Morgunblaðið - 10.06.1995, Page 18

Morgunblaðið - 10.06.1995, Page 18
18 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG \tt / ýt íslenskt grænmeti er safríkt, bragð- mikið, hreint og hollt. Hreinleikarannsóknir hafa sýnt að engin aukaefni finnast í íslensku grænmeti. Það er ómissandi í salöt, sem álegg, í pottrétti eða sem ferskur biti á milli máltíða. Njóttu hreinleikans og hollustunnar í íslensku grænmeti. Fleiri skemmti- ferðaskip í sumar í FYRRA komu 39 skip í Reykja- víkurhöfn en í sumar er búist við að þau verði 47. Aukningin virðist ætla að verða enn meiri á Akureyri, en þangað komu 23 skip í fyrra en áætlaður fjöldi skipakoma nú er 39. Fjölgunin í viðkomum hér á landi er hluti af almennri aukn- ingu í ferðum skemmtiferða- skipa um allan heim. Fargjöld í skemmtisiglingar hafa farið hlutfallslega lækkandi á síðari árum. Farþegamir eru því ekki lengur aðeins úr efnaðri þjóðfé- lagsstéttum. Fleiri geta nú leyft sér að sigla í makindum um heimsins höf. Að vísu er munað- urinn ekki jafn mikill og var á dögum Titanic og Queen Eliza- beth. Farþegar skipanna sem hing- að koma eru langflestir Þjóð- veijar en Bretar, ítalir og Frakkar eru einnig fjölmennir. Bandaríkjamenn hafa ekki sótt mikið til landsins miðað við það að þeir eru allra þjóða dugleg- astir við að ferðast með skemmtiferðaskipum. Þeir kjósa fremur sólríka siglingu á Karíbahafi. Á HELGARDAGSKRÁ Viðeyjar er m.a. hálfs annars tíma göngu- ferð á vestureyna. Lajgt af stað kl. 14.15 á laugardag. A sunnudag kl. 15.15 verður staðarskoðun sem hefst í kirkjunni og gengið síðan um næsta nágrenni, fomleifa- gröfturinn skoðaður, útsýnið af Heljarkinn o.fl. Á sunnudagskvöldið stendur Karl Jónatansson fyrir harmoniku- dansleik og verða slík dansiböll á sunnudagskvöldum í sumar í grill- skálanum Viðeyjamausti. Verður Maxím Gorkí siglir enn Skipin sem koma við hér á landi eru yfirleitt þau sömu, ár eftir ár. Gömlu sovésku skipin eru enn á floti en mörg þeirra hafa nú skipt um eigendur. Fasta- gesturinn Maxím Gorkí lítur við fjórum sinnum í sumar en hann er nú skráður undir henti- fána í Nassau og í eigu Þjóð- veija. íslenskar hafnir kynntar í Miami Ferðamálaráð Vestur-Norður- landa í samstarfi við hafnaryfir- völd í Reykjavík og á Akureyri hefur undanfarin ár unnið að því að fá fleiri skemmtiferða- skip til landsins. í þessum til- gangi hafa fulltrúar þeirra kynnt hafnirnar tvær á ferða- kaupstefnu sem haldin er í Miami í Flórída í mars á hveiju ári. Hafnarsljómirnar hafa auk þess tekið þátt í samstarfi hafna á Atlantshafsströnd Evrópu í samtökunum „Cruise Europe“ sem miða að því að fjölga ferð- um skemmtiferðaskipa til þess- ara staða. leikið á harmoniku, gítar og trommur. Þau verða frá kl. 20-23. Þriðjudag 13.júní er kvöldganga á austureyna með viðkomu í skóla- húsinu og skoðuð sýning frá lífinu á Sundbakkanum í Viðey á fyrri hluta aldarinnar. Farið úr Sunda- höfn kl. 20.30. Að venju eru veitingar seldar í Viðeyjarstofu og bátsferðir úr Sundahöfn frá kl. 13-17, bæði laugardag og sunnudag. Á sveita- böllunum verða veitingar seldar í Grillskálanum. VITIÐ verður látið í Ask- ana og þeim stungið í samband. Upplýsinga- kerfið Ask- ur fyrir ferðamenn STARFSMENN Skýrr (Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar) eru þessa dagana að setja upp upplýs- ingakerfið Asþ vítt og breytt um landið. í lok vikunnar verða 13 Ask-standar settir upp á suðvesturhominu, þar af sjö í Reykjavík. í næstu viku verða síðan 12 til viðbót- ar settir upp í öðrum lands- hlutum. Askur er alhliða upplýs- ingamiðill með snertiskjá þar sem fyrst í stað verður eink- um að finna fjölbreyttar upp- lýsingar fyrir ferðamenn í myndum og máli á fimm tungumálum, en þegar fram líða stundir verður líka hægt að nálgast í Aski margháttað- ar upplýsingar frá fyrirtækj- um og opinberum stofnunum. Askur er samstarfsverkefni Skýrr og Fjarhönnunar hf. sem þróaði og starfrækti Ferðavakann, undanfara Asks, frá 1991. Rekstur Asks er nú í höndum Skýrr. Askur er alíslensk framleiðsla. Það gildir um hönnun og smíði, hugbúnað jafnt sem umgjörð. Ofnasmiðjan hf. sá um smíði standanna og hönnuður var Vigdís Sigurbjörnsdóttir. I hveijum standi er tölva, snertiskjár, prentari til að prenta út þær upplýsingar sem notandann vanhagar um og mótald sem er notað til að tengjast Skýrr, þaðan sem nýjar upplýsingar eru sendar út til Ask-standanna á hveij- um degi. Meðal daglegra upp- lýsinga sem fólk getur nálg- ast í Aski eru veðuryfirlit, yfirlit um ástand ljallvega, gengi og fréttir. fHttgmtVUiMfr - kjarni málsins! Sveitaball og gönguferðir í Viðey

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.