Morgunblaðið - 20.04.1995, Síða 64

Morgunblaðið - 20.04.1995, Síða 64
m HEWLETT PACKARO H P Á ÍSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá mugulcika til veruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGIAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1995 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK * Ovenju- kaldur vet- ur að baki Verðbréfasala ríkissjóðs gengur illa og erlendar lántökur aukast Ávöxtun hefur hækkað VETURINN sem nú hefur kvatt var óvenjukaldur um mestallt land, samkvæmt upplýsingum veðurfarsdeildar Veðurstofu. í Reykjavík hafa vetrarmán- uðirnir desember til mars ekki verið jafn kaldir frá 1920. Meðal- hitinn var -1,8 stig, sem er 1,7 stigum undir meðalhita 1961-90. Næst þessu kemur veturinn 1978-79, en þá var meðalhitinn -1,7 stig. Veturinn 1919-20 var meðalliitinn -2,2 stig. A Akureyri var meðalhitinn -2,8 stig sem er 1,1 stigi undir -meðallagi. Svo kalt hefur ekki verið á Akureyri frá 1980-81 en þá var meðalhitinn -3,4 stig. Úr- koma á Akureyri var 293 mm sem er hálf önnur meðalúrkoma. Kuldalegt var í Húsdýragarð- inum í gær þegar Þorgeir Vil- berg Ragúel, 2 ára, var í heim- sókn. um 0,8 prósentustig í ár VERÐBRÉFASALA ríkissjóðs á innlendum láns- flármarkaði hefur gengið afar illa það sem af er þessu ári og hefur engan veginn náð að mæta innlausn á ríkisverðbréfum. Hún er veruleg, ekki síst vegna þess að vaxandi hluti lánsfláröflunar ríkissjóðs hefur færst úr langtímaverðbréfum eins og skuldabréfum ríkissjóðs í ríkisvíxla. Ríkissjóður hefur þurft að mæta innlausn um- fram sölu með erlendri lántöku, auk þess að fjár- magna hallarekstur sinn og mæta fjárþörf Hús- næðisstofnunar. Hún hætti útboðum skuldabréfa sinna á síðasta ári, þar sem þau seldust ekki við þá 5% ávöxtunarkröfu sem ríkisstjómin setti að viðmiði er hún tilkynnti um aðgerðir til að lækka vexti síðla hausts 1993. Lánasýsla ríkisins var með útboð á ríkisvíxlum til þriggja mánaða í gær. Tilboð bárust í víxla fyrir rúman einn milljarð króna og tekið var tilboð- um fyrir helming þeirrar upphæðar eða í rúmar 500 milljónir króna. Þar af keypti Seðlabankinn víxla fyrir 180 milljónir króna á meðalverði sam- þykktra tilboða. Á síðasta ári var ekki óalgengt að víxlar seldust fyrir 2 til 4 milljarða króna í hveiju útboði, en frá áramótum hefur ríkissjóður aðeins einu sinni selt víxla fyrir hærri upphæð en tvo milljarða, í fyrsta útboði ársins. ECU-bréfin seljast skást Sjö önnur útboð á þriggja mánaða ríkisvíxlum hafa farið fram frá áramótum og hafa í öllum tilfellum selst víxlar fyrir innan við 800 milljónir króna utan einu sinni í byijun mars er seldir voru víxlar fyrir rúmar 1.800 milljónir. Þrátt fyrir þessa dræmu sölu hafa vextimir verið að stíga upp á við það sem af er þessu ári og hefur meðalávöxtun- in hækkað úr 6,27% í upphafi ársins í 7,11% í útboðinu í gær eða um rúmlega 0,8 prósentustig. Sala á öðrum ríkisverðbréfum hefur nánast engin verið síðustu mánuðina og í sumum tilvik- um engin frá því um mitt síðasta ár, utan nokk- uð hefur selst af svonefndum ECU-bréfum. Ríkis- sjóður hóf útgáfu þeirra í fyrrahaust, en þau eru gefin út í erlendri mynt og hafa selst við hærri ávöxtunarkröfu en bréf í íslenskum krónum. Margvíslegar skýringar eru á þessari dræmu sölu. Má þar nefna að fjárfestar hafa nú mögu- leika á að fjárfesta erlendis, auk þess sem bæði sveitarfélög og fyrirtæki hafa í stórauknum mæli boðið út verðbréf við talsvert hærri ávöxtunar- kröfu en þau 5% sem ríkissjóður hefur haldið sig við. Þá hefur óvissa fyrst vegna kjarasamninga og síðan vegna kosninga og ríkisstjómarmyndun- ar ekki liðkað fyrir. Margir telja hins vegar að sala ríkisverðbréfa muni ekki taka kipp fyrr en vextir hækki frá því sem nú er og vísbendingar em um að fjárfestar haldi að sér höndum og bíði átekta. Áburðarverksmiðjan fær samkeppni Keppir við inn- fluttan áburð TVÖ fyrirtæki sem bjóða innfluttan áburð keppa við Áburðarverksmiðj- una í útboði á 900 tonnum af áburði sem Ríkiskaup hafa efnt til fyrir Landgræðslu ríkisins. Að sögn Ólafs Ástgeirssonar, verkefnisstjóra hjá Ríkiskaupum, er verið að yfirfara og meta tilboðin. Sérstaklega þarf að meta mismunandi forsendur um flutninga og afhendingu sem fólust í tilboðunum. Þetta er í fyrsta sinn sem áburður er boðinn út hjá Ríkiskaupum enda hafði Áburðarverksmiðjan einkaleyfí á því að framleiða og selja áburð hér á landi fram til síðustu áramóta. Tilboð Áburðarverksmiðjunnar hljóðaði upp á tæpar 21,4 milljónir með virðisaukaskatti. Þá barst tilboð frá Áburðarsölunni Isafold upp á tæpar 16,5 milljónir án virðisauka- skatts. Að sögn Þorsteins Þórðarson- ar hjá ísafold er tilboð fyrirtækisins að meðtöldum virðisaukaskatti að fjárhæð 19,9 milljónir eða um 1,5 milljónum lægra en tilboð Áburðar- verksmiðjunnar. Er þá miðað við að áburðurinn verði fluttur á tvær hafn- ir, þ.e. í Reykjavík og Húsavík. Þriðja tilboðið var frá breska fyrir- tækinu Intereb sem Þorsteinn hefur jafnframt umboð fyrir hér á landi. Það virðist nokkru lakara en hin tvö tilboðin og hljóðaði upp á 14,7 millj- ónir án flutningskostnaðar hingað til lands og virðisaukaskatts. Syeinn Snorrason formaður stjórn- ar Áburðarverksmiðjunnar vildi ekki tjá sig um málið í gær og Hákon Bjömsson forstjóri var erlendis. ■ Áburðarviðskipti boðin út /C1 Góður gangur í stj órnarmyndun Niðurstöðu um málefni að vænta á morgun suman viðræður Davíðs, Halldórs Ásgríms- sonar, formanns Framsóknarflokks- ins, og varaformanna flokkanna, þeirra Friðriks Sophussonar og Guð- mundar Bjamasonar. Fjórmenning- amir fóru yfír alla helztu málaflokka og hófu að leggja grunn að stjórnar- sáttmála. Sérstaklega var yfirfarið hvar um ágreining væri að ræða. Sérfræðingar funduðu í gærkvöldi í gærkvöldi settust ýmsir sér- fræðingar á vegum flokkanna tveggja við frekari vinnu í nokkrum málaflokkum. Jafnframt héldu emb- ættismenn úr forsætis- og sjávarút- vegsráðuneyti fund með Halldóri Ásgrímssyni til að kynna honum stöðu mála í viðræðum við Noreg og Rússland um veiðar í Barents- hafí, en fundur verður haldinn með þessum ríkjum um mánaðamótin. Líklegt er að Halldór, sem nýr utan- ríkisráðherra, muni fara með foryst- una af íslands hálfu á þeim fundi. Hann sagði í gær að fundurinn væri eitt þeirra mála, sem settu nokkra tímapressu á að ljúka stjórn- armynduninni sem fyrst. Liggi staðan í málefnum fyrir á morgun, er gert ráð fyrir að gengið verði endanlega frá málefnagrund- velli ríkisstjómarinnar í þingflokk- um á föstudag eða laugardag. Að því loknu þarf að boða flokksstofn- anir til fundar og bera stjórnar- myndunina undir þær. Þá tekur væntanlega við að setja saman ráð- herralista og fá þá samþykkta í þingflokkum. 1 báðum flokkum em menn bjart- sýnir á að þessu verki geti verið lokið snemma í næstu viku og ný ríkisstjóm þá tekið við völdum. ■ Stjórnarmyndun/10/11 Morgunblaðið/Árni Sæbcrg GÓÐUR gangur er í stjómarmynd- unarviðræðum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, að sögn formanna flokkanna. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að á morgun, föstudag, eigi að koma í ljós hvort flokkamir verði komnir fyrir endann á málefnavinnu sinni. Eftir að forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hafði veitt Davíð Oddssyni formlegt stjómarmynd- unammboð í gærmorgun, hófust Morgunblaðið/Rúnar Þór Flykkjast á skíði 870 börn á aldrinum 7-12 ára keppa á 20. Andrésar andar- leik- unum, sem settir voru á Akur- eyri í gær. Að fararstjórum og foreldrum meðtöldum eru gestir skiðamótsins um 1.500. Þátttak- endur á leikunum hafa aldrei verið fleiri né komið víðar að. ■ Keppendur/12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.