Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 47
MINNINGAR
JON
PÉTURSSON
+ Jón Pétursson
var fæddur 4.
mars 1918 að
Hauksstöðum í Jök-
uldal. Hann lést í
Borgarspítalanum
8. apríl sl. Jón var
jarðsunginn frá
Háteigskirkju 19.
april sl.
KVADDUR var á mið-
vikudag góður vinur
okkar fjölskyldunnar,
Jón Pétursson. Kynni
okkar hafa staðið yfir
í hartnær 45 ár, eða
allt frá því að móðir mín var með
okkur systumar sumarlangt að
Reykjum á Laugarbakka þar sem
faðir okkar var alinn upp. Þá var
Jón þar við smíðar á nýju íbúðar-
húsi og þar kynntumst við honum,
og aldrei veit ég til þess að skugga
hafí borið á þau kynni okkar.
Þegar ég lít til baka finnst mér
ég alltaf hugsa um í einu Jón og
svo Land Roverinn, alltaf ók hann
um á þeirri tegund. Og ekki var
nú verið að pússa og bóna á hverj-
um degi, enda var Land Rover til
margra hluta nýtilegur. Ég minnist
margra ferðalaganna sem farið var
og oft var Jón með okkur í þeim
ferðum. Einnig fóru þeir félagamir,
pabbi, afi Jón og fleiri mætir menn
í margan góðan veiðitúrinn t.d. upp
á Amarvatnsheiði og á fleiri staði.
Það voru merkilegir veiðitúrar, hálf-
gerðir hrakningar, það snjóaði
kannski niður í miðjar
hlíðar, gengið var á
undan jeppanum í veg-
slóðum vegna þoku eða
ófærðar vegna bleytu
en föðurlöndin voru
með og nóg nesti og
þá var allt í þessu fína
þó svo veiðin væri
kannski lítil. Þetta vom
eftirminnilegar ferðir
og höfðu þeir allir gam-
an af.
Þegar ég var 16 ára
unnum við saman í
heilt sumar hjá Vöm-
leiðum hf. og í hádeg-
inu dag hvern keyrðum við á Land
Rovernum heim til foreldra minna
í hádegismat. Þá var oft gaman hjá
okkur.
Vinur okkar Jón var áreiðanlega
dulur maður sem ekki bar tilfinn-
ingar sínar á torg. Hann missti
konu sína þetta sumar frá þremur
ungum bömum, elsta barnið Qög-
urra ára og yngsta fímm mánaða.
Þá vom erfíðir tímar hjá vini okk-
ar. Ég hitti Jón ekki oft á hinum
síðari ámm vegna búsetu minnar
fyrir norðan, en þegar við hittumst
var sami hlýleikinn og þétta handa-
bandið til staðar.
Jón tók stóran þátt í sorg okkar
fjölskyldunnar fyrir tæpum tveimur
ámm þegar faðir minn lést. Ég
vona að pabbi minn hafí nú fengið
að taka á móti Jóni vini okkar á
leið sinni yfír til nýrra heimkynna
og leiða hann til fundar við ástvini
sína sem á undan vom famir. -
Ég votta börnum hans mína
dýpstu samúð. Þið áttuð góðan föð-
ur.
Vertu sæll að sinni, við fjölskyld-
an biðjum þig fyrir góðar kveðjur.
Vigdís Kjartansdóttir.
Það var alltaf jafn spennandi og
gaman þegar Land Roverinn hans
Jóns renndi í hlaðið í Mörtungu.
Þá átti maður alltaf von á ein-
hveiju góðu, að minnsta kosti faðm-
lagi og mola úr „meðalapokanum"
hans Jóns.
Ég var svo heppin að fá að taka
þátt í æði mörgu með Jóni og krökk-
unum hans. Það var t.d. skropþið
í bíltúra fram í sjoppu til að fá sér
vélarís, í berjamó, upp að Seljalandi
til að fá svona „alvöm“ gúmmískó
og jafnvel alla leið til Víkur, bara
í skoðunarferð í kaupfélagið þar.
Ég gleymdist nú reyndar einu sinni
þar en það var nú í góðu lagi, Jón
sneri bara við og sótti mig. Þau
voru líka æði mörg skiptin sem ég
fékk far með Jóni og Land Rovem-
um í sveitina að vori og aftur heim
að hausti.
Hann var einstaklega hjartahlýr
og blíður maður, hann Jón, og allt-
af tilbúinn að rétta fram hjálpar-
hönd ef með þurfti. Því fékk ég svo
sannarlega að kynnast eins og svo
margir fleiri. Bömunum mínum
hampaði hann og gaf þeim mola
eins og mér forðum daga og ég er
þakklát fyrir að hafa átt hann að.
Elsku Eiríkur, Aðalbjörg, Jóna
Björk og aðrir aðstandendur. Ég
votta ykkur alla mína samúð, það
er sárt að kveðja en minningin um
góðan mann mun ávallt vera til
staðar og verma hjörtu okkar.
Þórunn.
SIGRIÐUR
ÞORGERÐUR
GUÐJÓNSDÓTTIR
+ Sigríður Þor-
gerður Guð-
jónsdóttir var fædd
að Kirkjubóli,
Innri-Akranes-
hreppi, 10. október
1910. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 14. april sl.
Hún var næstelst
af sex systkinum og
eru fjögur þeirra á
lífi. Foreldrar Sig-
ríðar voru Guðjón
Jónsson, bóndi, og
kona hans, Ólöf
Þorbergsdóttir.
Þau bjuggu síðast i Melkoti,
Leirársveit. Hinn 15. desember
1933 giftist Sigríður eftirlif-
andi manni sínum, Haraldi
Gísla Bjarnasyni, en hann var
sonur Bjarna Brynjólfssonar og
Hallfríðar Sigtryggsdóttur.
Þau Sigríður og Gísli byggðu
hús á Mánabraut 9 á Akranesi
og bjuggu þar allt til ársins
1986 er þau fluttu á Dvalar-
heimilið Höfða. Börn þeirra eru
þrjú: 1) Guðjón, kvæntur Her-
disi Magnúsdóttur og eiga þau
tvö börn; 2) Bjarnfríður, sem
gift er Sigurði Hjálmars.syni og
eiga þau þrjú börn; 3) Ólöf, sem
er fráskilin og á einn son.
Barnabarnabörnin eru þrjú.
Sigriður verður jarðsungin
frá Akraneskirkju í dag, 21.
apríl.
hittum gamlar góðleg-
ar og hlýjar konur.
Hún amma mín var ein
af þeim hópi. Þó að
langt sé síðan ljóst var
að hveiju stefndi í
veikindum hennar og
ég hélt að ég væri
búin að sætta mig við
að hún yrði frá okkur
tekin, er ekki hægt að
segja að ég hafí verið
viðbúin þegar stundin
rann upp. Anægja yfir
að hún sé nú búin að
fá langþráða hvíld og
söknuður vegna horfinna gleði-
stunda skiptast á í huga mér. Gaml-
ar minningar um brosmilt andlit
hennar, heimabakað brauð og
kleinur, óendanlega vinnusemi,
óeigingirni og lifsgleði ylja mér á
sorgarstundu. En gömlu revíu-
söngvana, sem þú kenndir mér og
ég er búin að gleyma hluta af,
syngjum við ekki framar saman.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Að endingu vil ég þakka starfs-
fólki á E-deild Sjúkrahúss Akra-
ness kærlega fyrir umhyggju fyrir
ömmu, en þar dvaldi hún síðustu
ár ævi sinnar.
Sigríður Sigurðardóttir.
RAGNAR
ÓLAFSSON
Ragnar Ólafsson kaupmað-
ur fæddist í Reykjavík 19.4.
1925. Ragnar verður jarðsettur
frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 12. apríl kl.
13.30.
HÚN amma mín, Sigríður, er látin.
Vinkona mín og ég töluðum oft um
„hinar dæmigerðu ömmur“ ef við
Sjábu
hlutina
ívíbara
samhengi!
HVER var Ragnar kaupmaður?
Þegar stórt er spurt verður oft fátt
um svör en fyrir okkur var hann
góður maður. Ef himnaríki er til
þá er Ragnar örugglega þar að
finna.
Ragnar var góður vinur okkar
félaganna frá því við munum eftir
okkur. Hann rak litla sjoppu í Laug-
ameshverfi og þar vorum við tíðir
gestir. Hann var þar alla daga nema
örfáa þegar systir hans var fyrir
hann. Hann var fljótur að kynnast
manni og örugglega fjcirugasti
sjoppumaður bæjarins. Ósjaldan
komum við til Ragga og fengum
okkur sígó og kók meðan við spjöll-
uðum við hann. Hann hafði alltaf
nýjar fréttir að færa og sló á létta
strengi. Hver man ekki eftir sögun-
um um klerkinn, málningardósina
og stórmennið sem var með ríku
konunum á Hótel ísland? Hann
þekkti okkur strákana alla með
nafni og þrátt fyrir háan aldur var
alltaf jafnmikill húmor í Ragga.
Ragnar var góðhjartaður maður og
vildi öllum vel. Ef við vorum fátæk-
ir lánaði hann okkur bara fyrir þvi
sem við þurftum og hann átti það
til að gefa okkur sætindi úr búðinni.
Já, við komum alltaf í góðu skapi
út úr Raggasjoppu. Ef við vorum
eitthvað dufír í dálkinn fórum við
til Ragga og hann hresti okkur með
sögum og nýjum fréttum úr hverf-
inu og út fórum við með bros á
vör. Að hætta að fara til Ragga er
vissulega mikil breyting og hverfið
allt verður með öðrum blæ. Hvað
sem um okkur félagana verður
munum við alltaf sakna stundanna
í Raggasjoppu.
Blessuð sé minning þín, Ragnar
Ólafsson, við vitum að þú ert
góðum stað.
Jóhann Svavar Þorgeirsson
og Bergsteinn Þór Jónsson.
Morgunblaðið/Arnór G. Ragnarsson
SVEIT Ólafs Lárussonar spilaði vel í íslandsbankamótinu ef und-
an er skilinn fyrsti þriðjungur mótsins. Þeir uppskáru silfurverð-
launin og var myndin tekin við verðlaunaafhendinguna. Talið frá
vinstri: Ragnar Önundarson framkvæmdastjóri íslandsbanka, en
hann afhenti verðlaunin, Hermann Lárusson, Fríðjón Þórhalls-
son, Erlendur Jónsson, Þröstur Ingimarsson og Ólafur Lárusson.
BBIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Suðumesja
Miklar sviptingar eru í aðaltvímenn-
ingnum sem nú stendur sem hæst.
Lokið er 9 umferðum af 23 og er
staða efstu para nú þessi:
BirkirJónsson-BjamiKristjánsson 86
Guðjón S. Jensen - Gísli R. ísleifsson 74
Gunnar Siguijónss. - Högni Oddsson 69
Dagur Ingimundarson - Siguijón Jónsson 65
Eyþór Jónsson - Garðar Garðarsson 63
KarlG.Karlss.-ÓliÞórKjartanss. 63
Hæsta skor síðasta spilakvöld var
þessi:
Guðjón S. Jensen - Gísli R. ísleifsson 80
BirkirJónsson-BjamiKristjánsson 79
GunnarSiguijónss.-HögniOddsson 62
EyþórJónsson-GarðarGarðarsson 45
KarlG.Karlss.-ÓliÞórKjartanss. 32
Næstu 5 umferðir verða spilaðar
mánudaginn 24. apríl. Keppnisstjóri
er ísleifur Gíslason.
Bridsfélag Kópavogs
Síðastliðið fimmtudagskvöld lauk
butlerkeppni Bridsfélags Kópavogs.
Lokastaðan er:
RagnarJónsson-ÞórðurBjömsson 144
Ármann J. Lárusson - Haukur Hannesson 87
JúlíusSnorrason-ÓmarJónsson 86
Halldór Þorvaldsson - Jón Egilsson 83
Jón Andrésson - Sæmundur Bjömsson 7 2
Hæstu skor kvöldsins hlutu:
Helgi Víborg—Ólafur H. Ólafsson 48
Hafliði S. Magnússon - Þórður Jörundsson 46
JúlíusSnorrason-ÓmarJónsson 37
RagnarJónsson-ÞórðurBjömsson 36
SigurðurSiguijónss.-RagnarBjömss. 24
Næst verður spilað, fyrsta fimmtu-
dagskvöld eftir páska, þann 20. apríl.
Þá hefst tveggja kvölda Board a Match
keppni. Skráning verður á staðnum
og er aðstoðað við myndun sveita.
Spilastaður er Þinghóll, Hamraborg
11, Kópavogi. Spilamennska hefst kl.
19.45 stundvíslega.
Briddeild
Barðstrendingafélagsins
NÆSTA keppni deildarinnar er
tveggja kvölda tvímenningur, Firma-
keppni sem spilaður veður mánudags-
kvöldin 24. apríl og 1. maí nk. kl.
19.30 í Þönglabakka 1. Deildin hefur
fyrirtæki en vantar spilara, því eru
allir spilarar velkomnir.
Upplýsingar og skráning í síma
71374 (Ólafur), og í Þönglabakka 1
hjá BSÍ, síma 879360, þá gefur spila-
stjórinn ísak Öm Sigurðsson upplýs-
ingar í síma 632820 á vinnutíma.
Vetrar Mitchell BSí
Föstudaginn 14. apríl var spilaður
einskvölds tölvureiknaður Mitchell tví-
menningur með forgefnum spilum. 36
pör spiluðu 15 umferðir með 2 spilum
á milli para. Meðalskor var 420 og
efstu pör i hvorri átt vom:
NS-riðiU
HalldórÞorvaldsson-KristinnKarlsson 540
LofturÞórPétursson-AntonValgarðsson 517
JóhannesÁgústsson-FriðrikFriðriksson 466
Sturla Snæbjömsson - Þórir Guðjónsson 449
AV-riðill
GuðrúnJóhannesd.-BryndísÞorsteinsd. 508
Hrafnhildur Skúladóttir - Jömndur Þórðarson 505
Guðjón Sigurjónsson—Helgi Bogason 497
RúnarEinarsson-SveinnAðalgeirsson 493
Mánudaginn 17. apríl var einnig
spilaður einskvölds tölvureiknaður
Mitchell tvímenningur með forgefnum
spilum. Þátttaka var góð, alls spiluðu
34 pör 15 umferðir með 2 spilum á
milli para. Meðalskor var 420 og best-
um árangri náðu:
NS-riðill
Karl Sigurhjartarson - Snorri Karlsson 540
SigurðurÁmundason-JónÞórKarlsson 520
Guðbrandur Guðjohnsen - Magnús Þorkelss. 463
FriðrikJónsson-SævarJónsson 459
AV-riðill
Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 523
Guðmundur Sigurbjömss. - Nicolai Þorsteinss. 520
Óli B. Gunnarsson - Jón V. Jónmundsson 512
SigurjónHarðarson-HaukurÁmason 474
Vetrar Mitchell BSÍ er spilaður öll
fóstudagskvöld. Spilað er í húsnæði
BSÍ að Þönglabakka 1 og byijar spila-
mennska stundvíslega kl. 19. Spilaðir
em einskövlds tölvureiknaðir Mitchell
tvimenningar með forgefnum spilum.
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríksson.
íslandsbankamótið í
tvímenningi 1995
íslandsmótið í tvímenningi verður
haldið í Þönglabakka 1, dagana 28.
apríl til 1. maí.
Undankeppnin er fyrri tvo dagana,
föstudagskvöldið 28. apríl ein lota sem
hefst kl. 19 og laugardaginn 29. apríl
tvær lotur og hefst spilamennska kl.
11 og lýkur kl. 21. Efstu 23 pörin
komast í úrslitakeppnina sem spiluð
verður sunnudaginn 30. apríl og
mánudaginn 1. maí.
Keppnisgjald er 6.600 kr. á parið
og skráning er á skrifstofu Bridssam-
bands íslands í síma 587-9360.
íslandsmótið í
paratvímenningi 13.-14. maí
Skráning er hafin í íslandsmótið í
paratvímenningi sem verður spilað i
Þönglabakka 1 helgina 13.-14. maí
nk. Spilaður er barómeter tvímenning-
ur og hefst keppnin kl. 11 laugardag-
inn 13. maí. Keppnisgjald er 6.600
kr. á parið. Tekið er við skráningum
á skrifstofu Bridssambands íslands í
síma 587-9360.
Bikarkeppni Bridssambands
Islands 1995
Eins og síðasta ár verður dregið í
fyrstu umferð í bikarkeppni Bridssam-
bands íslands í lok paratvimenningsins
14. maí nk.
Skráning er hafin á skrifstofu
Bridssambands íslands og eru allir
spilarar alls staðar á landinu hvattir
til að láta skrá sig í þessa skemmti-
legu keppni. Síðasta ár voru 59 sveit-
ir sem hófu keppni, sem endaði með
sigri Tryggingamiðstöðvarinnar sl.
haust.
Tímamörkin fýrir umferðimar í bik-
arkeppninni verða þannig að 1. um-
ferð skal lokið í síðasta lagi sunnudag-
inn 25. júní, 2. umferð skal lokið í
síðasta lagi sunnudaginn 23. júli,
þriðju umferð skal lokið í síðasta lagi
sunnudaginn 10. september. Undanúr-
slit og úrslit verða spiluð helgina
16.-17. september. Eins og undanfar-
in ár verður innheimt keppnisgjald
fyrir hveija umferð. Skráning er á
skrifstofu Bridssambands íslands í
síma 587-9360 og mikilvægt er að
skrá fyrirliða sveitarinnar, heimilis-
fang og síma.
Bridsdeild
Ilúnvetningafélagsins
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag var
seinna kvöldið í einmenningskeppni
félagsins. Spiiað var í 13 manna og 8
manna riðli. Úrslit kvöldsins urðu:
A-riðill:
Þorsteinn Erlingsson 56
Aðalbjöm Benediktsson 55
Jóhann Lúthersson 55
Miðlungur 48.
B-riðiIl:
Þorleifur Þórarinsson 35
Jóhannes Guðmannsson 29
Rúnar Hauksson 29
Valdimar Jóhannsson 29
Miðlungur 28.
Lokastaðan:
Aðalbjöm Benediktsson 115
Hermann Jónsson 110
Skúli Hennannsson 110
Jóhann Lúthersson 108