Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Amerísk tónlist
flutt á ísMús
ísMús-hátíðartónleikar hafa verið haldnir
árlega frá 1992. Á morgun, föstudaginn 21.
apríl kl. 20, hefjastfjórðu ísMús-hátíðartón-
leikar Ríkisútvarpsins í Hallgrímskirlgu.
Þórný Jóhannsdóttir skoðaði efnisskrána og
ræddi við hj ómsveitarstj órann Lukas Foss.
ÍSMÚS-dagskrá Ríkisútvarpsins
ber að þessu sinni yfírskriftina
Americana! Varpað verður ljósi á
fjölbreytta tónlistarhefð þeirra
þjóða og þjóðarbrota er byggja
heimsálfuna Ameríku: Allt frá inúít-
um í norðri til indíána í suðri. Kynnt
verður jafnt fagurtónlist sem al-
þýðutónlist, og tónlist fyrri alda og
samtímans.
Verkin á tónleikunum á föstu-
dagskvöld eru fjögur. Misa Criolla
eftir Ariel Ramirez, E1 Salon Mexico
eftir Aaron Copland, Adagio fyrir
strengi eftir Samuel Barber og
Chichester Psalms eftir Leonard
Bemstein. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands flytur öll verkin á tónleikun-
um auk einsöngvara og kóra.
Á tónleikunum sameinast tveir
virtir kórar ungs söngfólks, alls um
170 manns. Annars vegar Hamra-
hlíðarkórinn, og hins vegar Kon-
sertkórinn frá Whitefísh Bay í Wis-
consin-fylki í Bandaríkjunum, sem
kemur hingað gagngert af þessu
tilefni. í tilkynningu frá Ríkisút-
varpinu segir: „Saman flytja kór-
Morgunblaðið/Jón Svavarson.
UNGIJR nemur, gamall tem-
ur. Lukas Foss og Olafur Frið-
rik Magnusson á æfingu.
amir eina háleitustu tónsmíð Leon-
ards Bemsteins, Chichester Psalms,
fyrir kór, einsöngvara og sinfóníu-
hljómsveit." En stórviðburður tón-
leikanna er tvímælalaust koma
hljómsveitarstjórans og tónskálds-
ins Lukas Foss, en þetta er í fyrsta
sinn sem hann kemur til íslands.
Rýmum fyrir nýjum tækjum
Þvottavélar/Þurkarar ■ Eldavélar H Smátæki
fleira oq fleira ...
Fyrstir koma - fyrstir fá
ALLT AÐ'
iwmm
Ogfið laugardag frá 10-18
—
Ofnar
Helluborð
Suðurlandsbraut 16, sími 588 0500.
Foss, sem er Bandaríkjamaður, hef-
ur verið í fararbroddi í bandarísku
tónlistariífí í áratugi.
Foss segir að skipta megi efnis-
skránni í tvennt; „tvö verk eru með
suður-amerískum og mexíkóskum
áhrifum," segir Foss. „E1 Salon
Mexico eftir Copland er óskaplega
erfítt verk, en yndislegt að sama
skapi. Og þótt öfugsnúið virðist þá
má segja að E1 Salon Mexico sé
besta mexíkóska tónverkið sem
samið hefur verið en er þó ekki
eftir Mexíkóa. Þetta tónverk hafði
óskaplega mikil áhrif á mig og jafn-
vel enn meiri á Bemstein."
Misa Criolla er eftir argentínska
tónskáldið Ariel Ramirez og byggir
að hluta til á tónlistararfí frum-
byggja. íslensku einsöngvararnir
Bergþór Pálsson og Þorgeir J.
Andrésson taka þátt í flutningi
Misa Criolla. Sagt er að Misa Cri-
olla sé vitni um margbreytileika
þessarar víðfeðmu heimsálfu þar
sem það er hvorki evrópskt né Suð-
ur-Amerískt, en þar mætist austrið
og vestrið.
Getur verið erfitt að gera
tónskáldum til hæfis
Þótt Foss sé enn búsettur í New
York og starfi þar segist hann vera
hættur að vinna fyrir eina hljóm-
sveit eingöngu; „núna tilheyri ég
öllum heiminum, ekki aðeins einni
hljómsveit. Mér fínnst það meira
gaman. Ég ferðast óskaplega mikið
og stjóma hljómsveitum vítt og
breitt um Evrópu."
„Verk Bemsteins er mjög melód-
ískt og ákaflega spennandi taktlega
séð. Það er svona einhvers konar
blanda af tónsmíðum Bemsteins.
Þama mætast tvær hliðar á tónlist-
armanninum: Hliðin sem hann not-
aði meðal annars í vinsælli verkum
sínum svo sem söngleiknum West
Side Story og hliðin sem hann beitti
í háleitari tónleikaverkum sínum.“
Foss er samtíðarmaður Bem-
steins: „Ég þekkti Bemstein vel í
fímmtíu ár,“ segir Foss. „Allt frá
því að ég var fímmtán ára því við
vorum með sömu tónlistarkennar-
ana, og við unnum mikið saman,
ég stjómaði og hann spilaði eða
öfugt. Bemstein var mjög góður í
að semja tónlist sem var undir ólík-
um áhrifum. Hann gat blandað
saman þjóðlegri tónlist, djass, söng-
leikjum og fleiru í einu verki en það
heppnaðist hjá honum því það var
honum eðlilegt."
— En hvað er það sem þú stefnir
að í hljómsveitarstjóm?
„Ég stefni að því að fara með
verkin eins og tónskáldin myndu
gera. Yfirleitt er leið tónskáldsins
sú besta en stundum getur verið
erfítt að fínna út hver sú leið er.
Ég get sagt eina sögu af því: Það
var síðast þegar ég stjómaði Chic-
hester Psalms og þá var Bemstein
í salnum. Eftir tónleikana kom hann
til mín og sagði: „Ég var ekki
ánægður með hvemig þú fórst með
verkið mitt. Það var alltof hratt hjá
þér.“ „Of hratt,“ sagði ég. „Hvern-
ig má það vera. Ég fór eftir þínum
takti.“ „Nei, nei. Af hveiju hlustað-
ir þú ekki á plötumar mínar?“
spurði hann mig. „En það var ein-
mitt það sem ég gerði,“ svaraði ég.
En þá rann upp ljós fyrir Bem-
stein. „Já, nú skil ég, þú hefur hlust-
að á eldri útgáfuna." Þetta sýnir
hvemig flutningshraði verksins get-
ur breyst í eyrum tónskáldsins og
þannig getur verið erfítt að gera
því til hæfís.
En það sem ég reyni að gera er
að ná því fram sem tónskáldin gera;
setja tónlistina fram eins og hún
kom til þeirra og skilja hvað liggur
að baki sköpun þeirra."
Ólafur Friðrik Magnusson sópran
er aðeins 12 ára gamall og syngr
einsöng í Chichester Psalms. Hann
hefur sungið í kór í þijú ár og hef-
ur verið að læra einsöng í tvö. Nú
er hann í drengjakómum í Laugar-
neskirkju. Hann segist ekki vita
hvað röddin sín verið lengi í sópr-
an; „kannski tvö til þijú ár í viðbót
en það er mismunandi hvemig rödd-
in þroskast hjá strákum þegar þeir
fara í mútur. Sumir losna við svo-
kallaðar söngmútur og röddin
þroskast bara.“
Ólafur segir að sér fínnist Chic-
hester Psalms vera mjög skemmti-
legt verk. „Það er mjög sérstök
stemmning í því.“
Fagrir
munir
íKHÍ
ER íslenska handverkið ekki
löngu útdautt? Sú skoðun hefur
verið nokkuð útbreidd á undan-
förnum árum en Ingólfur Gísli
Ingólfsson lektor í smíðadeild
Kennaraháskóla íslands segir að
þetta sé að breytast. „Það er
ekki nauðsyn að taka svo sterkt
til orða,“ segir Ingólfur. „En
gamla handverkið er vissulega
ekki nógu útbreitt. Það sem við
erum að gera hér er að endur-
vekja og viðhalda gömlu hand-
verki.“
Ingólfur segir að nauðsynlegt
sé að þjálfa fólk bæði verklega
og fagurfræðilega. „Góður hand-
verksmaður, verður að hafa til-
finninguna fyrir efninu; þekkja
eigindir og lögmál þess. Hann
verður einnig að vera með fagur-
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson.
fræðina á sinu valdi til að geta
gert gott og fallegt handverk.
En sú skilgreining sem ég nota
á handverk er sá hlutur sem
bæði er gleðilegt að horfa á og
að meðhöndla."
í smíðadeild Kennaraháskóla
íslands er kennd leður-, málm-
og trésmíði auk hönnunar og
fagteikningar. Einnig fá nem-
endur kynningu í eldsmíði, plasti
ogsmelti.
í smíðadeild KHÍ er reynt að
nota íslenskan við og Ingólfur
segir að hann sé óskaplega
skemmtilegt efni. Opið hús í
Smíðadeild Kennaraháskólans
verður í Bolholti 37 í dag frá kl.
13-17.
1
I
>
t
>
\
i
i
i
i
I
i
i
i
i
i
i
I
i
i
í