Morgunblaðið - 19.12.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 33
Englar í
Hafnarfirði
MYNPLIST
Listhús 39 / Hafn-
a rbo rg
GRAFÍK, HÖGGMYNDIR
O.FL. / SILFUR- OG
GULLSMÍÐI
Samsýning/Samsýning. Listhús 39:
Opið virka daga kl. 10-18, laugard.
kl. 12-18, sunnud. kl. 14-18 til 31.
des. Hafnarborg: Opið kl. 12-18 alla
daga nema þriðjud. til 23. des. Að-
gangur ókeypis.
Á TVEIMUR sýningum í
Hafnarfirði í þessum mánuði er
jafnvægið nokkuð annað en venju-
lega; smærri staðurinn er nú öllu
léttari og líflegri, en í hinum stærri
einhæfari og jafnvel þyngri sýning
í boði.
Englar og erótík
Listhúsi 39 við Strandgötuna í
Hafnarfirði hefur smám saman
vaxið fiskur um hrygg frá því þar
var opnað lítið sýningarrými í einu
herbergi inn af sölugalleríi, sem
breiður hópur listafólks í bænum
stendur að. Sýningar þar hafa ver-
ið misjafnar að gæðum, en yfirleitt
LISTIR
átt það sameiginlegt að vera
miðaðar við rýmið, sem þrátt fyrir
smæðina hefur ýmsa kosti.
Þetta kemur sterkt fram í þess-
ari samsýningu, sem er að nokkru
helguð árstíðinni og ber yfirskrift-
ina „Englar og erótík", en þarna
eiga þrettán aðstandendur staðar-
ins rúmlega tuttugu verk, sem
þrátt fyrir allt komast hér vel fyr-
ir og njóta sín vel í ferskum og
nýmáluðum salnum.
Sýningarheitið býður upp á
nokkra tvíræðni, sem þó er á eng-
an hátt yfirdrifin; framar öllu er
um að ræða léttleika í verkunum,
þar sem listafólkið fléttar saman
ólíkum minnum til að skapa
skemmtilega heild. Þannig er tilvís-
unin í eitt þekktasta ástarsamband
aldarinnar í verki Susönnu Christ-
ensen fallega fram sett (nr. 5), sem
og hinar formlegu ábendingar í
ástarílátum Elínar Guðmundsdótt-
ur (nr. 9-10); englar Guðnýjar
Hafsteinsdóttur (nr. 16-17) eru
ögn djarfari, og skemmtilega hugs-
aðir.
Tilveran getur oft verið kímin,
og það nýta sumir sér í verkunum
hér. Málverk Hjördísar Frímann
(nr. 8) er galsafengið og fjörugt,
og svipað má segja um svífandi
tilvísanir Auðar Vésteinsdóttur;
innileikinn í hólkum Sigríðar Erlu
(nr. 23) tekur þó af allan vafa um
að ástin er einkamál, sem vert er
að varðveita.
Loks kallast höggmyndir Einars
Más Guðvarðarsonar og Péturs
Bjarnasonar á í rýminu með hug-
ljúfum formum, þrátt fyrir mikil-
fenglegar. efnivið, og loka með
vissum hætti þeim hring, sem sýn-
ingin markar.
Hér er á ferðinni falleg sýning
sem er vel þess virði að líta inn
á, um leið og framkvæmdin er öll-
um aðstandendum hennar til sóma.
Silfur og gull
Það er öllu þyngra yfir aðalsal
Hafnarborgar, þar sem gullsmið-
irnir Sigríður Sigurðardóttir og
Timo Salsola hafa sett upp sýningu
á verkum sínum, og boðið fyrrum
skólabróður, Hannu Tuomala að
sýna með sér.
Þau Sigríður og Timo sýndu með
hópi gullsmiða í anddyri Norræna
hússins sumarið 1994, og var þar
um mjög fallega sýningu að ræða,
þar sem verk þeirra nutu sín afar
vel. Hér er einhverra hluta vegna
ekki jafn létt yfir heildinni; skart-
gripir þeirra virka á stundum of-
hlaðnir steinum og skreytingum,
en í bestu tilvikum tilvikum skapar
einfaldari skreyting mun betri
heildarsvip, eins og í setti gripa
nr. 14.
Margir gripa þeirra Sigríðar og
Timos eru engu að síður hinir eigu-
legustu, en njóta sín e.t.v. betur á
ljósmyndum en í kössum sýningar-
innar.
í raun fá verk Hannu Tuomala
heiðurssæti í salnum, en standa
illa undir því. Sveigðir vasarnir úr
sléttu silfri minna um sumt á
blómamyndir Georgiu O’Keeffe, en
eins konar kaffikönnustútar
skemma þá ímynd á allt of mörgum
þeirra; uppsetningin er hrá og
kuldaleg, og heildarsvipurinn
fremur fráhrindandi en hitt.
I Sverrissal eru uppi verk úr
eigu Hafnarborgar, og ber þar
einkum að nefna gjafir Eiríks
Smith til stofnunarinnar; vatnslita-
myndir hans eru alltaf ríkulegur
vettvangur listarinnar, og reynast
hér í einfaldleik sínum mun eftir-
minnilegri en þeir eðalmálmar sem
fylla aðalsalinn á efri hæð.
Eiríkur Þorláksson
* NAUTALUND CARPAGCIO MET)
SOYARlSTAÐRi HÖRPUSKEL
OG ENGIEER VINAIGRÉTTE.
* HEITT KJÚKLINGASÉYÐI MEÐ
TRUFFLU PASTAKNÖLLUM.
aGÆSALIFRARMÚSOG.
GRAFIÐ HREINDÝR.
P" m
■ 'T'-.rY'*+ ' i
- »<*" i
+ NÁUTALUND CARPÁCCIO MEÐ
SOYARISTAÐRl HÖRPUSKEL
OG engieervinajgrette.
* hIjmarmousselinemeð
KÖNGASVEI’f’UM
OG D.JÚPSTEIKTUM BLAÐLAUK
* HUMAR MOUSSÉLlNE MEÐ
KÓNGASVEPPUM OG
DJÚPSTEIKTÚM BLAÐLAUK
VILLIÖND MEÐ BALSAMICSÖSU.
SÆTUM RÖSTY,
FENNEL OG FÍKJUM.
* VILLIÖND MEÐ BALSAMICSÓSU.
SÆTUM RÖSTY, FENNELOG FÍKJUM.
* GEITAOSTUR í KRYDDHJÚPÁ SAIATI.
'Jf ■
‘ SÚKKULAÐIFANTASÍA,__£
7.000 KR.
SÚKKULAÐIFANTASÍA.
5.000 KR.
ÁFUSTÓTCLES
Tónlistarjólagjöýln í árfyrir
unnentlur klassiskrar tónlistar
Tónlistargagnrýni,
Oddur Bjömsson, Morgunblaðið
„Eva Mjöll spilar af innlifun og stil.
Ég mœli eindregið með þessum hljómdiski. “
Útgcfandl
HHIMSTÓNN
Dreifing
Siðfræði
Níkomakkosar
Siðfræði Níkomakkosar
eflir Aristdteles
OMP/
íslensk þýðing eftir Svavar Hrafn Svavarsson
sem einnig ritar inngang og skýringar.
Ritstjóri: Þorsteinn Hilmarsson.
Siðfrœði Níkomakkvsar er eitt merkasta rit Aristótelesar.
í ritinu spyr hann þriggja meginspuminga um mannlega breytni.
Þeirra hefur sjaldan verið spurt af meiri ákafa en um þessar mundir.
Spurt er hvað sé hamingja og hvemig manneskjan
verði hamingjusöm. Það leiðir til spumingar um mannlega breytni:
Hvers vegna er góð breytni einhvers virði og hvers virði er hún?
Loks er spurt hvers konar siðgerð búi að baki góðri breytni.
Þannig er dyggðin kynnt til sögunnar og útskýrt hvemig dyggðug
siðgerð mótar athafnir okkar og hamingjuna sjálfa; því er spurt hvað
aðskilji vitrænar dyggðir og siðrænar, hverjar séu siðrænar dyggðir
og hvemig megi lýsa hófsemi og hugrekki, veglyndi og réttlæti.
Fyrir ritinu er ítarlegur inngangur um ævi, ritverk og kenningar
Aristótelesar, skýringarkaflar em við hvem hluta verksins,
neðanmálsgreinar og atriðisorðaskrá.
Siðfræði Níkomakkosar er alls 666 síður í tveimur bindum
í fallegri öskju. Ritið er 32. ritið í flokki
Lærdómsrita Bókmenntafélagsins.
Vakin er sérstök athygli á eftirtöldum Lærdómsritum:
Saga tímans, Um vináttuna, Manngerðir
og Handan góðs og ills.
1:25
HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉIAG
SÍÐUMÚLA 21 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 588 9060 • FAX 588 9095
Blab allra landsmanna!