Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 1
136 SIÐUR B/C/D/E/F/G
89. TBL. 83. ARG.
FIMMTUDAGUR 20. APRIL1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ottast að tugir manna hafi farist í sprengjutilræðinu í Oklahomaborg
Mannskæðasta hermdarverk
í allrí sögn Bandaríkjanna
Clinton segir að
tilræðismennirnir
muni nást - Auk-
in öryggisgæsla
við opinberar
byggingar
Oklahomaborg, Washington. Reuter.
GRÍÐARLEG sprenging varð í
stjómsýsluhúsi í höfuðstað Okla-
homaríkis, Oklahomaborg, í Banda-
ríkjunum í gær og fórust að minnsta
kosti 20 manns, þar af 17 böm, auk
þess sem hundmð manna slösuðust.
Óttast var að manntjónið væri mun
meira. Janet Reno dómsmálaráð-
herra sagði í gærkvöldi að 100-250
manns væri enn saknað. Sjúkrahús
báðu fólk að gefa blóð og auglýst
var eftir þjálfuðu hjúkmnarfólki.
Talið var fullvíst að um tilræði væri
að ræða, hið mannskæðasta í seinni
tíma sögu landsins.
Ekkert var hægt að fullyrða um
hveijir hefðu verið að verki er síðast
fréttist. Opinber bygging í Boston
var rýmd vegna símahótunar
skömmu eftir tilræðið en engin
sprengja fannst þar.
Öryggi^viðbúnaður við þinghúsið
í Washington og fleiri mikilvæg hús
var þegar stóraukinn og Bill Clinton
forseti lýsti þungum áhyggjum sín-
um vegna atburðanna. Hann sagði
að tilræðismennimir væm „viðbjóðs-
legir hugleysingjar" og hét því að
þeir yrðu klófestir. „Þegar okkur
hefur tekist það mun réttlætinu
verða fullnægt hratt og af öryggi,
dómurinn verður harður.“ Forsetinn
lýsti yfir neyðarástandi í Oklahoma-
borg.
Talsmaður Clintons sagði að Reno
dómsmálaráðherra hefði sent sér-
staka sveit manna úr alríkislögregl-
unni, FBI, á vettvang í Oklahoma-
Oklahoma
100 km
SEUTtR
Reuter
STJÓRNSÝSLUHÚSIÐ í Oklahomaborg, framhlið hússins er rústir einar. Óljóst er hve margir voru
í húsinu er sprengingin varð, talið að þeir hafi verið 550 til 800.
BJORGUNARMENN bera
slasaða konu á brott.
borg, einnig að Leon Panetta, skrif-
stofustjóri forsetans, ætlaði að kalla
saman fund til að undirbúa og sam-
ræma viðbrögð stjómvalda.
Nýkomnir til vinnu
í stjómsýsluhúsinu, er nefnt er
Alfred Murrah, em opinberar skrif-
stofur og útibú af ýmsu tagi, þ. á m.
FBI, þar var einnig dagheimili fyrir
böm starfsfólks. Um 500 manns
störfuðu í húsinu.
Sprengingin varð um klukkan níu
að morgni að þarlendum tíma,
skömmu eftir að flestir starfsmenn
vom komnir til vinnu. Framhlið
hússins, sem er níu hæðir, sundrað-
ist og gólf efstu hæðanna hmndu
að hluta. Hálft húsið er sagt gereyði-
lagt. Glerbrot þeyttust yfir nálægar
götur, víða kviknaði í bílum.
Þykkur reykjarmökkur steig upp
frá húsinu, sprengingin var svo öflug
að rúður brotnuðu á stóm svæði
umhverfis staðinn. Fullyrt var að
fólk í 50 km fjarlægð hefði orðið
vart við sprenginguna. Á götum í
grennd við húsið hljóp fólk um skelf-
ingu lostið, með blæðandi skurðsár
og tugir slasaðra fengu skyndihjálp
á gangstéttum. Slökkviliðsmenn
sögðust heyrðu hróp í fólki sem var
fast undir braki í húsinu.
Þrír eftirlýstir
Fjölmiðlar höfðu eftir John
Magaw, yfirmanni alríkisstofnunar
er m.a. fjallar um skotvopn, að
sprengjan hefði verið 450-550 kíló
og verið í bíl sem lagt hefði verið
við framhliðina. Fjölmiðlar fullyrtu
að fundist hefði önnur sprengja í
húsinu, er ekki hefði náð að springa.
Hefði hún verið gerð óvirk.
FBI lýsti í gær eftir þrem körlum
sem gmnaðir era um aðild að tilræð-
inu, að sögn sjónvarpsstöðva í borg-
inni. Mennimir óku brúnum Chevro-
let-pallbíl með dökklituðum rúðum.
Sjónvarpsstöð í Texas sagði að bíll-
inn hefði verið leigður á alþjóðaflug-
vellinum Dallas/Fort Worth en þetta
fékkst ekki staðfest. Tveir mann-
anna vom sagðir dökkhærðir og
skeggjaðir, sennilega ættaðir frá
Miðausturlöndum. Annar farþeginn
væri rúmlega tvítugur en hinn
35-38 ára gamall; ekki var send
út lýsing á bílstjóranum.
■ Ólýsanleg martröð/32
Vestræn
menning
í Kína
PEKINGBÚI virðir fyrir sér aug-
lýsingaspjald með kynningu á
bandarísku kvikmyndinni True
Lies sem verður sýnd í kvik-
myndahúsinu í dag. Kínversk
stjórnvöld eru að aflétta kvóta
sem verið hefur á innflutningi
erlcndra kvikmynda en eftir sem
áður munu ritskoðarar fylgjast
með því að þær verði ekki of
margar, einnig að innihald þeirra
sé í lagi. Kommúnistastjórnin
segist munu standa við alþjóðlega
viðskiptasamninga sem kveða á
um að Kínverjar skuli leyfa sýn-
ingar á minnst 10 vinsælum
myndum frá útlöndum árlega.
Fríverslun ríkja við Norður-Atlantshaf
Hvatt til stofn-
unar TAFTA
Bonn. Reuter.
EVRÓPA og Norður-Ameríka
ættu að sameinast um eitt frí-
verslunarsvæði við Norður-Atl-
antshaf eða TAFTA. Kom þetta
fram hjá Klaus Kinkel, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, í gær en
hann hvatti einnig til nánari,
pólitískrar samvinnu Evrópu og
Bandaríkjanna.
Kinkel lýsti þessu yfir í Chicago
þegar hann ávarpaði utanríkismála-
ráð borgarinnar og hann lagði
áherslu á, að nú á þessum óvissu-
tímum væri meiri þörf á fríverslun-
arbandalagi af þessu tagi en nokkm
sinni fyrr. Sagði h'ann, að Bandarík-
in yrðu að hafa frumkvæðið að
því, stórveldið mætti ekki bregðast
leiðtogahlutverkinu.
Kinkel sagði, að nú þegar GATT-
samningunum væri farsællega lokið
ættu Evrópusambandið og Norður-
Ameríka að vinna að stofnun frí-
verslunarbandalags við Atlantshaf,
TAF'TA. „Ekkert myndi binda betur
saman örlög okkar en slíkt banda-
lag. Viðskipti og verslun við N-Atl-
antshaf eru hjarta heimsviðskipt-
anna og ættu að ryðja frelsinu braut
um allan heim,“ sagði Kinkel.