Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 53
BRÉF TIL BLAÐSINS
Nokkur orð um electro-smog,
og stafræn fjarskipti
Háttvirtur heil-
brigðisráðherra
Frá Sigurði Kolbeinssyni:
ELECTROSMOG er nokkuð
mikið umtalað umhverfisvandamál
hér í Mið-Evrópu. Þar af beinist
helsta athyglin að handlegum
GSM-farsímum (handy’s). Elect-
rosmog er einfaldlega útskýrt sem
rafsegul-bylgjur sem hafa trufl-
andi áhrif á taugakerfi manna og
dýra. í flestum tilfellum eru afleið-
ingarnar krabbamein. Áhrif af
E.S. hafa komið í ljós hjá fólki sem
býr nálægt eða undir háspennulín-
um og nálægt sterkum útvarpss-
endum. Þar sem GSM starfar staf-
rænt eru áhrifin önnur og meiri.
Það skýrist þannig að þær út-
varpsbylgjur eru mótaðar staf-
rænt, þ.e. runur af púlsum. Slíkt
á ekki við hjá gömlum farsímum
eða talstöðvum, þar sem þær virka
*
analog. Sumir telja að 6 klst.
stanslaus notkun „handy“-tækis
(með loftnet í innan við tíu senti-
metra bili frá heila) samsvari hálfri
mínútu inni í örbylgjuofni.
Hjá flestum íbúum er það helsta
tískan að nota stafræn eða tölvu-
stýrð heimilistæki. Hjá Pósti og
síma er mikið lagt í að endurnýja
með stafrænum símstöðvum. Þar
eru ljósleiðarar mjög góð og hag-
kvæm tækni. (Þeir gefa ekki frá
sér geislun, þar sem þeir senda
ljós en ekki rafmagn.) Þar kemur
samt upp annað vandamál, sím-
stöð sem stýrð er af fáum örgjöf-
um (AXE, EWSO) er verulega
næmari gegn litlum áföllum heldur
en þær birgðar með eldri tækni
(ARF, EMD), samanber fréttum
af útföllum. Tölvur eiga það ein-
kenni að geta bilað (frosið) hvenær
sem er. Þá eru í nýrri stöðvum vel
10.000 númer lokuð, en í stöðvum
af eldri tækninni verða við bilun
nokkrar grúpur (c.a.: 20 - 100
númer) sambandslaus. Eini gallinn
við þær gömlu eru að þær eru
byggðar með „releum“ og „mecan-
iskum“ veljurum, sem gerir þær
plássfrekar og seinvirkar. Þar með
er samt ekki sagt að smíða megi
stöðvar eftir gamla laginu úr
transistorum og rökrásum, sem
myndu gera þær fyllilega sam-
keppnishæfar við stafrænar. Ég
er að vinna við það í mínum frítím-
um.
SIGURÐUR KOLBEINSSON, CET.
16 citi Kremerich,
L-6133 Junglinster.
Luxemborg.
Frá Margréti M. Ragnars:
ÉG HEF nú um nokkurt skeið
verið að velta fyrir mér þeirri
ákvörðun'þinni að draga úr fjárhag
kvennadeildar en efla glasafijóvg-
unardeild sem þeim sparnaði nemur
og hvernig þessar ákvarðanir rek-
ast hver á aðra í framtíðinni, því
með öflugri glasafijóvgunardeild
má búast við að þungunum fjölgi
allverulega ef vel tekst til. Á sama
tíma mun trúlega draga úr fóstur-
eyðingum vegna fjárskorts kvenna-
deildar. Þar með bætist við ákveð-
inn fjöldi þungana sem því nemur.
Hver verður staða sængurkvenna
framtíðarinnar eða á ég heldur að
segja lega? Eiga verðandi mæður
eftir að upplifa það sama og móðir
mín sem vísað var frá fæðingar-
deild þann 15. júní 1952 því fleiri
konur komust ekki fyrir á göngum
og klósettum fæðingardeildar. Það
var lánið mitt þennan júnídag fyrir
fjörutíu og þremur árum að amma
mín var heimavinnandi húsmóðir,
og gat aðstoðað móður mína þegar
ég leit dagsins ljós.
Ég sé fyrir mér yfirfulla ganga
kvennadeildar framtíðarinnar af
öryggislausum sængurkonum. Kon-
um sem hafa ekki mæður né frænk-
ur að hlaupa til, þær eru allar úti
á vinnumarkaðnum því húsmæðra-
starfið er löngu komið í glatkistuna
enda lítils virt af öllum flokkum
þessa lands. Kæri Sighvatur, gang-
ið hægt um gleðinnar dyr. Fijóvgið
ekki konur á færibandi til að þær
komi síðan að lokuðum dyrum
kvennadeildar.
í upphafi skyldi endinn skoða.
Virðingarfyllst,
MARGRÉT M. RAGNARS,
Hólabergi 4,
Reykjavík.
Okristilegar lífsreglur
Ingibjargar Sólrúnar
Frá Þórdísi Pétursdóttur:
í STUTTU lesandabréfi vakti
ég athygli á því að Ráðhúsið hefði
verið lagt undir ókristilega „ferm-
ingu“ og velti fyrir mér hlutverki
Ingibjargar Sólrúnar borgarstjóra
við þessa athöfn. Formaður félags
áhugafólks um borgaralegar at-
hafnir hefur nú upplýst að Ingi-
björg Sólrún hafi þar verið í aðal-
hlutverki. Hann segir í Morgun-
blaðinu sl. laugardag að hún hafí
verið fengin til að ávarpa bömin
„og leggja þeim lífsreglurnar“, og
að hún hafi lýst yfir „ánægju með
þetta nýja hlutverk Ráðhússins“.
Hér er það á hreinu að bæði
borgarstjórinn og Ráðhúsið, sam-
eign allra borgarbúa, hefur fengið
nýtt hlutverk. Ingibjörg Sólrún
ræður því að sjálfsögðu hvort hún
vill vera kristin eða ekki. En hún
á ekkert með að nota stöðu sína
Smáflugur
Nú á að kjósa nöfnin rétt
nokkrir gjósa hverir.
Oft er glósa færð í frétt
fáum hrósa gerir.
Liggur spenna lofti í
lýðsins fjörgast kraftur.
Farartæki um borg og bí
bruna fram og aftur
Afleiðingar enginn sér
eftir þungan róður.
Hver einn sínar byrðar ber
blómgvist ríkissjóður.
Flugur urðu til að morgni Al-
þingiskosningadags 9. apríl sl.
HUGRÚN
uiMnir
FBllihýsin mest
seldu á íslandi.
\EVRO HF
Suðurlandsbraut 20, sími 588-7171.
og Ráðhúsið til að efla trúleysi og
leggja ungu fólki ókristilegar lífs-
reglur. Ef hún endilega vill leggja
trúleysingjum lið, getur hún gert
það annars staðar og ekki sem
borgarstjóri.
Úthýst
Jónas Gíslason, fyrrv. vígslu-
biskup hefur nú upplýst i grein í
Morgunblaðinu, að Hjálpræðisher-
inn hafi í fyrra fengið vilyrði fyrir
því hjá borgarstjóra sjálfstæðis-
manna að halda samkomu í Ráð-
húsinu í tilefni af hundrað ára
afmæli Hjálpræðishersins. Þegar
að því kom að ganga eftir efndum
fékk yfirmaður Hjálpræðishersins
ekki einu sinni viðtal við Ingi-
björgu Sólrúnu og var úthýst af
aðstoðarmanni hennar. Þá vitum
við það hvernig Ingibjörg Sólrún
hugsar og vinnur. Hjálpræðisher-
inn sem starfar innan þjóðkirkj-
unnar og hefur sinnt hér ómet-
anlegum mannúðarstörfum í
hundrað ár fær ekki inni í Ráðhús-
inu fyrir afmæli sitt en trúleysingj-
CAaiun
sc
3ja hjóla, -lítill beygjuradíus.
Einstaklega þægilegur í meðferð.
Lyftir hátt í 6 m.
CROWN -Gæði fyrir gott verð.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGUR 70, KÓP
SÍMI 564 4711 • FAX 564 4725
ar eru þar velkomnir og borgar-
stjórinn stígur í stól, leggur börn-
unum ókristilegar lífsreglur og
lýsir svo yfír „ánægju með þetta
nýja hlutverk Ráðhússins“. Ekki
er víst að allir verði búnir að
gleyma þessu í næstu borgar-
stjórnarkosningum.
ÞÓRDÍS PÉTURSDÓTTIR,
Keilugranda 10,
Reykjavík.
r L%H| Framlín h ■ ■ Miiiimwii** Suöurveri, Stigahlíö 45, sími 3 m ■ ■ ■ ■ ■ ■ 4852
;r Frí fílrriíi > Ahivttcirkof r< Frí ■jtíokkun r «
Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarsso nar
Herrahartoppar
Herrahárkollur
G SÉRLEGA STERKUR
OG FALLEGUR ÞRÁÐUR
r pantið einkatíma
G RÁÐGJAFI Á STAÐNUM
Hár:x.
(Ðpryði
V y Sérverslun
V Ðorgarkringlunni,
sími 32347.
Rýmingarsala
búsáhöldum
í Hagkaup
Skeifunni
HAGKAUP