Morgunblaðið - 20.04.1995, Side 40

Morgunblaðið - 20.04.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ + Bjarni Þ. Bjarnason fæddist í Reykjavík 15. nóvember 1924. Hann lést 11. apríl síðastliðinn. Bjarni var sonur hjónanna Ragnhildar Jóns- dóttur frá Núpi í Eyjafjallasveit og Bjarna Einarssonar frá Holtahólum á Mýrum. Hann var 6. í röðinni af sjö bræðrum og eru nú þrír þeirra á lífi, Guðjón Steinar, Baldur og Sigurður Gísli. Látnir eru Sverrir, Guðbrand- ur og Haraldur. Fyrri kona Bjama var Svava Jónsdóttir, f. 26. júlí 1928, d. 9. febrúar 1974, og eignuðust þau sex böm: 1) Láras, f. 28. apríl 1947, d. 6. júní 1950. 2) Jón Halldór, f. 30. júlí 1949, kvænt- ur Elísabetu Elíasdóttur og eiga þau þrjú börn. 3) Ragn- hildur, f. 26. apríl 1951, gift Birgi Reynissyni og eiga þau - tvær dætur. 4) Láms, f. 18. ÞEGAR maður er lítill er allt í kringum mann svo stórt. Faðmur- inn hans afa var einn af þessum stóru hlutum. En ólíkt öllu öðru sem minnkaði eftir því sem við stækkuð- um hélt þessi faðmur áfram að vera stór og bjóða upp á sömu hlýju og umhyggju og alltaf. En nú er hann afi okkar farinn og eftir situr sár söknuður eftir hlýju hans, hlátri og væntumþykju. Alltaf var manni tekið fagnandi þegar við heimsóttum Vallhólmann. Afi sat þá yfírleitt í eldhúshorninu sínu eða í homi sjónvarpssófans. Rabbaði hann þá við mann á létt- ari nótunum milli þess sem hann renndi vasagreiðunni í gegnum hár- ið og bauð gotterí sem helst vpr með tilboðsmiða, því það var lang- besta nammið. Á sumrin í góðu veðri gastu ver- ið viss um að hitta afa úti í garði þar sem hann sat í sólbaði með 3 efstu tölumar hnepptar frá skyrt- unni og sötraði rauðvfn. Amma grillaði og hann státaði sig af garð- inum, bamabörnunum og það fór ekki framhjá neinum að honum lík- aði lífíð vel. Síðasta sumar fórum við öll á ættarmót með afa. Þar var hann í essinu sínu með öll bömin sín í kringum sig. Var hann þar manna hressastur, sprellaði, söng og hélt uppi gleði fram eftir nóttu. Fóru svo allir glaðir heim og var mikið talað um þessa ferð þegar við kom- um heim. Það eru margir sem eiga eftir að sakna hans afa. Því það var ekki aðeins ijölskylda hans sem fékk að njóta gjafmildi hans, góð- vildar og gleði. Heldur einnig fjölda- margir ættingjar og vinir. Afí var sterkur persónuleiki sem víst er að mun ekki gleymast þótt hann sé farinn því: „Ástlaus erum við dauð- leg, ódauðleg þegar við elskum." (Karl Jaspers). Við viljum að endingu minnast afa okkar með eftirfarandi línum: Elsku besti afi minn, nú kalla ég til þíft og bið þess heitt og vona að þú heyrir orðin M(n. Eg man þegar ég var lítil, þú tókst mig í þinn faðm, hélá mér fast og lengi svo ég umhyggju þína fann. Þú áttir gnótt að gefa af gleði og af ást, og þegar Ieitað var hjálpað þú ekki á liði þínu lást. En núna ertu farinn og þín ég sakna sárt, þó veit ég það og vona að þú finnir frið og sátt. Elsku amma, megir þú fínna huggun og sátt í sorg þinni. 'Ágústa og börn, Kristín María, Elías Ami og Bjami Þorgeir. október 1954, kvæntur Hrafn- hildi Sigurðardótt- ur og eiga þau þrjú böm. 5) Svava, f. 21. maí 1964, gift Sveinbirni Imsland og eiga þau fjögur böm. 6) Bjarni, f. 27. janúar 1967, sambýliskona hans er Kristín Þor- steinsdóttir og eiga þau eina dótt- ur. Barnabama- börn eru tvö. Bjarni hóf nám í gullsmíði hjá Óskari Gíslasyni gullsmið, stundaði nám við Iðn- skólann í Reykjavík, 1942-46, lauk sveinsprófi í greininni og starfaði að henni alla tið síðan. Síðustu árin í samstarfi við Þórarin Gunnarsson gullsmið á Hverfisgötu 49 í Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Ingibjörg Magnúsdóttir. Utför Bjarna fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. apríl, og hefst athöfnin kl. 13.30. Okkur hjónum var brugðið þegar Inga hringdi til okkar sunnudaginn 9. apríl og sagði að Bjarni hefði verið fluttur á sjúkrahús íjársjúkur. Við áttum bágt með að trúa að þetta væri svona alvarlegt, eins og kom á daginn, því að að kvöldi sunnudags var sagt að litlar líkur væru á því að hann myndi lifa þetta af. Á föstudeginum hafði verið mjög létt yfir Bjarna, því hann var að undirbúa ferð sína og Ingu til Homafjarðar. Þar ætluðu þau að dvelja yfír páskahátíðina hjá börn- um og bamabömum. En ekkert varð af þeirri ferð heldur komu bömin suður til að vera við dánar- beð föður síns. Það er margs að minnast um góðan vin og meðeig- anda til fjörutíu ára. Við byijuðum samstarf 1955, fyrst á Bergstaða- stræti 3, síðan á Laugavegi 28, en síðan keyptum við húsnæði á Hverf- isgötu 49, þar sem við höfum verið með verkstæði síðastliðin 24 ár. Það var árið 1944 sem við Bjami kynnt- umst. Þá vorum við báðir í Iðnskól- anum í Reykjavík í gullsmíðanámi, hann var ári á undan mér. Bjami nam hjá Óskari Gíslasyni gullsmið. Fljótlega að námi loknu fluttu þau Svava heitin, fyrri kona Bjama, að Árnanesi í Homafírði. Þar hafði Bjami verið í sveit á unglingsárum. Með þeim fluttu hjónin Bjami Hall- mundsson og Hjördís Pétursdóttir. Þeir nafnar höfðu báðir verið í námi hjá Óskari Gíslasyni gullsmið. Það var erfítt fyrir ung hjón að fá hús- næði í Reykjavík í þá daga. Þau höfðu fengið húsið í Árnanesi til afnota en það var í mikilli niður- níðslu og þurfti þvf mikillar lagfær- ingar við. Þegar austur kom var tekið til hendinni við standsetningu á húsakynnum og tókst svo vel til að standsetja húsakynnin í Áma- nesi að sveitingur þeirra kölluðu húsið Glæsibæ. Þar kom fram hversu mikill hagleiksmaður Bjami var á málm, tré og fleira. Þegar Bjami kom aftur suður til Reykja- víkur bar fundum okkar saman að nýju. Þá var hann nýbúinn að fá aðstöðu hjá Jóni Dalmarssyni gull- smið, en ég var hins vegar með húsnæði á Bergstaðastræti 3. Það var mikil gæfa fyrir mig að fá svona góðan og traustan dreng sem félaga og meðeiganda. Bjarni var afbragðs gullsmiður, það lék allt í höndunum á honum, það virtist ekkert ómögu- legt í gullsmíðinni hjá Bjarna. Oft var það sem hann smíðaði sér tæki og tól til að flýta fyrir smíðinni, ef það átti að smíða fleiri en eitt stykki af gerð. Við hjónin þökkum Bjama og Svövu öll góðu árin sem við átt- um saman í Auðbrekkunni. Við byggðum saman húsið í Auðbrekku 23, árið 1958 ásamt vinum okkar MINIMINGAR Guðna og Guðnýju og margar skemmtilegar minningar eigum við frá þeim tíma. Alltaf var stutt í hláturinn hjá Bjarna og margar góðar sögur sagðar af austurbæjar- strákunum í Arnanesi, þá var oft mikið hlegið því Bjarni hafði mjög góða frásagnarhæfileika. Það var mikil sorg hjá öllum þegar Svava heitin lést svo skyndilega, árið 1974, ung móðir, aðeins 46 ára, tekin frá eiginmanni og börnum. En Bjami stóð sig í þessu eins og svo mörgu sem hann hefur þurft að takast á við. Bjarni var mikill gæfumaður er hann kynntist seinni konu sinni, Ingibjörgu Magnúsdótt- ur, sem hefur reynst börnunum hin besta móðir og barnabörnunum ein- stök amma. Það var gaman að sjá hvað þau Inga og Bjami vom sam- rýnd og nutu hverrar stundar er þau voru saman. Elsku Inga mín, Jón, Ragnhildur, Lárus, Svava og Bjami. Blessuð sé minning um góðan dreng. Guð blessi ykkur öll á þessari erfiðu stundu. Ásta og Þórarinn. Mig langar að minnast tengda- föður míns Bjarna Þorgeirs Bjarna- sonar með örfáum orðum. Fráfall hans bar skjótt og óvænt að. Eflaust hefur hann sjálfur kunnað því vel. Hann hefði ekki viljað stríða lengi við heilsuleysi, eða vera upp á aðra kominn, hann sem alltaf var veitandinn og vildi öllum hjálpa. Ég sé hann fyrir mér sýsla eitt og annað með litlu afabörnunum sínum sem vom hans stolt og yndi og ég minnist hans einnig á gleði- stundum fjöiskyldunnar þegar hún var öll saman komin. Ætíð tengj- ast þessar stundir gleði og hlýju. Hann var Ijúfmenni og öðlingur, gleðimaður, elskaður og virtur, ekki aðeins af sínum nánustu held- ur af öllum sem honum kynntust og urðu honum samferða einhvers- staðar á lífsleiðinni eins og undirrit- aður sem kynntist honum fyrir 35 ámm. Fyrst sem nágranni og vinur barna hans og síðar sem tengda- sonur. Minningar em margar og mikl- ar, gleðistundir í Vallhólmanum, ferðir austur og vel heppnað ættar- mótið í sumar þar sem við vorum öll saman komin ásamt öllum ætt- ingjunum. Þá naut hann sín glaður og reifur. Bjarni minn, þökk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur öll í gegn- um árin. Elsku Inga mín, guð styrki þig í sorgum þínum. Þú hefur misst mikið eins og við öll, en minningin lifir um ljúfan mann og góðan. Birgir Reynisson. Nú kallið er komið og eins og svo oft var það fyrirvaralítið og aðdragandinn stuttur. Tíminn eins og stöðvast um stund. Manni fínnst eins og það geti ekki verið að hann sé dáinn, hann sem ávallt var svo hress og kátur. En þegar Bjarni var annars vegar varð aldurinn aldrei annað en af- stæður. Léttleikinn sem fylgdi hon- um varð til þess að maður gerði sér ekki grein fyrir því hvað hann var í rauninni orðinn gamall. Þegar við Svava dóttir hans urð- um vinkonur í gaggó kynntist ég stórfjölskyldunni í Vallhólmanum. Þar var alltaf opið hús og tóku Bjarni og Inga fagnandi öllum þeim sem komu. Það var því oft líf og fy'ör þar sem setið var og spilað og spjallað um heima og geima að ógleymdum gamansögum Bjarna af mönnum og málefnum. Eftir því sem við urðum eldri, fækkaði heimsóknunum í Vall- hólmann en það var sama hvort liðu mánuðir eða ár milli heim- sókna, alltaf voru viðtökurnar jafn innilegar. Minnisstætt er afmælið hennar Svövu sem haldið var á Hornafirði síðastliðið vor. Þar voru systkinin og fjölskyldur þeirra mætt ásamt Bjarna og Ingu. Og eins og venju- lega var glaumurinn og gleðin alls- ráðandi þá sem fyrr þegar ég hitti þau. Bjarni eldri fór þar með vísu- helminga sem Lárus og Bjarni yngri sáu um að botna og varð úr því ein sprenghlægileg vitleysa. Bjarni tók síðan lagið fyrir okkur og spilaði á gítarinn af mikilli inn- lifun og alkunnri snilld. Og eins og áður varð aldurinn afstæður, allir voru jafningjar. Elsku Svava mín, Inga og þið öll, mínar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Megi góður Guð gefa ykkur styrk til að lifa með sorginni. Brosum í gegnum tárin og minnumst hans með gleði — annað hefði sá Bjarni Þorgeir sem ég þekkti ekki viljað. Heiða Jóna Hauksdóttir og fjölskylda. Kæri Bjarni, það er sárt að þurfa að kveðja þig núna, þegar allt átti að vera svo skemmtilegt. Páskar framundan og ferð á Hornafjörð, til að hitta börn, tengdabörn og barnabörn. Fyrir hugskotssjónum renna minningar marga áratugi aftur í tímann, þegar ég kom í fjöl- skylduna. Á heimili þínu var alltaf líf og fjör, allir vildu þar vera og alltaf jafn velkomnir. Það þurfti ekki stórt húsnæði til að laða fólk að. Það má segja að það sem þín fjölskylda gerði vorum við þátttak- endur. Það þótti ekki skrítið hvað börn löðuðust að þér, alltaf hress og kátur, enda fannst börnum okk- ar Sigga bróður fjölskyldurnar tvær nánast sem ein. Það er margs að minnast, ferða vítt og breitt, svo sem í Borgarfjörð um verslunar- mannahelgi til að vera í námunda við unglingana okkar á skátamóti. Helgi við Hítarvatn í slagviðri. Föst á Klaustri vegna sandstorma á Mýrdalssandi, en það var alveg sama hvar verið var og við hvaða aðstæður, þú varst alltaf í góðu skapi. Enda vildu börnin okkar Sigga bróður alltaf fá að vera þar sem þú og þín fjölskylda voruð. í gegnum tíðina fannst mér þið bræðurnir, Siggi og þú, vera nán- ast sem einn maður. Alltaf talað um báða ef annar var nefndur. Það er því stórt skarð fyrir skildi, nú þegar þú ert farinn yfir móðuna miklu. Við eigum eftir að minnast þín oft í huganum svo og upphátt, allra gleðistundanna. Hvað þú hafðir gaman af okkar barnaböm- um, ekki síður en þínum eigin, enda fannst þeim að ef Bjarni frændi var nefndur, þá væri' gam- an. Eiginkonurnar þekkti ég báðar og geri ég ekki þar upp á milli. Heimilin voru jafn elskuleg, Auð- brekkan og Vallhólminn. Þar var gott að vera með ykkur Ingu í garðinum ykkar, grilla, með með- læti, sem öllum þótti gott. Kæri Bjarni, við vitum að það er vel tekið á móti þér, af þeim sem á undan fóru. Mér er svo sem sama þó sig hún veröld ygli mínum bát á mínum sjó mína Ieið ég sigli. (Gunnl. P. Sigurbjörnsson.) Við vottum Ingu, börnum, barnabörnum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð í sorgum þeirra. Hjördís, Sigurður, Guðrún, Sigrún, Steinar, Ragnhildur og fjölskyldur. Kvaddur er í dag hjartkær tengdafaðir minn og vinur Bjarni Þ. Bjarnason. Það var fyrir um 16 árum sem ég kynntist Bjarna, það var þegar ég og Lárus sonur hans fórum að vera saman. Þá strax sýndi hann mér hjartahlýju sína og gleði. Seinna er ég flutti sem tilvon- andi tengdadóttir inn á heimili hans og Ingu, tóku þau mér opnum örm- um. Þá bjuggu fyrir í húsinu þeirra í Vallhólma, börn, tengdabörn og bamabörn, sem lýsti best hversu mikill fjölskyldumaður hann var. Á mannmörgu heimilinu ríkti gleði, gestrisni og greiðasemi hús- BJARNIÞ. BJARNASON bænda réð þar ríkjum. Margur vin- ur og vandamaður gat þangað leit- að og sumir átt þar húsaskjól til lengri eða skemmri tíma. Bjarni var gleðinnar maður, naut lífsins og tilverunnar til hinstu stundar og við sem vorum í kringum hann nutum þess þannig að í samvistum við hann mku áhyggjur og amstur daganna út í veður og vind. En nú er komið að leiðarlokum. Léttleiki og glens Bjarna heyrir nú minningum til. Söknuðurinn er sár, en minningar um góðan, um- hyggjusaman vin og tengdaföður munu fylgja mér um ókomin ár. Elsku Inga, Nonni, Ranka, Lalli, Svava, Bjarni og fjölskyldur, megi minning um góðan eiginmann, ástríkan- föður, tengdaföður, afa og langafa veita ljósi í líf ykkar allra. Við sem eftir lifum huggum okk- ur við að Bjarni er nú í góðum höndum og segjum: „Jesús, bróðir vor og frelsari. Þú þekkir dánar- heiminn. Fylgdu vini vomm, þegar vér getum ekki fylgst með honum lengur. Miskunnsami faðir, tak á móti honum. Heilagi andi, huggar- inn, vertu með oss. Amen.“ Hrafnhildur Sigurðardóttir. Mig langar til að minnast hans tengdapabba með nokkram orðum. Ég kynntist Bjarna fyrir fjórum árum. Það var vor þegar mig bar fyrst að garði í Vallhólma 18. Dyrn- ar voru opnaðar upp á gátt og húsbóndinn bauð mér brosandi að ganga í bæinn. Ég fann að ég var svo sannarlega velkomin, þá og allar götur síðan. Það sem ég tók strax eftir var þessi mikla hlýja sem einkenndi Bjarna og gestrisni. Ég var hálf- feimin í fyrstu, en feimnin hvarf fljótt, það var ekki hægt að vera feimin við hann Bjarna, alltaf svo stutt í hláturinn sem var svo smit- andi og sem hreif mann með sér, hann var sannkallaður húmoristi. Á lífsleiðinni verður á vegi manns fjöldinn allur af fólki, sumir standa upp úr og hafa áhrif á mann og fylgja alla tíð í huganum þó séu löngu gengnir, það á við um Bjarna. Lífsfjör hans, góðlæti, glaðlyndi og örlæti áttu fáa sína líka. Mér fannst tengdapabbi lifa mjög ríku lífí, hann átti stóra fjöl- skyldu og stórt hjarta. Fjölskyldan var honum allt, enda naut hann þess að fá „krakkana", bamabörnin og barnabarnabörnin í heimsókn og það var gagn- kvæmt. Það leið varla sá dagur að hann afi heilsaði ekki upp á sonar- dótturina á neðri hæðinni og hún trítlaði á móti honum með útrétta arma. Þau voru miklir vinir. Henni þótti svo ósköp vænt um hann afa sinn, hennar missir er mikill, en mamma og pabbi hjálpa henni að halda í minninguna um Bjarna afa. Síðustu dagana var kominn ferðahugur í Bjama, þau Inga voru á leiðinni austur á Höfn á skírdag til að heimsækja fólkið sitt þar. Þau ætluðu að dvelja þar yfír páskana eins og þau gera svo oft. Hann var búinn að vera sérstaklega léttur og kátur, veturinn að baki og sum- arið framundan. En leiðin lá ann- að. Ekki hélt ég að ég myndi fylgja honum tengdapabba til hinstu hvílu þessa páska, mér fannst hann eiga svo mikið eftir. Ég á eftir að sakna þess að heyra ekki lengur óminn af gömlum Dixieland og dillandi hlátur hans. Það líður langur tími áður en ég venst því að hann afi heilsi ekki upp á okkur mæðgurnar um tíu- leytið á morgnana eins og hann var vanur að gera. Mér þótti nærvera hans svo sjálf- sögð, en lífið gaf og lífíð tók. Bjarni minn, takk fyrir allt og allt, minn- ing þín er ljós í lífi mínu. Inga mín, Siggi bróðir, Nonni, Ranka, Lalli, Svava og Bjarni minn, Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Kristín Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.