Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Happdrætti DAS og Hrafnistuheimilin Tvöfaldar tekjur með Bingó Lottói SÍÐASTLIÐIÐ happdrættisár, 1. maí til 30. apríl, hefur verið eitt hið við- burðaríkasta í rúmlega 40 ára sögu Happdrættis DAS, að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðssonar forstjóra DAS. Stórt skref hafi verið stigið í uppbygg- ingu Hrafnistuheimilanna með tilkomu Bingó Lottós á Stöð 2 og hafi tekj- ur happdrættisins tvöfaldast. Á nýliðnu ári voru greiddir út vinningar að verðmæti 200 milljóna króna að sögn Sigurðar. „Dregið var þrisvar sinnum { einni viku, 6., 7. og 8. apríl. Hinn 6. apríl var heildarverðmæti vinninga 29 millj- ónir og tíu milljóna króna aðalvinn- ingur fór til Qölskyldu í Hafnar- firði,“ segir- Sigurðpr. Hann segir ennfremur að daginn eftir hafi aðalvinningur í vorpotti, sumarbústaður að verðmæti 5 millj- ónir króna, verið dreginn á miða Siglfírðings og loks hafí stærsti vinningurinn í Bingó Lottói, sem dreginn var út kosningadaginn, lent í höndum íbúa á Flúðum í Hruna- mannahreppi. Segir Sigurður að ekki hafí verið dregið jafn oft í nokkru happdrætti hérlendis. Tvöföld vinningaskrá Jafnframt hafa töluverðar breyt- ingar verið gerðar á vinningaskrá happdrættisins og verður dregið í fyrsta sinn á nýju happdrættisári 9. maí. „Nú er boðið upp á tvöfalda vinningaskrá sem þýðir að hægt er að kaupa tvær raðir í hverju núm- eri og tvöfalda þar með vinninginn sem í boði er. Þá verður aðalvinn- ingurinn fjórar milljónir til íbúða- kaupa í hveijum mánuði, auk tíu milljóna króna aðalvinnings til íbúðakaupa sem dreginn verður út í apríl á næsta ári,“ segir hann. Heildarfjöldi vinninga á árinu er 61.549, sem er stórfelld íjölgun frá því sem áður hefur verið boðið upp á í happdrætti hér að sögn Sigurð- ar. Segir hann að 1.200 vinningar verði dregnir úr seldum miðum í pottum happdrættisins en aðalvinn- ingamir í hveijum potti eru upp- hækkaður Patrol jeppi, turbo dies- el, fullbúinn með aukabúnaði að verðmæti 3,8 milljónir. Loks segir Sigurður að heildarverðmæti vinn- inga sem í boði eru í ár sé tæpar 400 milljónir króna. Hert innheimta bifreiðagjalda Hundruð milljóna úti- standandi HERTAR aðgerðir innheimtumanna ríkissjóðs til innheimtu á bifreiða- gjaldi og þungaskatti hefjast næst- komandi þriðjudag, en ríkissjóður á útistandandi 394 milljónir króna að meðtöldum dráttarvöxtum vegna 1994 og fyrri ára. 488 milljónir eru útistandandi og komnar fram yfír eindaga vegna ársins í ár. í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu segir að enn séu úti- standandi 156 milljónir króna af álögðum bifreiðagjöldum og þunga- skatti ársins 1994 og eru það 3,74% af heildarálagningu ársins sem nam rúmlega 4,1 milljarði króna. 52 milljónir hafa ekki innheimst af gjöldum ársins 1993 og þar er um 1,34% heildarinnar að ræða. Samtals eru að höfuðstóli í van- skilum 69 milljónir vegna fyrri ára. Alls eru útistandandi 277 milljónir króna en að viðbættum dráttarvöxt- um nema vanskilin 394 milljónum. Vegna yfirstandandi árs eru úti- standandi og komnar fram yfir ein- daga 488 milljónir króna í bifreiða- gjöld og þungaskatt. Fjármálaráðuneytið hefur falið innheimtumönnum ríkissjóðs að hlut- ast til um hertar innheimtuaðgerðir frá og með næsta þriðjudegi. Frá þeim tíma mega bifreiðaeigendur búast við að skráningamúmer verði tekin af bifreiðum þeirra séu ógreidd gjöld komin fram yfir eindaga. -----------» ♦ »---- Fleiri rásir í fjölvarpið „VIÐ höfum heimild fyrir níu stöðv- um innan Fjölvarpsins, en þær eru nú sjö. Við höfum þegar ákveðið að innan skamms bætist BBC World fréttastofan við, en frekari viðbót skýrist innan mánaðar,“ sagði Jafet Ólafsson, forstjóri íslenska útvarps- félagsins, í samtali við Morgunblaðið. Jafet sagði að áskrifendur Fjöl- varpsins væru nú 8-900, en á næst- unni yrði lögð áhersla á að fjölga þeim. Dreifíkerfi Fjölvarpsins yrði t.d. stækkað, svo það næði til Suður- lands og Vestmannaeyja. Frásögn tveggja íslenskra kvenna Fljúgandi diskar og geimverur TVÆR konur segjast hafa séð fljúgandi furðuhluti í návígi hér á landi og önnur þeirra kveðst að auki hafa séð einn farþega slíks farartækis. Þetta kemur fram Geim- disknum, fréttabréfi Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti, FÁFFH. Þar segir nánar af öðru atvikinu, þar sem roskin kona sá greinilega fljúgandi disk lenda í návígi við bústað sinn á Suðurlandi. „Diskurinn var með sterkum ýóshring að neðanverðu og kom strax í ljós við athugun konunnar og ættingja hennar að jafnstór brunablettur var í grasinu þar sem farartækið hafði lent og ljóshringurinn hafði verið,“ segir í fréttabréf- inu og ennfremur að tekið hafi lungann úr sumrinu að vaxa aftur upp í brunafarið, „þar sem hitinn eða einhver önnur áhrif af disknum gerðu það að FÓLK víða um heim kveðst hafa séð fljúgandi diska og hafa teiknarar fært þær frásagnir í myndir. verkum að enginn gróður sem undir brennihringnum lenti virtist lifa það návigi af“. í fréttabréfinu er fólk hvatt til að láta FÁFFH vita, sjái það íljúgandi furðuhluti á himni, eða frétti af einhverjutn sem hugsanlega hafi séð slíka hluti, svo hægt sé að halda tölfræði- lega samantekt um tíðni þess- ara fyrirbrigða hér á landi. Vorboðinn við höfnina GÖMLU eimreiðinni, sem notuð var við byggingu gömlu hafnar- innar, var komið fyrir á hafnar- svæðinu í gær. Þessi fyrsta eim- reið íslendinga skipar heiðurs- sess á hafnarsvæðinu og er fyrsti vorboðinn við höfnina ár hvert. Morgunblaðið/Þorkell Utför Pét- urs J. Thor- steinssonar ÚTFÖR Péturs'J. Thorsteinsson- ar, fyrrv. sendiherra og ráðu- neytisstjóra, var gerð frá Dóm- kirlqunni í Reykjavík í gær. Séra Þórir Stephensen jarðsöng. Kist- una báru úr kirkju Hailgrímur Dalberg, fyrrverandi ráðuneytis- stjóri, Sigríður Á. Snævarr, sendiherra, Nils P. Sigurðsson, sendiherra, Þórður Einarsson, sendiherra, Sveinn Björnsson, sendiherra og forsetaritari, Tómas Tómasson, sendiherra, Þórhallur Ásgeirsson, fyrrv. ráðuneytissljóri, og Helgi Ágústsson, sendiherra. Morgunblaðið/Þorkell Rætt um að fjölga lands- mótum hestamanna TALSVERÐ umræða er nú um að fjölga landsmótum hestamanna og halda þau annað hvert ár í staðinn fýrir á fjögurra ára fresti. Að sögn Sigurðar Þórhallssonar, framkvæmdastjóra Landssambands hestamanna, verður þetta rætt á formannafundi hestamannafélag- anna 5. maí, en taka verður ákvörð- un á ársþingi næsta haust. Sigurður sagði að umræðan um fjölgun landsmóta væri ekki síst vegna þess að þau væru farin að varða mun fleiri en hestamenn. Þannig hefði t.d. á fímmta þúsund útlendinga sótt síðasta landsmót og því augljóst að um talsverðar gjaldeyristekjur væri að ræða. Inn- anlands skipti þetta líka miklu varðandi sölu á hrossum til út- landa. Ef breytingin verður samþykkt verða fjórðungsmót, sem haldin hafa verið milli landsmóta, að öllum líkindum lögð niður, en í stað þeirra komi minni mót. Þátttaka íslendinga í Víkingalottói 82% vinningshlutfall ÍSLENDINGAR hafa fengið 82,12% af framlagi sínu til fýrsta vinnings í Víkingalottó aftur til baka í þremur vinningum. Inni í þessum tölum er ekki útdrátturinn í Víkingalottóinu í gærkvöldi. Þá var dreginn út tvö- faldur fyrsti vinningur, 106,4 milljónir króna. Sá vinningur gékk ekki út og verður vinningurinn því þrefaldur næst. Nú er liðið nákvæmlega eitt ár síðan íslendingur hreppti síðast Þrefaldur pottur næst fyrsta vinning og varð 39,5 milljón krónum ríkari. Vinningspotturinn í laugardagslottóinu stefnir í að verða 8 til 9 milljónir á laugardag. Danir einir Norðurlandaþjóð- anna hafa fengið hærri fjárhæð til baka í fyrsta vinning en þeir hafa innt af hendi í vinningspott- inn. Framlag Dana er orðið yfir 2 milljarðar króna og vinningarnir 2,4 milljarðar eða 118,56% fram- lags. Næstir koma Svíar og er hlutfall vinninga 90,66% af fram- lagi. Á hælaþeim koma Norðmenn og hafa þeir fengið 90,59% af framlagi til baka. Fjórðu eru íslendingar. Við höf- um lagt fram 87 milljónir í vinn- ingspottinn og fengið til baka 71,5 milljón eða 82,12% af framlagi. Finnar reka lestina með 79,3% vinningshlutfall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.