Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 21 FRÉTTIR: EVRÓPA Ciller á flokksþingi TANSU Ciller, forsætisráðherra Tyrklands, hóstar eftir að hafa haldið ræðu á flokksþingi í Ank- ara. Gengið verður til kosninga í Tyrklandi í lok desember og er búist við að tengslin við Evrópu- sambandið verði þar ofarlega á baugi. Vonir standa til að tolla- bandalag ESB og Tyrkja gangi í gildi um áramót en þó er ekki útilokað að Evrópuþingið, sem á eftir að staðfesta samninginn, krefjist þess að Tyrkir geri enn róttækari breytingar á löggjöf sinni en þeir hafa gert til að tryggja lýðræði og mannréttindi. Endurskoðunarnefnd ESB Milljörðum sóað árlega Brussel. The Daily Telegraph. MÖRGUM milljörðum króna er sóað innan Evrópusambandsins árlega vegna óstjórnar, slælegs bókhalds, svika og óhóflegar eyðslu. Kemur þetta fram í drögum að ársskýrslu Endurskoðunarnefndar Evrópusam- bandsins í Lúxemborg en skýrslan verður birt í næsta mánuði. Líkt og áður skoða endurskoðend- urnir einungis hluta þeirra verkefna, sem unnin eru á vegum ESB, en í öllum þeim málum sem skoðuð voru fundu þeir töluverða hnökra. Uppkastið er 500 blaðsíður að lengd og þar er ekki að finna lokaá- lyktanir endurskoðendanna. Endur- skoðendurnir, einn frá hverju aðildar- ríki, eru sagðir (þó að það sé ekki nefnt í skýrslunni) miða við að eitt prósent allra útgjalda hverfi í myllu svikara en margir sérfræðingar telja að sú tala kunni jafnvel að vera hærri. Þá eru 10% talin fara í súginn vegna lélegs kostnaðareftirlits og tvíverknaðar. Einn stærsti liðurinn er talinn vera að aðflutningsgjöld séu ekki greidd, með öðrum orðum smygl. Benda endurskoð endurnir á dæmi þar sem tyrknesk sjónvörp voru flutt inn toll- fijálst þó svo að þau væru sett sam- an úr asískum pörtum, er greiða hefði átt tolla af. Alls glötuðust 370 milljónir vegna pessa þar sem að tollayfirvöld aðildarríkjanna sváfu á verðinum. Þá voru 70 þúsund tonn af tæ- lenskum túnfiski skilgreind sem önn-' ur og ódýrari fisktegund, þegar þau voru flutt inn í ESB og báru því lægri toll. Það sama á við um tún- fisk sem fluttur var inn til Bretlands og sagður koma frá Seychelles-eyj- um. Hann bar þar af leiðandi lægri gjöld vegna aðildar Seychelles að samveldinu en reyndist í raun koma frá allt öðrum ríkjum. Skráðum tollsvikum hefur fjölgað úr 33 árið 1988 í 551 í fyrra og töp- uðust 4 milljarðar vegna þessa. Kostnaður vegna ávaxta- og grænmetisstefnu ESB tvöfaldaðist á árunum 1988-1994 og nam í fyrra 120 milljörðum króna. Helmingur útgjaldanna er hins vegar vegna uppkaupa á umframframleiðslu sem að mestu leyti er urðuð. Endurskoðendurnir kvarta yfir því að menn fylgist lítið með markaðs- þróun ekki síst vegna þess að emb- ættismenn einstakra ríkja sjá um skipulagið og þeir hafi ekki hag af því að spara peninga ESB. Allt of algengt sé að það hagsmunaaðilar, þeir sem fái styrkina, hafi jafnframt eftirlit með úthlutun þeirra. Ekki útboð Þrjátíu byggðaverkefni í átta ríkj- um voru einnig skoðuð og einungis eitta þeirra reyndist vera í lagi. í Cantabria á Spáni hafði sú regla að viðhafa útboð verið hunsuð algjör- lega af sveitarstjórnum á staðnum en alls var varið 1,6 milljarði til verk- efna þar. „Verkefnum var úthlutað beint og oft munnlega," segir nefnd- in. Þá gagnrýna endurskoðendurnir að jafnvel þar sem útboðum hafi verið veitt hafi lægstu boðum alls ekki alltaf verið tekið. Þegar lagning hraðbrautar milli Guarena og Alm- endralejo á Spáni var úthlutað til verktaka var fimmtánda lægsta til- boðinu tekið. Stór hluti verkefna sambandsins í austurhluta Evrópu og fyrrum Sov- étríkjunum fær einnig falleinkunn og sá vani að skrifa gagnslausar skýrslur og úttektir er gagnrýndur harðlega. A árunum 1989-1994 voru gerðar 260 úttektir og skýrslur á búlgörsk- um landbúnaði sem kostaði 120 millj- ónir. Einungis ein þeirra leiddi til fjárfestinga. Sukk hjá menningarstofnun Menningarstofnun ESB, sem starfaði í þriðja heiminum frá árinu 1986 til síðasta árs er fé hennar var á þrotum fær harkalegan dóm. Tekið er dæmi af námskeiði er haldið var í Afríkuríkinu Benin. Skýrslu um ráðstefnuna, sem greiddar voru 100 þúsund krónur fyrir, var aldrei skilað og tveir embættismenn fengu greidd- ar 350 þúsund krónur fyrir utan dagpeninga sína án þess að skýring væri gefin á því. Þrír flugmiðar af fjórtán milli Brussel og Benin voru á fyrsta farrými sem samrýmist ekki reglum ESB. 43% af fjárlögum stofn- unarinnar fóru í stjórnunarkostnað. Meira að segja framkvæmda- stjómin er gagnrýnd fyrir að hafa litla hugmynd um hvað hún á og hvar eigurnar séu. Upplýsingar um 450 þúsund lausamuni (húsgögn, tölvur, bílar) eru sagðar ófullnægj- andi. Þá er gerð athugasemd við að þegar Berlaymont-byggingin í Brussel var rýmd hafi munir fyrir 14 milljónir króna horfið. Leíkur nr. 21 í Lengjunni: ísland - Rússland Lægsti stuðullinn táknar líklegustu íirslitin Lægsti stuðullinn 1,60 táknar líklegustu úrslitin. En þú getur valið að tippa á ólíklegri úrslit (ísland vinnur! Eða ja&itefli) og hækkað þannig upphæð vinningsins sem þú færð ef spá þín reynist rétt! STUÐLAR 20 Mið. 1/11 19:00 Ferencvaros - Real Madrid 4,25 3,10 1,45 Knatt 21 Mið. 1/11 20:00 ísland - Rússland 2.25 5.60 1.60 Hand 22 Fim. 2/11 18:30 Club Brugge - Real Zaragoarr—r,b6 2,y^3j3?fc*Xnatt Þú velur hvaða úrslitum þú spáir í þessum leik. Stuðlarnir sýna möguleikann á hverjum úrshtum (1, X eða 2) á tölfræðilegan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.