Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 19
i
I
I
I
)
>
>
FRÉTTIR: EVRÓPA
Bretar hóta spænskum sjómönnum hörku
Vara Spánveija
við að brjóta
ESB-reglur
London. Reuter.
WILLIAM Waldegrave, landbúnaðarráðherra Bretlands, sem jafnframt fer
með sjávarútvegsmál, lýsti því yfír í gær að Bretar myndu beita fallbyssubát-
um gegn ólöglegum veiðum úr fískistofnum á Bretlandsmiðum og framfylgja
reglum Evrópusambandsins um eftirlit með veiðum með mun strangari hætti
en áður. Aðvaranir Waldegraves beinast einkum að spænskum fískimönnum.
„Við lítum svo á að við þurfum
að fylgja reglum Evrópusambands-
ins mun fastar eftir til að vernda
hina miklu fiskistofna, sem Bretland
færir Evrópu," sagði Waldegrave í
viðtali við ríkisútvarpið BBC.
Krefjast aðgerða
Brezkir sjómenn hafa krafízt
harðra aðgerða gegn spænskum tog-
urum á Bretlandsmiðum, en spænsk-
ir sjómenn hafa verið sakaðir um
að hafa alþjóðlegar reglur að engu,
og er grálúðudeilan við Kanada
nærtækasta dæmið.
Waldegrave sagði hins vegar að
ólíkt því ástandi, sem ríkt hefði á
fískimiðunum utan lögsögu Kanada,
væru skýrar reglur um veiðar á
hafsvæðum ESB-ríkja. „Reglur sam-
bandsins eru fyrir hendi, og þær
hafa of oft verið brotnar,“ sagði
hann. „Ef þeir [spænskir sjómenn]
brjóta reglurnar í brezkri lögsögu
munum við beita sjóhemum, eins
og við höfum þegar gert, til að fram-
fylgja þeim.“
I síðustu viku tók brezki sjóherinn
spænskan togara, Chimbote og sak-
aði hann um að nota ólöglegt troll.
Skipstjórinn, Louis Blanco Nosti,
átti að koma fyrir rétt í gær vegna
ólöglegra fískveiða og átti yfír höfði
sér sektir og upptöku veiðarfæra.
John Major forsætisráðherra
Breta hefur einnig sagt að brezk
herskip yrðu nálæg til að tryggja
að farið verði eftir veiðireglum og
samningum í hvívetna.
Harðar deilur
Á síðasta ári lenti brezkum sjó-
mönnum illilega saman við spænska
kollega sína. Þeir reiddust heiftar-
lega ákvörðun Evrópusambandsins
um að leyfa 40 spænskum fiskiskip-
um að veiða í írska hólfinu svo-
nefnda milli Bretlands og írlands.
Brezku sjómennimir stóðu fyrir
mótmælaaðgerðum, hindruðu ferðir
fetja yfír Ermarsund og fóru í mót-
mælagöngur framan við þinghúsið.
Waldegrave sagði aðspurður að
Bretar gætu búist við frekari
árekstmm á þessu ári. „Það er auk-
in spenna í loftinu og við munum
beita öllum þeim ráðum sem við
höfum, bæði til að reyna að koma í
veg fyrir átök og til að framfylgja
reglunum,“ sagði hann.
Reuter
SPÆNSKlR sjómenn eru æfir yfir veiðitakmörkunum sem fyrir-
sjáanlegar eru á úthafsveiðum þeirra. Á myndinni sést Louis
Atienza landbúnaðarráðherra Spánar sýna línurit sem sýnir grál-
úðukvóta Kanada og Evrópusambandsins eftir samninga um þær
veiðar. Atienza sagði að spænskir fiskimenn yrðu að laga sig að
breyttum aðstæðum og leita nýrra miða.
Kína vill semja
um höfundarrétt
Pcking. Reuter.
KINA hefur fallizt á að gera sams
konar samning við Evrópusambandið
um vemd höfundarréttar og annarra
hugverkaréttinda og gerður var við
Bandaríkin í febrúar síðastliðnum. í
því felst meðal annars að kínversk
stjómvöld skuldbinda sig til að líða
ekki gerð ódýrra eftirlíkinga af ýmis-
legri dýrri, vestrænni merlqavöm.
Samkomulag náðist í viðræðum
Sir Leons Brittan, sem fer með ut-
anríkisviðskiptamál í framkvæmda-
stjórn ESB, við ráðamenn í Kína.
„Kínversk stjórnvöld hafa nú opin-
berlega lýst því yfir að öll réttindi
einstaklinga og fyrirtækja í Banda-
ríkjunum, sem samþykkt voru með
samningi Kína og Bandaríkjanna í
febrúar eiga einnig við um einstakl-
inga og fyrirtæki í Evrópusamband-
inu,“ sagði Brittan í gær.
í samkomulagi ESB og Kína er
sett fram nákvæm áætlun um að-
gerðir, meðal annars að kínversk
stjórnvöld fýlgi betur eftir eigin lög-
gjöf um vernd hugverkaréttinda og
að kínverski markaðurinn verði opn-
aður fyrir vestrænum innflutningi í
auknum mæli.
Tæknileg aðstoð aukin
Brittan sagðist hafa fengið trygg-
ingar frá Kínveijum fyrir því að við-
skiptaaðilum yrði ekki mismunað.
Hann sagði að framkvæmdastjórn
ESB væri reiðubúin til að auka
tæknilega aðstoð við Kína til að
greiða fyrir samkomulaginu. Meðal
annars hyggst ESB sjá um þjálfun
starfsfólks, sem sjá mun um eftirlit,
og aðstoða Kínvetja við skráningu
hugverkaréttinda.
Beint flug æ*
til Þýskalands
Keflavík - Dússeldorf í áætlunarflugi 29. maí -18. sept. 1995
Uppiýsingar um ferðir LTU eru veitt
á næstu feróaskrifstofu.
LTU á ÍSLANDI Stangarhyl 3a -
u i
110 Reykjavík
LTU
INTERNATIONAL AIRWAYS
Ferðalög og útivist innanlands í Perlunni
20. - 23. apríl 1995
Perlctn stendur íyrir sýningunni Ferðalög og útivist.
Komdu á stórkostlega sýningu þar sem á dagskrá verður:
Kynning á ferðamöguleikum, gistingu, veitingum og
aíþreYÍngu í öllum landshlutum.
Skemmtilegur ókeypis getraunaleikur með stórglœsilegum
vinningum.
MatvœlakYnningar frá hinum ýmsu landshlutum.
Skógarferð um Öskjuhlíð á vegum Ferðafélags íslands
dagana 20. og 22. apríl kl. 16.00.
Frœðsluerindi í máli og myndum í fundarsal Perlunnar.
Sýning á farartœkjum og teymt undir börnum á hestum.
Stórglœsileg sýning og skemmtun ÍYrir alla fjölskylduna.
Opnunartímar verða:
Fimmtudag......20. aprílkl. 13.30-18.00
2 Föstudag.......21. apríl kl. 16,00-20.00
£ Laugardag......22. apríl kl. 13.00-18.00
Sunnudag.......23. apríl kl. 13.00-18.00
Ókeypis aðgangur
PERLAN
Ókeypis aðgangur