Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
JÓHANNA Jakobsdóttir er einbeitt á svlp við vlnnu sína.
Morgunblaðið/Þorkell
MARTEINN Swift er að leggja lokahönd á apa sem sltur á stelnl.
HRAFNHILDUR Þórólfsdóttir með englana slna.
Idag, sumardaginn fyrsta,
verður opið hús í Myndlista-
skóla Reykjavíkur milli 11 og 19
þar sem nemendur í barna- og
unglingadeildinni sýna afrakst-
ur vetrarins. Þórný Jóhannsdótt-
ir leit inn og skoðaði hvað nem-
endur voru að fást við.
Ásýndar virðist stóra húsið á
Tryggvagötunni, þar sem Mynd-
listarskólinn í Reykjavík hefur
aðsetur sitt, fremur líflaust. En
þegar inn er komið kemur annað
í þ’ós.
Á tveimur efstu hæðunum er
líf og fjör frá morgni til kvölds.
Þó ríkir þarna mikil ró. Enda
segir skólastjórinn, Valgerður
Bergsdóttir, að sér finnist stund-
um eins og skólinn gegni svolitlu
sáluþjálparhlutverki í hröðu
borgarsamfélaginu. Á veggjum
hanga margbreytileg Iistaverk í
öllum regnbogans litum og hillur
eru fullar af ólíkum hlutum. Og
við borðin sitja nemendur og
fást við verkefni af ýmsum toga.
Barna- og unglingadeildir
Myndlistarskóla Reykjavíkur
eru tíu. Þar fá nemendur að
spreyta sig á mótun, teikningu
og málun og þau læra meðferð
efnanna og lita- og formfræði.
Þá eru fluttir fyrirlestrar um
myndlist og sóttar eru myndlist-
arsýningar. Börnin eru í hóp, tíu
saman, sem miðar að því að þau
öðlist færni í myndlist.
Valgerður Bergsdóttir segir
Allir hafa sköpun í sér
SUMARDAGSSYI\ill\IG I MYNDLISTASKOLA REYKJAVIKUR
að það séu ólíkir hlutir sem æf-
ist með því að vera í myndlist-
arnámi. „Hvort sem um er að
ræða undirbúning fyrir frekara
listanám eða almenna menntun
þá nýtist það vel,“ segir Valgerð-
ur. Ung böm sem era í myndlist-
arnámi ná oft betri færni í að
skrifa. Hendurnar þjálfast í leirn-
um.
Þau æfa samspil á auga og
hendi. Með því að velta fyrir sér
litasamsetningum og formum
verða bömin Iæs á umhverfí sitt,
hvort sem er á heimHi eða ann-
arsstaöar.
Valgerður segir marga nem-
endur skólans vera einkar hæfi-
leikaríka og „það eru margir
krakkar sem hafa verið hér sem
halda áfram í myndlist þannig
að vissulega er verið að leggja
grunn að ákveðnum þroska.“
— En hvernig er þetta með
getu og hæfileika barna tH dæm-
is á þessu sviði. Eru tH börn sem
eru ákafiega hæfileikarík og önn-
ur sem eru svo til hæfileikalaus?
„Það hafa allir sköpun í sér
og það er hægt að kenna öllum.
Morennbiaðíð/Þorkell _ Morgunblaðið/Þorkeli
ÁRNI Halldórsson með pressuna sem hann notar tll að þrykkja grafíkmyndir.
segir Árni. En ég hugsa meira
um formin en litina þegar ég er
að gera myndir. Og eiginlega hef
ég meiri áhuga á óhlutbundnum
myndum en myndum sem eru af
einhveiju ákveðnu."
Ámi er fiórtán ára og þetta
er annað árið hans í Myndlistar-
skólanum í Revkjavík og teikning
er uppáhalds fagið hans. En af
hverju fór hann í myndlistar-
skóla?
„Ég hef bara gaman af þessu.
En pabbi og mamma komu með
uppástunguna. Mig mundi
kannski langa tíl að verða mynd-
listarmaður, en ég er þó ekkert
að hugsa um það alvarlcga."
Árni segir að Erró sé einn af
hans uppáhaldsmyndlistarmönn-
um út af teikningunum.
Marteinn Swift hefur verið í
myndlistarskólanum í sjö ár en
segist ekki halda að myndlist-
arnám verði sérstaklega í fram-
tíðarskipulaginu hjá honum.
„Mér finnst ég ekki vera neinn
sérstakur listamaður en það er
gaman að hafa þetta sem áhuga-
mál,“ segir hann.
— Enhvaðertuaðlærahérna?
„Núna hef ég til dæmis verið
að vinna með leir. Ég er að búa
til apa úr leir og áður var ég að
gera engil. Hér læri ég hvaða
aðferðum á að beita við að móta
hann, þá verður maður að passa
að hann þorni ekki og springi,
svo dæmi sé tekið.“
Tvímælalaust. En listsköpun
höfðar ekki til allra og fólk hefur
mismunandi mikla ánægju af
þessu; er misnæmt fyrir því sem
það er að gera.“
Hrafnhildur Þórólfsdóttir sem
er fjórtán ára segir að sig hafi
lengi langað tH að fara í myndlist-
arskóla og lét drauminn rætast
í haust. Hún er að gera engla
núna. „Við fengum það verkefni
að gera engla,“ segir hún. „Ég
klippti þessar myndir út og set
svo lití í englana með svampi.“
HrafnhHdur segist ekki eiga
neinn uppáhaldsmyndlistarmann
af yngri kynslóðinni enda finnst
henni meira gaman að skoða
eldri myndlist.
Hún Jóhanna Jakobsdóttir er
að hefja fjórða námskeiðið sitt
hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur.
„Mamma spurði mig hvort mig
langaði ekki að fara þar sem ég
var alltaf að teikna heima hjá
mér,“ segir Jóhanna. „Mér finnst
eiginlega mest spennandi að
vinna í leir, það er svo gaman
að hafa leirinn í höndunum. En
teikning finnst mér erfið.“ Fíll-
inn sem hún er að vinna að er
fóðraður í leir þannig að hann
springi ekki í brennslu. „Fyrst
gerði ég mót af fíl úr pappír en
setti svo leir utan um mótið.“
— Og af hveiju valdir þú að
gera fíl?
„Mér fínnst fíll nyög fallegt
dýr. Þegar ég er að gera hann
reyni ég að passa upp á að hafa
hlutföllin rétt.“
— En manst þú eftir einhverj-
um uppáhaldsmyndlistarmanni?
„Mér finnst myndir eftir van
Gogh nyög flottar. Ég hef skoð-
að myndirnar hans í bókum. Við
erum oft látin skoða bækur f
tengslum við ákveðin verkefni
og svo eru stundum fyrirlestrar
um myndlist. Og það er nyög
skemmtilegt.“
Kann vel að meta Erró
Tígrisdýr eru viðfangsefni
Áraa Halldórssonar og hann seg-
ist hafa valið dýrin út frá fal-
legri mynd sem hann sá í bók.
Dýrin hans eru í öllum regnbog-
ans litum. „Ég hef svona marga
liti til að gera myndina líflegri,“