Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 52

Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ HE'É PITCHER ..TELL 'f’OUR. CATCHER I THINK HE'5 KINI7 OF CUTE.. , TELL VOUR. RI6HT FIELPER I THINK 5HE'5 IN5ANE.. 5HE SMS SHE THINK5 VOU're KINP 0F CUTE, AND HE SMS HE THINK5 YOU'RE INSANE.. t 1 M NOT A PITCHER, |‘M A ME55A6E CENTER_ Hey, kastari... segðu gríp- Segðu hægri Hún segir að henni finnist að Ég er ekki kastari, ég aranum að mér finnist hann vallarmanni að þú sért svolítið sætur, og hann er miðvallarsendiboði. svolítið sætur ... mér finnist hún segir að honum finnist þú geðbil- geðbiluð ... uð ... BRÉF TTL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Sjávarlífssafn - tímabært framtak Frá Sigurði Jónssyni: ÁGÆT grein Björns G. Bjöms- sonar í Morgunblaðinu í síðustu viku undir fyrirsögninni „ísland og hafið“ er allrar athygli verð og vakti upp hjá mér aftur hugleið- ingar um sjávarlífssafn á íslandi sem ég hafði hugsað mikið um fyrir tæpum tveimur árum. Ég hafði þá ásamt dætrum mín- um skoðað slíkt safn skammt frá borginni Oban í Skotlandi, og jafn- framt séð bækling frá viðlíka safni við skosku borgina St. Andrews. Heimsókn í safnið við Oban var ákaflega skemmtileg og hvetjandi fyrir hugrenningar um það hvort ekki væri hægt að reka svipað safn á Islandi - landi þar sem fólk lifir á sjávarfangi, en böm og unglingar þekkja varla til ann- arra en algengustu fiskitegunda. Það var einkar ánægjulegt að fylgjaSt með áhuga allra safngesta á hinum ýmsu sviðum sjávarlífsins og ekki síður því hvemig staðsetn- ing safnsins rétt utan við borgina bauð einnig upp á fallegt útivistar- svæði þar sem böm jafnt og full- orðnir gátu notið útivera og leikja. Ég er sammála flestum hug- myndum Björns í áðurnefndri grein nema staðsetningu safnsins. Ég vildi gjarnan sjá það í útjaðri borgarinnar fremur en við höfn- ina, t.d. inni við sundin blá, því þá mætti e.t.v. skapa þar jafn- framt útivistarsvæði í tenglsum við safnið. Það gæti e.t.v. tengst útivistarsvæði við Korpúlfsstaði? Vegna veðurfars á íslandi og nátt- úrakosta mætti skapa undir gler- þaki veitinga- og fræðsluaðstöðu í tengslum við safnið og kynna þar jafnframt undrakraft hvera- vatnsins. Ef vel tækist til með samstöðu aðila um byggingu og rekstur slíks lifandi safns, má ætla að þetta gæti orðið einn af föstum við- komustöðum erlendra ferðamann á Islandi, auk þess sem uppeldis- hlutverk safnsins væri ómetanlegt fyrir íslendinga, unga sem aldna. Ég skora á alla stórhuga íslend- inga, ekki síst þá sem eru í for- ustu fyrir stofnanir og fyrirtæki sem tengjast sjávariðnaði, ferðaút- vegi og stjórnsýslu, að íhuga vand- lega hvort ekki megi hrinda þessu í framkvæmd með því að þessir aðilar taki allir höndum saman um málið. SIGURÐUR JÓNSSON, markaðsfulltrúi, Hlaðbrekku 18, Kópavogi. Otrúleg uppákoma Frá Smára Ólasyni: í SÍÐUSTU viku, sem var dymbilvika, komu hér til lands háttsettir kínverskir ráðamenn í boði Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra. Á föstudag, sem var föstudagurinn langi, sá dagur sem löngum hefur hvílt yfír mest helgi hér á landi, birtust fréttamyndir frá þessari heimsókn í fréttatíma beggja sjónvarps- stöðvanna. Farið hafði verið með hina erlendu gesti þá um daginn til Þingvalla, sem í huga og hjört- um íslendinga skipa háan sess bæði sem einstök náttúraperla og einnig sem sögulega einn mikil- vægasti staður á íslandi. Frá sam- verastund í Þingvallakirkju birtu báðar sjónvarpsstöðvarnar löng fréttaskot þar sem þjóðgarðsvörð- ur lék á harmóníum kirkjunnar en maki hennar ásamt utanríkisráð- herra íslands kýrjuðu sálminn „Fögur er foldin“, sem er jólasálm- ur. Ekki get ég Iýst tilfinningum mínum á sama hátt og séra Jón Steingrímsson „eldklerkur“ í ævi- sögu sinni er hann segir frá því að Ólafur Stephensen ásamt Magnúsi syni sínum og fleiri mönnum hafí sungið svo fagurlega sálm á þessum sama kirkjustað fyrir rúmum 200 áram að vart fínnist fegurra hér á jarðríki. Varla get ég heldur ætlast til þess að ráðamenn þjóðarinnar gái að sér um helgi dagsins í vímu gestgjaf- ans, sem allt vill gera til þess að skemmta og þóknast gestum sín- um. Hitt fínnst mér miður, að þjóð- garðsvörður, sem einnig er prestur kirkjunnar og maki hennar, sem einnig er vígður maður, skuli vera svo blinduð af gestgjafahlutverk- inu, að þau gleymi svo gjörsam- lega stund og stað að kyrjað sé „... frelsarinn heimsins fæddur er“ á þessum degi. Það hefði ein- hvern tímann ekki þótt góð latína en það er kannski tímanna tákn, að þetta teljist vera góð kín- verska. Hinir kínversku gestir tóku þessu a.m.k. sem bráðfyndnu skemmtiatriði, enda einna helst í ætt við þeirra eigið leikhús þar sem hin furðulegustu hljóð koma upp úr barka leikaranna. Þeir brostu breitt og klöppuðu óspart í lok uppákomunnar. Fréttamenn og myndatökumenn beggja sjón- varpsstöðvanna sáu um að koma þessu öllu mjög samviskusamlega til skila. Hafí það verið ætlun þeirra að ganga rækilega fram af fólki tókst þeim það a.m.k. í þetta skiptið. SMÁRIÓLASON, organisti, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.