Morgunblaðið - 19.12.1995, Page 63

Morgunblaðið - 19.12.1995, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 63 Frá Katrínu Júlíu Mixa: MIG langar til að lýsa skoðun minni á borgaralegri fermingu. Að vísu er ég bara fimmtán ára grunnskóla- kríli og þar fyrir utan fermd í kirkju. Ég er bara með svo miklar vangaveltur og skoðanir að ég má til með að segja svolítið frá mér. Mér finnst ég líka geta haft töluvert að segja um jafnmerki- legt fyrirbæri sem bæði kirkju- leg og borgaraleg ferming nú er, einkum vegna þess að í dag snerta þær lítið yngra fólk en mig. Mikið rétt, hér í þessu kristna samfélagi snertir fermingin aðal- lega 13-14 ára fólk, auk fjölskyldna þeirra. Hveijum finnst það ekki vera alltof lágur aldur? Allavega mér og flestum þeim sem ég hef rætt við. Mig langar til að undir- strika skoðun mína um hækkun fermingaraldursins með lítilli reynslusögu frá sjálfri mér á tíma fermingarundirbúningsins: Efinn læddist að Þegar ég, þrettán ára gömul, fór að velta trúmálum fyrir mér, var ég nýbyijuð í mínum kiHg'ulega fermingarundirbúningi. Ég fór skyndilega að efast um margar kennisetningar og staðhæfingar úr Biblíunni, sem ég í einlægni minni hafði trúað á. Þessi skyndilega við- horfsbreyting átti sér samt engar rætur að rekja til nokkurs varðandi fermingarundirbúninginn, heldur var það ómerkilegt atvik í lífi mínu sem gjörbreytti mér svo ég hugsaði vart um annað en trúmál. Það má alveg fullyrða að ég var sokkin nið- ur í djúpt þunglyndi. Ekki nóg með það, ég fermdist mitt í því ástandi. Katrín Júlía Mixa ________BRÉF TIL BLAÐSINS_ Borgaralega eða kirkju- lega - þarna er efinn Ekki sökum skilningsleysis annarra í minn garð, heldur vegna þess að ég gat ekki komið á framfæri minni nýju og ómótuðu trúarhugmynd. Nú í dag væri ég tilbúin til að ferm- ast, einkum vegna þess að ég er með skýrari hugmyndir og vanga- veltur um trúna og er sáttari við kirkjuna, sjálfa mig og kristnina. En hveijum má ég eiginlega þakka það? Boðskapur Kristindómsins eru fallegustu trúarbrögðin, einkum þó náungakærleikurinn. Það að gjalda illt með góðu, fyrifgefa og gefa fólki tækifæri til að bæta sig, koma heiðarlega fram við alla og ávinna sér þar af leiðandi traust fólks, tel ég vera eftirsóknarverðast. Ekki það að ég haldi að það muni hjálpa fólki í einhveiju næsta lífi eða að þá verði því umbunað á einhvern annan hátt. Heldur er það traustið sem maður ávinnur sér hjá öðrum í þessu lífi sem gildir, fyrir mér. Er það ekki tiltölulega kristilegt? Ekki sátt við trúboðið Ég vil að^fólki sé það fyllilega ljóst að ég er ekki að taka afstöðu gegn þessum fallegu trúarbrögðum. Eg trúi á boðskap Biblíunnar en ekki atvikin sem slík og ég er ánægð með þá trú. Ég er samt ekki sátt við hvernig trúin er boðuð. Sagt er að með fermingunni sé maður kom- inn í fullorðinna manna tölu. Við íslendingar erum nú betur upplýst og menntuð en það að okkur eigi að vera kennt að lífið endi bara á tvo vegu, annaðhvort í Helvíti eða Himnaríki, og markist það í raun bara af mismunandi viðhorfi fólks til lífsins. Ekki á að taka minnsta tillit til hvernig aðstæður og upp- eldi hafa mótað fólk eins og það er, né heldur reynslu eða meðfæddr- ar greindar. Rétt eins og þessar efasemdir mínar um annað líf eftir þetta sem mótist af lífi okkar nú, hef ég ekki trú á að við, þessi „tor- tryggnu", hljótum einhveija refs- ingu fyrir vangaveltur sem þessar um guð (sem ég kýs að skrifa með litlu g-i) Falskir lygalaupar? Eins og gera má ráð fyrir úr þessu hefði ég fyrir mitt leyti kosið að fermast borgaralega. Hefði ég getað verið hlutlaus og haldið kirkj- unni í hæfilegri fjarlægð frá mér, hefði ég ekki þurft að ganga í gegn- um svona mikla tilfinningalega erf- iðleika. Ég teldi mig engu að síður kristna, sem ég er svo sannarlega. Ég hefði bara ekki orðið falskur lygalaupur og verið fermd fyrir það eitt að segja ,já“ og þylja upp ritn- ingarversið mitt, að undirbúningn- um undanskiidum (sem ég er ekki að smána). En eins og ég segi, ég lái það engum að ég skuli hafa fermst með þessum hætti. Nema þá helst allt of gamalli hefð og e.t.v. minni vangetu til að skilgreina eig- ið ástand. Þar sem við lifum í kristnu sam- félagi er það skiljanlegt að fólk sé hrætt við þá hugmynd að með leng- ingu fermingaraldursins yrðu e.t.v. fleiri borgaralega fermdir. Jú, mikið rétt, fólk öðlast meira frelsi og þroska með aldrinum. Ég tel á móti að þá gætu fleiri tekið betri afstöðu til þjóðartrúar okkar sem, guði sé lof, er mjög fijálsleg. Ég miðla hér út frá eigin reynslu. 13-14 ára krakkar eru lítið sem ekkert búnir að læra um önnur trúarbrögð og hafa varia mikið val nema þau hafi búið við efasemdir og/eða rök- ræður heima fyrir. Borgaraleg ferining lausnin Elbert einhver Hobbart samdi uppáhalds spakmæli mitt sem á m.a. vel við í þessu tilfelli: „Þekki maður aðeins eina trú, þá þekkir maður hana ekki.“ Þessu er ég svo innilega sammála og ég hef sjálf lifað við slíkar hugsanir og viðhorf. Fleiri upplýsingar um þennan mann þægi ég með þökkum, en það er reyndar önnur saga. Niðurstaðan eftir þetta er að borgaraleg ferming hefði verið al- veg tilvalin fýrir merkikerti eins og mig! Einnig að nauðsynlegt er að hækka fermingaraldurinn svo meiri skilningur sé hafður á athöfninni. Þá finnst mér líka að kennslan mætti vera raunsærri. Allavega trúi ég því ekki að t.d. sköpunarsagan sé sönn, en það er e.t.v. visst sann- leikskorn í henni. Er það ekki nokk- uð sanngjarnt að leggja til að Bibl- ían sé í meginatriðum kennd sem dæmisaga og að boðskapnum sé komið á framfæri, en ekki að hlut- irnir hafi gerst alveg eins og Biblían kennir? Unglingar oft á báðum áttum Sannið til, ég er guði sé lof ekk- ert alveg sérstakt tilfelli. Ég veit um fullt af jafnöldrum sem eru í eins hugleiðingum. Ég er að reyna að koma því fram á skynsamlegan hátt að undirstaðan fyrir heilbrigð- um, þroskandi og óheftum vanga- veltum gæti stundum verið borg- araleg ferming, að þeirri kirkjulegu ólastaðri í aðalatriðum. Ef fólk er sátt við að fermast kirkjulega eftir vandlegar vanga- veltur finnst mér síður en svo eitt- hvað athugavert við það. Þið megið alls ekki telja mig vera einhveija ofsatrúarmanneskju í fijálsri trú! Fólk sem er komið í framhaldsskóla myndi síður fermast trúlaust, en það er mjög þekkt viðhorf hjá grunnskólafólkinu. Það á líka vel við að fresta fermingunni um tvö til þrjú ár í allri umræðunni um að hækka sjálfræðisaldurinn. Með þessu vona ég að ég hafi ekki hneykslað neinn með skoðun- um og tillögum mínum. Ég er ekki að smána núverandi fermingarbörn. Ég er þvert á móti að miðla af eig- in reynslu. Megi komandi ferming- arbörnum ganga allt í haginn sem og fjölskyldum þeirra í merkilegum undirbúningi. Gleðileg jól. KATRÍN JÚLÍA MIXA, nemandi í 10. bekk, Bjarmalandi 20, Reykjavík. Mas® flísar — V f #. - 411 JF é Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 i_andsbanki Islands Banki allra landsmanna JAPIS8 Póst giro MIÐAVERÐ 789 KR. 789 VIIUIUiniGAR ts® Ágæti bifreiðaeigandi! „Látum Ijós okkar skína" er landsátak skátahreyfingarinnartil þess að stulða að bættri umferðarmenningu. Öll sex ára börn fá að gjöf veglegan endurskinsborða, sem þau geta borið yfir öxlina. Sömuleiðir sendum við fjölskyldum sex ára barna ítalegt rit sem fjallar um allar helstu hættur sem börn þurfa sérstaklega að varast í umferðinni, ekki síst í skammdeginu. Tryggjum öryggi barna í umferðinni. Til styrktar átakinu höfum við ákveðið að leita til bifreiða- eigenda með útgáfu á happdrættismiðum þar sem höfðað er til bílnúmers yðar, og hefur hvert bílnúmer sitt ákveðna lukkunúmer. Lukkunúmer þetta getur fært yður veglegan vinning. Með þátttöku og stuðningi yðar getur það leitt til fækkunar slysa á börnum í umferðinni. Það er vinningurinn sem við sækumst öll eftir. Ágæti bifreiðaeigandi, sýnið varúð í akstri. Skólar hafa byrjað starfsemi sína og ungir vegfarendur eru á ferð í rökkri. Endurskinsborði er einfalt öryggistæki, hjálpið okkur að láta Ijós barnanna skína. Landsátak um velferð barna í umferðinni! kr./ m.a 16.962.00 Heildarverðmæti vinning BMW 520Í/A, 2,0 I DOHC 24 ventla - 6 strokka, 150 DIN hestöfl. ABS hemlakerfi, hraðatengt vökvastýri, innbyggð þjónustutölva, fjarstýrðar samlæsingar, 5 þrepa sjálfskipting m/tölvuvali, rafdrifnar rúður, hiti í sætum og ýmis annar lúxus aukabúðnaður, 40 skíðapakkar frá Skátabúðinni, 20 pakkar frá Japis, 20 myndbandstæki frá Japis, 20 ferðavinningar frá Samvinnuferðum - Landsýn o.m.fl. - Allir vinningarnir eru skattfrjálsir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.