Morgunblaðið - 19.12.1995, Side 24

Morgunblaðið - 19.12.1995, Side 24
24 ÞRIÐJUÐAGUR 19. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Jafnaðarmenn vinna yfirburðasigur í þingkosningumim í Austurríki Kjósendur sagðir hafna liægrisljórn Vín. Reuter. Reuter WOLFGANG Schiissel, utanríkisráðherra Austurríkis og leiðtogi Þjóðarflokksins (t.h.), ræðir við Franz Vranitzky, kanslara og leiðtoga jafnaðarmanna, eftir kosningarnar á sunnudag. Upptaka af morði Rabins seld ÍSRAELSKA sjónvarpsstöðin Stöð-2 og dagblaðið Yedioth Ahronoth keyptu í gær mynd- bandsupptöku áhugaljós- myndara af morðinu á Yitzhak Rabin forsætisráðherra 4. nóv- ember sl. fyrir jafnvirði 400.000 dollara eða 26 millj- ónir króna. Verður það sýnt opinberlega í þessari viku. í gær fengu sex af æðstu mönn- um ísraelsku leyniþjónustunn- ar, Shin Bet, áminningarbréf þar sem varúðarráðstafanir á morðstaðnum brugðust. Áminningin jafngildir uppsögn og þykir rýra orðstír þjón- ustunnar mjög. Sættir í au g- sýn hjá PLO og Hamas? FORMLEGAR sáttatilraunir Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) og Hamas-sam- takanna hófust í Kairó í gær. Fyrir fundinum lágu drög að samkomulagi í 16 liðum um sambúð samtakanna í framtíð- inni. Vonast er til að sættir takist fyrir kosningarnar á_ yfírráðasvæðum Palestínu- manna 20. janúar. Af hálfu PLO er þó forsenda þess sú að Hamas lýsi hryðjuverka- hernaði á hendur Israelum formlega lokið. Gonzalez í þingframboð FELIPE Gonzalez forsætis- ráðherra Spánar hefur afráðið að leiða bar- áttu Jafnað- armanna- flokks Spán- ar í þing- kosningunum í mars næst- komandi. Fram- kvæmdas- tjóm flokks- Gonzalez ins skoraði einróma á hann að fara fram og búist er við að flokksstjórnin staðfesti hana síðar í vikunni. JAFNAÐARMENN unnu sigur í þingkosningunum í Austurríki á sunnudag og leiðtogi þeirra, Franz Vranitzky kanslari, sagði ljóst að austurrískir kjósendur hefðu hafnað þeim möguleika að mynduð yrði hægristjórn sem stefndi að miklum sparnaði í velferðarkerfinu. Úrslitin eru áfall fyrir Frelsisflokkinn, sem tapaði fylgi í fyrsta sinn frá því Jörg Haider varð leiðtogi hans árið 1986. Jafnaðarmenn fengu 38,3% at- kvæðanna, sem er mesta kjörfylgi þeirra frá kosningunum árið 1990, en þeir fengu 34,9% atkvæða í síð- ustu þingkosningum í október í fyrra. Flokkurinn bætti við sig sjö þingsæt- um, er með 72 þingmenn af 183. Þjóðarflokkurinn, sem er mið- og hægriflokkur og hefur verið í stjórn með jafnaðarmönnum í níu ár, jók fylgi sitt örlítið, fékk 28,3% at- kvæða, og bætti við sig einu þing- sæti. Fylgi Frelsisflokksins, sem lof- aði m.a. að vísa ólöglegum innflytj- endum úr landi, minnkaði úr 22,5% í 22,08% og flokkurinn tapaði einu þingsæti. Jörg Haider sagði eftir að úrslitin lágu fyrir að kosningarnar sýndu að velgengni Frelsisflokksins í fyrra SAMGONGUR í París eru að kom- ast í eðlilegt horf en fjöldi neðanjarð- arlesta og járnbrauta tók í gær til starfa að nýju eftir þriggja vikna verkfall. Jámbrautarstarfsmenn í París samþykktu um helgina að snúa aftur til vinnu en í Suður-Frakklandi stendur verkfall enn. Marc Blondel, leiðtogi verkalýðssamtakanna Force Ouvriere, sagði í gær um „vopnahlé" að ræða og að barátta verkalýðsfé- laganna gegn óvinsælum sparnaða- raðgerðum ríkisstjómarinnar myndi halda áfram. Hefur verið boðað til mótmælaaðgerða í dag. Þar verður í fararbroddi CGT, sem er róttækust stóru verkalýðshreyf- inganna. Varaði aðalritari hennar, Louis Viannet, við því að bæri fund- ur ráðherra í stjórn Alains Juppés forsætisráðherra með forystumönn- um launþega og fulltrúum iðnaðar- ins ekki ávöxt, myndu mótmælaað- gerðir blossa upp að nýju í janúar. fælist ekki í óánægjufylgi. „Við erum í góðri aðstöðu til að sækja fram í næstu kosningum," sagði Haider, sem kvaðst fyrir kosningarnar stefna að því að verða kanslari innan tveggja ára. „Okkur gekk vel þrátt fyrir hræðsluáróður hinna flokk- anna.“ Sama stj órnarmynstri spáð Þjóðarflokkurinn og Frelsisflokk- urinn gætu myndað meirihlutastjórn en fréttaskýrendur telja nánast ör- uggt að jafnaðarmenn myndi næstu stjórn með Þjóðarflokknum þótt lík- legt sé að stjómarmyndunarviðræð- urnar dragist fram í febrúar. Leið- togar beggja flokkanna hafa léð máls á stjórnarsamstarfi en viður- kennt að viðræðurnar verði mjög erfiðar. Þjóðarflokkurinn sleit stjórnar- samstarfmu við jafnaðarmenn í október vegna deilu um hversu langt ætti að ganga í sparnaði í velferðar- kerfinu. Jafnaðarmenn höfnuðu til- lögum Þjóðarflokksins um viðamikl- ar sparnaðaraðgerðir en vildu hækka skatta til áð minnka fjárlagahallann, sem er um 5% af vergri landsfram- leiðslu. Vranitzky sagði kosningarn- Allar leiðir neðanjarðarlestanna í París komust í gagnið í gær en margar aðeins að hluta til. Verða ferðir ókeypis þar til áætlunarferðir eru komnar í eðlilegt horf. Þeir sem notuðu lestir og strætis- vagna gátu breitt úr sér í gær þar sem almenningur virtist ekki hafa áttað sig á því að ferðir væru hafn- ar að nýju. í gær höfðu 300 af 365 félögum lestarstarfsmanna ákveðið að snúa til vinnu. Lestir milli borga gengu að tveimur þriðjuhlutum nema sunn- antil í Frakklandi þar sem lest- arstarfsmenn héldu verkfalli áfram. ar sýna að kjósendur vildu ekki rót- tækar breytingar á velferðarkerfinu. Fjármálamenn sögðu aukið fylgi jafnaðarmanna slæmt fyrir fj'ár- málamarkaðina. Ljóst væri að erfið- lega myndi ganga að minnka fjár- Iagahallann og aðild Austurríkis að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu (EMU) væri í hættu. Smáflokkarnir tapa Þjóðarflokkurinn stóð vel að vígi samkvæmt skoðanakönnunum áður en stjórnin sprakk og jafnaðarmenn sökuðu Wolfgang Schussel, utanrík- isráðherra og leiðtoga flokksins, um að hafa slitið samstarfinu vegna valdagræðgi. Schusse! hafði vonað að Þjóðarflokkurinn yrði öflugri á Síðdegis í gær fór hraðlest frá París og Lyon og sömuleiðis Eurostar- hraðlestin um Ermasundsgöngin á milli Lundúna og Parísar. Tæplega 600.000 manns tóku þátt í mótmælagöngum víðs vegar um Frakkland á laugardag. Er ljóst að vonir verkfallsmanna um virkan stuðning einkageirans brugðust. Samt geta þeir með sanni sagt að áfangasigur sé unninn. Juppé hefur á einni viku skipt úr ósveigjanlegum gír, segir nú að áætlun sín um breyt- ingar á heilbrigðis- og trygginga- kerfi verði til umræðu næsta hálfa árið. „Mjúka aðferðin" er þetta kall- þingi en jafnaðarmenn. „Ég viður- kenni að ég náði ekki markmiðum mínum í kosningunum," sagði Schiissel á sunnudagskvöld. „Eg varð fyrir vonbrigðum." Flokkur græningja tapaði mestu í kosningunum, fékk aðeins 4,6% atkvæðanna (var með 7,3%) og tap- aði fimm þingsætum. Madeleine Petrovic, leiðtogi flokksins, bauðst til að segja af sér. Fijálslyndur vettvangur tapaði einnig fylgi, fékk 5,9% en var með 5,3%, og tapaði tveimur þingsætum. Kjörsóknin var mikil, rúm 82%, þótt óánægju gætti meðal Austurrík- ismanna með að efnt skyldi vera til kosninga aðeins 14 mánuðum frá síðustu kosningum. að og fundur fimmtudagsins markar upphaf viðræðnanna. „Fjölskyldudeilur" Juppé hét því á sunnudag að fyrir- hugaðar skattahækkanir yrðu þær síðustu sem stjórnin stæði fyrir og að hann myndi leggja til aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi og auka hagvöxt í viðræðum sem hann hefur heitið verkfallsmönnum. í sjónarps- viðtali á sunnudag sagði Juppé nauð- synlegt að „fá jákvæða útkomu úr öllu þessu“ og líkti verkföllunum við íj'ölskyldudeilur Þrátt fyrir alla erfiðleikana sem verkfalli fylgdu, á almenningur í Frakklandi vafalítið eftir að sakna andrúmslofts síðustu þriggja vikna, ókunnugt fólk varð vingjarnlegt og opið og aðstæður breyttu samanbitn- um stórborgardýrum í öriátt og for- vitið fólk. Fjölmiðlar segja að nú setji fólk aftur upp fýlusvipinn, mannlega tímabilinu sé lokið. París. Morgunblaðið. Reuter. Lestarsamgöngur í París að komast í eðlilegt horf að nýju Vopnahlé segja verkfallsmenn Pall Oskar rekur ferilinn og Kós BORC3ARLEIKHUSTONLEIKAR I KVOLO flytjailög, af plötunni KOSY JOL Miðaverd kr. 1000,- \sala í síma 568 8000. Dreifing JAPISS MÆDD VERÐA ÞAU ER MISSA AF!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.