Morgunblaðið - 11.05.1995, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 11.05.1995, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Þegar HM var bjarg- að úr sjálfheldu - HEIMSMEISTARAKEPPNIN í handkattleik er hafm með glæsibrag og verður án efa landi og þjóð til sértaks sóma. Annáll þessarar keppni verður hinn fróðlegasti. Það gefur augaleið að sögu þessa stór- viðburðar á íslandi verður að skrá og festa á blað frásagnir og minnis- atriði þeirra, sem að málinu hafa komið á löngum ferli þess. Jón Hjaltalín Magnússon, fyrrv. formað- ur HSÍ, var óumdeilanlega hinn mikli frumkvöðull, sem hratt at- burðarásinni af stað. Margt frá- sagnarvert hefur gerst að tjaldabaki en verið látið ósagt til þessa. Von- andi verður það dregið fram í dags- ljósið og fært á spjöld sögunnar. Á ýmsu gekk, áður en séð var fyrir endann á þessu mikla verkefni. Eftir að undirbúningur að heims- meistarakeppni á íslandi hafði stað- ið í nokkur ár var svo komið síðla árs 1991 að allt útlit var fyrir að hún yrði alls ekki haldin hér á landi. Málið var komið í algjöra sjálfheldu. Forráðamenn HSÍ og ÍSÍ komu til fundar við mig sem borgarstjóra í Reykjavík 4. nóvember það ár og óskuðu eftir að Reykjavíkurborg tæki að sér skuldbindingar um upp- byggingu nýrrar íþróttahallar fyrir 8-1.000 milljónir króna. Kópavogur hafði þá sprungið á limminu þrátt fyrir gerða samninga og ríkisvaldið ætlaði ekkert að aðhafast til að klára málið. Ný höll út af borðinu Sem vonlegt var þótti forráða- mönnum HSI og ÍSI þetta súrt í brotið og töldu að þjóðarsómi væri í veði, því að litprentað kynningar- rit með kveðjuávörpum helstu ráða- manna þjóðarinnar hafði veri sent nokkrum árum áður vítt og breitt um heimsbyggðina og handboltaunnendur boðnir velkomnir til heimsmeistaramóts á íslandi. Því var fljótsvarað að Reykjavíkurborg myndi ekki byggja um- rædda höll. Það hafði reyndar forveri minn tilkynnt löngu fyrr. Um þetta leyti var unnið að undirbúningi samninga við íþróttafélögin í borginni um uppbygg- ingu á félagssvæðum þeirra, sem borgin myndi styrkja á nokkr- um árum með um 1.000 milljón króna framlagi. Var það for- gangsverkefni að mati forráða- manna íþróttamála í borginni og augljóst, að borgin gæti ekki varið annarri eins upphæð til byggingar nýrrar íþrótahallar fyrir heims- meistaramótið 1995. Útspil Gísla Halldórssonar og Matthíasar A. Mathiesen Leið nú og beið án þess að frekar fréttist af gangi mála. í byrjun apríl 1992 komu þeir síðan til fundar við mig Gísli Halldórsson, fyrrv. forseti ÍSI og arkitekt Laugardalshallar, og Matthías Á. Mathiesen, fyrrver- andi ráðherra og áhugamaður um handknattleik og HM’95. Erindi þeirra var að kynna mér hugmynd- um að bjarga heimsmeistaramótinu í handbolta 1995 í höfn með því að tryggja, að úrslitaleikurinn gæti farið fram í Laugardalshöllinni og að þar yrði aðstaða fyrir 4.200 áhorfendur. Voru þeir vongóðir um, að alþjóða handknattleikssambandið teldi það eftir atvikum fullnægj- andi. Nauðsynlegar breytingar og umbætur á höllinni þyrfti ekki að kosta nema fáa tugi milljóna fyrir Reykja- víkurborg. Hér höfðu orðið kaflaskil varðandi hús- næðismál HM’95. í fyrsta skipti var reifuð sú hugmynd, að hin gamalgróna íþrótta- miðstöð, Laugardals- höllin, yrði aðalmóts- staður HM’95 og kæmi í staðinn fyrir nýja höll, sem byggja þyrfti frá grunni fyrir nærri einn milljarð. Fram var komin raunhæf tillaga um að leysa rembihnútinn, sem málefni HM voru komin í. Mitt viðhorf til málsins var Það tókst farsællega að fínna lausn á fram- kvæmd HM ’95 á ís- landi, segir Markús •• Orn Antonsson, sem skrifar m.a. um Laugar- dalshöllina. í grundvallaratriðum, að höfuðborg landsins ætti stöðu sinnar vegna, og miðað við alla forsöguna, að koma til móts við forráðamenn HSÍ innan slíkra fjárhagslegra marka, sem voru fullkomlega viðráðanleg, og þrátt fyrir að sumum borgarfull- trúum yxu í augum fyrirhugaðar fjárveitingar til íþróttamála í heild. Markús Örn Antonsson Það var niðurstaða þessa fundar, að málinu yrði vísað til meðferðar framkvæmdastjóra íþrótta- og tóm- stundaráðs, slökkviliðsstjóra, og tæknimanna borgarinnar til að fá endanlega úr því skorið, hvort og þá hvemig 4.200 manns gætu rúm- ast á áhorfendasvæðum í Laugar- dalshöll þannig að öll skilyrði um öryggismál yrðu uppfyllt. í borgarstjórnarflokki Sjálfstæð- isflokksins var það viðhorf nokkuð áberandi í fyrstu, að borgin ætti ekkert að vera að bjarga forsvars- mönnum ríkisins út úr því klúðri, sem þessi mál voru komin i. En fljót- lega komust borgarfulltrúar að þeirri niðurstöðu, að umræddar end- urbætur á Laugardalshöll væm að hluta til orðnar tímabærar vegna reksturs hennar almennt og að stækkun áhorfendasvæðisins væri af hinu góða. Málið lagt formlega fram Ekki var á þessu stigi ljóst hvaða undirtektir þessi róttæku umskipti í húsnæðismálum HM’95 myndu hjóta formlega hjá forráðamönnum alþjóða handknattleikssambandsins. Matthías Á. Mathiesen tók að sér að kynna málið fyrir dönskum vini sínum í tækninefnd alþjóðasam- bandsins og biðja hann að beita sér fyrir okkar hönd innan stjómkerfis þess. Þeir borgarembættismenn, sem áður hafa verið nefndir til sögunn- ar, skiluðu vinnu sinni fljótt og vel. Reyndar kom fljótlega í ljós, að kostnaður vegna aðgerða í Laugardalshöll yrði nokkru hærri en fyrstu tölur bentu til, eða á bil- inu 60-80^ milljónir. Að beiðni stjórnar HSÍ ritaði ég stjórn alþjóða handknattleikssambandsins bréf með yfirlýsingu um að Reykjavík- urborg ábyrgðist að 4.200 áhorf- endur myndu rúmast í Laugardals- höll og nauðsynlegum framkvæmd- um til að ná því marki yrð lokið í tæka tíð fyrir HM’95. Jákvæð viðbrögð við tillögunni Tilboð Reykjavíkurborgar hlaut jákvæðar viðtökur hjá stjórn al- þjóðasambandsins en samt óskaði Jón Ásgeirsson, þáverandi fotmaður HSÍ, eftir því að ég ætti fund með Erwin Lanc, forseta sambandsins, 20. mars 1993 í tengslum við heims- meistarakeppnina, sem þá fór fram í Stokkhólmi. Á þeim fuyndi ítrek- aði ég fyrri skuldbindingar Reykja- víkurborgar um framkvæmdir við Laugardalshöll. Ekkert kom fram hjá Lanc um að hann teldi þau áform ófullnægjandi en meira þóttu mér fyrirhugaðar tímasetningar keppn- innar á íslandi standa í honum. Eig- inlega fannst mér sem alþjóðafor- setinn ætti sér aðra óskastaði en ísland fyrir þessa næstu keppni. Hánn sagði lokaákvarðanir í málinu verða á dagskrá framkvæmda- stjórnar sambandsins þá nokkru síð- ar. Allar götur síðan hafa HM-áætl- anir verið í gerjun og tekið ýmsum breytingum. Mótsdagamir eru meira í samræmi við það sem stjórn alþjóðasambandsins hafði óskað. Sjónvarpsmálin vöfðust fyrir aðilum en vom að lokum útkljáð. Og Laug- ardalshöllin tók enn meiri stakka- skiptum en forysta HSÍ hafði talið nauðsynlegt í viðræðum við borgina 1992 og 1993. Nýja viðbyggingin við Laugar- dalshöll mun nýtast vel í framtíð- inni. Það var að sönnu ánægjulegt að Reykjavíkurborg skyldi geta orð- ið við viðbótarkröfum forráðamanna HM í því efni. Hinn nýi meirihluti borgarstjómar uppgötvaði skyndi- lega, hve afl borgarinnar til fram- kvæmda var mikið. Það tókst farsællega að finna viðunandi laust á framkvæmd HM’95 á íslandi. Ef litið er til þess óefnis, sem málið var komið í síðla árs 1991, tel ég frumkvæði þeirra Gísla Halldórssonar og Matthíasar Á. Mathiesen vera hið markverð- asta og raunverulega hafa ráðið úrslitum um að ísland hélst á blaði sem væntanlegur mótshaldari með- an unnið var nánar úr tillögu þeirra um endurbætur í Laugardalshöll. Höfundur er fyrrverandi borgarsljóri íReykjavik. » : t i r ! > Sjáifshjálp gegn gigt FYRIR nokkru barst mér æði ískyggilegt bréf frá leynifélagi sem hótaði mér öllu illu. Þar sem ég er fremur frið- samur maður á þessum síðustu og verstu tím- um, fór það nokkuð fyrir bijóstið á mér. í bréfhaus var merki eða skammstöfun teiknuð með ískyggi- legum brotnum örvum og kallaðist það MNÍ og kom fram að það stóð fyrir Matvæla- og næringarfræðinga- félag íslands. Núnú!. Merkileg landssamtök? En við nánari aðgát gat ég hvergi fundið að þessi félagsskapur væri til. Hann var ekki í símaskránni, ekki í þjóðskránni, ekki í opinberri félagaskrá, ekki á lista yfir helstu hjálpar- og ráðgjafarstofnanir í Fjöl- skylduhandbók um hjúkrun, ekki heldur í hinni frábæru handbók Fróða um „íslensk fyrirtæki, félög og stofnanir 1995“. Þetta var orðið svo dularfullt að það var farið að fara um mig. MNI virtist vera draugafélag eða leynifé- lag eins og þau tíðkuðust á Sikiley eða Sjanghæ eða San Fransiskó í gamla daga, sem voru á sveimi að næturlagi. Þetta var orðið svo spennandi, að ég leitaði til Jóns Spæjó og hann fór af stað liðugur eins og köttur og komst að því í náttmyrkrinu að þessi ískyggilegi félagsskapur myndi vera í pósthólfi númer 8249 í póststofunni í Ár- múla, en fyrir því var einmitt skrif- aður hinn óhugnanlegi KART- klúbbur, sem kemur saman til funda í djúpum kjallara í Fákafeni. Svona Þorsteinn Thorarensen voru þá undirheimar Reykjavíkur! En þá er að víkja að boðskapnum sem fól í sér fordæmingu og dulbúna hótun gegn mér: Efni bréfsins var svohljóðandi: „Innan Matvæla og næringarfræðingafé- lagsins (MNÍ) starfar faghópur næringar- fræðinga og næringar- ráðgjafa. Þessi hópur fagnar öllu jákvæðu fræðsluefni á sviði næringarfræði sem kemur á markað. Því miður getur hóp- urinn ekki glaðst yfír bókinni Góð 'ráð við gigt, sem kom út hjá Vasa- Útgáfunni í fyrra. í bókinni er að finna ótal fullyrðingar um afdrif fæðunnar í líkamanum sem ekki standast. Svona fullyrðingar rugla fólk og eru hvorki gigtarsjúklingum né öðrum til gagns. Ef bókaútgáfan óskar eftir nánari skilgreiningu á því við hvaða fullyrðingar er átt verða þær upplýsingar fúslega veitt- ar. Það er ósk Næringarhóps MNÍ að Vasa-Útgáfan gefí ekki út fleiri slíkar bækur.“ Ég vil nú útskýra nokkuð viðhorf mín og Vasa-Útgáfunnar til Gigtar- bókarinnar. Það var óvenjuiegt að ég hafði ekki frumkvæði að því að velja þessa bók til útgáfu, heldur gerði ég það samkvæmt áskorun nokkurra gigtarsjúklinga, sem höfðu um langt skeið farið éftir henni og þótt hún lina svo þjáningar og gera lífið bærilegt í sjálfhjálp, að þeirra innilegasta ósk var að aðrir gigtarsjúklingar mættu njóta í þessari grein fjallar Þorsteinn Thoraren- sen um viðbrögð við bókinni „Góð ráð gegn gigt“. þeirra sömu ráða. Ég fór eftir reynslu og ráðum þessa fólks og ber þannig eiginlega ekki sjálfur ábyrgð á bókinni. Til samanburðar vil ég tiltaka, að þegar ég gaf út fyrir mörgum árum Toppformið, var mér kunnugt um að hinir svokölluðu „lærðu mat- vælafræðingar“ voru á móti henni og þá tók ég enn nokkuð mark á þeim, svo mér leist ekkert á hana. En það varð þó úr að ég prófaði um tíma að lifa eftir henni og það var eins og við manninn mælt að ég fann að það varð hálfgert krafta- verk á mér. Það var ekki einungis að ég léttist og yrði allur betur á mig kominn, heldur fylgir Topp- forminu ósjálfrátt sérkennileg já- kvæð hugarfarsbreyting, sem ég er þó ekki að segja að allir upplifi. Ég þarf svo varla að lýsa því, hvaða áhrif Toppformið (Fit for Life) hefur haft í Ameríku, alltaf í andstöðu við hina íhaldsörnu „lærðu matvælafræðinga“ en áhrifín hafa verið gífurleg til batnaðar á matar- æði og bylting í matvælaverslun. Og sömu sögu er að segja hér á landi að hún hefur fengið mikla útbreiðslu og stærstu markaðir og heilsubúðir hafa vottað sitt álit með því að hafa hana oft í sérsölu í ávaxta- og grænmetisdeildum. Þegar gigtarsjúklingamir komu til mín og báðu mig um að gefa út bókina hans Dan Dales Alexanders, gat ég ekki sjálfur prófað hana, því að ég er svo heppinn að ég fmn ekki til gigtar (og þakka það raunar margra ára Toppformslífemi). En af viðtölum mínum virtist mega ráða, að bókin hefði raunar verið sólar- geisli í Iífi margra þjáðra gigtarsjúk- linga. Um leið og ég gaf hana út, tók ég eftirfarandi fram í formála: „Bókin Góð ráð við gigt hefur reynst heldur en ekki þrautseig, því að nú eru um 30 ár liðin síðan hún kom fyrst út, en hún heldur áfram að gera sitt gagn, þar sem gigtar- sjúklingar víða um heim hafa þá reynslu, að ráðin hennar dugi, þar sem hefðbundnar lækningar eiga engin ráð. Hér á landi er hún þekkt meðal gigtarsjúklinga, bæði í danskri og enskri útgáfu og er það einmitt frá hópi þeirra, sem útgáfunni barst beiðni um að koma henni út á ís- lensku, þar sem hún sé enn í fullu gildi o& muni geta gert mörgum gott, hjálpað til við að halda sjúk- dómnum niðri, fært fólki linun þján- inga og lækningu. Yið vonum sann- arlega að hún geti orðið til góðs. - Vasa-Útgáfan.“ Þessi kafli úr formálanum lýsir eiginlega öllu sem þarf að segja. Bókin Góð ráð við gigt er að mínu áliti góður vaki að sjálfhjálp sjúk- linga, er þjást af sjúkdómi sem læknavísindin eiga oft engin ráð við. Það er víst að tugþúsundir manna hér á landi þjást af gigt og stór hluti þeirra fær enga linun þjáninga sinna, heldur eru þeir lokaðir inni á legu- deildum eða látnir afskiptalausir. Nýleg stofnun Gigtarfélags getur víst engu þar um breytt til skamm- tima, þó það sé gott framtak. Á síðari tímum eru læknavísindin farin að umbera og viðurkenna ýmis óvenjuleg sjálfhjálparráð, grasalækningar sem áður voru for- dæmdar sem skottulækningar eru nú almennt viðurkenndar og allir nema erkiíhald viðurkenna að for- vamir sjálfhjálparhópa em afar * mikilvægar, þó að þær jafnvel | stangist á við „lærðar“ kenningar. Það er því dæmalaus hroki hjá einhverri klíku „lærðra næringar- fræðinga" þegar þeir ráðleggja mér að „gefa ekki út fleiri slíkar bækur“! Eg efast ekki um að þeir geti skrifað langa og lærða greinargerð um að bókin Góð ráð við gigt stang- ist á við „lærð“ rök þeirra. En það | hjálpar ekkert þeim sem þjást. Og eitt vil ég leggja áherslu á að það * er fráleitt að Góð ráð við gigt geti I nokkuð ruglað fólk eða skaðað það. Það er afar einfalt að prófa aðferð- ir bókarinnar, tekur ekki nema nokkra daga eða kannski hálfan mánuð og síðan geta menn hætt ef þeir vilja. Engum dettur í hug að hún geti hjálpað öllum, en hún skað- ar heldur engan og víst er að hún getur hjálpað sumum. Hvað sem | næringarefnum líður, getur sú vakning til sjálfhjálpar sem þar er að finna hjálpað mörgum og örvað | þá til að leita sér sjálfhjálpar. Hér er hinsvegar ekki rúm að sinni til að lýsa ömurlegu hlutverki hinnar „lærðu“ matvælafræði á síð- ustu framfaratímum, sem hefur stöðugt tregðast við, verið íhaldsöm og treg til að viðurkenna sjálfsagðar uppgötvanir og nýjar hugmyndir um næringarefni, kólesteról, vítamín, | steinefni og snefilefni, eða fengist til að skilja hættuna af rotvarnar- efnum og ýmsum aukaefnum, staðið | fyrir utan nýjar aðferðir í mat- reiðslu, hollustufæði, viðhaldið úr- eltri kennslu í heilsufræði í almenn- ingsskólum, enda ekki að furða, þar sem hún er oft mjög háð og beinlín- ' is selur sig hagsmunahópum. Ég vil þó taka fram að hér er ég ekki aðeins að lýsa afstöðu „lærðra" matvælafræðinga hér á landi, held- | ur á alþjóðasviði. Höfundur er rithöfundur og I útgefandi (Vasa-Utgáfan).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.