunda skipið, Lagarfoss, fyrir utan Reykjavíkurhöfn í gær. Til stóð að leggja því að bryggju í Straumsvík en þar var skip fyrir sem komst ekki út vegna veðurs og þar af leiðandi komst Lagar- foss ekki inn. Birgir sagðist ekki vongóður um ,að fundurinn á mánudag bæri árangur og hann sagði að ef ekk- ert færi að þokast þá yrði annað verkfall boðað í næstu viku. Það kæmi þá til framkvæmda í fyrsta lagi viku síðar. „Það eru alveg hreinar línur að ef ekkert kemur út úr þessu verkfalli og í næstu viku þá boðum við annað verkfall. Okkar menn gefast ekkert upp,“ sagði Birgir. Sérhlutir fáist ræddir Bifreiðastjórafélagið Sleipnir hefur haft lausa samninga frá áramótum. Stjórn og trúnaðar- mannaráð hafa aflað sér verkfalls- heimildar en verkfall hefur ekki verið boðað. Eftir árangurslausar samningaviðræður var deilunni vísað til sáttasemjara þar sem einn fundur hefur þegar verið haldinn. Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis, segist vona að sérhlutir fáist ræddir á fundinum á morg- un. Aðspurður um það hvort grip- ið verið til aðgerða náist ekki sam- komulag fynr einhvern ákveðinn tíma sagði Óskar að engin tíma- mörk hefðu verið sett „en auð- vitað verður að fara að drífa í hlutunum“. Jarðbönn eru enn víðast hvar á norðanverðu landinu Kal víða í túnum á Austurlandi KAL er í túnum sums staðar á Vesturlandi og víða á Aust- urlandi, en þar hafa verið umhleypingar í vetur og snjór lagst yfir svell á túnum. Lyktar afkali Að sögn Bjarna Guðleifsson- ar, sérfræðings þjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins á Möðruvöllum í Eyjafirði, hefur fundist einkennandi lykt TUTTUGU síðna blað helg- að Náttúruvemdarári Evr- ópu 1995 fylgir Morgun- blaðinu í dag. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út laugardaginn 22. apríl. fyrir kal úr túnum á Austur- landi og allt að suðaustan- verðu landinu, en lyktin kemur þegar svell leysir aJF túnum þar sem gras hefur ekki náð súr- efni. Að sögn Bjarna mun hann á næstunni fara og taka sýni úr túnum á Austurlandi og kanna ástandið, en hann sagði líklega horfa illa hvað kal varðar á þessum svæðum. Heyskortur hjá einstaka manni Að sögn Ólafs R. Dýrmunds- sonar, ráðunauts hjá Bænda- samtökum íslands, er enn ny'ög mikiU snjór og gaddur víða á Vestfjörðum og Norður- landi og jarðbönn að verulegu leyti fyrir hross. Ólafur sagðist reikna með því að fjöldi hrossa í landinu væri nú svipaður og í fyrra, en þá var hrossastofninn tæp- lega 77 þúsund hross, og þegar gefa þyrfti útigangi eins og nú færi óhemjumikið fóður í það. Ekki heyrstaf fóðurlausum svæðum „Það má reikna með því að hrossum sé alls staðar gef ið mikið núna. Við vitum ekki til þess að það hafi verið neinn heyskortur nema þá hjá ein- staka manni, og því er þá bjargað innan sveitar. Það hefur ekki heyrst um nein fóð- urlaus svæði, þannig að enn sem komið er held ég að þetta sé í góðu lagi,“ sagði Ólafur R. Dýrmundsson. Umgangspestir undanfarið Mest um kvef og magapest KVEFVEIRUR og bakteríusýk- ingar eru það sem læknar á Læknavaktinni hafa mest orðið varir við undanfarið. Eins hefur verið mikið um magapestir, flestar af vírusuppruna. Guðmundur Ólafsson, læknir á Læknavaktinni, segir talsvert um að fólk fái bakteríusýkingar í kjölfar kvefpesta. Hann segir algengt að verkir fylgi maga- pestum og þá sé reynt að fá sjúklinginn á staðinn til að skoða hann en ef hann treystir sér ekki til þess þá vitji læknir hans. Guðmundur segir svolítið hafa verið um hálsbólgu, ýmist af bakteríu- eða veiruuppruna en ekki mikið um skarlatssótt undanfarið. Hann segir alltaf svolítið um berkjubólgu og bronkítis í kjölfar veirusýkinga í öndunarfærum og eitt og eitt lungnabólgutilfelli. * Areksturá Fagradal ÞRIGGJA bíla árekstur varð í hríðarkófi á Fagradal í gær. Ekki urðu meiðsli á fólki. Ökumaður bíls nam staðar þar sem hann sá ekki út úr augum fyrir kófinu og hið sama gerði ökumaður bílsins sem á eftir kom. Ökumanni þriðja bíls- ins tókst hins vegar ekki að nema staðar í tæka tíð og skemmdust bflamir allir ftokkuð. Val á ráðherrum Sjálfstæðisflokksins Þingmenn Reykja- ness styðja Ólaf G. ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi eru einhuga í stuðningi sínum við Ólaf G. Ein- arsson til áframhaldandi setu í ráðherraembætti, takist stjómar- myndun með Framsóknarflokkn- um. Ræddu Reyknesingar óform- lega við aðra þingmenn Sjálfstæð- isflokksins í gær til að afla Ólafi stuðnings. Á fundi 45 trúnaðarmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi, sem haldinn var í Garðabæ á þriðjudagskvöld, kom fram eindreginn stuðningur við Ólaf G. Einarsson. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur samkvæmt upplýsingum • Morgunblaðsins ekki rætt við Olaf um setu hans í ráðherrastóli. Hins vegar telur Ólafur að sótt sé að sér innan ríkisstjómarinnar og hafði hann beðið um að fá að ræða við stjórn kjördæmisráðs flokksins og fleiri trúnaðarmenn. Hann komst aftur á móti ekki á fundinn vegna veikinda. Erna Nielsen, formaður kjör- dæmisráðsins, segir að fundurinn hafi verið ætlaður til að sýna stuðning við oddvita flokksins í kjördæminu. Ekki komi til greina að Ólafur verði ekki í ráðherraliði Sj álfstæðisflokksins. „Ef það verður gengið framhjá þessu kjör- dæmi verða eftirmál af því,“ sagði Erna í samtali við Morgunblaðið. Niðurstöðu komið á framfæri við Davíð Á fundinum voru þrír þingmenn flokksins, þau Árni M. Mathiesen, Sigríður Ánna Þórðardóttir og Kristján Pálsson. Árni R. Árnason var fjarstaddur, en styður Ólaf einnig, samkvæmt heimildum blaðsins. Morgunblaðinu er kunnugt um að einn úr hópi þingmanna Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi ræddi í gærkvöldi við Davíð Oddsson og skýrði honum frá niðurstöðu fundarins í Garðabæ. Davíð segir í samtali við Morgunblaðið að enn hafi ekki verið rætt um skipan ráðherra- embætta í nýrri ríkisstjóm. Það sé hins vegar staðreynd „að ein- stök kjördæmi eiga ekki ákveðin ráðherrasæti þótt flokkurinn sé í ríkisstjórn, hvorki þau stóru né smáu, þó að auðvitað sé litið til þess.“ ■ Kjördæmi eiga ekki/11 Aukakeppni Skákþings Norðurlanda í Reykjavík Norsku skákmennirnir unnu JÓHANN Hjartarson gerði jafn- tefli við Lars Bo Hansen frá Dan- mörku en Helgi Ólafsson tapaði fyrir Norðmanninum Jonathan Tisdall i fyrstu umferð aukakeppni um þriðja sætið á Skákþingi Norð- urlanda, sem hófst á Grand Hótel Reykjavík í gær. I þriðju skák umferðarinnar vann Norðmaðurinn Rune Djurhuus Piu Cramling frá Svíþjóð. Eftir fyrstu umferðina eru því Norðmennirnir Djurhuus og Tisdall efstir og jafnir með 1 vinning. Jóhann var talinn hafa vænlegri stöðu í skák sinni við Danann en missti niður vænlega stöðu í enda- tafli og samdi um jafntefli. Jafnframt aukakeppninni, sem veitir rétt til að tefla á millisvæða- móti FIDE, fer fram fímm skáka emvígi Margeirs Péturssonar stór- meistara við skákforritið Chessica frá Tasc í Hollandi. Margeir vann fyrstu skákina í fjörutíu leikjum. Hann hafði svart.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.