Morgunblaðið - 17.10.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 3^
GÍSLIV.
GUÐLA UGSSON
+ Gísli V. Guð-
laugsson fæddist
á Stokkseyri 16. jan-
úar 1905. Hann lést
í Reykjavík 19. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Laugames-
kirkju 3. október.
ÞEGAR ég kveð þig,
Gísli, og minnist þeirra
stunda er við unnum
hlið við hlið að mörgum
verkefnum sem smiðjur
þær er við störfuðum
hjá, Héðinn og Stál-
smiðjan, voru með, fer ekki hjá því
að margt komi í hugann. Þegar ég
kom til starfa hér hjá Stálsmiðjunni
hf. 1958 var mikið umleikis hjá
Héðni hf. Sveinn Guðmundsson for-
stjóri sá um það og við í Stálsmiðj-
unni nutum góðs af því,_ enda voru
þeir bræður Sveinn og Astmundur.
Þegar þú yfírgefur þessa jarðvist
þína sem er að verða jafngömul
öldinni sem er að líða,
ert þú kominn á æðra
stig í tilverunni, hefur
sagt skilið við lífsstarf-
ið, sem var orðið nokk-
uð langt í jámiðnaðin-
um í vesturbænum hjá
Sveini í Héðni. En hans
verður að minnast um
leið og ævistarf þitt er
tíundað. Hann var
ofurhugi í starfínu, og
veldi Héðins hefir aldr-
ei verið meira en í tíð
ykkar Sveins, Gísli.
Þú varst orðinn yfír-
verkstjóri fyrir mörg-
um árum, þegar ég fór að vinna
hjá vesturbæjaraðlinum, _sem nú er
að hverfa. Þeir bræður Ástmundur
og Sveinn voru báðir harðduglegir
menn hvor á sinn hátt og lögðu
jámiðnaðinum lið sem munaði um
og hann býr að enn þann dag í
dag. Um þetta leyti í kringum 1960
vom 60 nemar í Héðni og um 600
starfsmenn á launaskrá. í Stál-
smiðjunni vom 26 nemar og á ann-
að hundrað starfsmenn. Þú fórst
fyrir þessum her járniðnaðarmanna
og aldrei heyrði ég kvartanir eða
nöldur frá mönnum þínum um þig,
því að ég þekkti marga Héðins-
menn. Þú hafðir þetta ljúfa skap
og sveigjanleika og geðslag til að
umgangast háa sem lága. Þið stóð-
uð fyrir smíði og uppsetningu
margra síldarverkmsiðja og frysti-
húsa úti um allt land. Þá var gull-
öld á íslandi, nóg af síld og físki í
sjónum. Þessir tímar koma ekki
aftur.
Við vomm báðir hættir um það
Ieyti sem fór að halla undan fæti
hjá þessum fyrirtælqum. Ég vann
hlutastarf hjá Tryggingastofnun
ríkisins í nokkur ár. Þá kom beiðni
um skábraut á Laugamesveg 57.
Ég fór á staðinn til að taka mál.
Húsráðandi var enginn annar en
þú, Gísli, konan þín komin í hjóla-
stól og þú annaðist hana og auðsjá-
anlega var hún þér ekki síður kær
en Héðinn var þér í gamla daga.
Hef þessi orð ekki fleiri, aðrir
munu bæta um betur sem kunna
betri skil á ætt og störfum. Ég sendi
samúðarkveðjur til bama og ann-
arra ættmanna.
Hvíl þú í friði, Gísli V. Guðlaugs-
son.
Jóhann Indriðason.
Þröstur er óstöðvandi
SKAK
Félagsheimili TR,
Faxafeni 12
HAUSTMÓT TAFL-
FÉLAGS REYKJAVÍKUR
ÞAÐ getur nú fátt komið í veg fyr-
ir sigur Þrastar Þórhallssonar á
Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur.
Hann sigraði Sævar Bjamason al-
þjóðlegan meistara og hefur vinn-
ings forskot á Sigurbjöm Bjöms-
son, ungan og efnilegan Hafnfírð-
ing, sem er óvænt í öðm sæti. Eft-
ir góða byrjun hefur allt farið úr-
skeiðis hjá yngstu keppendunum.
Staðan í A flokki að loknum átta
umferðum er þessi:
1. Þröstur Þórhallsson 7 v.
2. Sigurbjöm Bjömsson 6 v.
3. Sævar Bjamason 5‘A v.
4. Jón Garðar Viðarsson 5 v.
5. -6. Magnús Öm Úlfarsson og
Sigurður Daði Sigfússon 4 'A v.
7. Hrafn Loftsson 4 v.
8. -9. Jón Viktor Gunnarsson og
Arnar Gunnarsson 3 'h v.
10. Krisfján Eðvarðsson 3 v.
Tveir keppenda í A-flokki hafa
hætt í mótinu, svo aðeins era tíu
eftir. Raðað er niður í flokka eftir
stigum. í A-flokki er keppt um pen-
ingaverðlaun og meistaratitil Tafl-
félags Reykjavíkur. Teflt er sunnu-
daga kl. 14, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 19.30. Mótinu lýkur 25.
október næstkomandi
Úrslit í unglingaflokki
Keppni í unglingaflokki lauk á
laugardaginn var. Bergsteinn Ein-
arsson vann allar sínar skákir og
er unglingameistari Taflfélags
Reykjavíkur 1995. Röð efstu
manna:
1. Bergsteinn Einarsson 7 v.
2. Þórir Júlíusson 6 v.
3. Sigurður P. Steindórsson 4 'h v.
4. Ingibjörg E. Birgisdóttir 4 'A v.
5. Sveinn Wilhclmsson 4 v.
6. Atli Jóhann Leósson 4 v.
7. Guðjón Heiðar Valgarðsson 4 v.
8. Egill Guðmundsson 4 v.
9. Harpa Ingólfsdóttir 4 v.
Góður árangur stúlknanna vekur
athygli.
Helgarmót á Húsavík
í tilefni af 70 ára afmæli Taflfé-
lags Húsavíkur og áttræðisafmæli
Hjálmars Theódórssonar, skák-
meistara, verður haldið atskákmót
á Húsavík dagana 27.-29. október
næstkomandi. Sérstaklega er boðið
til mótsins 17 skákmönnum, flest-
um af yngri kynslóðinni og hafa
þeir allt að 2.135 atskákstig. Þar á
meðal er sigursveitin á Olympíu-
móti 16 ára og yngri á Kanaríeyjum
í vor. Við þá etja kappi ungir og
efnilegir skákmenn víðs vegar að
af landinu, bæði drengir og stúlk-
ur. Mótið hefst föstudagskvöldið 27.
október kl. 20.30 og lýkur sunnu-
daginn 29. október kl. 16. í verð-
laun era eignarbikarar. Styrktarað-
ilar eru Húsavíkurbær, Landsbanki
íslands, Kaupfélag Þingeyinga og
Mjólkursamlag KÞ. í fréttatiikynn-
ingu frá Taflfélagi Húsavíkur segir
að tilgangur mótsins sé að vekja
athygli á skák sem valkosti í tóm-
stundastarfi allra aldurshópa af
báðum kynjum. „Áttræður skák-
meistari Húsvíkinga mun fá harða
keppni frá þrettán ára skákdrottn-
ingu að sunnan," segir þar jafn-
framt.
Að mati skákþáttarins verður
örugglega um stórskemmtilegt mót
að ræða. Þeir sem áhuga hafa á
þátttöku geta fengið upplýsingar í
símum 464- 1504 á kvöldin og um
helgar og 464-1245 virka daga, eða
á faxi nr. 464- 2125.
Karpov og Kamsky á kreik
Það er enn allt á huldu um það
hvenær þeir Anatólí Karpov, FIDE
heimsmeistari og Gata Kamsky,
áskorandi hans, heyja einvígi sitt
um FIDE heimsmeistaratitilinn.
Þeir hafa báðir lítið teflt að undan-
fomu, sérstaklega Kamsky. En nú
hafa þeir báðir þegið boð um að
tefla á jólamóti í Groningen í Hol-
landi frá 18.—30. desember næst-
komandi. Aðrir keppendur verða
Hollendingamir Piket og Van Wely,
ungu Rússamir Tivjakov og Svidl-
er, Daninn Curt Hansen, Frakkinn
Joel Lautier, Englendingurinn Ad-
ams, Ivan Sokolov frá Bosníu, og
Ungveijinn Almasi, sem sigraði
óvænt á mótinu í fyrra.
Skáksíðan fær viðurkenningu
Islenska skáksíðan sem Daði Öm
Jónsson hefur sett upp á Intemetinu
eða Alnetinu hefur vakið athygli
erlendra skákáhugamanna sem era
tengdir við netið. Reyndar er um
miklu meira en eina síðu að ræða,
þar er að fínna mjög miklar og al-
hliða upplýsingar um skák á ís-
landi. Síðan er afar vönduð og er
komin á lista yfír bestu síður í
„Chess Space“ eða skákgeimnum
sem er miðstöð skákáhugamanna á
netinu. Þess má geta að frá Chess
Space eru slóðir inn á meira en
1.100 skákstaði víðs vegar um
heim, sem hafa að geyma ótrúlegan
fjölda síðna. Síða Daða er í hópi
22ja sem mælt er sérstaklega með.
Besta leiðin til að kynnast skák
á netinu er að fara inn á síðu Daða
eftir slóðinni:
http://www.vks.is./skak/ . Þar
er margt að sjá og leiðin greið inn
í skákgeiminn og áfram.
Margeir Pétursson
t
Föðurbróðir minn,
ÓLAFUR BENEDIKTSSON
frá Háafelli,
síðar skósmiður,
Bergþórugötu 11a,
lést á vistheimilinu Seljahlíð að morgni mánudagsins 16. október.
Anna Finnsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FINNUR HILMAR
INGIMUNDARSON,
Teigaseli 1,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 18. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Barnaspítala Hringsins.
Bergljót Karlsdóttir,
María Guðrún Finnsdóttir, Bragi Ólafsson,
Ingibjörg Auður Finnsdóttir, Skúli Sigurvaldason,
Sigurlaug Björk Finnsdóttir, Guðmundur Guðbjörnsson,
Finnur Sverrir Magnússon, Helga Guðrún Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
AAGOT VILHJÁLMSSON,
Miðleiti 5,
andaðist að kvöldi 15. október.
Fjölskyldan.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu,
sem sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SIGURLÍNU PÁLSDÓTTUR.
Sérstkar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki lyfjadeildar FSA og
starfsfólki dvalarheimilisins Hlíðar.
Guð blessi ykkur öll.
Oddur Helgason,
Stefán Einarsson,
Stefanfa Einarsdóttir,
Mattý Einarsdóttir,
Hólmfrfður Einarsdóttir,
Unnur Pálsdóttir,
Birna Gunnlaugsdóttir,
Héðinn Þorsteinsson,
Örn Þórsson,
Gfsli Steindórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
ur okkar og tengdamóður,
ÓLAFAR SIGURÐARDÓTTUR,
Grenilundi 2,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar
11-G, Landspítalanum.
Guðmundur Einarsson,
Sigurður Guðmundsson, Hrafnhildur Sævarsdóttir,
Einar G. Guðmundsson, Nicola I. Gerber,
Margrét B. Guðmundsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við fráfall og útför móður
okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR OLGU
STEFÁNSDÓTTUR
frá Hjarðartúni,
Suðurgötu 76,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á
deild 21 a á Landspítalanum og hjá
heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands.
Guðni Þór Ólafsson, Herbjört Pétursdóttir,
Stefán Ólafsson, Ólaffa Þórdfs Gunnarsdóttir,
Sigurður Rúnar Olafsson, Mjöll Gunnarsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR SIGRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR,
Kleppsvegi 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Borgarspítalans, sem annaðist
hana síðustu árin.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhannes G. Þórðarson,
Hulda M. Þórðardóttir, Þorvaldur Þórðarson,
Jóna G. Þórðardóttir, Þorsteinn Eyjólfsson,
Una Jóhannesdóttir Antrim, William Antrim,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
ÓLINU STEINUNNAR
_ ÞÓRÐARDÓTTUR,
Bauganesi 35,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hlíðabæjar, heimahjúkrun og Samúel
J. Samúelssyni, lækni, kærleiksríka
hjúkrun og umönnun.
Sunneva Þrándardóttir, Sunneva B. Hafsteinsdóttir,
Hansína Bjarnadóttir, Kristinn Oddsson,
Rut Kristinsdóttir, Jóhann Björgvinsson,
Hrefna E. Jónsdóttir,
Sæbjörn Jónsson, Valgerður Valtýsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.