Morgunblaðið - 20.04.1995, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.04.1995, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ URVERINU 2.200 tonn af óunnum karfa flutt utan í marz RÚMLEGA 3.700 tonn af óunnum botnfíski voru flutt utan í janúar, en það eru um 8% heildarbotnfiskaf- lans það tímabil. Verðmæti þessa útflutnings voru um 474 milljónir króna og meðalverð því um 127 krónur á kíló. Langmest fór utan af karfa, en hæsta meðalverðið fékkst fyrir lúðu, 475,70 krónur. Útflutningur flestra óunninna fiskitegunda hefur farið minnkandi að undanförnu, en minnstur er þó samdrátturinn í karfa af okkar helztu nytjategundum. Nú fóru ut- an samtals 2.200 tonn af karfa á samtals 254 milljónir króna, eða 112,49 til 120,50 krónur á kíló að meðaltáli eftir því hvaða tegund karfa var um að ræða. Næst mest fór utan af ýsu, 3325 tonn á sam- tals 35 milljónir króna eða um 108 krónur á kíló. Um 310 tonn af grá- lúðu fóru óunnin utan í marz og seldust þau alls á rúmlega 64 millj- ónir króna. Meðalverð fyrir grálúð- una var því 207 krónur. 118 krónur fyrir steinbítskílóið Aðeins fóru þrjár aðrar fiskiteg- undir utan í meira mæli en 100 tonn. Utan fóru 238 tonn af stein- bít fyrir alls 28 milljónir eða 118 krónur hvert kíló. 225 tonn af skar- kola seldust á 42 milljónir króna eða 186 krónur að meðaltali og 125 tonn af sandkola seldust á 11 millj- ónir eða 90 krónur að meðaltali. Athygli vekur að aðeins fóru 87 tonn af þorski utan og var meðal- verð fyrir hann aðeins 106 krónur, sem að öllum líkindum skilar nokkru lægra verði til seljenda en fæst á innlendum fiskmörkuðum. Mest í gáma frá fiskiskipum í Útvegstölum, er þessum út- flutningi einnig skipt upp eftir út- flytjendum og leiðum á markaðinn. Þar kemur í ljós, að mest fer utan í gámum frá fiskiskipum, eða 2.270 tonn að verðmæti nærri 300 milljón- ir króna. Fiskiskipin sigldu sjálf utan með 1.150 tonn að verðmæti 124 milljónir króna og loks sendu vinnslustöðvar út 415 tonn í gámum að verðmæti 51 milljón króna. o CD o Mest selda netstýrikerfiö i heiminum í dag. NetWare frá Novell. Vi5 bjóöum þér til morgunfundar. & ,S<^# V # Novell erfrumkvöðull í netstýrikerfum og er nátengdari þeirri þróun.að tengja saman ólíkartölvur í eitt upplýsingakerfi en nokkurt annað fyrirtæki. Meðyfir65% markaðshlutdeild í netstýrikerfum heldur Novell áfram starfi sínu sem frumkvöðull í þróun netstýrikerfa. Fimmtudaginn 27. apríl n.k. ■ Framtíðarsýn Novell er: "Að tengja saman fólk, veita því aðgang að þeim upplýsingum sem það þarf og gefa því möguleika á að nýta sér sér þær upplýsingar - hvar sem er, hvenær sem er." ; • NetWare 4.1 Mikilvægur þáttur í framtíðarsýn NovellerNetWare4.1 netstýrikerfið, þróað með nútíð og framtíð í huga. # UníxWare 2.0 Þá hefur Novell hafið innreið sína í UNIX-heiminn með UnixWare. UnixWare 2.0 er öflugur þjónustu- miðlari í nútíma netumhverfi fyrir t.d. gagnagrunnsvinnslur. býðst þértækifæri til að kynnast framtiðarsýn Novell, þar sem sérstök áhersla er lögð á NetWare 4.1 og UnixWare 2.0. Fundarstaður; Scandic Hótel Loftleiðir, Þingsalur 1. Dagsetning: Fimmtudagurinn 27. apríl n.k. Tími: Frákl. 9.00 til 12.00. Ath.: Skráning þátttakenda og afhending gagna hefst kl. 8,30. Fyrirlesari: Lalit Nathwani, Brand Marketing Manager, Novell UK. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 25. apríl n.k. í síma 568-1665 eða faxið þátttökutilkynningu í 568-0664. Tæknival Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664 Skúmur ÍS 322 hefur nú verið keyptur til Húsavíkur Skúmur ÍS 322 fer til Húsavíkur Húsavík. Morgnnblaðið. SIGURÐUR Olgeirsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Húsavík hefur keypt skipið Skúm ÍS 322. sem er 240 tonn að stærð og ætlar hann að gera það út frá Húsavík. Skipinu fylgir um 500 tonna þorskígildiskvóti og hyggst Sigurð- ur gera það út á rækju og aðrar togveiðar. Hann tekur nú við skip- inu og siglir því til Akureyrar, þar sem smávægilegar breytingar verða gerðar á skipinu. en stefnt er að því að veiðar geti hafist inn- an skamms. Sigurður átti áður 180 tonna skip, Geira Péturs, sem hann hefur selt til Tromsö í Noregi. Þaðan keypti hann skipið fyrir nokkrum árum. Hinir norsku kaupendur koma hingað til um helgina til að sæka skipið. Minna flutt út frá frá Nýja-Sjálandi ÚTFLUTNINGUR sjávarafurða frá Nýja Sjálandi minnkaði um 5% á síðasta ári og nam alls 289.578 tonnum. Verðmætið minnkaði um 3%, aðallega vegna 20% samdrátt- ar í útflutningi á frystum fiski. Útflutningur á unnum sjávaraf- urðum minnkaði um 13% en fersk- fiskútflutningurinn jókst hins veg- ar um 16%. Utflutningur á bolfíski almennt var þó 17% minni en 1993 oso hitakútar úr ryðfríu stáli Eini hitakúturinn á V markaðnum úr ryðfriu stáli! J 30 ára frábær reynsla á þúsundum íslenskra heimila • 30/50/100/120/200 eða 300 lítra • Blöndunar- og öryggisloki fylgja • 20% orkusparnaður • Hagstætt verð Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28 TS 562 2901 og verðmætið 13% minna. Humarútflutningur dróst saman um 12% og var 2.925 tonn en mikil aukning, 54%, var í öðrum krabbadýrum, smokkfiski og skel- fiski. Smokkfiskútflutningurinn jókst um 78%, var 55.000 tonn; unninn kræklingur um 34%, var 714 tonn, og ferskur eða frosinn kræklingur um 19%, var 17.130 tonn. Danirmeð selveiðum DANSKIR dýraverndunarmenn hafa lagt blessun sína yfir tak- markaðar veiðar Norðmanna á selkópum að því tilskildu, að rétt sé staðið að aflífun þeirra og til- lit tekið til stofnsins. Annette Weber, ráðgjafi dönsku dýraverndunarsamtak- anna, segir, að samtökin hafi ekkert á móti selveiðum séu þær stundaðar með skynsamlegum hætti og hún bendir á, að í Græn- landi séu selir yfirleitt skotnir og drepist því strax. „Selurinn liggur næstum alltaf í fyrsta skoti og auk þess er sela- fjöldinn í Grænlandi svo mikill, að hann hefur veruleg áhrif á fisk- gengdina,“ segir Weber. Danskir dýraverndarmenn hafa meiri áhyggjur af sel, sem drukknar í netum, en af selveið- inni sjálfri og þeir hafa mótmælt því, að kóparnir séu rotaðir með kylfu. Þeir hafa einnig mótmælt þeirri aðferð rússneskra selveiði- manna að sprauta kópana með efni, sem á að drepa þá, en talið er, að það sé fremur seinvirkt. Þótt danskir dýraverndarmenn hafi tekið þessa afstöðu er ekki talið líklegt, að dýraverndarsam- tök í öðrum löndum muni fara að dæmi þeirra á næstunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.